Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Síða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
GuðmundurF. Bjómsson:
Aðstand-
endur eiga
veika von
um að hann
sé irfs
„Þaö hefur ekkert komiö fram sem
bendir til þess að Guðmundur Finn-
ur hafi verið tekinn upp í bíl eftir að
hann yfirgaf slökkvistöðina á
Reykjavíkurflugvelli. Klukkan var á
þriðja tímanum um nótt og slökkvi-
liðsmennirnir heyrðu ekki til bíls né
sáu ljós.“
Þetta sagði Magnús Einarsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn þegar hann
var spuröur hvort ekki hefði farið
fram rannsókn á þeim möguleika að
Guðmundur Finnur Björnsson hefði
farið upp í bíl eftir að hann fór frá
slökkvistööinni á Reykjavíkurflug-
velli aðfaranótt sunnudagsins 22.
nóvember. Því þætti ekki ástæða til
sérstakrar rannsóknar á því. Eins
og kunnugt er hefur ekkert til Guð-
mundar Finns spurst frá þeim tíma.
Magnús Einarsson sagði að leit að
Guðmundi Finni væri ekki hætt,
henni verður haldiö áfram enn um
sinn. Við fyrstá hentugleika verður
kafað í sjónum bæði í Skerjafirði og
í Nauthólsvík.
DV hafði samband viö aöstandend-
ur Guðmundar Finns. Þeir vildu ekki
tjá sig um líðan sína, en fengust til
segja að þeir gætu ekki skilið hvað
hent hefði Guðmund Finn og á með-
an svo væri vonuðust þeir fii þess
að fá að sjá hann lifandi. Eftir því sem
lengri tími líður veikist von þeirra.
Varðandi leitina og þá rannsókn sem
farið hefur fram segjast þau lítið geta
sagt. -sme
Banna innflutn-
ing á frönskum
„Birgðatalningu innflytjenda er
lokið. Tilgangur landbúnaðarráðu-
neytisins með þessu er sá aö koma í
veg fyrir að fluttar séu inn vörur af
frílista sem tengjast landbúnaöi,"
sagði Haukur Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri Dreifingar hf„ en
Dreifing flytur inn svokallaðar
„franskar kartöflur".
Landbúnaðarráðuneytið hefur
krafist þess að talning verði gerð á
birgöum af þessari vörutegund, bæði
innfluttum og innlendum, og á með-
an þessi athugun er gerö bannar
ráðuneytið innflutning þessarar
vöru. Þá hefur ráðuneytið óskað eftir
því að innlendir framleiðendur veiti
öllum dreifingaraðilum franskra
kartaflna sama rétt til að dreifa ís-
lensku vörunni á meðan talningin fer
fram.
„Verslúnin hefur brugðist hart við
þessum aðgerðum og við munum
leita allra leiða til að koma af okkur
þessu tilskipunarkerfi. Það er verið
að reyna að eyðileggja innflutning á
þessari vörutegund og við mótmæl-
um því harðlega," sagði Haukur.
Haukur Hjaltason sagði að þessar
aðgerðir væru grundvallaðar á 42.
grein búvörulaganna, þar sem kveð-
ið er á um takmörkun innflutnings
á nýju grænmeti, kartöflum, svepp-
um og blómum þegar innlend fram-
leiðsla fullnægir eftirspurn. Hins
vegar ættu ákvæði greinarinnar ekki
við um franskar kartöflur þar sem
þær væru iðnaðarvara. -ój
Töggur greiddi
44 millj. skatt
Albert Guðmundsson, fyrrver- skuldabréfum á árunum 1980 til opinber gjöld að flárhæð afls 114,4
andi fiármálaráðherra, saraþykkti 1987. miHjónirkrónameöskuldabréfum,
í septembermánuði árið 1985 að Stærsta dæmið á þessum árum verötryggðumeðaóverðtryggðum.
