Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988. 15 Frelsisópið Um þessar mundir er verið að sýna í Reykjavík kvikmyndina Cry Freedom sem gerð er af Richard Atthenborough eftir sögu og eigin reynslu blaðamannsins Donalds Woods. Myndin hefur vakið nokkra umræðu um stjórnarfarið í Suður-Afríkulýðveldinu, umræðu sem er að vísu nærri öll á sama veg, þ.e. fordæming. Hins vegar hafa menn nokkuð velt því fyrir sér hvort viö íslendingar, fátækir og smáir, eigum að taka þátt í viðleitni annarra til að stuðla að breytingum á stjóbiarfarinu þar í landi eöa hvort við eigum að segja sem svo: Viö höfum nóg af vandamálum hér heima fyrir og eigum ekki að vera að skipta okkur af kúgun, misrétti og manndrápum annars staðar; eða; Þessir Afríkumenn byrja að drepa hver annan um leiö og sleppt er af þeim hendinni; og: Afríku- menn eru ófærir um að stjóma sér sjálfir, bæði í efnahagslegu og stjómarfarslegu tilliti. Þeim fækkar þó óðum sem þann- ig hugsa og við tökum á ýmsan hátt afstöðu til kynþáttastefnu S- Afríkustjómar bæði í félagsskap Norðurlandaþjóðanna og á vett- vangi hinna Sameinuðu þjóða, það er þó ekki svo að við höfum verið svólítið tvístígandi hingað til? Þróunarsamvinna Norður- landa og SADCC-ríkja Árið 1980 stofnuðu hin nýfrjálsu ríki, sem næst em Suður-Afríku- lýðveldinu, efnahagsbandalag í líkingu við Efnahagsbandalag Evr- ópu. Skammstöfun fyrir heiti þessa bandalags er SADCC og þátttöku- þjóðimar níu. Norðurlandaþjóð- imar allar ákváöu að stofna til sérstaks átaks í þróunarsamvinnu við þessi ríki og undirrituðu þar um yfirlýsingu í janúar 1986. Rauði þráðurinn í samstarfssamningnum Kjallarinn Björn Dagbjartsson matvælaverkfræðingur ekki að neita að óskir um hemað- araðstoð, sérstaklega frá Moz- ambique, verða æ háværari. Jafnvel prestar og trúboðar sár- biðja opinskátt um vopn til að verja sig og skjólstæðinga sína. Allir vita þar um slóöir að skæruliðamir skreppa bara suður yfir landamær- in til að ná sér í vopn, vistir og liðsauka. Þaö er heldur ekkert leyndarmál áð flutningatæki, olíu- vömr og vistir, sem tilheyra ýmsum norrænum verkefnum, er „lánað“ hermönnum stjómarinn- ar. Mörg hundrað heimavamarliða eru á verði í bækistöðvum okkar úti um allt land. Það á að heita svo að stjómin borgi þeim laun og sjái um vopn en við íslendingar mætt- um staldra við þá hugsun að svokallað MONAP-verkefni (Moz- „Við erum ekki hlutlaus í þessum átök- um. Við töldum okkur hafa verk að vinna með MONAP-áætluninni og við endurnýjuðum stuðning okkar við SADCC-ríkin með hátíðlegri undir- skrift fyrir rúmum tveimur árum. Það er ætlast til þess að við stöndum við orð okkar.“ er aö styrkja SADCC-þjóðirnar til sjálfstæðs efnahagslífs, hjálpa þeim til að veröa óháðar S-Afríku, leitast við að einangra S-Afríku frá ná- grönnum sínum. Þessi aðstoð Norðurlandanna, sem er orðin geysiöflug nú, um 1000 milljónirBandaríkjadala á ári auk ýmissa lánasjóða og „eldri“ skuld- bindinga, hefur hingað til verið háð því skilyröi aö hún skuli ekki nýt- ast til hernaðarþarfa. En því er ambique-Nordic Agricultural Project), sem við höfum tekið þátt í í mörg ár með 4-5 millj. ísl. kr. á ári, hefur oft orðiö fyrir barðinu á skæruliðum og stjómendur verk- efnisins, Svíar og Danir, hafa tekiö það ráð fyrir löngu að reyna að veria sig með heimavarðliði og fyr- irgreiðslu við stjómarhermenn. Við emm ekki hlutlaus í þessum átökum. Við töldum okkur hafa verk að vinna með MONAP-áætl- „Fyrirtæki i eigu Norðurlandabúa versla viö S-Afríku, jafnvel selja þang- aö hergögn," segir m.a. i greininni. S-afrísk óeirðalögregla aö störfum. uninni og við endurnýjuðum stuðning okkar við SADCC-ríkin