Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1988, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1988, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988. 19 Knattspyma: Antony ætlar í KA Antony Karl Gregory, fram- herji úr Val, hefur ákveöiö aö leika með KA á Akureyri í 1. deildar keppninni næsta sumar. Antony er 21 árs og Valsari frá upphafi en hefur fengið fá tæki- færi með félaginu frá því hann gekk upp í meistaraflokk - lék 7 leiki í 1. deild sl. sumar og flesta sem varamaður. „Ég vil sýna hvað í mér býr og tel mig fá reynslu og þroska sem knattspyrnumaður með því að fara norður og spila með KA. Mér líst mjög vel á liðið, það er ungt og léttleikandi og ætti að henta mér mjög vel,“ sagði Antony í samtali við DV í gærkvöldi. Hann er góður fengur fyrir KA sem hefur misst þrjá öfluga sóknar- menn, Tryggva Gunnarsson til Vals, Sigurð Má Harðarson til ÍA og Hinrik Þórhallsson sem þjálfar Snæfell næsta sumar. -VS Vestur-Þýskaland: Mattháus til Inter? Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi: ítalska blaðið Tuttó de Sport skýrði frá því í gær að Inter Milano hefðj tryggt sér einn snjallasta knattspyrnumann Vestur-Þýskalands, Lothar Matt- háus, fyrir næsta keppnistímabil. Inter myndi greiða 7,9 milljónir marka fyrir hann (177 milljónir ísl. kr.) og árslaun hans næmu 20 milljónum íslenskra króna. Frá þessu var sagt í íþróttaþætti sjónvarps Radio Luxemburg en tekið fram að staðfesting hefði ekki féngist á fréttinni. 21 árs landsliðið: KSÍ fékk óskadagana Knattspyrnusamband íslands hefur náð samningum við Hol- lendinga um leikdaga í Evrópu- keppni 21 árs landsliða. Þjóðirnar mætast hér á landi þann 13. sept- ember í haust og í Hollandi 10. október 1989. KSÍ óskaði eftir þessum leikdögum og Hollend- ingar samþykktu þá strax. Eftir er aö semja við hinar þjóðirnar í riðlinum, Vestur-Þjóðverja og Finna. -VS Dle Welt um Jóhann Inga: Sálfræðin dugði ekki lengur! Siguiður Bjömsson, DV, V-Þýskalandr „í lokin dugðu sálfræðibrögðin ekki lengur," segir í fyrirsögn blaðs- ins Die Welt í gær, en þar er fjallað um brottrekstur Jóhanns Inga Gunnarssonar frá Essen, þýsku meisturunum í handknattleik, á mánudaginn. Blaðið rekur feril Jóhanns Inga og fjallar um þjálfunaraðferöir hans, sem kallaðar eru einkennilegar. Tvö dæmi eru tekin - í leikhléi í einum deildaleikja Essen lét Jóhann Ingi vekjaráklukku hringja áður en leik- mennimir hlupu út á völlinn á ný og þeir vöknuöu til lifsins eftír dapran fyrri hálfleik! Og fyrir leik gegn Lemgo sýndi hann leikmönnunura frægar teiknimyndafígúrur með myndvarpa, en fígúrumar voru koranar með höfuð tveggja bestu leikmanna Essen, TUfreðs Gíslasonar og Jochens Fraatz. Öðrum ieikmönnum var hótaö að þeir fengju sömu útreið ef þeir tækju sig ekki sam- an í andlitinu! Jóhann Ingi segir um þjálfunarað- ferðir sínar: „Ég lít á sálfræöina sem mikilvægan hluta þjálfunarinnar en fæstir þjálfarar hér í Vestur-Þýska- landi hafa enn skiliö þýðingu hennar." Sagt er að forseti Essen hafi varað Jóhann Inga við því að ganga of langt með sálfræðina, þegar hann fékk hann til liðs við félagiö, frá Kiel. Haft er eför ónafngreindum liðsmanni Essen aö í lokin hafi leik- mennimir einangrað Jóhann Inga - hætt að fara eftír fyrirmælum hans og æfíngamar hafi veriö orðnar mjög tilbreytingarlausar. Þá kemur fram í greininni aö Jóhann Ingi hafl haft 4,5 milljómr íslenskra króna í árs- laun frjá Essen. Dietmar Balkenhol hefur verið ráð- inn þjálfari Essen í stað Jóhanns Inga. Hann þjálfaði liöið fyrir nokkr- um ámm og kom því upp í úrvals- deildina áriö 1979. Aðstoðarþjálfari