Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988.
Uúönd
Byrd lætur af
formennsku
Palestínumenn við tjald sem þeir reistu á rústum heimilis síns sem ísraelskir hermenn eyðilögðu nýlega.Síma-
mynd Reuter
Halda áfram brottvísunum
Leiðtogi demókrata í öldungadeild
Bandaríkjaþings, Robert Byrd, til-
kynnti í gær að í lok næsta árs myndi
hann hætta forystu demókrata á
þingi. Sú ákvörðun hans er vís til að
leiða til mikillar baráttu á meðal
demókrata um hver eigi aö taka við
af honum.
Að minnsta kosti þrír valdamiklir
öldungadeildarþingmenn hafa látið í
ljós að þeir gætu hugsað sér að tak-
ast á viö verkefnið.
Byrd, sem er orðinn sjötugur, mun
bjóða sig fram til þingkosninga í nóv-
ember. Hann segist munu geta gert
kjósendum meira gagn sem formað-
ur einhverrar helstu nefndar þings-
ins. Byrd var kjörinn öldungadeild-
arþingmaöur árið 1958 eftir að hafa
verið sex ár í fulltrúadeildinni. Hann
hefur verið leiðtogi demókrata frá
1977, fyrst sem leiðtogi meirihlutans
og svo sem leiðtogi minnihlutans á
árunum 1981 til 1987 þegar repúblik-
anar höfðu meirihluta í deildinni.
Eftirmaður Byrds verður valinn
eftir kosningamar í nóvember. Byrd
kveðst ekki munu styðja neinn sér-
stakan. Þeir sem helst hafa verið
nefndir í þessu sambandi eru Daniel
Inouye frá Hawaii, Bennett Johnston
frá Louisiana og George Mitchell frá
Maine. Edward Kennedy frá Massac-
husetts vildi í gær ekkert segja um
hvort hann myndi reyna að hljóta
embættið.
Forsætisráðherra Israels, Yitzhak
Shamir, segir að þrátt fyrir mótmæli
erlendis muni verða haldið áfram að
vísa Palestínumönnum úr landi
vegna starfsemi gegn ísrael.
AttaPalestínumennvoruíluttirfrá
ísrael til Líbanons á mánudaginn og
í kjölfar þeirrar brottvísunar bloss-
uöu upp óeirðir. ísraelskir hermenn
særöu rúmlega fjörutíu Palestínu-
menn á Gazasvæðinu en fimm þeirra
sem vísað var úr landi voru frá því
svæði.
Bandarísk yfirvöld kváðust í gær
harma brottvísunina og bresk yfir-
völd fordæmdu hana sömuleiðis. í
ræðu, sem sendiherra Bandaríkj-
anna í ísrael, Thomas Pickering, hélt
í Jerúsalem í gær lýsti hann yfir
áhyggjum sínúm yfir því að ísraelsk
yfirvöld hefðu traðkaö á lagalegum
rétti Palestínumannanna þó svo að
þeir gætu áfrýjað til hæstaréttar í
Israel.
Nú hafa að minnsta kosti hundrað
þrjátíu og níu Palestínumenn fallið
fyrir byssukúlum ísraelskra her-
manna frá því að óeirðirnar hófust i
desember síðastliðnum. Tveir ísra-
elsmenn hafa fallið í átökum.
Henry Kissinger, fyrrum utanrík-
isráðherra, hafnaði í gær tillögu
Richards Nixon, fyrrum Bandaríkja-
forseta og yfirmanns Síns, um að
gerast sérstakur milligöngumaður í
málefnum Miðausturlanda. Kvað
hann slíkan milligöngumann eiga að
vera í utanríkisþjónustunni og ekki
einungis hafa áhrif á samningavið-
ræður í Miðausturlöndum heldur
einnig milli austurs og vesturs.
Eftir tólf ár sem leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings til-
kynnti Robert Byrd í gær að hann myndi ekki gefa kost á sér aftur í það
embætti eftir kosningarnar í haust. Sfmamynd Reuter
Heímílístækí
sem bíða ekki!
I<\ Vil i rri k m i
þurrkari
ehlavél
frystikistá
Nú er ekki eftir neinu aö bíða, þú verslar í Rafbúö
Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt
öl! heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af
ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki
eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á
24 mánuði. Engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir
einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur
boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam-
band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki
eftir neinu að bíða.
IMÉll fÍfSHS
a þessum kjorunr &SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 siml-687910
ÍOOOOO ÍB