með hátíðlegri undirskrift fyrir rúmum tveimur ámm. Það er ætl- ast til þess að við stöndum við orð okkar. Hinn alþjóðlegi tvískinnung- ur Það skortir ekki á yfirlýsingar allra mögulegra alþjóðasamtaka og ríkja sem fordæma kynþáttastefnu S-Afríkulýöveldisins. Flest íþrótta- sambönd, menningarsamtök og* stjórnmálahreyfingar heimsins útiloka S-Afríku. Sameinuðu þjóð- imar og aðrar alþjóðastofnanir samþykkja fordæmingarályktanir í gríð og erg en allt kemur fyrir ekki. Botha og félagar halda sínu striki. Á einu sviði hefur hin alþjóðlega samstaða gegn S-Afríku brostið. Efnahagslegar þvinganir, svo sem viðskiptabönn, hafa ekki náð fram að ganga. Bæði er það aö nokkrar þjóðir, t.d. Bandaríkjamenn og Bretar (og íslendingar), hafa ekki sett S-Afríku i viðskiptabann með þaim rökum að viðskiptabönn hrífi ekki og hafi aldrei gert. Það er sjálf- sagt mikiö til í því og það er einmitt að gerast núna í þessu máli. Ríkis- stjómir hinna Norðurlandanna fylgja mikilli harðlínustefnu í við- skiptabanni á suður-afríska lýð- veldið og þarf ekki að efast þar um góðan vilja ráðamanna og mjög öflugan stuðning almennings. Engu að siður er það fullvíst að fyrirtæki í eigu Norðurlandabúa versla við S-Afríku, jafnvel selja þangað hergögn. S-Afríka er feiknalega auðugt landsvæði og sjálfsagt mjög gott að reka þar dótturfyrirtæki eða útibú. Einstaka alþjóöleg stórfyrirtæki em þó að loka þar og koma sér í burtu. Sú hreyfing er þó ekki al- menn ennþá en þegar flótti fyrir- tækja hefst þá verður hann ekki stöðvaður frekar en í Angóla þar sem tugir eða hundmð evrópskra fyrirtækja og tugþúsundir starfs- manna hurfu á braut á nokkrum vikum. Hve langt er í þann dóms- dag í S-Afríku er óvíst. Ymsum hættir til að tala um kommúnisma í sambandi við frels- ishreyfmgar blökkumanna í Afr- íku. Evrópsk „ismahugtök" passa ekki í Afríku og svo mikiö er víst að þjóðir sem taldar vom undir dæmigerðri „kommastjóm" eins og Grænhöfðaeyjar, Guinea Bissau og fleiri, em búnar að fá meira en nóg af Rússum. Þaö er undarleg þversögn aö á meðan Bandaríkja- stjórn styður Bothaleppinn Jónas Sawinbi og skæruliöa hans í An- góla þá tekur her „kommasljómar- innar“ í Luanda að sér að veija bandarískar eigur og olíumann- virki fyrir þessum sömu skærulið- um. Björn Dagbjartssón Tónlistaruppeldi á dagvistarheimilum Dagana 14.-16. apríl verður hald- in ráðstefna um uppeldi og mennt- un forskólabama á vegum Fóstrufélags íslands á Hótel Holiday Inn. Eitt af sviðum dagvist- amppeldis er tónlist. Á undanfórn- um ámm hefur gildi tónlistarupp- eldis verið gefmn meiri gaumur, en það hefur því miður verið of lít- ið notaö til þessa. Ef til vill hafa fóstmr og kennarar verið ragir við þetta uppeldisform - ekki tahð sig hafa næga þekkingu á tónlist. En sú hræðsla er óþörf, því til að nota tónlist með börnum þarf ekki svo mikla tónlistarmenntun. í Uppeldisáætlun fyrir dagvistar- heimili segir frá viðurkenndum, amerískum tónhstaruppeldisfræð- ingi sem telur að fóstran þurfi að hafa eftirfarandi eiginleika: Vera sannfærð um aö tónhst sé mikil- væg fyrir börnin, hafa áhuga á að auka tónhstarfærni sína, hafa áhuga á tónhst og hafa yndi af henni, geta fylgt stöðugum púls eöa einfóldum hrynmynstrum, vera lagviss og geta sungiö hreint og geta greint milh hljóða og greint frumþætti í tónhst (blæ, styrk, hraða). En hvaö felst í hugtakinu tónhst- amppeldi? Þegar talað er um tónhstarappeldi er ekki einungis átt við söng og hijóðfæraleik, held- ur er það mun víðtækara. Til þess telst m.a.: Söngur, hreyfing, hlust- un, hljóðfæraleikur og ýmsar hrynæfingar. KjaUarinn - Bergljót Björg Guðmundsdóttir fóstra Söngur Sönglög valin