Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Page 15
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
15
dv_____________________Lesendur
Framtíð íslenskunnar:
Enska, esperanto
eða lærdómsmál?
TIL SOLU
ER ALLT SEM ÞARF í GRILL,
s.s. kjúklingadjúpsteikingarpottur, hitaskápur fyrir
kjúklinga eða annað, 3 djúpsteikingarpottar, kæli-
skápur, 3 frystikistur, loftræstiháfur, kartöfluhitari og
steikingarpanna og annað sem þarf til grillreksturs.
Góð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 96-26866 eftir kl. 4 og 96-2491 3.
Tómas skrifar:
Enginn hefur komist hjá aö heyra
af áhyggjum manna um afdrif ís-
lenskunnar og er það svo sem ekki
í fyrsta skipti sem viö spáum þessu
einangraða og lítt þekkta tungumáli
hnighun og jafnvel endalokum.
Ég held aö hvorugt gangi eftir.
Tungumál þjóöar deyr ekki út meðan
það er notaö sem samskiptatæki, aö
ekki sé nú talað um í ræðu og riti
eins og hér er gert. Sums staðar er
tungumálið bara til í talmáli, eins og
t.d. í Luxemburg og eru samt engin
merki um að hinu talaða máh þar
sé nein hætta búin. Og hvað myndum
við íslendingar segja ef slíkur
straumur ferðamanna og annarra
útlendinga væri hér sem í Luxem-
burg?
Sannleikurinn er sá að íslenskunni
er engin hætta búin, nema þá
kannski helst af fanatískum ís-
lenskufræðingum sem sjá skrattann
málaðan á alla veggi. Þótt krakkar
og unglingar noti erlend orð og orð-
tök á unglingsárum og gelgjuskeiði
er það nokkuð sem fylgir þessu ald-
ursskeiði, að slá um sig með ofnotk-
un orða og upphrópunum hvers
konar, en það á ekkert skylt við það
að mál okkar sé að líða undir lok eða
því sé hætta búin.
Á stríðsárunum hefði mátt ætla að
hér hefði verið mikið í húfi vegna
samskipta við hina engilsaxnesku
gistivini. Engin veruleg skemmd
komst í málið á þessum tíma. Enginn
talar um ýmis smáorð sem hafa loðað
við og eru meira og minna tekin gild
Cock Robin á sviðinu.
Cock Robin:
llla
staðið
að verki
Ingimar Andrésson hringdi:
Eg verð að láta í ljósi óánægju
mína á því hvernig staðið var að
tónleikum Cocks Robin sl. sunnu-
dag í Reiðhöllinni. Flest var með
endemum. Reiðhölhn sjálf virðist
vera mjög vanbúin til tónleika-
halds að mörgu leyti. Þarna lak t.d.
vatn á hljómsveit og áheyrendur!
Mér fannst einnig að þessa tón-
leika hefði alveg eins mátt flokka
undir skemmtun með Sohd Silver
og Grafík eins og Cock Robin, því
að síðasttalda hljómsveitin lék ekki
nema svo sem í eina og hálfa
klukkustund. Hinar hljómsveitirn-
ar voru á sviðinu meirihluta
tímans.
Auglýstur tími tónleikanna var
frá kl. 14:30 til 19:00 en voru í raun
ekki nema frá kl. um 16:00 til 19:00.
Þar af var Cock Robin aðeins á
sviðinu um einn og hálfan tíma
eins og áður sagði. Það var nú allt
ogsumt!
Ég skora á framkvæmdastjórn
Split, sem sér um tónleikahaldið,
að standa betur að næstu tónleik-
um ef einhveijir verða. Þessir
síðustu voru ekki til fyrirmyndar.
sem upphrópanir á borð viö aðrar
lítið skárri af íslenskum toga, sbr.
„ókei“!
Og staðreynd er það að fáir sletta
meira erlendum orðum en einmitt
þeir sem hafa th þess menntunina
að vera færir um að gæta að sér og
gefa góð fordæmi. En víkjum nú að
öðru.
