Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Síða 16
16
LAUGÁRDAGUR 2. JÚLf 1988.
Persónueinkenni einstakiingsins og viðhorf mótast mest af fjölskyldunni og uppeldi. Dr.Kevin, höfundur bokarinnar Systkinaröðin mótar manninn,
telur að staða okkar i röð systkina hafi varanleg áhrif á allt okkar lif.
Ekkert hefur meiri áhrif á einn
mann en fjölskylda hans. Þótt ýms-
ir aðrir félagsmótunaraðilar séu
sterkir og áhrifamiklir er enginn
sem jafnast á við fjölskylduna. En
hefurðu hugleitt að það getur skipt
mjög miklu máli fyrir hvern ein-
stakling hvar í systkinaröðinni
hann er? Það er, hvort hann sé
frumburöur, miðlungur (einhvers
staðar á milli frumburðar og þess
yngsta) eöa yngsta barnið.
Fyrir skömmu kom út bók sem
tekur þetta efni til grandskoðunar.
Bókin heitir i íslenskri þýðingu
„Systkinaröðin mótar manninn"
og er eftir Dr. Kevin Leman. Þar
er lýst hve systkinaröðin getur ver-
ið mikilvæg og þeim persónueigin-
leikum sem einstaklingunum eru
oft sameiginlegir eftir þvi hvar í
systkinaröðinni þeir eru. Þó er lögö
áhersla á að hér er ekki um eitt-
hvert einfalt kerfi að ræða heldur
er reynt að benda á viss einkenni
sem komið hafa fram. Höfundur
tekur ýmis dæmi úr raunveruleik-
anum máh sínu til stuðnings.
Bendir hann einnig á að gæta verð-
ur að ýmsum breytilegum aðstæð-
um sem koma fram hjá öllum fjöl-
skyldum; eins og aldursmun barna
og kynferði, systkinaröð foreldra
þeirra, blöndun tveggja eða fleiri
fjölskyldna og loks hvernig sam-
bandi foreldranna er háttað.
En hugum að systkinaröðinni.
Frumburðir stefna hátt
Dr. Leman segir að eitt ein-
kenni sé sérstaklega áberandi með-
al allra frumburða og einbirna en
það er fullkomleikaárátta. Frum-
burðir eru jafnan mikils metnir og
mikils er vænst af þeim. Þeir eru
því gjaman undir miklu oki og er
þeim titt að reyna alltaf að gera
öllum til geðs. Frumburðir hafa
ríka þörf fyrir viðurkenningu og
þá þyrstir í hrós. í augum foreldra
er allt það sem frumburður þeirra
tekur sér fyrir hendur merkilegt
og eru þeir óspart hvattir til dáða.
Þessi börn skara líka oft fram úr í
skóla þar sem þörfin fyrir að standa
sig er svo mikil. En allri athyglinni
og hrósinu fylgir álag sem getur
haft neikvæð áhrif á hvern ein-
stakling.
Einkenni frumburða er meðal
annars einbeitingarhæfni og þohn-
mæöi, skipulagsgáfa og skyldu-
rækni og njóta þeir sín því vel í
ýmsum stjórnunarstörfum. Og þar
sem svo miklar vonir hafa verið
bundnar við frumburðinn er líklegt
aö hann muni alla ævi gera of mikl-
ar kröfur til sjálfs sín. Hann stefnir
gjarnan hátt og vill vera óaðfmnan-
legur og bestur í öllu.
Einbimi lík írumburðum
Það sem hefur verið sagt hér
aö framan um frumburöi á allt viö
um einbimi líka en einbimi eru oft
sérkennileg blanda frumburðar og
yngsta bams. Einbimi eru mjög
gagnrýnin á sjálf sig sem og aðra.
Fjölskyldutengsl einbima tak-
markast oft við foreldrana. Hafa
þau því hlotið óvenju mikla athygli
fuhorðinna sem getur leitt til þess
að þau eigi erfitt með að samlagast
jafnöldrum sínum.
Einbirni verða „augasteinn" for-
eldranna og hættir því til að vera
ofdekruð. Skiptir þá ekki máli hver
ástæða þess er að þau eiga ekki
systkini. Einbirni eru því vön aö
hafa allt eftir sínu höfði og fellur
það iha þegar málin þróast á annan
veg.
Stundum geta einbirni átt erfiða
ævi og rannsóknir hafa leitt í ljós
að þau eru oft mjög einmana. Nið-
urstöður rannsóknarinnar sýna
líka að einbirni em eigingjarnari
og þarfnast meiri athygli en önnur
böm.
