Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988. Sérstæð sakamál Seinni konan Síbrotamenn eru sérstakt við- fangsefni afbrotafræðinga og þeirra sálfræðinga sem reyna aö kanna af- stöðu og hug þessara manna sem virðast ekki ráöa gerðum sínum á sama hátt og aðrir. Þær má oft rekja til veilu í andlegu atgervi mannsins eða brenglaðra viðhorfa. Stundum verða brestir þessir til þess að yfir samfélög gengur alda aíbrota sem eiga margt sameiginlegt en stundum, þegar aíbrotin eru mjög alvarleg, leiðir langvarandi innilokun tii þess að endi er bundinn á afbrotaferilinn. Nýlega kom við sögu í Vestur- Berlín síbrotamaður sem átti við sérstakt vandamál að glíma. Talinn í hamingjusömu hjónabandi Dieter Kuball var fimmtíu og tveggja ára og engum sem þekkti til hans og konu hans, Elísabetar, hefði komið til hugar að nokkuð væri að í sambúð þeirra. Elísabet hafði held- ur aldrei haft á því orð svo vitaö væri að þau ættu við vanda að ghma og margt var það við framkomu og hegðan þe'irra hjónanna er aðrir sáu til sem benti frekar til þess að þau ættu vel saman og hjónabandið hefði fært þeim hamingjuna. Nágrannar þeirra sáu þau oft á gangi saman í hverfmu og leiddust þau þá gjaman. Fortíðin EUsabet hefði þó haft ástæðu til þess að hafa meiri áhyggjur af sam- búð sinni en flestar aðrar konur þvi maöurinn, sem hún hafði gengiö að eiga, hafði setið inni árum saman fyrir það að myröa fyrri konu sína, Herthu Heine. Það hafði gerst árið 1974. Hertha fannst kyrkt og eftir mikla leit hafði lögreglan hendur í hári Dieters sem reyndist sá seki. Var hann dæmdur til langvarandi Fjölbýlishúsið í Vestur-Berlín. fangelsisvistar og sat inni í aUs tólf ár. Það var því ekki fyrr en 1986 að hann fékk á ný frelsið en þá var hann þegar kvæntur EUsabetu. Gömul kynni Á hjónabandsárum sínum sóttu Hertha og Dieter stundum veitinga- og dansstaði í Vestur-Berlín en þó einn öðmm fremur. Og eitt kvöld, er þau hjón voru þar, tókust kynni með Dieter og Elísabetu. Þau kynni munu þó hvorki hafa staðið lengi né verið náin er þar kom að Dieter ákvað að binda enda á líf konu sinnar. Eftir að hann var kominn í fangelsið tók EUsabet að heimsækja hann og ári áður en Dieter var látinn laus, eða 1985, ákváðu þau að gifta sig. Höfðu þau þvi verið gift í ár er þau Dieter fluttust í íbúð í fjölbýhs- húsi í borginni. Eldri konur Ef til viU hefði það átt að vekja at- hygU þeirra sem fylgdust með fram- ferði Dieters og andlegri heilsu hans í fangelsinu í Vestur-Berlín að hann valdi sér á ný, eins og hann hafði gert er hann gekk aö eiga Herthu Heine, konu sem var mörgum árum eldri en hann. Hertha hafði verið tuttugu ogfjórum árum eldri en Diet- er er þau giftust og EUsabet var þrett- án árum eldri en hann. Lítill karlmaður Ef til viU hefði mátt tengja ofan- greindu þá ástæðu sem Dieter hafði gefið upp er hann var yfirheyrður um morðið á fyrri konu sinni, Herthu, eftir handtökuna 1974. Þá skýrði hann svo frá að hann hefði ráðið henni bana vegna þess „að hún hélt því fram að ég dygði ekki til neins í rúminu“. Þetta tvennt kom hins vegar skýrar fram og í betra samhengi er farið var að skoða Diet- er Kuball betur og andleg heUsa hans og viðhorf voru á ný tekin til mats. Elísabet hverfur Þau hjónin, Elísabet og Dieter, bjuggu í lltilli tveggja herbergja íbúð og sáu nágrannar þeirra þau daglega og nokkrir kunningjar og vinir, sem þau áttu, voru reglulega í sambandi við þau. Það geröi einnig dóttir EUsa- betar sem hún hafði átt mörgum árum áður. Ýmsum þótti þaö því undarlegt er Dieter fór allt í einu að sjást einn og ekki leið á löngu þar til hann var aö því spurður hvar kona hans væri. Hann svaraði því þá til að hún hefði farið í heimsókn til Póllands. Dóttirin verður óróleg Það var þó fyrst og fremst dóttir EUsabetar sem varð óróleg yfir þessu skyndilega hvarfi móður sinnar. Hún taldi að hún myndi hafa fengið að vita það hjá móður sinni ef hún ætlaði í utanlandsferð en um sinn sætti dóttirin sig þó við skýringar Dieters. Er hún frétti hins vegar ekk- ert af móður sinni, sem hún taldi að hefði að minnsta kosti átt að senda sér kort eða bréf frá Póllandi, hélt hún loks tU lögreglunnar. Lögreglan ræðir við Dieter Lögreglan hlustaði á það sem dóttir EUsabetar Kuball hafði að segja en hélt síöan á fund Dieters. Ekki varö á honum séð að honum væri sérstak- lega brugðið við heimsókn rann- sóknarlögreglumannanna. Hann