Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Page 54
66 Andlát Guðríður Þ. Einarsdóttir, Austur- brún 4, er látin. Kristján Magnús Björnsson, Álfta- mýri 28, andaöist í Landakotsspítala 30. júní. Hólmfríður Benediktsdóttir Peders- n en, húsmóðir, Hrauntungu 15, Kópa- vogi, lést í Borgarspítalanum 30. júní. Páll Halldórsson organisti, er látinn. Tilkynriingar Sex prestar vígðir á morgun Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirs- son vígir sex guöfræöinga til prestsþjón- ustu á morgun, sunnudaginn 3. júlí. Vígslan verður í Dómkirkjunni í Reykja- vík og hefst kl. 11. Vígsluþegar eru: Gunnar Sigurjónsson sem kallaður hefur veriö til Skeggjastaöaprestakalls. Gunn- ar er 27 ára, lauk guðfræðiprófi frá Há- j skóla íslands nú í vor. Kona hans er Þóra Þórarinsdóttir landfræðingur. Halldóra J. Þorvarðardóttir sem kjörin var í Fellsmúlaprestakall. Hún er 28 ára, lauk guðfræðiprófi haustið 1986. Eiginmaður hennar er Sigurjón Bjarnason skóla- stjóri. Ólöf Ólafsdóttir er veröur prestur við Umönnunar- og hjúkrunarheimilið Skjól í Reykjavík. Ólöf er sextug aö aldri, lauk guðfræðiprófi vorið 1987. Eigin- maður hennar, Svavar Pálsson rafvirki, er látinn. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir hefur verið kjörin prestur á Raufarhöfn. Hún er 35 ára, lauk guðfræðiprófi haus- tið 1987. Sigurður Jónsson hefur verið kjörinn prestur í Patreksflarðarpresta- kalli. Hann er 28 ára, lauk guðfræðiprófi nú í vor. Kona hans er Jóhanna Friðriks- dóttir hjúkrunarfræðingur. Sigurður Pálsson er settur prestur í Hallgríms- prestakalli í námsleyfi sr. Karls Sigur- björnssonar. Hann er 51 árs, lauk guð- fræðiprófi haustið 1986. Kona hans er Jóhanna Möller söngkona. Víglsuvottar verða: sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir, sr. Ragnar Fjalar Lárusson, sr. Sigurður H. Guðmundsson og sr. Sigmar I. Torfa- son prófastur er lýsir vígslu. Vinnuferð sjálfboðasamtaka um náttúruvernd verður farin í Mývatnssveit og unnið í Dimmuborgum og jafnvel á fleiri stöðum undir stjórn félaganna fyrir norðan. Fyr- irtækið Guðmundur Jónasson veitir ókeypis far norður Sprengisand fyrir allt að 10 manns. Ef fleiri verða skiptist sá kostnaður á hópinn. Aðalferðadagurinn norður er miðvikudagurinn 6. júlí en einnig er ferð laugardaginn 9. júlí. Gist er í húsi sem Náttúruvemdarráð hefur til umráða. Þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi á sunnudagskvöld til Jó- hönnu B. Magnúsdóttur í síma 66614. Félag eldri borgara opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á sunnudag kl. 14. Frjálst spil og tafl. Kl. 20 dansað til kl. 23.30. Verkakvennafélagið Framsókn fer í sína árlegu sumarferð 7.-9. ágúst. Farið verður um Skagafjörð og gist á Sauðárkróki. Upplýsingar á skrifstofu félagsins, s. 688930. Helgileikurinn Chrysokolla fluttur á Draghálsi Laugardaginn 2. júlí nk. mun gerninga- þjónusta Inferno 5 flytja helgileikinn Chrysokolla á Draghálsi. Ætlunin var að frumsýna leikinn á sumarblóti ásatrúar- manna á sama stað 18. júní sl. en fresta varð flutningi vegna veðurs. Inferno 5 er hópur manna er lagt hefur stund á al- hliða Ustsköpun, staðið fyrir tónleikum, alls kyns sýningum og gerningum. Blótað verður kl. 18 en helgileikurinn hefst kl. 19. Heiðingjar eru sérstaklega velkomnir en einnig aðrir. Danssýning í Kramhúsinu Laugardaginn 2. júli verður danssýning i Kramhúsinu og lýkur þar með alþjóð- legu dansnámskeiði. Dagskráin verður mjög bölbreytt, m.a. verður frumfluttur nútímajassdans við nýtt tónverk eftir Eyþór Arnalds en danshöfundur er Adr- ianne Hawkins. Önnur verk eru samin af dönsurunum Christian Polos, Önnu Haynes, Keith Taylor og Alexöndru Prusa. Á þessari sýningu gefst fólki kost- ur á að sjá afrakstur og fjölbreytni slíkra námskeiða, s.s. nútímadans, jassdans, stepp, tangó og kóreografíska vinnu. Sýn- ingarnar verða tvær laugardaginn 2. júlí, sú fyrri kl. 15 og sú seinni kl. 18. Aðgöngu- miðar og miðapantanir verða í Kram- húsinu, simi 15103 og 17860. Fyrirlestur um líf víkinga Sunnudaginn 3. júlí kl. 17 heldur Dom- Greiðslur almennings fyrir læknishjálp og lyf "'(skv. reglugerð útg. 22. júní 1988) 1. Greiðslur hjá heimilislÆkni og heilsugæslulækni 165 kr. — Fyrir viðtal á stofu læknis. Innifalin er ritun lyfseðils. 300 kr. — Fyrir vitjun læknis til sjúklings. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling. um viðbótargjald, nema vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér. 2- Greiðslur fyrir sórfræöilæknishjálp, rannsóknir . og röntgengreiningu 550 kr. — Fyrir hverja komu til sérfræðings. 185 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 1 2 skiptin hjá sérfræðingi á hverju almanaksári, síðan ekkert. (Sjá nánar hér að neðan). Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiðslu fyrir hverja komu ásamt rannsókn/röntgengreiningu í fram- haldi af henni. Til nánari skýringar er eftirfarandi tafla: Greiðslur almennings fyrir sérfræðilæknishjálp, nokkur dæmi. TAFLA Heimilis- læknir Sérfræð- ingur Ranns./ Röntg.gr. Sérfræð- ingur Aðgerð hjá Svæfing/deyfing sérfræðingi hjá sérfræðingi Dæmi 1 165 550 Dæmi 2 165 385 Dæmi 3 165 550 550 Dæmi 4 165 550 0 Dæmi 5 165 550 0 550 Dæmi 6 165 550 0 550 0 550 Skýringar: Taflan lesist frá vinstri til hægri og sýnir samskipti við a.m.k. tvo lækna. Dæmi 4: Sjúkl- ingur leitar til heimilislæknis og greiðir þar 165 kr. Heimilislæknir vísar síðan sjúklingi til sérfræð- ings, og þar greiðir sjúklingur 550 kr. Þessi sérfræðingur sendir sjúkling í röntgengreiningu, og þarf sjúklingur ekki að greiða sérstaklega fyrir hana, þar sem hún er T beinu framhaldi af komu til sérfræðings. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbótargjald, nema vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér. Allir eiga að fá kvittanir fyrir greiðslum sínum hjá sérfræðingum. Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem leggja fram hjá sjúkrasamlagi sTnu kvittun fyrir 12 greiðslum á sérfræði- læknishjálp á sama ári, fá skírteini, sem veitir þeim rétt á þessari þjónustu ókeypis það sem eftir er ársins. 3. Greiöslur fyrir lyf 440 kr. — Fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi. 140 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi. Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfjaskammt, eða brot úr honum. Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfjabúð fást ákveðinn lyf, við tilteknum langvarandi sjúkdömum, ókeypis. Læknar gefa vottorð til sjúkrasamlags T þeim tilvikum, sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi. Greiðslur þessar gilda frá og með 1. júlí 1988. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS LAUGAKDAGUK 2. JÚI.Í 1988. inic Tweddle fyrirlestur í fundarsal Norr- æna hússins um daglegt líf víkinga á dögum Eiríks blóðaxar er féll árið 954 síðastur norrænna konunga í Jórvík. Dominic Tweddle er forstöðumaður Rannsóknarstofnunar Jórvíkur (York Archaelogical Trust) og er staddur hér á landi í boði Norræna hússins. í haust er fyrirhuguð viðamikil sýning á víkinga- aldarmenningu í Norræna húsinu og Þjóðminjasafninu. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og eru allir velkomnir. Tapaðfundið Kettlingur í óskilum Ca. 2 mánaða hvítur og grábröndóttur kettlingur er í óskilum í Torfufelli 44. Hann fannst við KRON í Breiðholti. Upp- lýsingar í síma 79523. Lotta ófundin Lotta er kolsvört læða sem hefur ekki sést síðan 4. júní en þá hvarf hún frá heimili sínu að Laufásvegi 2a. Hún er eymamerkt 7515. 5.000 krónum er heitið í fundarlaun fyrir Lottu. Upplýsingar í síma 23611. Kveikjari tapaðist Grár kveikjari, sem er nákvæm eftirlík- ing af míkrafóni, tapaðist á Hótel íslandi fóstudagskvöldið 24. júní. Finnandi vin- samlegast hringi í síma 30997 eða 84840. Sýningar AiAV JOHNSTOK Skoskur listamaður í Nýlistasafninu í dag opnar skoski listamðurinn Alan Johnston sýningu á málverkum, skúlpt- úr og veggteikningum i Nýlistasafninu. Allan er fæddur 1945 og býr í Edinborg. Hann sýnir reglulega í New York, Tokýo og Köln og átti verk á samsýningu í Ný- listasafninu í febrúar sl. Sýningin er opin virka daga kl. 16-20 og kl. 14-20 um helg- ar. Sýningin stendur til 10. júlí. Tónleikar Svíþjóðarfarar í Heita pottinum Nk. sunnudags- og mánudagskvöld spilar kvartett Tómasar R. Einarssonar í Heita pottinum í Duus-húsi. Þetta verða siðustu tónleikar kvartettsins áður en hann held- ur til Svíþjóðar. Þar verður hann fulltrúi íslands á Nordiska Radiojazzdagar í Karl- stad 8.-10. júlí. Auk Tómasar R. Einars- sonar kontrabassaleikara skipa kvartett- inn Sigurður Flosason (altó- og barítón- saxafónn), Kjartan Valdimarsson (píanó) og Birgir Baldursson (trommur). Efnis- skrá hljómsveitarinnar er að mestu frumsamin og eru lögin eftir þá Tómas R. Einarsson og Sigurð Flosason. Tón- leikamir í Heita pottinum hefjast kl. 21.30 bæði kvöldin. Tónleikar í Norræna húsinu Þriðjudaginn 5. júlí kl. 20.30 ætlar Frartsk-íslenski kvartettinn að halda tón- leika í Norræna húsinu. Efnisskráin er óvenju fjölbreytt því þar er bæði að finna klassísk einleiksverk eftir J.S. Bach, Henry Eccles, P.A. Genin og jasssvítu eftir franska tónskáldið og jassistann Claude Bolling. Þeir sem skipa kvartett- inn eru: Daníel Þorsteinsson píanó, Christope Brandon flauta, Hávarður Tryggvason kontrabassi og Birgir Bald- ursson trommur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.