Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987. Jarðarfarir Meiming Hádegistónleikar Háskólans Guöný Guðmundsdóttir fiölu- leikari og Pétur Jónasson gítarleik- ari léku saman á Háskólatónleik- um í Norræna húsinu í gær. Efnisskráin er eftir Hándel, Regin- ald Smith Brindle og Paganini. Ekki verður sagt að Sónata í a moll (op. 1 nr. 4) hafi hljómað sann- færandi. Fiðlustíll Guðnýjar er sterkur og ósveigjanlegur og sómir sér vel með t.d. ákveðnum píanó- leik. En með hreinræktuðum og ljúfum „barrokkleik" Péturs var hann einum of ágengur og því fór þessi fallega umritun Karls Scheit fyrir ofan garð og neðan. Reginald Brindle er einn ágætasti höfundurfræðibókaummúsíksem 1 nú starfar á Englandi. Almennar upplýsingar um formfræði og hljóðfæraskipan, sem hann hefur sent frá' sér í ýnisu formi, er holl og góð lesning öllum sem vilja fræöast. Hann skrifar þannig texta að mann var löngu fariö aö gruna hann um að vera sæmilegt tón- skáld. Og það kom reyndar á Pétur Jónasson. Þriöja og síðasta verkið var smá- sónata eftir Paganini sem John Duarte mun hafa aukið og umskrif- að. Þetta var kannski ekki svo merkileg músík (þó auðvitað hafi allt eftir Paganini eitthvert gildi) en þaö var vissulega fróðlegt að heyra hana. LÞ Ný smurbrauðstofa í Nóatúni Fyrir nokkru opnaöi ný smurbrauösstofa aö Nóatúni 17, Reykjavík, undir nafninu „Brauðstofan Gleymmérey". Kappkostað verður að hafa mikla fjölbreytni í brauðvali og áhersla lögð á háan gæða- flokk. Smurt brauð, snittur, kokkteil- pinnar og brauðtertur, verður afgreitt eftir pöntunum en einnig er hægt að koma á staðinn og neyta þessara veitinga . Hildur Margrét Sigurðardóttir lést 25. nóvember sl. Hún var fædd 28. októbér 1957, dóttir hjónanna Rann- veigar Gunnarsdóttur og Sigurðar Tómassonar. Hildur lærði húsgagna- smíði og lauk síðan prófi frá Kenn- araháskóla íslands og kenndi við þann skóla. Hún kenndi einnig á námskeiðum hjá Heimilisiðnaðar- skólanum og Heimilisiðnaðarfélagi íslands. Útför hennar verður gerö frá Árbæjarkirkju í dag kl. 13.30. Guðjón Benediktsson frá Drangsnesi lést á heimili sínu, Urðarbraut 8, Garði, 25. nóvember. Útfór hans fer fram frá Keflavíkurkirkju laugar- daginn 5. desember kl. 14. Útfór Þorleifs Thorlacius skipasmiös, Nýlendugötu 20a, Réykjavík, sem andaöist í Hrafnistu i Reykjavík þann 26. nóvember, fer fram í Dóm- kirkjunni föstudaginn 4. desember kl. 13.30. Útfór Magnúsar Sigurjóns Þorsteins- sonar fiskmatsmanns, Ægissíðu 50, Reykjavík, er lést 24. nóvember, fer fram frá Fossvogskirkju fóstudaginn 4. desember kl. 13.30. Minningarathöfn veröur um Guð- rúnu Ólafsdóttur frá Unaðsdal, í dag, 3. desember, kl. 15 í Fossvogskirkju. Jarðsett verður frá Unaðsdalskirkju r laugardaginn 5. desember kl. 14. Bíl- ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni á föstudag kl. 9 f.h. Bátsferð verður frá ísafirði á laugardag. Þórður Bogason frá Varmadal, Hóla- vangi 14, Hellu, verður jarðsunginn frá Oddakirkju laugardaginn 5. des- ember kl. 14.30. Guðrún Einarsdóttir, Seljahlíð, áður Laugavegi 81, sem andaðist í Borg- arspítalanum 29. nóvember, verður jarðsungin í Fossvogskapellu fóstu- daginn 4. des. kl. 15. .Guðný Guðmundsdóttir. Tónlist Leifur Þórarinsson daginn í Fimm rissmyndum fyrir fiðlu og gítar. Þetta eru bagatellur sem byggjast á hughrifum úr ýms- um áttum (Lorca, Dali, Stravinsky o.