Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Qupperneq 36
Skák
LAUGARDÁGUR 2. JÚLÍ 1988.
Beljavsky í hlutverki fómarlambsins
- Skákir frá heimsbikarmótinu í Belfort
Anatoly Karpov sigraöi glæsilega
á fyrsta heimsbikarmótinu sem
fram fór í Brussel í apríl og nú er
röðin komin að Garrí Kasparov.
Er tveimur umferðum var ólokið á
mótinu í Belfort hafði hann tveggja
vinninga forskot og var því nánast
öruggur um sigur. Hann átti að
tefla við Karpov í gær en er þetta
er ritað hafa úrsht ekki borist úr
því tafli. Á morgun, sunnudag, lýk-
ur mótinu og þá hefur Kasparov
hvítt gegn landa sínum, Andrei
Sokolov, en Karpov hefur svart
gegn Spassky.
Frammistaða Jóhanns Hjartar-
sonar hefur óneitanlega valdið
okkur sem heima sitjum vonbrigð-
um en þess ber þó að gæta að
heimsbikarmótið er eitt sterkasta
skákmót síðari tíma. Jóhann hefur
heldur ekki verið í slæmum félags-
skap. Stórmeistararnir snjöllu,
Ljubojevic og Beljavsky, hafa verið
á svipuðu róU og hann og sjálfur
Jan Timman hefur mátt verma
botnsætið.
Jóhann átti Utlu láni að fagna í
upphafi móts. Hann verður t.d.
varla talinn hafa haft heppnina
með sér er dregið var um töfluröð
því að hann fékk það erfiða hlut-
skipti að eiga svart í tveimur fyrstu
umferðunum gegn tveimur fyrr-
verandi heimsmeisturum, Spassky
og Karpov. Svo fór að Jóhann tap-
aði báðum þessum skákum og stóð
þá uppi með tvær hendur tómar.
Stutt jafntefli við Ljubojevic í
þriðju umferð varð tfl þess að
stappa í hann stálinu og eftir það
fór taflmennskan að batna. Éngu
að síður hefur Jóhann oft teflt bet-
ur. Hann hefur þó náð að vinna
ekki ómerkari menn en Andersson
og Short og haldið jöfnu gegn
heimsmeistaranum Kasparov, þótt
með naumindum væri.
Flestum þykir sjálfgefið að Ka-
sparov og Karpov séu í forystusæt-
unum. Þriðji er Eistlendingurinn
Jahn Ehlvest sem hefur komið
geysilega á óvart, bæði með
frammistöðu sinni og taflmennsku.
Á því er enginn vafi aö Ehlvest
hefur teflt skemmtflegustu og fall-
egustu skákimar á mótinu - e.t.v.
að heimsmeistaranum einum und-
anskildum sem hefur verið í algjör-
um sérflokki.
Hvað eftir annað hefur Ehlvest
komið mótherjanum í opna skjöldu
með kröftugri sóknartaflmennsku
svo unun er á að horfa. Falleg sókn-
arskák hans við Jóhann, lagleg
flétta gegn Timman og 19 leikja
vinningsskák gegn Andersson hafa
allar birst hér í blaðinu. Við bætum
einni við: Skák hans við Beljavsky
sem Ehlvest teflir frá upphafi til
enda með það eina takmark í huga
að máta hvíta kónginn!
Hvítt: Alexander Beljavsky
Svart: Jahn Ehlvest
Móttekið drottningarbragð
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e4 c5 4. d5 Rf6
5. Rc3 b5!?
Ehlvest dustar rykið af gömlu
afbrigði í stað þess að leika 5. - e6
6. Bxc4 exd5 7. Rxd5 Rxd5 8. Bxd5
Bd6 9. RfS 0-010.0-0 Dc7 en þannig
tefldist skákin Beljavsky - de la
Villa á mfllisvæðamótinu í Szirak
í fyrra. í athugasemdum viö skák-
ina segir Beljavsky að hvítur geti
náð betri stöðu með 11. Be3 (í stað
11. h3 sem hann lék í skákinni) Bg4
12. h3 Bh513. Hcl Rd714. b4 o.s.frv.
6. Bf4!?
Skák
Jón L. Árnason
Vitaskuld hefur hvítur ekki hug
á 6. Rxb5 vegna 6. - Da5+ 7. Rc3
Rxe4 og svartur má vel við una.
Leikur Beljavskys virðist snjallari
en 6. e5 strax sem talin hefur verið
besta leið hvits. Svartur hagnast
nú ekki á 6. - b4 vegna 7. Rb5, svo
hann afræöur að eyða leik í að
valda b-peðið.
6. - a6 7. e5 b4 8. exfB bxc3 9. bxc3
Rd7! 10. Rf3
Takið eftir því að leikurinn er
dýrmætari en peðið. Ef hvítur
drepur á e7, eða g7, tapar hann leik
og svartur nær fyrr að skipa út liði
eða styrkja peðið á c4 með riddara
sínum. Hins vegar kemur 10. Da4!?
sterklega til greina.
