Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Blaðsíða 23
^IM&Ágíib.'ÍvJíft.f, ------------------------------------------------
r>v Veiðivon
Þá tók laxinn loksins...
Veiöisögur vilja veiöimenn heyra
og þeir segja þær viö hin ólíklegustu
tækifæri, hvort sem er í veiðihúsum
eða heimahúsum, og það góða við
veiðisögur er að þær eru allar sann-
ar.
Sveifarlausi veiðimaðurinn
Fyrsta veiðisaga sumarsins kemur
tTr Elliðaánum. Tveir veiöimenn
voru að renna um síðustu helgi og
mikið var af flski. Annar veiðimaö-
urinn rennir og um leið tekur fiskur,
hann landar fiskinum strax. Veiðifé-
lagi hans rennir og um leið tekur
lax. Laxinn er þreyttur um stund og
síðan á að draga hann en viti menn,
það er alls ekki hægt. Sveifin hafði
farið af hjóhnu í átökunum. Skömmu
seinna fór laxinn af líka hjá sveifar-
lausa veiðimanninum.
Steinari Jóhannssyni þykir miklu
skemmtilegara að veiða með flug-
unni en maðknum, skyldi nokkurn
undra. Að fá lax eða silung á flugu
er ævintýri sem seint gleymist.
Veiðigarpar við Laxá í Dölum, Helgi Eyjólfsson, Dagur Garðarsson og
Garðar Sigurðsson, með góða veiði úr ánni.
DV-myndir G.Bender og Pétur
40 flugutegundir dugðu ekki
Laxá í Kjós hefur gefið vel það sem
af er en ekki hefur öllum gengið vel
þar þrátt fyrir þáö.
Viö fréttum af einum sem fór fyrir
skömmu og veiddi dagstund. Laxinn
var tregur að taka hjá vini okkar sem
reyndi lengi vel með flugunni en lax-
inn tók ekki. Hann var að renna fyr-
ir neðan Laxfoss og prófaði margar
flugur. Veiðimaðurinn færði sig neð-
ar og renndi á breiðunni fyrir ofan
holuna en ekkert gerðist. Neðar var
farið og veiðimaðurinn, sem reynt
hafði 40 tegundir af flugum, renndi
nú maöki. En er hann veður út í
dettur úr vasa hans fluga og lendir
í vatnið. Veiðimaðurinn horfir á eftir
flugunni og viti menn, þaö kemur lax
og tekur hana. Það var ekki nóg að
vera búinn að reyna allar tegundir í
Málin rædd við Laxá i Kjós fyrir
nokkrum dögum, Árni Baldursson
segir nokkur orð við Gunnar H. Hálf-
dánarson um Kvislarfossinn um leið
og þeir labba hjá. Gunnar hafði
nokkrum minútum áður veitt 4 laxa
niðri í Höklum.
boxinu, laxinn tók þær ekki - en
þessa. Getur veiðin ekki stundum
verið ósanngjörn?
Sjálfstýringin bilaði
Sumir veiðimenn eru fengsælir en
aörir ekki. Við fréttum af einum
veiöimanni sem veiddi í á á Vestur-
landi og hafði engan fisk fengið það
sem af var sumri. Lukkuhjólið fór
ekki að snúast í þessari á frekar en
öðrum og það stefndi í núll þangað
til nokkrum mínútum fyrir hættu-
tímann. Þá gerðist undrið, lax mað
bilaða sjálfstýringu sigldi upp á þurrt
og vinurinn fékk í soðið. Heppinn
þar!
G.Bender
Magnús Þorvaldsson, fyrrum leikmaður með Vikingi, veður yfir Laxá í Kjós
fyrir skömmu með lax sem hann hafði skömmu áður landað.
Viða of margar
stangir í veiðiánum
„Þetta er oröiö alltof mikiö stress
í veiöinni þar sem eru svona marg-
ar stangir eins og héma,“ segir
veiöimaðurinn við morgunverðar-
borðiö og hættir að borða brauö-
sneiöina. Hann heldur áfram:
„Sérðu, þriggja stanga veiðiá var
ég i fyrir skömmu og þar réð maöur
öllu sjálfur, ekkert stress þar. Svo
kemur maður hingað og allt veröur
vitlaust“
Veiðimaðurinn hefur lokiö máli
sínu og þarna við matarboröið hetj-
ast umræður um málið. „Þetta er
mál sem blöðin eiga að taka á.
Sjáðu Norðurá, 12 stangir á aðal-
svæðinu, og í Kjósinni eru 10 stang-
ir. Það kemur fyrir að maður verð-
ur aö veiða i þtjá tíma á lélegum
svæðum, þetta gengur ekki fyrir
mikið fésegir annar veiðimaöur
yfir morgunmatnum.
Þetta er rætt áfram en menn tin-
ast út til veiða, fiskurinn biður ekki
þó svæðin séu mörg, það vita veiði-
menn og þess vegna renna þeir
áfram þó þröngt sé hjá sumum.
G-Bender
Hann er tignarlegur, laxinn okk-
ar, og veiðimenn berja oft marg-
ir á sama laxinum dag eftir dag,
það gerir stangafjöldinn i mörg-
um veiðlám.
DV-mynd G.Bender
GARÐASTAL
Afgreitt eftir máli.
Allir fylgihlutir.
= HEÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000