Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
35
Borgaivericfrseðingur segir framkvæmdir við ráðhús hefjast snemma á næsta ári:
Eru nú að meta tilboð í stál-
þil umhverfls ráðhúsgrunninn
„Nú er lokið útboði vegna stál-
þils sem rekið verður niður í
jörðina í kringum grunninn á ráð-
húsbyggingunni. Þessa dagana er
verið að skoða tílboðin og meta þau
og ég býst viö að hafist verði handa
við byggingu ráðhússins snemma á
næsta árisagði Stefán Her-
mannsson aðstoðarborgarverk-
fræöingur.
„Upphaflega var gert ráð fyrir
þriggja hæða bílakjallara undir
ráðhúsinu. En viö úrvinnslu gagna
kom í Ijós að það heíði þurft að
sprengja upp klöpp í grunninum
og á þvi voru ýmsir tæknilegir örð-
ugleikar auk þess sem það heföi
veriö kostnaðarsamt. Nú er unnið
að hönnun tveggja hæða bílakjall-
ara sem á að vera með venjulegri
veggjaþykkt en veggimir verða þó
haföir tvöfaldir og bU á milli laga.
Viö óttumst ekki flóð í bíla-
geymslunni þó við gertun ráð fyrir
dælubúnaöi þar en við hönnun
mannvirkja á borð viö ráðhúsið
þykir sjálfsagt að gera ráð fyrir
slíkum búnaði.“ -J.Mar
Verður of mikill um-
ferðarþungi um Kvosina?
í framhaldi af umræðu um um- inna þá eftir hvort þeir teldu að of ar Sveinssonar og Magnúsar freðs Þorsteinssonar, fulltrúa
ferðarskipulag Kvosarinnar ákvað mikill umferðarþungi. yrði um Jenssonar, fulltrúa Sjálfstæðis- Framsóknarflokks. Áður hefur DV
DV að leita áhts fjögurra fulltrúa Kvosina í framtíðinni. flokks, Guðrúnar Ágústsdóttur, rætt við Vilhjálm Þ. VUhjálmsson,
borgarstjómar í skipulagsnefnd og Leitaö var áhts þeirra Ingimund- fuhtrúa Alþýðubandalags, og Al-- formann nefndarinnar. -J.Mar
Magnús G. Jensson:
Umferðinni verður beint
norðanmegin við Kvosina
„Fólk verður að átta sig á þvi að
mestöll starfsemi, sem er fyrir-
huguð í Kvosinni, er þar nú þegar,
þar er Alþingishús og borgarskrif-
stofurnar eru í Austurstræti. Ég
skU ekki þetta hræðslutal um aö
umferöin verði of mikh í gegnum
Kvosina þar sem henni verður
beint norðanmegin við hana í gegn-
um Sætún og Geirsgötu. Við
Tryggvagötu verða byggð bíla-
stæöahús fyrir Kvosina og þau
koma meðal annars tU með að stýra
umferðinni á þann hátt að hún
sveigir frá Kvosinni sjálfri og sam-
kvæmt skipulagstillögunum verða
bílastæðavandamál í miðbænum
úr sögunni.
Kvosarskipulagið kemur til með
að gæða miðbæinn lífi á ný og ég
skil ekki þessa „fúahjallavernd-
ara“ sem eru aUtaf að berjast fyrir
að eitthvað eigi að gera fyrir mið-
bæinn og þegar fyrirhugaöar eru
breytingar reka þeir upp rama-
kvein“. -J.Mar
„Að sjálfsögðu er ljóst að umferð
í Kvosinni verður ekki greið en í
deihskipulagi Kvosarinnar eru
gerðar ráðstafanir til að liðka fyrir
henni.
BUaeign Reykvíkinga hefur au-
kist gífurlega á síöustu tveimur
árum og það er ljóst að allir þessir
bílar valda ekki einungis vandræð-
um í Kvosinni, þó að ég efist ekki
um að ástandið kemur til með að
vera slæmt þar, heldur verður
umferðin víðast hvar annars staðar
um borgina þung í vöfum í framtíð-
inni.
í deiliskipulaginu er gert ráö fyr-
ir bílageymsluhúsum og þaö er
sama þróun og hefur átt sér stað
víðast hvar í stórborgum erlendis
svo að ég held að okkur ætti að
auðnast að leysa bílastæðavanda-
máhn í framtíðinni.“ -J.Mar
Guðrún Ágústsdóttir:
Kvosarskipulagið
hringavitleysa
„Eg held að fólk átti sig almennt
ekki á því um hvað fyrirhugaðar
breytingar í miðborginni snúast í
raun. Þær snúast ekki eingöngu
um að byggt verði ráðhús og nýtt
Alþingishús heldur gerir skipulag-
ið ráð fyrir að margar gamlar
byggingar verði rifnar og á grunn-
um þeirra rísi ný stórhýsi. Allar
þessar nýju byggingar munu kaha
á stóraukna umferð um Kvosina
sem hún getur á engan hátt tekið
við. Það er meðal annars ein af
ástæðum þess að ég og ýmsir fleiri
erum á móti Kvosarskipulaginu.
í umferðarskipulagstihögum
Kvosarinnar segir meðal annars:
Gert er ráð fyrir að Sóleyjargata
og Fríkirkjuvegur verði breikkuð í
fjórar akgreinar. Það er forsenda
þess að umferð um Kvosina geti
gengið eðlilega fyrir sig aö mati
umferðarsérfræöinga borgarinnar.
Nú hefur verið fallið frá þessum
hugmyndum, í bili að minnsta
kosti, sem gerir það að verkum að
mikið umferðaröngþveiti á eftir aö
skapast á þessum götum.