10. - Rb6 11. Bxc4 gxf6
Efll.-Rxc4, þál2. Da4+ ogvinn-
ur manninn aftur og hefur um leið
komið drottningu sinni í góða
stöðu.
12. Db3 Hg8 13. 0-0 Hg4!
Upphafið að skemmtilegum
vendingum. Það er ljóst að Beljav-
sky áttar sig ekki á laglegri fyrir-
ætlan Eistlendingsins.
14. d6?! e6 15. g3 Rxc4 16. Dxc4 Bb7
17. h3
8 I f éi.
V É. 1 Á
6 A 5 A AAA .
4 m áx
3 A
2 A: : A
S H*
ABCDEFGH
17. - Hxf4! 18. Dxf4 Bxd619. De3 Dc7
Eins og við höfum áður séð, er
Ehlvest hefur átt í hlut, er fóm
hans byggð á innsæi fremur en
nákvæmum útreikningum. Svörtu
biskuparnir stefna vægast sagt
ógnandi að hvítu kóngsstöðunni og
hvítur er um leið dæmdur tfl að
leggjast í vörn. Ehlvest býst til að
auka sóknarmáttinn með því að
setja hrókinn á g-línuna auk þess
sem f- og h-peð hans eru reiöubúin
tfl að leggja sitt af mörkum.
20. Kh2 f5! 21. Rd2 f4 22. Del Dc6 23.
Hgl fxg3 + 24. fxg3 Bc7 25. De2 0-0-0
26. Rc4 h5! 27. h4
Ef svörtum gæfist sjáifum tóm til
að leika 27. - h4 yrði stutt tfl enda-
lokanna. Það er annars makalaust
hvað hvítur á erfitt með að mæta
atlögu svarts.
27. - Hg8 28. Hael
28. - Da4!
Frábær leikur sem er í raun loka-
hnykkurinn á fallegri skák. Ridd-
arinn má ekki víkja sér undan
vegna 29. - Dxh4 mát og svartur
hótar iliflega 29. - Bd5 og 29. - Hg4.
Þess má geta að við 28. - Hg4 strax
hefði hvítur átt svarið 29. Re5 en
nú verður sá leikur auðveldlega
hrakinn, eins og við sjáum í skák-
inni.
29. Re5 f6 30. Rf3 Bxf3 31. Dxe6+
Biskupinn mátti ekki taka vegna
31. - Dxh4+ 32. Kg2 Hxg3+ og
vinnur og í næsta leik er hrókurinn
friðhelgur vegna mátsins á h4.
Hvítur verður því að reyna að beij-
ast í harla vonlítilii stöðu, með
hrók gegn tveimur svörtum bisk-
upum - og frumkvæðinu.
31. - Kb7 32. Db3+ Dxb3 33. axb3
Hg4 34. Kh3 Be5 35. He3 Bd5 36. c4
Be6 37. Kg2 Bd7 38. Hdl Bc6+ 39.
Kh3 Kc7 40. Hd2? Bd7 + 41. Kg2 Bf4
- Og Beljavsky gafst upp.
Það er ekki á hveijum degi sem
Beljavsky er tekinn í karphúsið á
þennan hátt. Hann hefur hins veg-
ar mátt þola margt í Belfort. í
seinni skákinni er hann enn í hlut-
verki fórnarlambsins og meðferð-
in, sem hann fær, er hreint ekkert
mannúðlegri. Það er sjálfur heims-
meistarinn, Garrí Kasparov, sem á
í hlut. Brot úr skákinni hefur áður
birst í DV en hér kemur skákin í
heild sinni.
Hvítt: Alexander Beljavsky
Svart: Garrí Kasparov
Grunfeldsvörn.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Rf3
Bg7 5. Db3 dxc4 6. Dxc4 0-0 7. e4 Ra6
8. Be2 c5 9. d5 e6 10. Bg5
Beljavsky víkur frá 15. og 21. ein-
vígisskákum Karpovs og Ka-
sparovs í Sevilla, þar sem Karpov
hrókaði stutt. Báöum skákunum
lauk með jafntefli. Leikur Beljav-
skys hefur ekki sérlega gott orð á
sér.
10. - exd5 11. Rxd5 Be6 12. 0-0-0
Bxd5 13. Hxd5 Db6! 14. Bxf6 Dxf6 15.
e5 Df5 16. Bd3 Dc8 17. Hhdl b5! 18.
Dh4
Ekki 18. Dxb5 vegna 18. - Rc7 og
vinnur skiptamun. Eftir næsta leik
svarts viröist hvítur í miklum
vandræðum en Beljavsky setur
traust sitt á djarfmannlega fórn.
18. - Rb4
8 I m I#
7 1
6 1
5 Á A S A
4 &
3 issis
2 A:A A A A
'á’ S A B C D E F G H
19. Bxg6!? fxg6
Lakara er 19. - hxg6 20. Rg5 með
máthótun á h7.
