Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988. Sverrir Stormsker ásamt Iffverði sínum, Jón Páli Sigmarssyni, og söngkonunni Eddu Borg. Sænski hjartaknúsarinn Tommy Körberg er i röð sigurstranglegustu DV-símamynd ELA keppendanna. Vígstaðan fyrir úrslitastundina í Dublin: Svíar, Bretar og Svisslendingar taldir sigurstranglegastir Elin Alberlsdóttir, DV, Dubliru írska lýðveldið heldur 33. Evrópu- söngvakeppnina með pomp og pragt um leið og haldið er upp á þúsund ára afmæli höfuðborgarinnar. írar hafa verið með í söngvakeppninni frá árinu 1965 og sigrað þrisvar. Evrópusöngvakeppnin var haidin í fyrsta sinn árið 1956. Árið sem írar voru með í fyrsta sinn héldu ítalir keppnina. Þá sigraði Luxemburg. Reyndar hefur Luxemburg sigrað íjórum sinnum í keppninni. Finn- land, Portúgal, Tyrkland og Júgó- slavía hafa aldrei sigrað frekar en íslendingar. Svíar hafa sigrað tvi- svar, í fyrsta skipti árið 1974 þegar ABBA sigraði heiminn i leiðinni. Svíþjóð sigraði aftur árið 1984 þegar Harry keppti fyrir þeirra hönd. Danir voru fyrstir Norðurlanda- þjóða til að sigra í keppninni en það var árið 1963. Norðmenn sigruðu eft- irminnilega árið 1985. Svíar ætlar sér stóran hlut Svíar hafa greinilega mikinn áhuga á að sigra í þriöja sinn því aö þeir tefla fram stórstjörnunni Tommy Körberg. Tommy var popp- stjama í Sviþjóð fyrir nokkrum árum, þá með sítt hár og hippalegur í útliti. Hann er öllu snyrtilegri núna enda virtur söngvari. Tommy syngur um þessar mundir í söngleiknum Chess. Hann hefur áður sungið fyrir Svíþjóð í Evrópusöngvakeppninni en það var árið 1969. Þá lenti hann í áttunda sæti í keppninni sem fór fram í Madrid. Lagið sem Tommy syngur er í raun sálmur og nefnist Stad i ljus. Mjög margir Sviar eru í Dublin og hafa þeir haldið hér sænska viku til kynn- ingar á landi og þjóð. Svíþjóð er spáð fyrsta eða öðru sætinu í keppninni. írar virðast ekki hafa mikinn áhuga á að sigra í keppninni að þessu sinni. Þeir tefla fram hljómsveitinni Jump the Gun. Hún er mjög vel þekkt rokkhljómsveit hér í landi og hefur gefið út nokkrar plötur. Hins vegar höföar tónlist þeirra nær eingöngu til unglinga og er hljómsveitin mjög vinsæl hjá krökkum á aldrinum 14 til 16 ára. Finnland virðist ekki eiga sigur- möguleika í ár fremur en fyrri ár. Þeir eru einnig með hljómsveit í keppninni sem vinsæl er meðal yngra fólks í heimalandinu. Bretar verða í einu af flmm efstu sætunum ef marka má veðbanka. Þeir senda til keppni Scott Fitzgerald Tyrkir senda vinsæla hljómsveit til keppninnar. Þeim er þó ekki spáð meiri frama en undanfarin ár. en hann er þekktur poppsöngvari bæði í Bretlandi og annars staðar í Evrópu. Scott hefur átt lag á vin- sældalistum. Hann býr í Hollandi. Höfundur breska lagsins er Julie Fortich, vel þekktur höfundur sem meðal annars hefur unnið með Frank Sinatra, Freddie Starr og Vict- or Borges. Tyrkir slá ekki í gegn Tyrkneska hljómsveitin hefur ekki vakið mikla athygh hér en hún er vel þekkt í heimalandinu. Hún hefur starfað í fimmtán ár og gefið út nokkrar plötur. Spænska lagið er einnig sungið af heilli hljómsveit. Hún hefur starfað saman síðan 1985 en að því er virðist hefur hún ekki náð teljandi vinsæld- um í heimalandinu en höfundur lagsins er hins vegar þekktur í