íl.) og þó stíllinn sé tiltölulega hlutlaus „atónalstíir á venju- bundnu tónmáli nútímans þá eru í þessu lýrískar æðar og gamansemi sem gott er að heyra. Þarna var líka meira jafnræði milli hljóðfæranna og hljómaði gítarparturinn sérs- taklega skemmtilega. Fréttir Uppsagnimar í Ragnarsbakarfi: Voðalegt áfall - segir 68 ára starfsmaður með innstæðulausa launaávísun „Það nærri leið yfir mig þegar Ragnar hrfligdi til mín og sagðist vera hættur og allt væri búið. Við vorum að vinna um morguninn en hann hringdi um sjöleytið um kvöldið," sagði Elín Sæmundsdótt- ir, trúnaðarmaður starfsmanna í Ragnarsbakaríi í Keflavík, í sam- tali við DV en bakaríið hefur hætt rekstri. „Ég er búin að vinna þarna í á 15. ár og ég held að það hafi flestum orðiö svona við. En það er annað verra. Ég fæ launin mín greidd með ávísun og mín ávísun kom ekki fyrr en eftir að Sparisjóðurinn var búinn að loka reikningnum þannig að ég fékk hana ekki innleysta. Ég er 68 ára gömul og algerlega pen- ingalaus og sit uppi desembermán- uð með ávísun sem ég fæ ekki innleysta," sagði Elín. „Þetta var voðalegt áfall, ólýsan- legt og maður er heldur lágreistur núna. Við fáum heldur ekkert upp- sagnarkaup þegar svona stendur á,“ sagði Elín Sæmundsdóttir. -ój Hafsteinn Sigurðsson, Smáratúni, Þykkvabæ, sem lést í Borgarspítal- anum 27. nóvember, verður jarð- sunginn frá Hábæjarkirkju laugardaginn 5. desember kl. 13. Fundir Jólafundur Asprestakalls verður mánudaginn 7. desember kl. 20.30 i félagsheimili kirkjunnar. Málfundafélag Barðstrendinga 213. fundur Málfundafélagsins Barð- strendings verður haldinn á Hallveigar- stöðum (gengið inn Öldugötumegin) í kvöid, 3. desember, kl. 20.30. Fundarefni: Átthagafélög. Félagar úr Súgfirðingafé- laginu mæta og hafa framsögu ásamt Barðstrendingum. Skemmtiefni á eftir umræðunum. Allir velkbmnir. Tillcyimingar Kór Rangæingafélagsins í Reykjavík heldur aðventukvöld i kvöld, 3. desemb- er, kl. 20.30 í húsi Rafveitunnar við Elliðaár. Kór tónlistarskólans á Hvols- velli kemur í heimsókn. Allir velkomnir. Iðjuþjálfun Kleppsspítala verður með torgsölu i dag og á morgun, kl. 11-18 á móti versluninni Víði í Austur- stræti. Seldar verða handunnar vörur, teppi, púðar og fleira. Fræðslufundur hjá Náttúru- lækningafélagi Reykjavíkur Náttúrulækningafélag Reykjavíkur held- ur fræðslufund um eitt stærsta næring- arvandamál íslendinga, sælgæti og sælgætisát, í Templarahöllinni við Skóla- vörðuholt, ftmmtudaginn 3. desember kl. 20.30. Á fundinum verða tveir frummæl- endur, Jón Gíslason, formaður Manneld- isfélags íslands, talar um efnainnihald í sælgæti og Rúnar Ingibjartsson matvæla- fræðingur segir frá sjónarmiði sælgætis- framleiðenda. Allir áhugamenn velkomnir á meðan húsrúm leyfir. þar, í vistlegum húsakynnum. Forstöðu- kona og eigandi er Sigríður Þorvalds- dóttir en hún hefur kynnt sér slíkan rekstur og fengið viðurkenningu hjá hinni frægu smurbrauðsdrottningu Dana, Idu Davidsen. Pantanasími hjá Gleymmérey-er 15355 og opnunartími kl. 10-20 mánudaga til laugardaga. Einnig verða helgarpantanir afgreiddar í síma 43740. Kort frá listasafni Sigurjóns Olafssonar Listasafn Sigutjóns Ólafssonar hefur gef- ið út nýtt litprentað kort með ljósmynd af styttunni af séra Friðriki við Lækjar- götu. Séra Friðrik sat sjálfur fyrir þegar Siguijón geröi fyrstu frumdrög að mynd- inni en sumarið 1952 stækkaði Sigurjón verkið og fékk til þess vinnuaðstöðu á Listakademíunni í Kaupmannahöfn. Til- búin í brons var myndin reist við