Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 13. APRlL 1988. 31 LífsstOl Þessi mynstur og mörg önnur klæða nú nýtísku sófa, t.d. i Chesterfield stíl. vitað verður að vera smekklegur. Það gamla sem maður á eða langar í getur maður vel og smekklega kom- ið saman á einfaldan hátt. Þess verður auðvitað að gæta með álla aukahluti að þeir skemmi ekki fyrir húsgögnunum þannig að of margir hlutir og Utir skemmi fyrir annars góðri uppstillingu." Parket, litir og leður - Hvað einkennir útlit heimila í dag ef tekið er mið af því sem upp á er boðiö? „Já, það er óhætt að tala um mikla litadýrð nú miöað við það sem áður var. Sófar t.d. eru orðnir þannig að maður nefnir aðeins htinn eða htina sem maður vih hafa á honum, hann er einhvers staðar til. Líttu bara í kringúm þig. Leður er oftast nær svart eða hvítt hér á landi, en það er nú meira farið að sjást í htum eins og bláu eða grænu eða einhveiju ööru. Því má vel halda fram um leðrið að það sé sígilt. Það hefur ekki þá eiginleika eins og flest annað að verða þreytulega snjáð og gamalt, heldur verður það fallegt með aldrin- um. Leðurlíki er mikið í umferð á markaðnum, efni sem ekki hefur sannað ghdi sitt í mörg ár en hefur þó mjög svipað útht og leður og er mikið ódýrara. Framtíðin sker svo úr um hvort það endist jafn vel og ekta leðrið. Venjulegu leðri er annars gott að raða saman, í rauninni með hveiju sem er, það er ahtaf síght. Gömul leðurhúsgögn eru sígild á flestum stöðum. Oft er einhver spuming um hönnunina, sem getur verið gömul, að öðru leyti er alltaf veriðað hanna úr leðri ásamt nýjum efnum: leður og króm, leður og gler eða eitthvað annað. Annað sem einkennir vissulega útht heimha eða réttara sagt gólfa er hið vinsæla parket sem gefur öh- um híbýlum hlýlegt útht. Parket- notkun hefur svo sannarlega aukist tíl muna á seinni árum. Hér er um að ræða í flestum tilfehum eitthvert varanlegasta efni sem sett er á gólf, svo framarlega sem valið er parket úr efni sem er shtsterkt.“ Eyddu í staði sem þú ert mest á -Á hvað á að leggja áherslu þegar raöaö er upp? „Heimili er aUtaf heimih, en það er misjafnt hve mUílum tíma maður eyðir á hveijum stað fyrir sig. íhúðir eru hannaðar á mismunandi hátt þannig að ekki er hægt að ganga út frá einhveijum algUdum reglum, auk þess sem lífsmynstur einstaklinga er mjög mismunandi. Þó ber að leggja aðaláherslu á að skapa sér umhverfi þar sem maður er ánægður. Eyða ekki offjár í t.d. dýrt sófasett í stof- una, þar sem maður er ef tíl vill sjaldan. Margir sitjalangtímum sam- an yfir sjónvarpi, a.m.k. á vetuma, og þá gjarnan í sjónvarpsherbergi eða sjónvarpshoh. Fólki hættir til að hafa þar gömul og jafnvel óþægileg húsgögn og lætur síðan betri hús- gögn standa ónotuð inni í stássstofu. Þessi regla getur auðvitaö gUt um eldhús eða aðra staði í húsi eða íbúð. Það þarf b'ara að gera sér nokkuð góða grein fyrir því hvar maður held- ur oftast tíl. Það má segja að þetta gildi aöallega um íbúðir sem bjóða upp á einhveija valmöguleika. í íbúðum sem eru aðeins tveggja her- bergja eru þessir valkostir varla fyrir hendi vegna smæðar. Nota aukapláss sem vinnuaðstöðu - Er ástæða tU að breyta því hvem- ig nota skal íbúðina? „Hingað til hafa svefnherbergi verið höfð tUtölulega stór, þó kannske ekki stærst því stofan er yflrleitt stærri. Barnaherbergi virðast réttilega vera að stækka að einhveiju leyti. Segjum að um sé að ræða þriggja herbergja íbúð með nokkuð rúmgóðum her- bergjum. Þá er sjálfsagt að nota svefnherbergi sem vinnuaðstöðu fyr- ir foreldra ef hægt er. Fólk dvelur yfirleitt aðeins um nóttina í þessum herbergjum. Hvers vegna ekki að útfæra stóran íverustað á þann hátt að hægt sé að nota hann sem mest? T.d. að koma fyrir skrifborði þar sem annars er snyrtiborð og hafa snyrti- aðstöðu á baðherbergi. Geymslur og fatahengi em oft á tíðum þannig að auðvelt er að nota þau undir eitthvað annað en endilega fot. Hægt er að taka hurðir af, setja góða