Hér í eina tíð voru nokkrir heittrú-
aðir íslendingar sem trúðu því statt
og stöðugt að í uppsiglingu væri nýtt
heimsmál, esperanto. Það gæti sem
best og ætti raunar að koma í stað
ahra annarra tungumála. Hér á landi
voru það einkum vinstri menn, í þá
daga kallaðir kommúnistar og svo
rithöfundar af vinstri kantinum, sem
börðust fyrir framgangi málsins.
í dag er hópur manna af sömu
„kynskvísl", þ.e. miklir vinstri menn
og félagshyggjufólk, sem veit ekkert
voðalegra en að enskan nái tökum
vítt og breitt um heiminn! Hvað er
nú orðið af hugsjóninni um að ahar
þjóðir tali sama tungumálið? Er nú
ekki lengur þörf á sameiningu ólíkra
tungumála?
Ég hef ekki minnstu áhyggjur af
upplausn íslenskunnar eða innhmun
í eitthvert annaö tungumál. Tungu-
málið er jafn sterkt þjóðinni sem
landið byggir. Ef tungumálinu hrak-
ar er þaö vegna þess að þjóðinni
hefur hrakað. Ég sé engin slík ein-
kenni.
Eina hættan er sú að fanatískir ís-
lenskufræðingar og öfgafullir þjóð-
ernissinnar geri málinu það ógagn
að koma því inn hjá fólki að flestir
tali og riti slæmt mál, þannig að fáir
þori að tjá sig nema á ensku! - Þá
gæti komið að því að íslenskan end-
aði sem mál fárra útvaldra mennta-
manna og fengi þann sess að vera
álitin eins konar lærdómsmál, líkt
og litið er á latínu og grísku hjá okk-
ur í dag.
ALMENN UMSLÖG
OG RÖNTGENUMSLÖG
Tilboð óskast í almenn umslög og röntgenumslög
fyrir Innkaupanefnd sjúkrastofnana og fleiri ríkis-
stofnanir.
Tilboðin verða opnuð föstudaginn 8. jan. 1 988 í við-
urvist viðstaddra bjóðenda.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, Reykjavík.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
_______BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
DÆMI UM ÆFINGAR
ÆFING 1
Þixtsi ft*finn er fyrir mnftnvódva or stuðlar
uð mjóu mitti. Setjist á sætið n trimmtæk-
inu, leggið fftHurno urulir |>verslán;t, he/vtlur
spenntar aftur fyrir hnakka. Látiö höfuðið
m'ríi luvut aö RÓlfi. K.iVi hluti líkamans er
reístur upp og teygður í átt að tám.
MIKILVÆGT: .T'.lingu jiessa verðuroð
framkvæmn nted jöfnunt hrnðn án rykkjn.
I»eir sem ('rtt eitthvuð voikír i hnki ivttu að
tftla viö liekni itöur en (x*ssi a-fing hefst.
ÆFING 2
l>essi a'fitH' er fyrir hnndleRpi og rassvööva.
lxtggistn hnén á sættð á trimniuekinu. Tnk-
iö háðum höndum Um vinklnnn, handleggir
hftfðir beinir og stífir allan timann Teygið
úr fótunum jtannig nð setan renní út ú enda.
hnén dregin aftur aö vinklunum.
ÆFING 3
l’essi æfing or til þess að þjnlfa og móta
lærftvöðva, fn'tur og handleggi Setjist d
sætið og takíð bnðum htmdum um hand
fóngin á gonttununt og dragið stetið að
vinklunuin. Teygtö úr fótunum og hallið
efri hlutn likamans aftur og togið í gor-
tnana. Hiildið gormunum strekktum allan
tínuinn og spennið og slakið á fótunum til
skiptís
Pöntunarsímar 91-651414 og 623535
Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00
Póstverslunin Príma, Box 63, 222 Hafnarfirði
Fótóhúsið, Bankastræti, sími 91-21556.
Opið kl. 10-18, laugard. 10-14.
® VISA S EUROCARD