Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988. 13 ,Taj Mahal er hvorki fyrsta flokks né þriðja flokks sýnishorn af indverskum matstað eins og við þekkjum frá vestrænum stórborgum. i * 1 Heimsborgarbragur við Bröttugötu Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús Þar sem við höfum öðlazt nokkra kínverska og jafnvel ítalska veit- ingastaði á Reykjavíkursvæðinu, var orðið hæfilegt, að komið yrði upp indversku veitingahúsi. Það er því tímanna tákn, að indverskur veitingasalur er tekinn til starfa uppi á lofti bakhúss Fógetans við Aðalstræti. Indversk veitingahús eru, eins og kínversk og ítölsk, merki þess, að stórborgarsnið sé að færast á sam- félagið. Nú vantar okkur eiginlega bara japanska matstofu, til dæmis sushi-bar, til að telja höfuðborgar- svæðið hafa opnað gluggana gagnvart umheiminum og vera endanlega komið í tölu stórborga heimsins. Þægilega fátæklegt Taj Mahal er ekki áberandi, þótt veitingastaðurinn sé í hjarta bæjarins. Inn í matstofuna er geng- ið annaðhvort frá Aðalstræti, gegnum veitingahúsið Fógetann, eða frá Bröttugötu, þar sem fariö er inn um bakdyr á húshomi og komið beint inn á þröngan stiga milli hæða í bakhúsi gamla Innrétt- ingahússins. Lítið skilti er á gatnamótunum, annað yfir hom- dyrunum og raunar hið þriðja við inngang Fógetans. Um 50 sáttir geta þröngt setið í Taj Mahal. Sjaldan reynir þó á þrengslin, því að íslendingar hafa ekki enn uppgötvað staðinn. Þægi- legt er að sitja til borðs, því að stólar em bakháir og búnir van- daöri klæðissetu. Ljósir veggir og rautt teppi em hlutlaus einkenni þægilega fátæklegs húsnæðis, þar sem lágt er til lofts. Gluggar .eru eiginlega aðeins á einn veg, þaðan sem útsýni er milli pottablóma yfir í sóðaskapinn í gmnni tumsins, sem rísa á við hhð Morgunblaðsins. Fátt er indverskt í húsbúnaöi. Silkislæður hanga þó hér og þar á veggjum og.fyrir gluggum eru silki- fjöld. Ennfremur er útskurður á veggjum. Rauðu plattarnir undir diska og hitabakkarnir, sem aðal- réttimir em geymdir á, minna fremur á kínverska eða indónes- íska veitingastaði en indverska. Niðursoðin tónlist að tjaldabaki er hiö indverska við staðinn, fyrir utan matinn, sem gefur furðanlega fiölbreytta innsýn í indverska mat- argerð. Indversk síbylja Nýr matseðill er á næsta leiti í Teó Mahal, en til skamms tíma hef- ur veriö þar langur seðill eins og kínverskur og endurtekur sömu tilbrigðin í síbyjju, tandoori, biry- ani og karrí. Seðillinn hefur svipuð síbyljuáhrif og indversk tónlist. Sjálfsagt er að byrja á að panta sér brauð til að hafa eitthvað að sýsla, meðan verið er að velja af seðhnum. Boðið er upp á ýmsar útgáfur af Nan og Pappadam. Nán er heitt og seigt flatbrauð, bakað í tandoori-leirofni. Hægt er að fá það í venjulegri mynd, eða með tvenns konar fylhngu. Pappadam er næfurþunnt og stökkt brauð, sem er gert úr sól- bökuðu baunadeigi og síðan djúp- steikt. Báðar brauögerðimar vom frambærilegar í Taj Mahal, en mun meira varið er í Nan. Sheikh Kebab var sterklega krydduð lambakjötsrúha, eins og pylsa í laginu, bökuð í tandoori- ofni, dálítið þurr og hörð. Karrílagaðar rækjur vom meyr- ar og þrælsterkar, bezti forréttur- inn, bomar fram með Puri, sem er svipað brauð og Nan, en ekki bak- að, heldur djúpsteikt. Laukbohur voru skemmtilega sérkennilegar, hæfilega bragö- 5? N Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. sterkar, en ósköp þurrar, bomar fram á hrásalati. Ég reiknaði með, aö Dhal súpan væri kálsúpa, en hún er í Taj Ma- hal sögð vera hnsubaunasúpa. Altént var þetta sæmilegasta súpa, með kröftugum sítrónukeim. Misjafnt Tikka og Tandoori Kjúkhnga-Tikka vom krydd- legnir Kjúkhngabitar, bakaðir í tandoori-ofni, bragðsterkir og meyrir, góðir á bragöið. Kryddið í þessu tilviki sem og öðmm, sem hér er sagt frá, var að mestu leyti karrí, blandað jógúrt. Sami rétturinn er líka aðalréttur og heitir þá Kjúklinga Tikka Kebab, borinn fram snarkandi og reyndist vera bezti aöalrétturinn, sem prófaður var, bragðsterkur og meyr í senn. Tikka Massala vom sams konar