lýsingu og gera góða aðstöðu sem ekki kallar á mikið pláss. Barnaherbergi em líklegast þau herbergi þar sem fijálslegast hefur yerið farið með liti á veggi og hús- gögn. Það er mikUvægt að hanna þau á þann hátt að börnum líði sem best í herbergi sínu. Að þau tolli sem best á þeim stððum sem þeim er ætlað að vera á. Bamaherbergi bjóða oft upp á þann möguleika að auðveldlega er hægt að ráðstafa rýminu fyrir skyn- samlega hluti og vera síðan á varöbergi með breytingar á þroska og hegðun bama um það hvort þau notfæri sér þá möguleika sem boðið er upp á og brey ta þá ef s vo ber undir. Klassísk uppröðun að hverfa Er hægt að vera svolítið frjálslegur í vah húsgagna núna? „Já, það er engin spurning. Mögu- leikarnir eru óteljandi hvað það varðar. Hin hefðbundna uppröðun sem þú kannast viö, 3+2 + 1, er nú aö detta út eða er dottin út, ef hugsað er til hönnunar húsgagna. Ef við setj- um þetta upp í töluform má alveg eins segja að 2+2 og 3 + 3 sé algengt eða 2 + 1 + 1 þar sem sófi er kannske í rósóttu eða marglitu áklæði en stól- ar eru einlitir og þá kannske í sitt- hvorum litnum! Áfram er hægt að láta sér detta í hug 1 +1 +1 +1 í kring- um borð og enginn sófl. Spumingin hlýtur alltaf aö vera sú hvaða kröfur gerir þú til heimilis þíns, í hvaða lit eða formi viltu hafa þaö? En víst er að auövelt er að vera í takt við tím- ann. Hinir klassísku skápar og hillur, eða öllu heldur skápahillur, eiga ekki upp á pallborðið núna eins og áður. Hillusamstæður voru nokk- uð sem víða sást og sést auðvitað enn, því ekki er því kastað á glæ sem gagn gerir. Hins vegar eru í tísku- straumum núna hillur úr málmi sem frekar létt yfirbragö er yfir. Rörahill- ur væri hægt að kalla það. Lýsing tvöfaldar fegurð Viljirðu leggja einhveija höfuð- áherslu á sérstök eða falleg húsgögn, má tvöfalda fegurð eða áhrifamátt hlutarins með góðri lýsingu. Hvað góð lýsing er skal látið ósagt, leik- maðurinn getur alltaf prófaö sig áfram. En umfram allt er gott að hafa í huga að lýsing er mikilvægari en jafnvel sjálf hönnun húsgagna þegar skyggja tekur. Því má svo ekki gleyma að útlitið er ekki aðalatriðið, heldur einnig notagildi 'og ekki unir neinn sér þannig að fá lýsingu fram- an í sig. Því er vel hægt að halda fram að með lýsingu sé hægt að gera mjög fallegt hjá sér og það sér hver maður að stemning skapast yfirleitt við rétta lýsingu. Þessu ræður maður öllu sjálfur." Smáhlutir mikilvægir -Hvaö viltu segja um heildarsam- setningu í herbergi? „Víst er að litur á veggjum skiptir miklu með að kalla fram fegurð hús- gagna og þess sem inni er. Grár litur, til dæmis á vegg, passar betur við hvít húsgögn en hvitur litur. Það verða að vera ákveðnar andstæður. Hvítt og hvítt getur virkað klaufa- legt, þannig að húsgögn og veggur keppi við hvort annað. Smáatriði á borð við gólfmottur, gardínur, ljósa- krónur og myndir á veggjum eru í raun aðalatriði þegar öllu er á botn- inn hvolft. Þetta hefur allt mikið að segja varðandi heildarútkomu her- bergisins. Þaö er mikilvægt að hafa réttan ht á veggjum sem hjálpar hús- gögnum til að njóta sín, en er ekki í samkeppni við þau. Þetta ber að hafa í huga. Velja stóra hluti í samræmi við góðan ht á veggjum, stílfæra síð- an með litlum hlutum, eins og áður sagði, og lýsa síðan á huggulegan og notadrjúgan hátt. -ÓTT. Leður þarf ekki að vera svart eða hvítt eins og svo víða sést á íslandi. Hér eru beige-litir leður- sófar, 3 + 3. Stakur stóll við hliðlna gefur settinu skemmtilegri svip. Gardinur eru einfaidar og snúnar að ofan, en það sem skýlir gluggum eru gular rúllugardinur. Gróðurinn er siðan atriði sem alltaf fegrar umhverfi sitt. Hér má sjá vissa hrynjandi á milli mynda vinstra megin, setu á stólum og. sófa. Grunnur i myndum og Ijósakróna fá borðstofusettið til að njóta sin. Litur á veggnum er talsvert öðruvísi en hvíti liturinn svo Ijósu litirnir keppi ekki hvor við annan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.