Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Qupperneq 41
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
41
Fólk í fréttum
Oskar Vigfússon
Óskar Vigfússon, formaöur Sjó-
mannasambands íslands, hefur
veriö í fréttum DV vegna umræðna
um mótun nýrrar fiskveiðistefnu.
Óskar er fæddur 8. desember 1931
í Hafnarflröi og ólst þar upp en
dvaldist hjá Guðbrandi Vigfússyni,
fóöurbróöur sínum, og konu hans,
Elínu Snæbjörnsdóttur í Ólafsvík,
1940-1947. Hann var verkamaður í
Hafnaröröi 1947-1948 og sjómaður
1948-1968. Óskar var verkamaður
viö hafnargerð í Straumsvík
1968-1971 og skrifstofumaður hjá
Sjómannafélagi Hafnaríjarðar og
Verkamannafélaginu Hlíf
1971-1976. Hann var í stjórn Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar frá
1966 og formaður frá 1973. Óskar
hefur verið formaður Sjómanna-
sambands íslands frá 1976 og hefur
setið í Verðlagsráði sjávarútvegs-
ins frá 1977. Hann hefur verið í
síldarútvegsnefnd frá 1978.og í
stjórn Fiskveiðasjóðs frá 1982.
Óskar hefur verið í miöstjórn ASÍ
frá 1977 og í sambandsstjórn Al-
þjóðasambands flutningaverka-
manna frá 1982.
Kona Óskars er Nicoline
Kjærbch, f. 30. nóvember 1937. For-
eldrar hennar eru Niels Pauh
Kjærbch, kóngsbóndi í Sunba í
Suðurey í Færeyjum, og kona hans,
Valborg. Börn Öskars og Nicoline
eru Valborg, f. 7. ágúst 1958, gjald-
keri, gift Finnboga Guðmundssyni,
bifvélavirkja í Rvík, Óskar Ás-
björn, f. 26. ágúst 1960, verkamaður
í Hafnarflrði, giftur Hjördísi Jóns-
dóttur og eiga þau tvö börn, og
Ómar, f. 18. febrúar 1963, járnsmið-
ur í Kópavogi, giftur Erlu Kristins-
dóttur hjúkrunarkonu og eiga þau
einn son.
Systkini Óskars eru Vigfús Sól-
berg, sjómaður í Rvík, sambýlis-
kona hans er Margrét Kjartans-
dóttir, Hólmfríður verkakona, gift
Björgvini Sveinssyni, bensínaf-
greiðslumanni í Hafnarfirði, Erna,
gift Arnbirni Ólafssyni, skrifstofu-
manni í Keflavík, Sigurbjörg
verkakona, gift Kristni Torfasyni,
vörubílstjóra í Hafnarfirði, Leifur,
sjómaður í Vogum, giftur Halldóru
Stephensen, Guðrún verslunar-
maöur, gift Hjalta Þorvarðarsyni,
vélstjóra á Seltjarnarnesi, Guð-
mundur, verkstjóri í Hafnarfiröi,
giftur Guðrúnu Ólafsdóttur, og
Ásbjörn, verkamaður í Hafnarfirði,
giftur Guðrúnu Ólafsdóttur.
Foreldrar Óskars eru Vigfús Vig-
fússon, sjómaður í Hafnarfirði, og
kona hans, Efemia Ásbjörnsdóttir.
Afasystur Óskars voru Guðbjörg,
amma Gunnars Guðbjartssonar,
framkvæmdastjóra Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins, og Bjarnveig,
amma Sturlu Böðvarssonar, sveit-
arstjóra í Stykkishólmi. Faðir
Vigfúsar var Vigfús, b. á Kálfár-
völlum í Staðarsveit Vigfússon, b.
