Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988. ff Forsetinn ræður ekki yfir Steingrími" 9 -Sjo, Böm hafa aörar skoöanir á hlut unum en fullorðnir, þaö hefur margsannast. Venjulega ræöa þau ekki sömu málefni og eldra fólkið. Hins vegar heyra þau hvað fram fer í kringum þau og mörg hver fylgjast vel meö. Vigdís Finnboga- dóttir, forseti íslands, var endur- kjörinn um síðustu helgi og þjóðin fylgdist með úrshtum kosning- anna. Talsvert var rætt mamia á meðal um mótframbjóðanda for- seta, Sigrúnu Þorsteinsdóttur. Böm, sem eru á aldrinum sjö, átta og níu ára, muna ekki eftir öörum í embætti forseta en Vigdísi Finnbogadóttur. Það þótti allsér- stætt er kvenmaöur bauð sig fram til forseta áriö 1980 en í dag þykir þaö ekki heyra til tiðinda. Bömin teija embætti forseta nánast frem- ur vera fyrir konu en karl svo segja má að tíðarandinn hafi breyst tals- vert á átta árum. Helgarblaðið ræddi viö nokkur böm mn forseta og kosningar og þaö kom á óvart hversu vel þau eru að sér. Aðeins starf forseta kom þeim f erfiöa stöðu því ekkert þeirra vissi hvert starf fórseta er í raun og veru. Vel getur verið að margir full- orönir séu einnig í vafa um hvert sé starf forseta. Meö tilliti til svara bamanna væri ekki úr vegi fyrir kennara eöa fóstrur að fræða börn- in um slíka hluti því eitt er víst að ekki vantaöi áhugann fyrir um- ræöuefninu. -ELA Eyrún, 7 ára, telur aö karlar hafi þorað í framboð en ekki þótt það tímabært. „Þreytandi að vera forseti" -segirEyrún, 7ára „Ég horfði ekkert á þessar kosning- ar. Mér þótti þær ekki skemmtilegar. Vigdís og einhver Sigrún vildu veröa forsetar. Mér fannst bara að Vigdís ætti að vera forseti. Hún er búin aö vera svo lengi. Hún á kannski ekki aö vera alltaf en hún má alveg vera lengur,“ sagði Eyrún Guðmunds- dóttir, 8 ára. - Af hverju var enginn karl í fram- boöi? „Nú veit ég ekki. Þeir vilja örugg- lega verða forsetar. Ég hugsa líka aö þeir hafi þorað á móti konunum. Kannski vilja þeir bara vera forsetar seinna.“ - Hveiju ræöur forsetinn? „Nú veit ég ekki. Ég held nú ekki aö hún ráöi yfir körlunum á alþingi. Samt ræður hún einhveiju. Mig langar til að hitta hana einhvern tíma. Hún er alltaf svo fín.“ - Hvað gerir Vigdís þegar hún fer til útlanda? „Þá fer hún í heimsókn og talar við fólk. Ég held að það sé þreytandi. Ekki vildi ég vera forseti.“ Sölvi, 9 ára, seglr að Vigdís geti nú ekki ráðið yfir alþingismönnum. DV-myndir JAK - Helduröu að það sé ekki spennandi að vera forseti og fara til útlanda? „Jú, en ég hef líka farið niu sinnum til útlanda og samt er ég smábarn. Ég hef farið til Tyrklands, tvisvar til Spánar, fimm sinnum til Danmerkur og til Frakklands. Afi minn fer alltaf með mig. Hann fer oft til útlanda. Hann er tannlæknir og vinnur mik- ið. Ég er að fara til Ameríku í sum- ar. Þangað hef ég aldrei komið svo ég ætla að skoða mig um.“ - Langar þig að hitta forsetann í Ameríku? „Ég veit þaö ekki. Kannski hitti ég hann. Ég hef aldrei hitt Vigdísi, bara séð hana í sjónvarpinu. Mér finnst hún vera sæt.