Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Blaðsíða 56
Frjáist,óháð dagblað
LOKI
Landlæknir er nú sagður
skólastjóri Reiðskólans!
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988.
Bílstjórarnir
aðstoða
SEJlDIBíLJISTÓÐin
Mjólkurleysiö er víða farið að segja til sín. Á meðan flestir
„deyja“ úr ráðaleysi leita aðrir allra ráða. Úlfar Eysteinsson
veitingamaður er einn hinna síðarnefndu og útvegar gestum
sínum mjólk eins og hver getur í sig látið. Hann greip til þess
ráðs að fá til sín afkastamikinn „mjólkurframleiðanda“. Fram-
leiðandinn og veitingamaðurinn vöktu óskipta athygli þegar
losun á vökvanum hvíta og dýrmæta fór fram á Grensásvegi
í gær. DV-mynd BG/-sme
Engar undanþágur j
hafa verið veittar $
til launaútreikninga j
„Það hefur öllum undanþágum til
launaútreikninga fyrir þessi mán-
aðamót verið hafnað. Fólkið sem
reiknar launin út er í verkfalli, alveg
eins og þeir sem eiga að fá þau,“ sagði
Pétur Maack, formaður verkfalls-
nefndar Verslunarmannafélagsins, í
samtali við DV.
Hann sagði að mest hefði verið sótt
um undanþágur til að reikna út laun
þess fólks sem er utan Verslunar-
mannafélagsins og fær laun greidd
vikulega.
Núeru aftur á móti komin mánaða-
mót og þá hefur nokkuö verið um
að óskað væri eftir undanþágu fyrir
það fólk sem fær útborgað mánaðar-
lega, en öllum slíkum óskum hefur
verið hafnað.
-S.dór
Um20%verslunarmanna I
höfðu kosið í gærkvöldi j
Um það bil 20% þeirra sem eru á
kjörskrá hjá Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur, eða um tvö þúsund
manns, höfðu greitt atkvæði í alls-
herjar atkvæöagreiðslunni um
miðlunartillögu sáttasemjara þegar
kjörstað var lokað klukkan 19.00 í
gær. Þátttaka var dræm framan af
degi en verulegur kippur kom í hana
eftir miðjan dag.
Kjörstaöurinn er í Verzlunarskóla
íslands við Ofanleiti. Hann verður
aftur opnaður í dag klukkan 10 en
atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan
18.00.
Um leið og kosningu lýkur hefst
talning atkvæða hjá sáttasemjara.
Alls þurfa 35% félagsmanna að taka
þátt í atkvæðagreiðslunni tíl þess að
reglan um einfaldan meirihluta gildi,
verði meirihlutinn á móti tillögunni.
Ef innan við 20% félagsmanna heíðu
greitt atkvæði teldist tillagan sám-
þykkt burtséð frá hvemig atkvæði
féllu.
S.dór
Það breytist ýmislegt í verkfalli. Kaupmenn ganga í verk starfsfólks síns.
Ekki var annað að sjá en Guðlaugur Bergmann, kaupmaður í Karnabæ,
kynni vel við sig er hann afgreiddi í verslun sinni, mældi buxnasidd og
mittismál. DV-mynd GVA
Veðrið um helgina:
Norð-
austangola
og fremur
Á sunnudag og mánudag verður
austan- og norðaustanátt, gola eða
kaldi, víða skýjað en úrkomulaust.
Hætt er við smá þokuúða við norð-
austur- og austurströndina. Hiti
verður á bilinu 2 til 8 stig.
^ Tugir verslana hafa samið:
Eg hef lyririítningu
á þessum gjömingi
- segir Þórarinn V. Þórarinssonf framkvæmdastjóri VSÍ
„Mér þykir þetta fádæma
ómerkilegur verknaður og að fólk-
ið sem að þessum samningiun
stendur skuli vera með þessum
hætti að gera sér mat úr veikri
stöðu fyrirtækja sem eru rekin af
ábyrgð og festu og eru að reyna að
halda uppi launa- og efnahags-
stefnu i landinu til að koma í veg
fyrir efnahagslega kollsteypu í al-
varlegum kjaradeilum. Þess vegna
hef ég fullkomna fyrirhtningu á
þessum gjörningi,“ sagði Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins,
spurður álits á því að tugir versl-
ana hefðu í gær og í dag veriö að
semja um 42 þúsund króna lág-
markslaun við verslunarmannafé-
lögin.
Þórarinn benti á aö í langflestum
tilfellum væri hér um að ræða lítíl
fyrirtæki sem væru á sérvörusvið-
inu. Þetta væru fyrirtæki sem
seldu dýrar vörur á háu verði og
hefðu greitt mun hærri laun en
almennt gerðist um lágmarkslaun
í landinu. Eftir þvi sem fyrirtækin
upplýstu væri hér ekki um neinar
breytingar að ræða á greiddum
launum umfram þá 5,1% hækkun
sem þau semdu nú um. Þess vegna,
sagði Þórarinn, hefur þetta enga
efnahagslega þýðingu.
Hann var spurður hvort hann
ætlaði að taka áskorun Magnúsar
L. Sveinssonar um að skrifa undir
sams konar samning og verslunar-
mannafélögin gerðu við Amarflug
hf. í nótt er leiö.
,,Að fenginni reynslu hef ég ekki
trú á að Magnús L. Sveinsson komi
í gegnum sitt félag samningi sera
felur í sér minni launabreytingar
en miðlimartillaga sáttasemjara,
því er þetta tilgangslaus umræða,“
sagöi Þórarinn V. Þórarinsson.
-S.dór
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augfýsingar - Áskrift - Dreifing: Símí 27022