bauð þeim inn til sín og svaraði spurningu þeirra um hvar kona hans væri á þann veg að hún hefði farið í heimsókn til kunningjafólks í Pól- landi en því miður hefði hún lent þar í alvarlegu umferðarslysi sem hefði dregiö haná til dauða. Lögreglan hefur rannsókn Lögreglan gat ekki mótmælt því að Elísabet Kuball hefði látist í um- feröarslysi í Póllandi. Þar að auki hafði Dieter skýrt frá því hvar og með hverjum hætti slysið hefði orðið og fannst rannsóknarlögreglumönn- unum því rétt að ganga úr skugga um sannleiksgildi sögunnar áður en Dieter væri tekinn til yfirheyrslu. Var nú haft samband við lögreglu- yfirvöld í Póllandi. Ekkert slys Lögregluyfirvöldin könnuðust ekki við að Elísabet Kuball hefði dáið í DV umferðarslysi í Póllandi. Lá þar í landi hvergi neitt fyrir um að hún hefði orðið fyrir óhappi þar og þegar samband var haft við pólska útlend- ingaeftirhtið kom í ljós að Elísabet Kuball hafði aUs ekki haldið inn fyr- ir pólsku landamærin. Vöknuðu nú illar grunsemdir og þótti ljóst að dótt- ir Elísabetar, sem baðst undan því að verða nefnd með nafni opinber- lega oftar en nauðsynlegt væri í sam- bandi við þetta mál, hefði ekki að ástæðulausu verið með áhyggjur af móður sinni. Dieter hverfur Lögreglan hélt nú í skyndi til íbúð- ar Dieters Kuballs en þá kom í ljós að hann var ekki þar. Var nú leitað til nágranna og þeir spurðir um ferð- ir hans en þeir gátu ekki gefið nein svör og var ekki annað að sjá en hann hefði horfiö sporlaust. Gerð var nákvæm leit í íbúðinni ef það mætti verða til þess aö leiða í ljós hvert hann hefði farið en ekki bar hún neinn árangur. Lík Elísabetar í kjallaranum Er lögreglan var í þann veginn að hverfa frá varð ljóst að íbúðinni myndi fylgja geymsluherbergi í kjall- ara fjölbýlishússins. Héldu rann- sóknarlögreglumennirnir nú niður í það. Þar sáu þeir gamlan klæðaskáp og er hann var opnaður sáu þeir í honum hkið af Ehsabetu. Hafði hún verið kyrkt. Samtímis hófst áköf og mikh í leit í Vestur-Berlín að Dieter Kuball og var lýsing af honum send til lögregluyflrvalda í ýmsum borg- um sambandslýðveldisins. Nágrannar yfirheyrðir Á meðan leitin stóð yfir voru ná- grannar KubaUshjónanna yfirheyrð- ir ef það kynni að verða til þess að varpa einhverju ljósi á dvalarstað Dieters eða á einhvem hátt að skýra þaö sem gerst hafði. Nágrannarnir voru allir undrandi yfir morðinu og sögðu að ekkert hefði gerst sem bent gæti tU þess að um ósamkomulag milli hjónanna hefði verið að ræða. Þau hefðu ætíð sýnst róleg og virst una sér vel saman. Þá hafði ekki heyrst neinn sá hávaði úr íbúðinni sem benti til þess að um rifrildi miUi þeirra heföi verið að ræða. Dieter finnst Er leitin aö Dieter Kuball hafði staöið um hríð sást til hans þar sem hann var á gangi með konu. Var hann þegar í stað handtekinn og færður til yfirheyrlu. Kom þá i ljós að hann var búinn að finna sér nýja sambýliskonu og hafði það gerst skömmu áður. Málið hefur vakið umræðu og skrif og hefur komið fram, eins og fyrr segir, að um misbrest kunni að hafa verið að ræða í mati á andlegri heilsu og viðhorfum Dieters Kuball fyrr á árum. Getuleysi og ofbeldi Skýring sú, sem Dieter gaf á því að hann myrti Herthu Heine, var sú að hún hefði sakað hann um getu- leysi, Vitað er að slíkt getur, ef við- komandi leitar ekki aðstoðar til að reyna að ráða bót á meininu, vakið sjálfsandúö en það er ekki alltaf aö sá sem í hlut á viðurkennir og tekst á við hana á réttan hátt frekar en vandann sem henni veldur og kann hún því að snúast upp í andúö á maka eða sambýliskonu. Andúðin kann síðan að magnast og brjótast fram í árársarhneigö eða ofbeldi. Þessar skýringar og aörar hafa verið settar fram í sambandi við mál Diet- ers Kuball en jafnframt hefur verið vakin á því athygh að hann valdi sér eldri konur, aðra tuttugu og fjórum árum eldri og hina þrettán árum eldri en hann sjálfur var, og að hann kunni aö hafa gert það af því að þær hafi verið líklegri til þess að gera minni kröfur til hans í ástarlífinu en konur á sama aldri og hann eða enn yngri konur. Kynni því nánari skoð- un á þessu og öðru í fari Dieters Kuball, er hann var enn undir manna höndum, að hafa komið í veg fyrir morðið á Elísabetu. Kynnin viö þriðju konuna hafi svo sýnt að Dieter Kuball hafi enn, á sinn brenglaða hátt, verið að leitast við að hljóta viðurkenningu veikara kynsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.