Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Síða 15
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988.
15
Skin sólin?
Er ríkisstjómin að sligast?
Er ríkisstjórnin aö sligast? Marg-
ir telja, að svo sé. Forystumenn
stjómarflokkanna munnhöggvast í
fjölmiðlum. Þær deiiur magnast
dag frá degi. Til em kenningar um,
að Steingrímur Hermannsson leiti
leiða til stjórnarslita. Steingrímur
hefur aldrei sætt sig við að vera
ekki forsætisráðherra. En fleira
kemur til. Stjórnin ræður ekki við
efnahagsmálin. Deilur um stöðu
Landsvirkjunar eru aðeins toppur-
inn á ísjakanum. Þær em átylla
vegna þess, að grundvallarágrein-
ingur er milli stjómarliða um
miklu stærri mál.
Ósammála um stóru málin
Allir vita, að stjórnarliðar eru
ósammála um efnahagsmálin.
Framsókn hefur viljað taka miklu
harðar á þeim málaflokki en hinir.
Framsókn vildi síðast fella gengið
um fimm prósentustig meira en
aðrir stjómarliðar. Framsókn
nefhdi þá jafnvel allt að 20 prósent
gengisfelhngu. En hún varð 10 pró-
sent. Að vísu fékk Seðlabankinn
heimild til að fella gengið um 3
prósent til viðbótar. En Seðlabank-
inn hefur verið tregur til þess þrátt
fyrir mikið tap á frystingu. Að vísu
hefur Bandaríkjadollar hækkað
talsvert. En á móti kemur mikið
verðfall á nærri öllum fiskafurðum
okkar. Þá hefur Framsókn viljað
ganga hart fram gegn viðskipta-
hallanum við útlönd. Aðrir stjórn-
arliðar hafa lítið viljað við hopum
gera. En það stefnir í gífurlegan
viðskiptahalla og samsvarandi
skuldasöfnun við útlönd. Stjómar-
hðar eru þó ekki sjálfum sér sam-
kvæmir. Sami ráðhema talar einn
daginn um, að minnka þurfi hinar
gífurlegu erlendu skuldir, en legg-
ur daginn eftir eitthvað til, sem
stórevkur skuldirnar. Víst er erfitt
að stjóma og auðveldara að gagn-
rýna en í að komast. En stjórnin er
í sjálfheldu í efnahagsmálunum.
Það horfir illa. Einn áhrifamikill
stjómarliði sagði DV í gær, að allt
væri á hvolfi í þessum málum.
Stefnir í hart
Framsóknarmenn halda mikið
þing í næsta mánuði. Þar mun
koma fram hörð gagnrýni á þessa
stjórnarsetu. Sú gagnrýni mun
ekki aðeins koma frá Ólafi Þ. Þórð-
arsyni og Guðmundi G. Þórarins-
syni. Hún mun vafalaust setja
mestan svip á fundinn. Eftir það
mun Framsókn mæta harðari í
slaginn við aðra stjórnarhða. Geng-
isfehingarkröfur munu tvímæla-
laust verða mikið á dagskrá, enda
em helztu hagfræðingar farnir að
spá gengisfellingu í haust.
Miklar gmndvallardehur em í
stjórninni. Th dæmis eiga fastgeng-
ismenn þar ýmsa fulltrúa. Fram-
sóknarmenn hafa hins vegar vhjað
styrkja útflutningsatvinnuvegina
með gengisfellingum. En ekki verð-
ur bæði sleppt og haldið. Sumir
segja, að í lagi sé, að fastgengi valdi
einhveijum skakkaföllum í út-
flutningsgreinum. Það vanti hvort
eða er um 3 þúsund manns í vinnu
hér. En aðrir sjá merki samdráttar.