verður Dieter Schmidtz. • Jóhann Ingi Gunnarsson bjó til teiknlmynda(igúrur úr Alfreö Gislasyni og Jochen Fraatz! Pétur góður í nótt - var í byrjunariiði SA Spurs gegn Cleveland „Ég er mjög ánægður með mína frammistöðu í leiknum en það var hins vegar ekki nógu gott að tapa leiknum," sagði Pétur Guðmundsson körfuknattleiksmaður í samtali við DV í morgun en í nótt lék hann mjög vel með San Antonio Spurs er liðiö tapaði á heimavelli sínum gegn Cleveland Cavaliers, 102-112. Pétur skoraði 15 stig, hirti 8 fráköst og „blokkeraði“ 3 skot. Þess má geta að Steingrímur Hermannsson, utan- ríkisráðherra íslands, er nú staddur á ráðstefnu í Tansaníu á^amt stall- bræðrum sínum af hinum Norður- löndunum. - Björn Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Þróunarsam- vinnustofnunar íslands, er með Steingrími í fórinni. Á ráðstefnunni í Tansaníu hittir Steingrímur fyrir ráðamenn níu grannrikja S-Afríku en Norðurlönd- in hafa sameinast um að auka aðstoð við þessi grannríki S-Afríku - og raunar önnur ríki í sunnahverðri Frank Brickowski, sem haldið hefur Pétri frá miðherjastöðunni, lék í nótt á kantinum og skoraði 9 stig. „Ég var í byrjunarliðinu og lék með í 33 mínútur. Ég reikna fastlega' með að vera áfram í byrjunarliðinu í næstu leikjum. Þetta hefur gengið mjög vel í síðustu leikjum hjá mér en liöinu hefur hins vegar ekki geng- ið nægilega vel. Viö áttum aö vinna Cleveland. Við höfðum 6 stig yfir í Afríku og samstarfsstofnun þeirra - til að gera þau óháðari S-Afríku. „Steingrímur mun tala máli Hand- knattleikssambands íslands við ráöamenn þeirra þjóða sem aðild eiga aö samstarfsstofnun grannríkja S-Afríku (SADCC) á fundi sem hann nú situr í Aruhsa í Tansaníu." Þetta sagði Haukur Ólafsson, sendiráðunautur í utanríkisráðu- neytinu, í spjalli við DV í gær. „Mun Steingrímur óska eftír stuðningi þessara landa við umsókn HSÍ um að halda HM 1994. Reyndar leikhléi en lékum illa í þriðju lot- unni. Þó náðum við að jafna, 98-98, skömmu fyrir leikslok en það vant- aði herslumuninn á þetta hjá okkur,“ sagði Pétur í morgun. • Pétur skoraði flest stig sín í nótt með langskotum en hann hitti úr 6 af 8 skotum. Hann fékk 3 vítaskot og skoraði úr þeim öllum og bætti því enn frábæra vítanýtingu sína í NBA- deildinni. -SK hefur ráðuneytið haft sambánd við öll aöildarríki alþjóða handknatt- leikssambandsins og hefur fengið mjög jákvæð svör,“ sagði Haukur. Þess má geta, í sambandi við þessa fór Steingríms, að rætt hefur verið um að hluti þeirrar þróunaraðstoðar, sem ísland hyggst leggja fram, sé þjálfun og kennsla í handknattleik. Islendingar hyggjast þannig flytja út tækniþekkingu á nýjum vettvangi, í handbolta sem leikinn er á heims- mælikvarða hér á landi. -JÖG • Graeme Sharp sökkti Sheff. Wed. með þrennu i fyrri hálfleik. Enska knattspyman: Everton í markaham Fimm mörk i fyrri hálfleik bundu enda á „söguna endalausu", einvígi Everton og Sheffield Wednesday í 3. umferð bikarkeppninnar. Félögin mættust á Hillsborough í Sheffield í gærkvöldi og þegar flautað var til leikhlés hafði Graeme Sharp skorað 3 mörk fyrir Everton og þeir Adrian Heath og Ian Snodin eitt hvor. Heimaliðið gjörsamlega rjúkandi rúst, staðan 0-5 og það urðu lokatöl- urnar. Ótrúlegt eftir þrjá jafnteflis- leiki liðanna og baráttu sem hafði staðið í hálfa sjöttu klukkustund þeg- ar flautað var til leiks í gærkvöldi. Everton mætir Middlesboro á útí- velli í 4. umferð á laugardaginn. -VS Þróunaraðstoð á nýjum vettvangi? Handboltaþekking til Afríku - Steingrímur Hermannsson á ráðstefriu í Tansaníu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.