Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Síða 37
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988.
45
LífsstOl
sumar verða í boði helgarferðir þar
sem gist verður í gestahúsinu. Matur
er innifalin í verðinu og einnig ferð
á bát til Angmagssalik. Brottfór verð-
ur á laugardögum og heimkoma á
mánudögum. Ferðin mun kosta
23.400 krónur.
Með þyrlu til
Angmagssalik
Ferðir til Angmagssalik eru
tengdar Kúlusúkferðum Flugleiða.
Farið er meö þyrlu á milli staðanna
og er flugtíminn tiu mínútur. Ef veð-
mr hamlar flugi eru ferðamenn sel-
fluttir með bát. í Angmagssalik er
hótel sem býður upp á hvers kyns
þjónustu. Þaðan er hægt að fara í
ýmsar skoðunarferðir, bæði til sjós
og lands. Þriggja daga ferð til Ang-
magssalik kostar 19.272 krónur og er
þá innifalið allt flug, gisting með öll-
um máltíðum og skoðunarferð um
þorpið.
Ferðir til Angmagssalik er einnig
hægt að kaupa hjá Flugskóla Helga
Jónssonar. Verð á fluginu er 18.300
krónur og þar til viöbótar er hótel-
kostnaður og ferðalög frá Kúlusúk
til Angmagssalik.
Andstæðurnar geta veriö miklar í Grænlandi. Sleðahundurinn stendur fyrir traman húsið sem skartar móttakara fyrir sjónvarpsendingar frá gervihnött-
um.
Fimm ferðir á viku
til Narssarssuak
Flugleiðir í samstarfi við Gron-
landsfly fljúga til Narssarssuak fimm
sinnum i viku. Þangað fara flestir
ferðamenn frá íslandi. íslendingar
eru þó ekki í meirihluta. Brottfarir
verða þrjár á viku í sumar, með Bo-
eing 727, og veröur flogið á þriðjudög-
um, fimmtudögum og laugardögum.
Þorpið byggðist upp vegna þjónustu
við flugvöllin. Eitt hótel er á staön-
um. Narssarssuak liggur við Eiríks-
flörð. Þar er hin svokallaöa eystri
byggð sem íslendingar byggðu forð-
um. Skammt frá Narssarssuak er
höfuðból Eiríks rauða, Brattahlíð.
Ferðir
i' '■í^ö’áÆ' " jS
Grænlenskar dörpur klæðast ætið þjóðbuningnum þegar eitthvað stendur til.
Julianeháb liggur innar í flröinum.
Boöið er upp á ýmiss konar ferðir frá
Narssarssuak.
Ódýrustu farmiðar, báðar leiöir,-'*”
frá Keflavik til Narssarssuak kosta
17.600 krónur. Hægt er aö fá pakka-
feröir og er þá innifalin einhver
þjónusta í Narssarssuak. Þessar
pakkaferöir eru oft ódýrari en ef
þjónusta og flugmiöi eru keypt í sitt
hvoru lagi.
Nuuk og Constable Pynt
Nuuk (eða Godtháb eins og stað-
urinn var áður kallaöur) er einn af
áfangastööum Gronlandsfly. Brott-
fór frá íslandi verður á sunnudögum
og flogiö frá Nuuk tii ReyKjavíkur á
fóstudögum. Farmiöinn tíl Nuuk
kostar 43.020 krónur en hægt er aö
fá ódýrari pakkaferðir.
Constable Pynt er þriöji áfanga-
staður Gronlandsfly. Þorpiö er á
austurströnd Grænlands og verður
flogiö þangaö á laugardögum. Flugið
þjónar 500 manna byggö við Skores-
bysund. Verö á miðum eru 43.000
krónur.
Flutningar á hermönnum
Flugfélag Noröurlands er eitt af
þeim flugfélögum sem fljúga oft til
Grænlands. Að vísu hefur félagiö
ekki áætlunarleyfi til Grænlands og
er allt flug á þess vegum leiguflug.
Viðamiklir eru flutningar á hinum
svokölluðum Siríushópum. Flokkar
þessir eru sendir á vegum danska
ríkisins gagngert til aö viöhalda
yfirráðarétti Dana yflr óbyggöum
landssvæöum. Alþjóðalög kveða svo
á að séu stór landssvæöi ónýtt hafi
aörar'þjóðir leyfi til nýta þau. Til að
viðhalda þessum rétti á senda Danir
hermenn, á hundasleöum, til að ferð-
ast um þessar eyöibyggðir einu sinni
á ári. Flogiö er með menn og vistir
til bækistöðva þeirra.
Ýmsir með leiguflug
Nokkur önnur flugfélög en hér
eru nefnd aö ofan eru með leiguflug
til Grænlands. Sem dæmi má nefha
Flugleigu Sverris Þóroddsonar.
Flugleigan hefur flogiö næstum
vikulega á sumrin til Grænlands. í
sumar mun kosta 16.700 krónur aö
fara meö Flugleigu Sverris til Kúlu-
súk og er útsýnisflug yfir jökulinn
innifaliö í verðinu.
■EG