Margir atvinnuvegir era nú í
vanda og beijast í bökkum. Við
sjáum einnig dæmi þes á Reykja-
víkursvæðinu, að fyrirtæki fara á
höfuðið. Auðvitað hefur verið of-
fjárfesting á Reykjavíkursvæðinu,
til dæmis í ýmsum tegundum verzl-
unar og þjónustu. Menn segja rétti-
lega, að atvinnulíf úti á landi hafi
dalað. Þar muni samdrátturinn
byrja. Síðan færist samdrátturinn
á höfuðborgarsvæðið. Iðnaðar-
menn hafa enn úr nógu að spha.
En þeir vinni að verkefnum, sem
mörg lágu fyrir, áður en syrti í ál-
inn. Síðan muni draga snögglega
úr þessari vinnu. Þá geti verið
skammt í kreppu, segja hinir svart-
sýnustu.
Óðaveröbólga
Ríkisstjórnin kemst tæplega út
úr sínum vanda. Hún situr í mik-
illi verðbólgu, sem kalla má óða-
verðbólgu, að minnsta kosti sem
stendur.
Ríkisstjórnin situr með fisk-
vinnslu, sem rekin er með halla.
Frystingarmenn segja, að helming-
ur hækkunar dollars muni skila
sér til frystingarinnar. En þá kem-
ur th, að Kanadamenn bjóða fisk á
Bandaríkjamarkaði á miklu lægra
verði en viö. Bandaríkjamenn
munu og yfirleitt farnir að áhta,
að íslenzki fiskurinn hafi ekki þá
yfirburði yfir fisk frá öðmm lönd-
um, að réttlæti geysimikinn verð-
mun. Þetta hefur verið aö breytast.
Keppinautar okkar hafa bætt sína
vöm og gert hana samkeppnis-
hæfari við íslenzka fiskinn. Ríkis-
stjórnin hefur þann vanda við að
ghma, að gengið hlýtur nær ákveð-
ið að falla. Það þýðir, að verðbólgan
vex aftur með nýrri gengislækkun.
Haukur Helgason
aðstoðarritstjóri
Ónýt stjórn
Og stjómmálamenn segja margir,
að stjórnin sé ónýt.
Steingrímur Hermannsson segir,
að þessi ríkisstjóm ráði ekki viö
hlutina. Davíð Oddsson borgar-
stjóri gagnrýnir stjórnina fyrir
getuleysi í efnahagsmálum. Geir
Hallgrímsson seðlabankastjóri
benti í DV nýlega á, hversu ómark-
vissar aðgerðir stjórninnar væm í
efnahagsmálum. Þetta sýnir
sundrungu í flokkum stjórnarinn-
ar. En það verður einnig að viður-
kenna, að ríkisstjórnin er getulaus
og hefur misst efnahagsmálin úr
böndunum.
Stjórnin hefur misst verðbólguna
úr böndum.
Stjórnin getur ekkert gagnvart
vöxtum.
Það verður halli á fiárlögum,
þvert ofan í það, sem vera ætti og
lofað var. Halhnn verður sennhega
yfir mihjarður í ár. Á næsta ári er
nú rætt, að fjárlagahallinn verði
tveir og hálfur mhljarður.
Lánsfjáráætlun er fokin út í veð-
ur og vind. Ráðherrar hafa sjálfir
verið aö krukka í þá áætlun og
hlaðið upp skuldum th viöbótar
því, sem fyrir var.
Því fara stjórnarhðar illa með þá
hluti, sem þeir gætu þó ráðið við,
hvað þá hluti, sem ráöherrar
megna ekki að stjórna. Ríkisstjórn-
in vitnar nú stöðugt í svokahaðar
ytri aðstæður, sem hafi gengið gegn
okkur, svo sem verðfall á fiskinum.
En það hangir miklu meira á spýt-
unni. Ríkisstjórnin hefur brugðizt,
vafalaust mest vegna innbyrðis
sundrungar. Þá sundrangu sjáum
við nú í öllum fjölmiðlum. En hún
hefur staðið það ár, sem stjórnin
hefur verið við lýði, blossar aðeins
skýrar upp þessa daga en áöur var.
