Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Qupperneq 36
44 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988. Lífsstíll___ Grænland: Oft er leitað langt yfir skammt. Þetta á ekki síst við um ferðalög ís- lendinga til íjarlægra staða í leit að íjölbreytni og fegurð. Við bæjardym- ar er land sem býður upp á stórkost- lega náttúru. Grænland hefur ekki aðeins mikiili náttúrufegurð að skarta heldur er menning Grænlend- inga forvitnileg og frábragðin því sem við þekkjum. Harðbýlt land Grænland er harðbýlt land. Aust- urströndin er mjög strjálbýl og íbúar annarra landssvæða eiga einnig er- fitt uppdráttar. Svo harðbýlt er landið að íbúar verða að dysja sína látnu í stað þess að grafa í jörð nið- ur. Ástæðan er sú að jörð er frosin stóran hluta ársins og einnig er hör- gull á jarðvegi til að grafa í. ísjakar fylla firði langt fram á sum- ar og ferðalög um landið eru erfið allt árið. Landslag á austurströnd- inni minnir sums staðar á Vestfirð- ina íslensku að viöbættu Jökulsárl- óni. ísinn setur mjög sérkennilegan svip á allt. Stórskorin náttúran gríp- ur hvem þann sem ferðast til Grænland og vara áhrifin lengi. Inúkar Grænlendingar kalla sig Inúka. og þýðir orðið „maður“. Nafnið gefur kannski tóninn um lífsviðhorf Græn- lendinga sjálfra. Erfitt landið hefur alið með þessu fólki einfold lífsvið- horf. Kjarni málsins hefur verið að halda lífi. Nú er hins vegar öldin önnur. Góð læknaþjónusta hefur gert það að verkum að töluverð mannfjölgun hefur átt sér stað. Það er álit margra að þessi fólksfjölgun hafi farið fram úr afkomumöguleikum þeim sem landið býr yfir. Ekki verður íjölyrt hér um þau vandamál sem hafa sprottið upp vegna kynna Grænlendinga af vest- rænni menningu. Mikið umrót hefur átt sér stað og hafa Grænlendingar þurft að sækja á brattann til að við- halda menningararfleið sinni. Inúkar hafa löngum verið taldir sérlega gestrisnir. Hefur það jafnvel skapað þeim ýmis vandamál. Enn er gestrisnin í hávegum höfð. Grænlenskan er eitt af erfiðustu tungumálum heims. Málkerfi tung- unnar er mjög frábragðið vestræn- um málkerfum. Grænlendingar eiga yfir 30 orð til um snjó en erfiðleikum er bundið fyrir þá að búa til orð sem tengjast nútíma tækni. Það er jafn- erfitt fyrir Inúka að læra t.d. dönsku og fyrir Dani að læra grænlensku. Af þeim sökum hafa menntunarmál Grænlendinga átt við ramman reip að draga. Þó svo að vestræn vímuefni hafi sett sitt mark á grænlenskt líf eru Inúkar stolt fólk. Þeir hafa einnig efni á því að vera stoltir þvi það hef- ur þurft harðgert fólk til að lifa af í jafnharðbýlu landi. Tækniöldin hefur hafið innreið sína á Grænlandi og þar eru mótorþríhjól mikið notuð. Ferðamöguleikar til Grænlands DV kannaði ferðamöguleika frá íslandi til Grænlands og kom margt forvitnilegt í ljós. í fyrsta lagi eru flugsamgöngur milh landanna mjög góðar og auðvelt að skella sér í heim- sókn til nágrannanna. Verra er að verð á ferðum til Græn- lands er í hærri kantinum og ugg- laust fælir það frá stóran hóp viðskiptavina. Hér á eftir fara upp- lýsingar sem DV aflaði um ferða- möguleika til Grænlands. Ferðir til Kúlusúk Flugleiðir hafa um langt árabil flogið til Kúlusúk. Flugið á Kúlusúk er þó ekki áætlunarflug heldur leigu- flug. Einungis er flogið yfir sumar- 'tímann og er meirihluti farþega erlendir feröamenn. Flogið er fimm daga vikunnar. Flugið tekur tvo klukkutíma. Stoppað er í fjóra tíma á meðan ferðamenn skoða sig um. Eins dags ferðir með Flugleiðum til Kúlusúk kosta 10.139 krónur. Flugskóli Helga Jónssonar er með áætlunarréttindi fyrir flug milli Reykjavíkur og Kúlusúk. Flogið er fjóra daga vikunnar. Flugskólinn er með áætlunarflug til Kúlusúk allt árið. Ýmis aöstaða hefur verið byggð upp í Kúlusúk fyrir farþega flugskól- ans. Gistihús' fyrir ferðamenn, safari-bíll og hraðbátur eru meðal þess sem boðið er upp á. Dagsferð til Kúlusúk kostar 13.600 krónur og er innifalið flug, ferð með bíl til þorpsins Cap Dan, kaffi í gesta- húsi flugfélagsins, skoðunarferð um þorpið og bátsferð til flugvallarins. í Feröir á hundasleóum eru enn góður og gildur feröamáti á Grænlandi. DV-myndir GVA \ Þú boigar alltaf sama gjaldið, hvort sem þú ert einn eða með f leirum í bílnum! Hreyfill bvður sætaferðir til Keflavíkur Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl. Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtlma. Við vekjum þig með hressilegri símhringingu, óskir þú þess. HREVFMl 68 55 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.