Lækjargötu haustið 1955. Listaverkið er í sömu stærð og fyrri kort safnsins, 20x16 sm, og fæst hjá Rammagerðinni, Bóka- verslun Snæbjarnar, Hafnarstræti og í safninu á Laugarnesi. Allur ágóði rennur til byggingasjóðs safnsins. Lögfræðiaðstoð laganema Örator, félag laganema, verður með ókeypis lögfræðiaðstoð fyrir almenning á fnnmtudagskvöldum kl. 19.30-22 í síma 11012. Tónleikar Tónleikarmeð Kantötukórnum í kvöld kl. 20.30 og á laugardag kl. 17 heldur Kantötukórinn tónleika í Frí- kirkjunni í Reykjavík. Á efnisskránni eru verk eftir R.R. Terry, R. Willis og tékk- nesk jólamessa eftir J.J. Ryba. Einnig leikur Violeta Smid Preludium og fúgu í h-moll eftir J.S. Bach á orgel. Einsöngvar- ar eru Elín Sigurvinsdóttir, Dúfa Einars- dóttir, Snorri Á. Wium og Sigurður Steingrímsson. Stjórnandi og undirleik- ari Kantötukórsins er Pavel Smid. Bækur Stórviðburðir í myndum og máli með íslenskum sérkafla Út er komiö hjá Bókaútgáfunni Þjóösögu „ÁRIÐ1986 - stórviðburöir í myndum og máli með íslenskum sérkafla" og er þetta 22. árgangur verksins. Þetta er Qölþjóðaútgáfa sem kemur út á átta tungumálum, þýsku, ensku, frönsku, finnsku, ís- lensku, sænsku, ítölsku og spænsku. Niðurskipan efnis í þessum árgangi er með svipuðum hætti og verið hef- ur undanfarin ár. Annáll ársins er meginkafli og t 1 <,i . ui o juD uppistaða bókarinnar. Þar eru at- burðir ársins raktir í máli og myndum frá mánuöi til mánaðar og hefst hver mánaðarkafli á fréttaskýr- ingu. I íslenskum sérkafla er í myndum og máli greint frá því markverðasta sem gerðist hér á landi á árinu. Ber þar, sem vænta má, hæst leiðtoga- fund risaveldanna í október og 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar í ágúst. í kaflanum er 71 mynd, þar af 22 í litum, en í allri bókinni eru 536 myndir, þar af 337 í litum. Bókin er 344 bls. í símaskrárbroti. Ritstjóri íslensku útgáfunnar er Gísli Ólafsson, höfundur íslenska kaflans Björn Jóhannsson og hönn- uður hans Hafsteinn Guðmundsson. Bókin kostar 3.900 krónur. Sérverslun með listmuni fatlaðra Iðnar hendur er nafnið á verslun sem Landssamtökin Þroskahjálp hafa opnað á Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin á móti Hamborg). Þar verða á boðstólum listmunir og ýmsar aðrar vörur sem framleiddar eru á vernduðum vinnustöð- um og öðrum stofnunum fyrir fatlaöa. í Iðnum höndum verður einkum lögð áhersla á ýmsar handunnar _yörur,_ s.s Olvaður velti bíl Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Ölvaður ökumaður velti bifreið sinni í Öxnadal um hádegi í gær. Hann slapp ómeiddur en bifreiðin er nokkuð skemmd. Um svipað leyti varð umferöarslys á Þingvallastræti á Akureyri. Maður á reiðhjóli varð þar fyrir bifreið. Hann slasaðist á höfði og var fluttur á slysadeild eri í morgun var ekki ljóst hversu alvarleg meiðsh hans voru. ofin teppi og mottur, skrautmuni, leirvör- ur, kerti o.þ.h., en einnig leikfóng úr tré og trévörur til heimilishalds. Með versl- unarrekstrinum er einnig ætlunin að þróa framleiðslu á vinnustofum fatlaðra. I versluninni er hægt að koma nýjungum á framfæri og laga eldri vörur að óskum kaupenda. Verslunarstjóri í Iðnum hönd- um er Bára Gestsdóttir. Verslunin verður fyrst um sinn opin kl. 13-18 alla virka daga sem og árdegis á laugardögum. LUKKUDAGAR 3. desember 69194 Hljómplata frá FÁLKANUM að verðmæti kr. 800,- Vinningshafar hringi i sima 91-82580.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.