Erfití aö átta sig
á miðlungum
Hafirðu fæöst á eftir fmmburð-
inum í íjölskyldunni ertu annað-
hvort miölungur eða yngsta bam.
Dr. Kevin telur hvort um sig hafa
bæði kosti og ókosti.
Erfiðara getur verið að átta sig á
miðlungum en elstu og yngstu
börnum. Miölungar verða fyrir
mestum áhrifum af því systkini
sem er næst fyrir ofan það í röö-
inni. Mjög erfitt getur verið að segja
fyrir um hvernig skapgerð miðl-
unga muni þróast því þau verða
fyrir alls kyns þrýstingi frá eldri
og yngri systkinum.
Margir miðlungar kvarta undan
því að þeir hafi ekki notið eins
mikillar athygli í æsku og hin
systkinin. Ekki síst ef börnin voru
bara þrjú. Þá hafi frumburðurinn
og yngsta barnið notið sinnar sér-
stööu á meðan miðlungnum virðist
ekki hafa verið ætlað mikið svigr-
úm innan fjölskyldunnar. Þess
vegna hafi miðlungurinn mikla
þörf fyrir aö leita út fyrir fjölskyld-
una að viðurkenningu. Enda eru
miölungar jafnan mjög vinmargir.
Sálfræöingar segja að marga erf-
iðleika síðar í lífi miðlunga megi
rekja th þátta í uppeldinu sem
tengjast þessu „vandamáli". En
reynslan af því að fá ekki sitt fram
vegna ógreiðs aðgangs að foreld-
rum, hefur kennt þeim að fara
samningaleiöina og aö reyna að
miðla málum. Þaö eru vissulega
góðir kostir í lífsbaráttunni síðar
meir.
Að vera yngstur
Yngstu börnin skera sig ævin-
lega nokkuð úr. Áhyggjuleysi og
kæti liggur í eðli yngstu barna og
verða þau því vinsæl. En aðrir eig-
inleikar eru einnig algengir. Þau
eiga það til aö vera uppreisnar-
gjörn, skapstór, tilætlunarsöm og
óþolinmóð.
Yngstu börnin hafa ríka þörf fyr-
ir að láta á sér bera og mikiö að sér
kveða í lífinu. Þau hafa oft þurft
aö berjast fyrir því að á þau sé
hlustaö; því oft eiga aörir fjöl-
skyldumeðlimir þaö til að líta á
yngsta systkinið sem htla barnið
alla tíð.
Höfundur bókarinnar segir að
yngstu börn lifi oft í breytilegum
og mótsagnakenndum tilfinninga-
heimi sem vefst fyrir þeim að skýra
og skilgreina. Aðra stundina geti
þau verið aðlaðandi og skemmtileg
en hina stundina þrjósk og þver.
Hefur áhrif á hjónaböndin
Dr. Kevin segir að áhrif systkin-
araðarinnar séu hvergi djúpstæö-
ari en á milli hjóna. Því skipti það
miklu máh hvernig makar veljast
saman.
Segir hann að íjölskylduráðgjafar
séu á einu máli um að þegar hjón
leiti aðstoðar vegna vandamála í
hjónabandi þá sé algengast aö um
tvo frumburöi sé að ræða eða tvö
yngstu börn. Þannig uppbyggð
hjónabönd séu þau erfiðustu. Full-
komleikaárátta frumburða lýsir
sér í því aö smáu atriðin gera þeim
lífiö leitt, jafnt í hjónabandi sem
annars staðar.
Þeir sem rannsakað hafa systk-
inaröðina eru sammála um að
heppilegustu pör með tilliti tii
hjónabands séu eftirfarandi:
Yngsti bróðir systra kvænist
elstu systur bræðra
og að yngsta systir bræðra gift-
ist elsta bróður bræðra.
Það vdröist sem yngstu börnum
henti best aö eiga frumburði vegna
þess að þeir eru líklegastir til að ljá
hjónabandinu varanlegt öryggi og
kjölfestu. En á hinn bóginn sé
sennilegt að létt lund yngstu barna
geti orðið til aö milda ögn alvöru-
gefni og skyldurækni frumburða.
Heppilegasta pörunin er líklega
sú að konan sé frumburður en
maðurinn yngsta barn. Konur úr
hópi frumburöa eru gjarnan móð-
urlegar í sér en það er eiginleiki
sem kemur körlum úr hópi yngstu
barna oft vel. En hafa verður það
hugfast að hér er aðeins verið að
gefa vísbendingar um gerð hvers
og eins og þann vanda sem fólk
gæti þurft aö glíma við. Systkina-
röðin slær engu fostu.
osarfslA