m.t.t. söngþarfa bamanna. Lögð er áhersla á að efla sönggleði bamanna og íjölbreytt lagaval. Oft er gott að byria á að kenna texta lagsins og hafa hann yfir með hljóðfahi lagsins. Ekki er síður mikilvægt að efla hinn „frjálsa söng“ bamsins. Barnið syngur þá „upp úr sér“ sín eigin lög. Hreyfing Bömin hreyfa sig þá ýmist frjálst eftir tónlist eða fariö er í skipulagða hreyfileiki með tónlist. Hreyfingin á að vera í nánum tengslum við ímyndunarafl og sköpun. Bömin læra að túlka og taka eftir hraða og mismunandi blæbrigðum tón- hstar. Oft eru notuö ýmis hjálpar- tæki til að stækka hreyfinguna og auka á spennuna, t.d. bjöllubönd um úlnhöi eöa ökla og borðar í ýmsum htum. Með hreyfmgunni eflum við hkamsvitund og hreyfi- þroska bamanna. Einnig læra þau að túlka mismunandi tilfinningar eftir blæbrigðum tónlistarinnar - er lagið glaðlegt/sorglegt, dimmt/ bjart, hratt/hægt o.s.frv. Hlustun Hljóðheimur nútímans er orðinn „Ef til vill hafa fóstrur og kennarar veriö ragir við þetta uppeldisform - ekki talið sig hafa næga þekkingu á tónlist. En sú hræðsla er óþörf.. „Lögð er áhersla á að efla sönggleði barnanna og fjölbreytt lagaval, “ segir greinarhöf. m.a. mjög flókinn og oft erfitt að ein- beita sér að þvi að sundurgreina hljóðin.. Á tímum síbylju og hraða er mikilvægt að geta „lokað sig af ‘ og slakað á. En við þurfum hka að þekkja hljóðheiminn m.a. til að forðast hættur. Það þarf að örva börnin til að hlusta á þau hljóð sem umhverfið býður upp á. Farið er í ferðir og safnað hljóð- um sem síðan er unnið úr, t.d. með þvi að túlka hljóðin í htum og fram- leiða þau hljóö sem á vegi okkar veröa. Hægt er að búa til heil tón- verk með börnunum úr þeim hljóðum sem safnað hefur verið og oft eru notaðir til þess ýmsir hljóö- gjafar úr náttúrunni, þ.á m. stein- ar, spýtur o.fl. sem sáfnað var í ferðinni. Börnin læra einnig aö hlusta á tónhst og smám saman greina hana í fmmþætti sína eins og lengd, hryn og blæbrigði. Bömin læra að þekkja hljóðfærin sem leikið er á í þeim verkum sem þau heyra. Sú tónhst, sem best hæfir th þess, eru ýmis tóndæmi tekin úr sígildum tónverkum, valin m.t.t. barna, s.s. Karnival dýranna e. Saint Saens, Pétur Gautur e. Grieg, Hljómsveit- in kynnir sig e. Britten og fjölmörg fleiri. Einnig er mikilvægt að börn- in læri að hlusta á talað orð án mynda, sögur, leikrit o.þ.hl Hljóðfæraleikur Notuð em hefðbundin hljóðfæri sem hæfa bömum s.s. sleglar, trommur, hristur og gjöh, en einnig notum viö óhefðbundin hijóðfæri s.s. Ukama okkar, steina, pappír og alla mögulega hljóögjafa. Hrynur Með hrynæfingum lærast styrk- leikabreytingar og hraði og við- brögð em efld. Til þess em notaðir ýmsir hljóðgjafar, leikin tónhst og röddin. Til að kenna hrynjandi máls em gömlu þulumar okkar heppilegar. Með því að nota þulu- formið varðveitist einnig sú menningararfleifð okkar sem hef- ur varðveist mann fram aö manni frá fornu fari. Hægt er aö nota hvers kyns raddhljóö, orö, máls- hætti, vísur, þulur og ljóð í tón- sköpun og hrynleiki og skapa þar með margvisleg tónhstarform. Lokaorð Það er ljóst að notkun tónhstar í uppeldi ungra bama er mjög mikil- væg til að efla alhliöa þroska barna. Bent skal á að rannsóknir, sem gerðar hafa verið um tónlistar- þroska, hneigjast að því að næmiskeið hans sé mikilvægast á forskólaámnum. Tahö er að það dragi jafnvel úr þessu næmiskeiði eftir 6 ára aldur, því er brýnt aö hefja tónhstampp- eldi fyrir þann tíma. VU ég því hvetja allar fóstmr og aðra upp- alendur til að hlúa að þessum þætti uppeldisins og hefjast strax handa við tónsköpunina. Bergljót Björg Guðmundsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.