kjúkhngabitar, en ekki bomir fram snarkandi, heldur í rauðri jógúrt- sósu, mjög góðri. Gott var að dýfa brauðinu í sósuna tíl að ná henni upp. Kjúkhngabitamir sjálfir voru í þurrasta lagi. Tandoori-kjúkhngur var afleitur, eldrauöur í gegn, alveg bragðlaus og þurr, leiðinlegt sýnishom af kunnasta rétti Indlands. Þetta voru töluverð vonbrigði, því að indver- skir veitingastaðir eru oft metnir eftir þessum einkennisrétti, sem þeir ahir bjóða. Milt rækjukarrí var kennt við Kasmír, borið fram með ananas -og banana, sem yfir- gnæfði í bragði. Ananas og banani vom einnig með ánægjulega meyru og karríkrydduðu Kasmír-lambi, sem var mun kryddaðra en rækju- karríið. Lamba Biryani var boriö fram á skrautlegum hrísgrjónum, sem vom htuð með kryddi á ýmsa vegu. Biryani-hrísgijón em steikt í meira smjöri eða grænmetisolíu en saffr- an-krydduðu Pulau-hrísgrjónin, sem einnig fást í Taj Mahal. Þessar tvær matreiðsluaðferðir hrísgrjóna einkenna veitingastaðinn á svipaö- an hátt og tandoori-leirofninn og karríkryddiö. Eftirréttir era engir á matseðhn- um, enda er indversk eldamennska ekki þekkt fyrir góða eftirrétti. Hins vegar em á seðlinum ýmis vond borðvín, sem mættu missa sig. Heitir dúkar Þjónusta var fagmannleg og frambærileg. Beztir voru heitu dúkamir, sem við fengum th snyrt- ingar eftir matinn. Þeir hefðu þó mátt vera heitari. Mér fannst Taj Mahal nánast vera frambærilegur fuhtrúi ind- verskrar matreiðslu og endur- spegla hana betur en kínversku veitingastaðimir sína matreiðslu. Staðurinn er aðeins opinn á kvöld- in. Verðlagið er fremur lágt, lægra en gengur og gerist á austrænum veitingastöðum höfuðborgarsvæð- isins. Miðjuverð forrétta var 395 krónur og aðalrétta 972 krónur. Taj Mahal er hvorkj fyrsta flokks né þriðja flokks sýnishom af ind- verskum matstað eins og viö þekkjum þá frá vestrænum stór- borgum. Ef matreiðslumaöurinn nær tökum á tandoori-kjúkhngi, má hta á staðinn sem frambærhegt annars flokks veitingahús, sem notast má viö, þegar langt er th næstu Lundúnaferðar. Taj Mahal getur því átt erindi við okkur. Jónas Kristjánsson Útboð Efnisvinnsla I á Vesturlandi 1988 ofan- Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum greint verk. Heildarmagn 30.000 m3 Verki skal lokið 15. september 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 2. mai nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 9. maí 1988. Vegamálastjóri Sm Utboð Súgandafjörður 1988 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Lengd vegarkafla 3,2 km, fylling 31.500 m3 og burðarlag 11.500 m3. Verki skal að fullu lokið 20. september 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og i Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 3. maí nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 16. maí 1988. Vegamálastjóri Lausar stöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður við Raunvís- indastofnun Háskólans sem veittar eru til 1-3 ára. a) Ein staða sérfræðings við Eðlisfræðistofu. b) Þrjár stöður sérfræðinga við Jarðfræðistofu. c) Þrjár stöður sérfræðinga við Stærðfræðistofu. Stöðurnar verða veittar frá 1. september nk. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvarandi háskólanámi og starf- að minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa en kennsla þeirra við Háskóla islands er háð samkomulagi milli deildarráðs raun- vísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans,og skal þá m.a. ákveðið hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 27. maí nk. Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum mönn- um á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og visindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðar- mál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðuneytið, 27. apríl 1988. LEÐUR- HVÍLDARSTÓLAR Verðið er hreint ótrúlegt! Stóll með skammeli, aðeins kr. 22.600,- (stgr.). Y F O R REYKJAVÍKURVEGI66,220 HAFNARFIRÐI, SÍMI54100. I HF Strandgotu 7 - 9 Akureyri. Simar 96-21790 & 96 21690
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.