“ - Eigumviðsætastaforsetaíheimi? „Ekki alveg. Hófi er nefnilega sæt- ari.“ „Með þrjú hundruð þús- undámánuði" - segir Sölvi, 9 ára „Ég fylgdist eitthvað smá með þess- um kosningum. Ég fór að sofa klukk- an tvö. Vigdís var í framboði og Sig- rún. Vigdís vann auðvitað vegna þess að allir kusu hana. Það eru allir ánægðir með hana,“ sagði Sölvi Tryggvason, 9 ára. - Fannst þér skrýtið aö enginn karl- maöur var í framboði? „Nei, mér fannst það ekki. Auðvit- að geta karlmenn verið forsetar, þeir eru það í mörgum löndum. Einu sinni var maður forseti á íslandi og ég er viss um að einhvem tíma seinna verður aftur karlmaður for- seti. En það var skrýtið að enginn skildi vilja fara í framboð núna.“ - Veistu hvað forseti gerir? „Hún fer til útlanda og tekur á móti fólki sem kemur hingað. Ég veit eiginlega ekki hvaö hún gerir meira. Þaö er ábyggilega erfitt að vera forseti. Ég hugsa líka að hún hafi svona þrjú hundruð þúsund á mánuði.“ - Viltþúverðaforsetiþegarþúverð- ur stór? „Nei, ég held ekki. Það er of erfitt. Maður þarf að kunna svo margt. Tala mörg tungumál og geta talaö við forseta sem eiga heima í útlönd- um. Ég held að maður þurfi að læra mjög margt. Ég held að fólki í útlönd- um þyki líka skrýtið að hér sé forset- inn kona.“ - Hverju heldur þú að forseti ráöi? „Hún ræður einhverju en mætti ráða meiru. Hún ræður náttúrlega ekki yfir Steingrími.“ - Heldur þú að hún ráði yfir alþing- ismönnum? „Nei, hei. Hún ræður ekki yfir mönnum. Kannski ræður hún ein- hveiju en ekki svo miklu.“ - Hefur þú séð Vigdísi? „Bara í sjónvarpinu. Ég mundi al- veg vilja hútta hana en ekki veit ég hvað ég ætti að segja.“ Valgarður segir að pabbi hans vinni of mikið til að vera forseti. „Hinfékkbara fimm stig" - segir Valli, 7 ára „Ég fylgdist meö þegar var verið að kjósa forseta. Mér þótti það takast vel,“ sagði Valgarður Finnbogason, 7 ára gamall. „Heitir ekki forsetinn Vigdís Finnbogadóttir? Hin konan sem vildi verða forseti heitir Guörún, nei annars Sigrún og fékk bara fimm stig. Eg fór ekki að kjósa en mamma mín gerði þaö og fékk bara eitt stig. Ég fór ekki meö henni og hún sagði mér ekki hvern hún kaus. Pabbi minn vill ekki vera forseti. Hann er nefnilega alltaf að vinna. Þá getur hann ekki verið forseti." - Hvað gerir forsetinn? „Talar við fólk. Ég hef oft séö hana í sjónvarpinu og stundum er hún að tala við pabba minn. Hann er að vinna á bílasölu, Bílakjör, og forset- inn er vinur hans. Forsetinn kemur stundum á bílasöluna.“ - Vilt þú verða forseti? „Nei, því maður verður endilega að vera glaður. Mér finnst allt í lagi að vera glaður en ég nenni ekki aö vera forseti." - Forsetinn þarf stundum að fara til útlanda. Heldurðu að það sé ekki gaman? veröa forseti þegar hún verður stór. „Ég hef nú komið til Mallorca. Þaö er alveg nóg að fara einu sinni en samt er ég að fara þangað aftur í sumar.