20. Hd7 De8!
Hótunin var 21. De7. Kasparov
virðist stefna beint í glötun en hann
hefur reiknað næstu leiki hárrétt.
21. He7Bh6+T22. Kbl Hd8! 23. Hd6
Biskupinn mátti ekki drepa, því
að þá hefði hrókurinn á e7 misst
vald sitt. í næsta leik var drottning-
in síðan friðhelg, vegna mátsins í
borðinu. Og eftir 23. Hel hefði
svartur getað valið um 23. - g5, eða
23. - Dc6! með hugmyndinni 24.
Dxh6 Hdl +! 25. Hxdl De4 + 26. Kal
og kæfingamátið vel þekkta: 26. -
Rc2+ 27. Kbl Ra3+ 28. Kal Dbl + !
29. Hxbl Rc2 mát. En hvaða brögð-
um getur heimsmeistarinn beitt
núna?
H'S' X#
7 A S A
oop 6 2 Ai
5 A A A
4 m m
3 i.
2 A A A A A
, *
ABCDEFGH
23. - Dc6!!
Drottningin valsar um völduðu
reitina! Eftir 24. Hxc6 yrði hvítur
mát í borðinu eftir 24. - Hdl og 24.
Dxh6 strandar á 24. - De4+ og
mátar í fáum leikjum. Kasparov
hefur náð aö brjóta „sókn“ Beljav-
skys á bak aftur af dæmalausu ör-
yggi-
24. a3 Hxd6 25. exd6 Dxd6 26. axb4
cxb4 27. De4 b3
- Og Beljavsky ákvað að gefast
upp. Einhver heíði reynt að beijast
áfram með 28. De6+ Dxe6 29. Hxe6
en eftir 29. - Hd8 30. Hel a5 fer
ekki milli mála að staða hans er
algjörlega vonlaus.
Bridge_____________________________
NM á Hótel Loftleiðum:
Valur gat sagt slemm-
una af nokkru öryggi
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Þegar þetta er skrifað hefur landslið
okkar í opna flokknum staðið sig frábær-
•7 lega vel á Norðurlandamótinu. Sveitin
hefur unnið fimm leiki og tapað einum
með litlum mun. Þessi árangur dugði til
forystu og eru 13 stig í næsta sæti.'
Sætasti sigur liðsins var gegn Dönum,
enda kom hann á mikilvægum tíma og
velti þeim raunar úr efsta sæti mótsins.
Leikurinn var nokkuð vel spilaður og
stærsta sveiflan í seinni hálfleik kom í
eftirfarandi spili:
N/Allir
♦ G10987
¥ 832
♦ K8
+ ÁK6
* D
V 976
♦ DG652
+ D853
♦ 2
V ÁDG104
♦ 1043
+ G1074
* ÁK6543
V K5
♦ Á97
+ 92
Á Bridge-rama sátu n-s Dam og Mohr
fyrir Danmörku en a-v Sigurður Sverris-
son og Þorlákur Jónsson. Þar gengu
sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 1S pass
3 L pass 4 S pass
pass pass
Ekki góð slemma þvi að hjartakóngur-
inn verður að gefa tólfta slaginn. En Val-
ur Sigurðsson var á annarri skoðun.
Hann sat í suður á móti Jóni Baldurssyni
og sagnir gengu þannig:
Norður Austur Suður Vestur
ÍS pass 2L pass
2S pass 2G pass
3L pass 3T pass
3S pass 4L pass
4T pass 4H pass
4G pass 6S pass
pass pass
Opnun norðurs er táknræn fyrir árás-
Frá einum leik íslands og Danmerkur á Norðurlandamótinu. Erla Sigurjóns-
dóttir og Kristjana Steingrimsdóttir (lengst til hægri) spila við Judy Norris
og Kirsten Steen Möller. Dönsku konurnar urðu Norðurlandameistarar.
DV-mynd S
arstíl Jóns en fimm fyrstu sagnir Vals
voru spurnarsagnir. Fyrsta sögn Jóns
sýndi fimm spaöa, næsta sögn þrílit í
hjarta, þar næsta tvo tígla og þijú lauf,
síðan komu fjögur kontról og fjögurra
granda sögnin neitaöi hjartafyrirstöðu.
Valur vissi nú um tígulkóng og tvo
hæstu í laufi. Hann gat nú spurt um
drottningar því hjartadrottningin myndi
gera slemmuna því sem næst 100%. Hins
vegar tók hann eftir því að vestur hafði
ekki doblað fjögurra hjarta spurnarsögn-
ina og þar með var líklegt að hann ætti
ekki hjartaásinn.
Hann gat því sagt slemmuna með
nokkru öry ggi og tryggt íslandi 13 impa.
Aðeins eitt annað par náði slemmunni
og það voru norsku konumar Rilsnæs
og Langhaug. Gallinn var bara sá að and-
stæðingamir vom íslendingar.