Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Blaðsíða 18
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988.
18
Uppáhaldsmatur sælkerans á sunnudegi
Djúpsteiktar
rækjur að hætti
Jóns Óttars
Flestir eldri íslendingar ólust upp
viö ofnsteikt lambalæri eöa hrygg
meö sykurbrúnuðum kartöflum og
rauðkáli. Læriö var á borðum í
hádegi og heimilisfólk boröaöi mat-
inn sinn missyfjað yfir messunni í
útvarpinu.
Nú er öldin önnur. Aðalmáltíð
dagsins er hjá flestum að kvöldinu
og nú er mataræðið margbreyti-
legra en áður var. Oft velta menn
því fyrir sér hvað eigi að bjóða upp
á í helgarmatinn og standa langa
stund fyrir framan kjötborðið á
föstudegi. Mann langar oft aö hafa
eitthvað sérstakt en dettur ekkert
sniðugt í hug. Margir kannast sjálf-
sagt við þá tilfinningu.
Helgarblaðið ætlar nú að koma á
nýjum þætti þar sem þekkt fólk úr
þjóðlífinu gefur uppskriftir að
uppáhaldsmat á sunnudegi. Upp-
skriftirnar verða að vonum jafn-
mismunandi og mennirnir og ættu
að geta komið lesandanum að góðu
gagni, hvort sem er sem sunnu-
dagsmatur eða þegar von er á gest-
um.
Jón Óttar Ragnarsson sjónvarps-
stjóri tók vel í þá ósk að vera fyrst-
ur og gefur okkur hér girnilega
uppskrift aö djúpsteiktum rækjum.
Sannarlega skemmtilegur réttur á
góðu sumarkvöldi.
'ela
Djúpsteiktar rækjur
'/«bolli ananassafi
2 msk. kryddedik
2 msk. púðursykur
2 msk. tómatsósa
2 msk. kínversk sojasósa
2 msk. karrísósa - tilbúinn á flöskum
Allt sett í pott og hitaö og síðan þykkt með kartöflumjöli. Út í
þetta er síðan sett brytjaður ananas og ein græn paprika.
Orly deig
1 bolli hveiti
'A tsk. salt
'/; tsk. ger
'/«tsk. matarsódi
'A tsk. edik
'A bolii vatn
Passar fyrir 250 g af rækjum (750 g duga fyrir 10 manns)
Rækjurnar þíddar og látnar bíða smástund með sítrónusafa.
Velt upp úr deiginu og djúpsteikt i mataroliu.
Borið fram með soðnum hrísgrjónum og eplasalati (epli, sýröur
rjómi, majónes, sykur, púrrulaukur og krydd) og sósunni.
Jón Óttar Ragnarsson ríður á vaðið i nýjum dálki hér i helgarblaðinu
þar sem þekkt fólk úr þjóðlífinu gefur uppskrittir að uppáhaldsmat á
sunnudegi.
DV-mynd JAK
Sumarblóm
Fjölær blóm
EIGUM ALLT SEM
PRÝn GETUR GARÐINN
Orvals garðplöntur
Tré og runnar Garðyrkjuáhöld
Rósir Blómaker
Grasfræ
Aburður
Opið frá kl. 10—19 alla daga
Gróörarstöóin
GARÐSHORN 50
við Fossvogskirkjugarð sínti 40500