“ - Veistu hvar forsetinn á heima? „Nei, ég er búinn að gleyma þyí. Nú, á hún heima á Bessastöðum? Fg hef aldrei séð húsið. Kannski fer ég einhvem tíma þangað í heimsókn. Mig langar mikið til að sjá Bessa- staði en mig langar ekki að vera for- seti.“ „Guð ræður meiru en forseti" - segir Þórey, 6 ára „Forsetinn okkar heitir Vigdís og hin konan sem vildi verða forseti heitir Sigrún. Ég sá þær í sjónvarp- inu. Ég held að hin konan hafi viljaö verða forseti því hún heldur að það sé svo gaman," sagði Þórey Sigur- jónsdóttir, 6 ára. „Ég er nú ekki viss um að það sé neitt gaman. Forsetinn þarf að fara á einhveija ráðningu (ráðstefnur) og í hús að tala við ann- að fólk. Það er örugglega erfitt að vera forseti." - Em bara konur forsetar? „Nei, nei, ekki í útlöndum. Það er bara kona á íslandi. Karlar mega ekki vera forsetar á íslandi. Forset- inn ræður ekki öllu því það gerir bara guð. Ég fór með mömmu og frænku minni í skólann að kjósa. Það var rosalega margt fólk. Svo sá ég líka konurnar í sjónvarpinu. Vigdís var miklu betri. Hún á alltaf að vera forseti. Ég ætla nú ekki að verða for- seti - ég get það ekki.“ „Forsetar á íslandi bara konur" - segir Rebekka, 7 ára „Það vora tvær konur sem vildu verða forsetar. Ein heitir Sigrún og hin Vigdís. Ég hélt með Vigdísi. Þær voru í sjónvarpinu. Mér fannst svoldið gaman að sjá kosningarnar en svo fór ég að sofa,“ sagði Rebekka Helgadóttir, 7 ára. Hún sagðist vilja fá karlmann í forsetaembættið. „Það hefur aldrei verið neinn karl forseti á íslandi - bara í útlöndum. Ég held aö það sé skemmtilegt að vera forseti og mig langar til þess þegar ég verð stór. Forsetinn þarf svo margt að gera. Hann á heima í finu húsi og fer til útlanda og talar við fólk.“ Þórey Sigurjónsdóttir, sex ára, segir að Hófi sé sætari en Vigdís. „Húnáheima í ráðhúsinu" -segirBjami, 7 ára „Ég var í Laugamesskólanum þeg- ar verið var að kjósa forseta,“ sagði Bjarni Guðmundsson, 7 ára. „Ég kaus ekki en var samt allan daginn. Þaö var svo rosalega gaman. Ég drakk gos með vini mínum.“ - Veistuafhverjuveriðvaraðkjósa? „Já, auðvitað. Það var verið að kjósa forseta. Vigdís Finnbogadóttir vann en hin hét Sigrún. Hún hélt aö hún myndi vinna. Sigrún vann sko ekki. Æth hún haldi ekki að það sé gaman að vera forseti.“ - Af hveiju var enginn karlmaður sem vildi veröa forseti? „Það var maður á undan Vigdísi Finnbogadóttur. Ég veit ekki hvað hann heitir. Ég held að konur séu svo hrifnar af þessu starfi. Þaö er ekkert gaman að vera forseti.“ - Af hverju er það ekki gaman? „Æi, maður þarf alltaf að vera að kjafta. Forseti þarf alltaf að vera að skrifa blöð og tala. Það er sko hund- leiðinlegt. Svo fer hún til útlanda. Ekki veit ég hvað hún er aö þvælast alltaf." - Veistu hvar forseti á heima? „ Já, í ráðhúsinu. Ég hugsa að menn geti ekki verið forsetar. Þeim frnnst ekkert gaman að vera alltaf svona finir. Vigdís er alltaf svo fín.“ Bjarni Guðmundsson segir aö karlar vilji ekki vera svona finir eins og Vigdfs er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.