í Hraunhafnarbakka í Staðarsveit
Vigfússonar, b. í Háagarði Hákorí-
arsonar, b. í Syðstu-Göröum
Þorlákssonar, bróðir Steindórs, afa
Jóns Thorstensen, landlæknis, lan-
gafa Elínar, móður Helga Bergs
bankastjóra. Steindór var langafi
Ingibjargar, langömmu Guðmund-
ar, afa Sólrúnar Jensdóttur, skrif-
stofustjóra í menntamálaráðuneyt-
inu. Steindór var einnig langafi
Ástu, langömmu Hólmfríöar Karls-
dóttur og Ástu, móður Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar. Systir
Vigfúsar var Filippía, langamma
Sigríðar, langömmu Ragnhildar
Helgadóttur alþingismanns. Móðir
Vigfúsar var Solveig, systir
Brands, móðir Kristínar, konu
Helga Pjeturss jarðfræðings og
Unu, móður Hjartar Hjartarsonar
framkvæmdastjóra og amma
Gunnars Hanssonar forstjóra. Sól-
veig var dóttir Bjarna, b. í ,Neðri
Lá í Eyrarsveit Brandssonar, b. í
Lá, Þorsteinssonar, b í Fossi í Nes-
Óskar Vigfússon.
hreppi Runólfssonar, b. á Vað-
stakksheiði Oddssonar, b. í
Fjarðarhorni Runólfssonar. Móöir
Odds var Kristín Jónsdóttir, sýslu-
manns á Sólheimum, bróður Árna
Magnússonar prófessors.
Efemia er dóttir Ásbjörns, út-
gerðarmanns í Ólafsvík Gilssonar,
og konu hans, Hólmfríðar Guð-
mundsdóttur, systur Sólveigar
móður Karvels Ögmundssonar út-
geröarmanns og ömmu Sólmundar
Einarssonar fiskifræðings.
Gunnar Árnason
Gunnar Árnason, Strandaseli 1,
Reykjavík, er sjötugur í dag. Gunn-
ar fæddist í Eyþórsbæ á Bergstaða-
strætinu í Reykjavik og ólst þar
upp hjá móður sinni og móðurfor-
eldrum. Gunnar byrjaði ungur að
vinna fyrir sér, fyrst á eyrinni og
síðan fil sjós, en hann var á togur-
um og mótorbátum frá'Reykjavík
í tólf ar. Eftir að Gunnar kom í land
keyrði hann steypubíl hjá Verki
hf. í nokkur ár en hefur nú starfað
hjá Hlaðbæ hf. í sautján ár.
Kona Gunnars var Guðný Nanna,
f. 20.10. 1917, d. 3.11. 1965, dóttir
Hans Jenssonar sjómanns frá Rifi
og Þóru Sigurbjörnsdóttur.
Gunnar og Guðný Nanna eignuð-
ust sex börn: Jóhanna Guðrún er
húsmóðir í Reykjavík, f. 1944;
Bjarni Hans er starfsmaður Skelj-
ungs í Reykjavík, f. 1946; Þóra er
húsmóðir í Reykjavík, f. 1953;
Guðný er húsmóðir í Reykjavík, f.
1955; Guðmundur.er verkstjóri hjá
Hlaðbæ, f. 1956; Guðleif er starfs-
maður hjá Hampiðjunni.
Foreldrar Gunnars voru Árni
Gunnar Árnason.
Ingvason og Guðrún Eyþórsdóttir.
Móöurforeldrar GunnarsVoru Ey-
þór slátrari hjá Sláturfélagi
Suðurlands, í Reykjavík, Oddsson,
og kona hans, Ánna Guðmunds-
dóttir.
Þorgerður Egilsdottir
Þorgerður Egilsdóttir, Gríms-
stööum IV, Skútustaðahreppi, er
sextug í dag. Þorgerður fæddist á
Húsavik og átti þar heima hjá för-
eldrum sínum þar til hún gifti sig
1946, en þá fiutti hún í Grímsstaði
og hefur búið þar síðan.
Maður hennar var Steingrímur,
f. á Grímsstööum 23.2.1921, d. 1986.
Steingrímur var bóndi á Gríms-
stöðum og seinni árin starfsmaður
Kísiliðjunnar. Foreldrar hans voru
Jóhannes, b. á Grímsstöðum, Sig-
finnsson og kona hans, Elín, frá
Vallakoti í Reykjadal, Kristjáns-
dóttir.
Þorgerður og Steingrímur eign-
uðust átta börn. Þau eru: Brynjólf-
ur, húsasmiður á Álftanesi, f. 13.5.