heimila fyrirtæki einu að greiða er frá fjármálaráöherratíö Þor- Þessi skuldabréfalán ráðuneytis-
gjaldfallinn söluskatt oglaunaskatt steins Pálssonar. í júní síöastiiön- ins fóru ekki aö vaxa að ráði fyrr
upp- á 23,2. mflljónir króna með um samþykkti hann að 44 milljóna en árið 1983 er Albert Guömunds-
óverðtryggðu skuldabréfi til 6 ára króna skuld fyrirtækisins Töggs son settist í ráðherrastól. Heldur
með 22% vöxtum. hf. yrði greidd meö verðtryggöu dró úr þeim er Þorsteinn Pálsson
Þetta er eitt dæmi af 127 á lista skuldabréfi til 8 ára með hæstu lög- tók við. Jón Baldvin Hannibalsson
sem birtur var á Alþingi í gær sem leyfðu vöxtum. viröist hins vegar hafa stöðvað
svar við fyrirspum Kjartans Jó- Mest var um þessa skuldabréfa- þetta að mestu.
hannssonar alþingismanns um útgáfu á árinu 1985. Þá fengu 60 -KMU
greiöslu opinberra gjalda með lögaðUarogeinstaklingaraðgreiða
Smáfiskadráp:
Meðalþyngd-
in aðeins eitt
og hálft kfló
„Þetta er með því smæsta sem
maður hefur heyrt um,“ sagði Björn
Jónsson í fiskeftirliti sjávarútvegs-
ráðuneytisins um þá staðreynd að í
fyrradag seldi togarinn Víðir HF 40
lestir af þorski á Fiskmarkaðnum í
Hafnarfirði og var meðalþyngdin 1,45
kíló. Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri
sjávarútvegsráðuneytisins, sagðist
mundu láta athuga þetta mál enda
væri þetta með því verra sem heyrð-
ist í þessum efnum.
Björn Jónsson sagði aö mjög mikið
hefði verið um skyndilokanir veiði-
hólfa úti fyrir Norðurlandi aö
'undaníörnu, enda hefði ekkert feng-
ist þar nema kóð.
Til þess að veiðihólfum sé lokað
þurfa 30% aflans að vera fiskur sem
er 55 sentímetrar að lengd eða styttri.
í því sambandi er ekki talað um
þyngd þar sem hún er mismunandi
eftir því hve feitur fiskurinn er. Árið
1984 var 50 sentímetra fiskur 1 kíló
að meðaltali en ári síðar var jafn-
langur fiskur að meðaltali 1,20 kíló.
-S.dór
Nóvember:
Næsthlýjasti á
öldinniáAkureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Aðeins einu sinni á öldinni hefur
nóvember verið hlýrri á Norðurlandi
en í ár. Meðalhiti á Akureyri í mán-
uðinum var 3,9 stig sem er 3,7 stig
yfir meðaltali áranna 1951 til 1980.
Einungis nóvember árið 1956 var
hlýrri en nóvember nú.
í Reykjavík var meöalhitinn í nóv-
ember 4,2 stig sem er 2,6 stig yfir
Tneöaltali. Þetta var hlýjasti nóvemb-
ermánuður í höfuðborginni síðan
1968 og sá sjöundi hlýjasti á öldinni.
Úrkoma var nálægt meðallagi á
Suðurlandi en minni norðanlands,
ekki nema 2/3 af meðalúrkomu í nóv-
ember.
Lögreglan bíður eftir að eigandi verslunarinnar komi og stöðvi sýningu bláu myndarinnar.
DV-mynd S
Næturklám á Laugavegi
Lögreglán varð að kalla út for-
svarsmann sjónvarpstækjaverslun-
ar við Laugaveg um klukkan eitt í
nótt þar sem mannfjöldi hafði safn-
ast saman og horfði á klámmynd í
einu sjónvarpstækjanna sem eru í
sýningarglugga verslunarinnar.
Sjónvarpstækið tók á móti dag-
skrárefni frá gervihnetti. Eigandi
verslunarinnar mætti og skipti um
rás. Efnið á þeirri rás heillaöi vegfar-
andur ekki eins mikið og sú bláa
hafði gert. Enda fór hver til síns
heima eftir að sýning bláu myndar-
innar var stöðvuð. -sme
LOKI
Það er eins og þeir hafi
komist í smásilung!
Veðrið á morgun:
Hiti nálægt
frostmarki
Á morgun verður austlæg eða
norðaustlæg átt um vestanvert
landið en líklega norðvestlæg aust-
anlands. É1 verða á Norðaustur-
landi og á annesjum norðanlands
en úrkomulítið annars staðar. Hiti
yfirleitt nálægt frostmarki.
LITLA
GLASGQW
LAUGAVEGI 91
SÍMI20320.
LEIKFÖNG
Cfty91