Evr- ópu. Gerard Joling, sem syngur hol- lenska lagið, er vinsælasti söngvar- inn í sínu heimalandi. Hann er auk þess vel þekktur í Japan, Suður- Ameríku, Hong Kong og á Filippseyj- um. Á Taiwan hefur hann einnig getið sér gott orð og átt metsöluplötur þar. Honum er spáð 18. sætinu hér. Yardena Arazi syngur ísraelska lagið í ár. Hún er veFþekkt sem söng- og leikkona í heimalandinu. Henni er þó spáð einu af neðstu sætunum í keppninni. Svissneska söngkonan Céline Dion á góða möguleika á að sigra í kvöld að því er veðbankar segja. Henni er spáð fyrsta til öðru sæti á móti 'Tommy hinum sænska. Céhne er frá Montreal. Hún gaf út sína fyrstu plötu árið 1981 og dreymir um að verða heimsfræg. Þýsku mæðgumar hrífa Þýsku mæðgurnar hafa vakið mikla athygh hér. Móðirin, Chris, hefur leikið á píanó síðan hún var 9 ára og 13 ára hafði hún samið sitt fyrsta lag. Hún hefur leikið á hljóm- borð í rokkhljómsveit. Dóttirin, Maxi, var jafngömul móðurinni þeg- ar hún byijaði að spila á píanó en hún leikur einnig á gítar, flautu og trommur og er fjölhæfur tónhstar- maður eins og móðirin. Spár ganga í þá átt að þær mæðgur verði í einu af efstu sætunum. Austurríska laginu Mona Lisa er spáð 15. sætinu í keppninni. Söngvar- inn er þekktur dansari, leikari og söngvari í heimalandi sínu. Danska söngkona Kirsten tekur þátt í Evrópusöngvakeppninni í þriðja sinn. Hún á von á barni í næsta mánuði. Samkvæmt áhti veðbanka er lagið hennar í einu af neðstu sæt- unum. Grikkir syngja lagið Clown. Hljóm- sveitin hefur leikið saman í sjö ár en trúðalagið hefur ekki vakið hrifn- ingu hér. Margir héldu að norska söngkonan myndi vekja athygh. Hún er aðeins 18 ára og nýuppgötvuð. Þessi unga stúlka hefur fahið í skuggann fyrir þýsku mæðgunum hér í Dublin og henni er spáð neðsta sætinu í keppn- inni. Reyndar eru Norðmenn ekki óvanir að verma botnsætið og kenndu menn Jan nokkrum Teigen um. Belgíska lagið, lagið frá Luxem- burg, ítalska lagið, franska, portú- galska ogjúgóslavneska lagið eru öll flutt af þekktum listamönnum í sín- um heimalöndum en ekkert þessara laga hefur vakið athygli hér í Dublin. Margir frægir keppa Það er óvenjumikið um að löndin tefli fram þekktum listamönnum í ár. Sumir segja að lögin séu betri en oft áður en aðrir segja að þau hafi aldrei verið lélegri. Svo virðist sem hlaðamenn sækist fremur eftir að kynna listamenn sem eru að einhverju leyti óvenjulegir. Það hefur komið í ljós hér með þýsku mæðgurnar en þær vekja óvenju- mikla athygli. Þær líta fremur út sem systur en mæðgur og það er ekki síst það sem fjallað hefur verið um. Glæsilegt útht sakar ekki í Evrópu- söngvakeppninni. Kynnar keppninnar eru aö þessu sinni tveir. Michela Rocha er 27 ára gömul og fyrrverandi ungfrú írland. Hún hefur verið eftirsótt ljósmynda- fyrirsæta. Michela stundaði nám í ítölsku og frönsku í háskóla þegar hún var uppgötvuð. Hún hefur einn- ig sigrað í keppninni um titilinn besta ljósmyndaifyrirsæta í heimi. Hún ætti því að koma vel fyrir þegar hún kynnir keppnina í kvöld. Mic- hellar hefur unnið fyrir írska sjón- varpið undanfarið og gerir þar eigin þætti. Pat Kenny er einnig frönskumæl- andi. Hann er einn virtasti og þekktasti sjónvarpsmaöur á írlandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.