1947; Sigfríður, húsmóðir í Reykja-
hlíðarþorpi, f. 26.7. 1948; Egill,
75 ára_______________________
Ólafía Guðbjörnsdóttir, Háaleitis-
braut 43, Reykjavík, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Sigurfinnur Einarsson, Faxastíg 35,
Vestmannaeyjum, er sjötíu og
fimm ára í dag.
70 ára_________________________
Jóhanna Þorsteinsdóttir, Ægisgötu
19, Akureyri, er sjötug í dag.
vinnslustjori hjá Kisiliðjunni, f.
12.8.1949, býr í Reykjahlíðarþorpi;
Jóhannes, húsasmiður í Reykja-
hlíðarþorpi, f. 8.8. 1950; Friðrik,
starfsmaður Kísiliðjunnar, f. 25.5.
1954, býr í Reykjahlíðarþorpi; Elín,
f. 22.10. 1959, er í foreldrahúsum;
Herdís, f. 18.7. 1961, er í foreldra-
húsum; Helga, f. 18.11. 1962, býr í
Reykjahlíðarþorpi. Barnabörn
Þorgerðar eru nú orðin tuttugu
talsins.
Þorgerður á tvö systkini: Jónas,
f. 1923, forstjóra Essó á Húsavík,
og Herdísi, f. 1934, kennara og rit-
höfund í Reykjavík.
Foreldrar Þorgerðar: Egill'skáld
Jónasson á Húsavík og kona hans,
Sigfríður Kristinsdóttir. Faöir Eg-
ils var Jónas, b. í Hraunkoti í
Aðaldal, Þorgrímsson, b. í Hraun-
Margrét H. Lúthersdóttir, Byggða-
vegi 148, Akureyri, er sjötug í dag.
60 ára___________________________
Þórdís Frímannsdóttir, Kirkjuvegi
26, Selfossi, er sextug í dag.
Kristín ísleifsdóttir, Álftamýri 53,
Reykjavik, er sextug í dag.
50 ára___________________
Tryggvi Eggertsson, Gröf, Kirkju-
hvammshreppi, er fimmtugur í
dag.
koti, Halldórssonar, b. á Bjarnar-
stöðum í Bárðardal, Þorgrímsson-
ar, b. í Hraunkoti, Marteinssonar,
b. í Garði í Mývatpssveit, Þor-
grímssonar, forföður Garðsættar-
innar. Móðir Halldórs var Vigdís
Hallgrímsdóttir, b. í Hraunkoti
Helgasonar, forföður Hraunkots-
ættarinnar. Móðir Egils var Frið-
rika Sigríður Eyjólfsdóttir, b. á
Hellnaseli í Aðaldal, Benjamíns-
sonar, b. í Fagranesi í Aðaldal,
Ásmundssonar. Móðir Eyjólfs var
Nahemý Eyjólfsdóttir, b. á Þverá í
Laxárdal, Sæmundssonar. Sigfríð-
ur var dóttir Kristins, sjómanns á
Húsavík, Sigurpálssonar, sjó-
manns í Útibæ í Flatey, Kristjáns-
sonar. Móðir Sigfríðar var Herdís
frá Hvammi í Skagafirði, Friðfinns-
dóttir.
40 ára__________________________
Bryndís Ásgeirsdóttir, Asparvík,
Bessastaðahreppi, er fertug í dag.
Hjörtur Herbertsson, Vanabyggð
15, Akureyri, 'er fertugur í dag. .
Ólafur M. Aðalsteinsson, Faxastíg
27, Vestmannaeyjum, er fertugur í
dag.
Þorsteinn Brynjúlfsson, Engihlíð
7, Reykjavík, er fertugur í dag.
Hrafnhildur Kristinsdóttir, Þránd-
arseli 4, Reykjavík, er fertug í dag.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því
myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upp-
lýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir.