Illar horfur
Nánar um efnahagsmálin. Horfur
em á mikilli verðbólgu næstu mán-
uði. Jafnvel hógværustu hagfræð-
ingar segja, aö verðbólgan verði
20-30 prósent frá byrjun til loka
þessa árs. Aðrir nefna miklu hærri
tölur.
Viðskiptahalhnn er mikih. Hóg-
værar spár segja, aö hann v.erði
1CU12 mhljarðar á árinu.
Áfram eru miklir erfiðleikar í
útflutningi.
Líklega er 3-5 prósent halli í sjáv-
arúvegi í heild og um 5 prósent í
fiskvinnslunni í hehd. Hagnaður
hefur orðiö í saltfiski. En halli á
frystingunni er talinn um 10 pró-
sent.
Þá bætist við verðfah á fiskafurð-
um okkar erlendis, sem nefnt hefur
verið.
Sumir vona, að verðfalhð þýði,
að Norðmenn muni draga úr fram-
boði fisks á næsta ári. Þá getur
orðið minni uppskera i landbúnaði
Bandaríkjamanna vegna mikhla
hita og þurrka. En við horfum samt
upp á, að verðfall á freðfiski í
Bandaríkjunum hefur yfirleitt ver-
ið um 10 prósent. í Bretlandi er
talað um lækkun verðs á flestum
botnfiskafurðum.
Tekjur manna hér uxu mikið síð-
ustu ár. Árin 1985 og 1986 voru ekki
sérstök, og sumir telja, að tekjur
okkar nú verði svipaðar og þá, þeg-
ar upp er staðið. Kaupmáttur tekna
óx um 20 prósent milli áranna 1986
og 1987. Nú fer hann hríðlækkandi.
Það era einkum hin miklu við-
brigði, sem skipta hér máh. Marg-
ir, aðrir en fyrirtæki, hafa vanizt
mikihi eyðslu og lagt í dýrar íjár-
festingar. Óvíst er, að markaðurinn
geti tekið við miklu framboði á fast-
eignum, jafnvel á íbúðarhúsnæöi,
kjósi menn aö minnka við sig. Þessi
vandi sást mjög síðustu daga fyrir
mánaðamótin nú. Menn héldu aö
sér höndum, og kaupmenn urðu
þess mjög varir. En hvað gerist
svo?
Menn telja, að um einhvern sam-
drátt verði að ræða, en kannski
ekki alger umskipti. En verðbólgu-
hraðinn er mikill, og kaupið stend-
ur í stað.
Lítum að lokum á bollaleggingar
í síðasta hefti rits Fjárfestingarfé-
lagsins, sem var að koma út. Þar
er rætt um hugsanlega óðaverð-
bólgu. Þar segir, að Seðlabankinn
hafi reiknað út lánskjaravísitöluna
fyrir júlí og verði hún 2154 stig.
Hún hefur því hækkað um 5 pró-
sent á einum mánuði, sem svarar
til 80 prósent verðbólguhraða mið-
að við heht ár. Þó verðbólguhrað-
inn minnki eitthvað á næstunni,
eru ennþá nokkrar hækkanir í píp-
unum og þvi verði verðbólguhrað-
inn nokkuð hár, að minnsta kosti
fram á haustið, eða líklega 40-50
prósent.
Hins vegar er óskandi, að upp úr
því takist að hemja verðbólguna.
Veena mikhlar óvissu, meðal ann-
ars um, hvort grípa þurfi til enn
einnar gengisfelhngar í haust með
tilheyrandi víxlhækkunum kaup-
gjalds og verðlags, sé ekki sjálfgef-
ið, að sú ósk rætist.
Að lokum má endurtaka þá
spurningu: Er ekki ljóst, að ríkis-
stjórnin er í sjálfheldu? Feigðar-
merkin eru skýr.
-HH