í hehd sinni er Kvosarskipulagið
ein hringavitleysa og ámæhsvert
hvemig hefur verið staðið aö því
innan borgarstjórnar. Ef það kemst
einhvem tímann í framkvæmd
verður hið notalega andrúmsloft
gamla miðbæjarins ekki lengur til
staðar." -J.Mar
Ingimundur Sveinsson:
Umferðarþunginn
breytist mikið
„Umferðin um Kvosina kemur til
með að breytast mjög mikið, henni
verður beint meira norður fyrir
Kvosina, um Sætún, til að létta á
Sóleyjargötu og Fríkirkjuvegi. Auk
þess verða nýjar gönguleiðir og
göngugötur opnaðar um Kvosina.
Með Kvosarskipulaginu er unnið
að því að vinna bug á bílastæða-
vandanum í miöborginni, það
verða til að mynda byggð tvö ný
bílageymsluhús við Tryggvagötu,
bílageymslur verða undir ráöhús-
inu og nýja Alþingishúsinu. Með
tihögunum er stefnt að því aö
minnka bílaumferð um gamla bæ-
inn og koma í veg fyrir að fólk sé
að hringsóla um Kvosina í leit aö
bílastæðum. Austurstræti vestan
Pósthússtrætis verður gert að
göngugötu svo og Aöalstræti og
Hallærisplanið.
í heild sinni miðar Kvosarskipu-
lagið að þvi að gera gamla bæinn
meira aðlaðandi og gæða hann lífi.“
-J.Mar
Atfreð Þorsteinsson:
Umferð verður
þung um Kvosina
Borgarráð vísar frá tillögu um almenna kynningu væntanlegs ráðhúss:
Kvosarskipulagið ekki kynnt frekar
Á borgarráðsfundi síðastiiðinn
þriðjudag báru fuhtrúar Alþýðu-
flokks, Kvennahsta og Alþýðubanda-
lags fram tihögu um að borgarráö
gengist fyrir almennri kynningu á
uppdrætti og líkani að væntanlegri
ráðhúsbyggingu í Reykjavík th þess
að gefa almenningi kost á að gera
skriflegar athugasemdir við bygging-
una og staðsetningu hennar. Borin
var fram frávísunarthlaga á thlög-
una og hún samþykkt með atkvæð-
um fuhtrúa Sjálfstæðisflokks.
í greinargerð með frávísunarth-
lögu meirihlutans segir meðal
annars að thlaga minnihlutans sé
síðbúin tylhástæða til að þvælast fyr-
ir framkvæmd þeirrar ákvörðunar
sem samþykkt hafi verið í borgar-
stjórn með 2/3 hluta atkvæða.
Andmælum hafi ekki verið haldið á
lofti þegar deiliskipulag Kvosarinnar
var rætt, síðar auglýst og samþykkt
til staðfestingar eða þegar ákvörðun
um byggingu ráðhússins var tekin.
Síðan segir að ekkert skipulag, engin
skipulagsákvörðun borgaryfirvalda
fyrr eða síðar hafi verið betur kynnt
fyrir borgarbúum og kjömum fuh-
trúum en skipulag Kvosarinnar, þar
með tahð skipulag ráðhúslóðar.
-J.Mar
Fréttir
Yfiitýsing:
Vegna ummæla
Stefáns Val-
geirssonar
Samtök jafnréttis og félagshyggiu
hafa boðað th ráðstefnu um næstu
helgi og ber hún yfirskriftina: „Gegn
misrétti og andbyggðarstefnu". Þar
sem heiti ráðstefnunnar er áhuga-
vert og líklegt að þar komi th
umræðu mál sem ég hef áhuga á aö
leggja liö varð ég við tilmælum Stef-
áns Valgeirssonar alþingismanns
þess efnis að standa í forsvari fyrir
vissum þáttum innan ramma yfir-
skriftarinnar.
í DV þann 30. nóvember kemur
hins vegar frétt á þá leið að ekki sé
ósennilegt að stofnuð verði ný stjóm-
málasamtök á ráðstefnunni og látið
í það skína að undirrituð, ásamt
Guðmundi J. Guömundssyni, Jónasi
Árnasyni, Jónu Valgerði Kristjáns-
dóttur og hugsanlega Karyel Pálma-
syni, standi þar að baki. Ég vil þess
vegna taka það fram að hugsanleg
stofnun þessara nýju stjórnmála-
samtaka er mér algerlega óviðkom-
andi enda aldrei verið á þau minnst
við mig í sambandi við áöurnefnda
ráðstefnu. Ég starfa í einum öflug-
ustu stjórnmálasamtökum á íslandi
- Kvennahstanum - sem hefur ehtaf
haft á stefnuskrá sinni jafnrétti og
byggðamál og unnið að þeim málum
af heilum hug. Þar ætla ég að starfa
áfram og þess vegna tek ég þátt í
ráöstefnu gegn misrétti og and-
byggöastefnu.
Jóhanna Þorsteinsdóttir, varaþing-
maöur Kvennalistans í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
Lögvemdun
fóstrustarfs?
Finnur Ingólfsson, varaþingmaöur
Framsóknarflokksins, hefur ásamt
þremur stjómarandstöðuþingmönn-
um kynnt lagafrumvarp um lög-
vemdun á starfsheiti og starfsrétt-
indum fóstra. Guðrún Helgadóttir,
Alþýöubandalagi, Ingi Bjöm Al-
bertsson, Borgaraflokki, og Kristín
Einarsdóttir, Kvennahsta, em með-
flutningsmenn.
í frumvarpinu segir sá einn skuh
fá leyfi th að starfa sem fóstra sem
lokið hafi prófi frá Fósturskóla ís-
lands eða sambærhegum skólum
erlendis. -KMU