Afmæli
Guðríður Vígfúsdóttir
Guðríður Vigfúsdóttir, húsfreyja í
Mundakoti á Eyrarbakka, er sjötíu
og fimm ára í dag. Hún fæddist á
Gamla-Hrauni, dóttir hjónanna
Sesselju Helgadóttur og Vigfúsar
Helgasonar. Guðríður missti for-
eldra sína á unga aldri og ólst upp
eftir það á Bergi á Eyrarbakka hjá
afa sínum, Helga Jónssyni, og móö-
ursystkinum, þeim Jóni og Jó-
hönnu.
Guðríður giftist 1933 Gísla Jóns-
syni í Mundakoti en hann lést 1965.
Þau eignuðust fimm börn sem öll
eru á lífi. Guðríður hefur nú staðið
fyrir rausnarheimili í Mundakoti í
fimmtíu og fjögur ár en þar hefur
ávallt veriö mikill gestagangur.
Þeir sem vilja gleðja Guðríði í tii-
efni af sjötíu óg fimm ára afmæli
hennar eru velkomnir nk. laugar-
Guðriður Vigfúsdóttir.
dag að Hrísholti 19, Selfossi, en þar
mun dóttir hennar standa fyrir
opnu húsi.
Eyþór Guðmundsson
Eyþór Guðmundsson, bóndi á
Eyjólfsstöðum, Beruneshreppi, er
fimmtugur í dag. Eyþór fæddist á
Eyjólfsstöðum og ólst þar upp hjá
foreldrum sínum en á Eyjólfsstöð-
um hefur hann búið alla sína tíð.
Eyþór var við húsasmíðanám á
Hornafirði en hann hefur meist-
araréttindi frá 1963. Eyþór vann
lengi við smíðar víða um Austur-
land en hann tók við búi foreldra
sinna eftir að þeir brugðu búi og
fluttu til Hornafjarðar.
Kona Eyþórs er Alda, f. 1943, og
alin upp á Djúpavogi, dóttir Jóns
Ákasonar og konu hans, Höllu
Antoníusdóttur, sem nú búa á
Akranesi þar sem Jón er verkstjóri
í frystihúsi.
Eyþór og Alda eiga flögur börn:
Halla, f. 1965, er búsett á Egilsstöð-
um, gift Sigurði Jakobssyni gröfu-
stjóra og eiga þau einn son; Guðný
Gréta, f. 1969, er unnusta Hafliöa
Sævarssonar búfræðings en þau
eiga einn son; Jón Magnús, f. 1979;
og Hrafnhildur, f. 1980.
Eyþór er yngstur níu systkina
sem öll eru fædd og uppalin á Eyj-
ólfsstöðum en einn bróðirinn,
Guðmundur, lést í barnæsku. Hin
systkimn eru: Gunnar, b. og hrepp-
stjóri í Lindarbrekku; Valborg,
húsfreyja aö Tungufelli í Breiðdal;
Hallur, bílstjóri í Keflavík á Suður-
nesjum; Guðrún, verkakona á
Egilsstöðum; Rósa, kennari í
Reykjavík; Hermann, skólastjóri á
Laugalandi í Holtum; Guðný, hús-
freyja á Höfn í Hornafirði.
Foreldrar Eyþórs eru Guðmund-
ur, b. á Eyjólfsstöðum, Magnússon,
f. 1903, en hann er látinn, og kona
hans, Margrét Guðmundsdóttir, f.
1899, en hún dvelst nú á Elliheimil-
inu á Höfn í Hornafirði. Föðurfor-
eldrar Eyþórs voru Magnús, b. á
Eyjólfsstöðum, Jónsson og kona
hans, Snjólaug Jónsdóttir, b. á Eyj-
ólfsstöðum. Móðurforeldrar
Eyþórs voru Guðmundur, b. á
Berufirði í samnefndum firði, Guð-
mundsson á Taðhóli í Hornafirði,
og kona hans, Gyðríður, frá Meöal-
felli í Nesjum, Gísladóttir.
Eyþór og Alda eru erlendis þessa
dagana.
Andlát
Jón. Finnbogason frá Búðum er
látinn.
Dilla Talcott, Longviev, Washing-
thon, USA, andaðist 13. nóvemb-
er.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
0í?Dlóm
^Osknqytii^ar
Laugaoegi 5.\ simi 20266
Sendum um land allL