Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. 3 Norrænt tannlæknaþing í Reykjavík: Nýtt fyllingarefni í þróun í stað silfurs „Þaö fir\nast engar óhrekjandi sannanir fyrir skaösemi silfurfyll- inga eöa amalgam í tönnum fólks. Á Norðurlöndum hefur átt sér stað mikil og oft hörð umræöa um skað- semi kvikasilfurs í silfurfyllingum og veriö geröar rannsóknir á efn- inu þar og viðar. Af hundruöum rannsókna má ráða að þessar fyll- ingar séu ekki hættulegar. Eins kemur fram hiö gagnstæöa í rann- sóknum og greinum, en þær eru færri og hafa oft ekki birst í vís- indalegum tímaritum. Þaö hefur enginn hundrað prósent svar viö þessu atriði," sagöi Lennert Forst- en, tannlæknir frá Finnlandi, í samtali viö DV. Lennert Forsten er hér á ársþingi Norræna tannlæknafélagsins sem haldið er í Óperunni í Reykjavík þessa dagana. Þema þingsins er „tannlæknir framtíöarinnar". Framsaga Lennert Forsten á þinginu nefnist „Ný viðmið við val á tannfyllingarefni“, þar sem Finnlandi, segir silfurfyllingar hafa ýmsa vankanta og því æskilegt að notast við önnur tannfyllingarefni áhersla er lögö á val annarra fylli- efna en silfurs í framtíðinni. „Glerjónafylling“ „Æskilegt er aö nota fyllingarefni sem hafa þaö í fór með sér aö ekki þurfi aö bora eins mikið og viö notkun silfurfyllinga. Viö höfum nýtt efni í dag er nefnist glerjóna- fylling. Þaö er enn í þróun en sam- sefning þess er ekki nægilega sterk. Þannig hentar þaö best viö viögerð- ir á framtönnum og á hlið jaxla, annars á þaö til aö brotna. Þarna höfum viö þó vísi að fyllingarefni framtíðarinnar, sem festist vel við tennurnar og hindrar myndun nýrra skemmda en er ekki nógu sterkt. Við notkun silfurs getur brðið skemmd á mörkum silfursins og tannarinnar, þannig aö hreinsa þarf fylhnguna úr og gera enn stærri fyllingu en í upphafi. Þannig hefur silfur ýmsa vankanta sem aftur ýtir undir notkun hins nýja glerjónaefnis þar sem það á við.“ -hlh Hann var óheppinn, eigandi Toyota bifreiðarinnar á myndinni. Hann lagði bíl sínum á athafnasvæði Ríkisskips við Reykjavíkurhöfn og átti sér einskis ills von. Bretti með áburðarpokum hrundi á bílinn sem skemmdist tölu- vert, enda vegur hver poki fimmtiu kiló. DV-mynd S Jón Ragnar Þorsteinsson, fyrrverandi uppboðshaldari í Vestmannaeyjum: Bókunin fórst fyrir vegna anna „Það má kannski segja aö mér hafi yfirsést. Þetta á þó sínar skýr- ingar, sem eru þær helstar að þetta var mikill fjöldi mála og mótmæli lögmannsins komu fyrirvaralaust. Það voru fleiri mál þarna fyrir og ég varð að taka á mótmælunum strax. Fyrstu skýringar, sem lög- maðurinn lagði fram, voru ekki haldbærar. Ég gaf honum því frest til að koma með frekari skýringar. Að þeim fengnum kvað ég upp úr- skurðinn. Þarna var mikill fjöldi af uppboðsbeiönum og mikil bókun í þessum sambandi," sagði Jón Ragnar Þorsteinsson. Hæstiréttur hefur ómerkt fjóra af sex úrskurðum sem lögmaður Pálma Lórenssonar veitingamanns áfrýjaöi til Hæstaréttar. Jón Ragn- ar stýrði uppboðsréttinum í Vest- mannaeyjum og sagði Hæstiréttur vinnubrögð hans ámælisverð. Ómerkingarnar byggði Hæstirétt- ur á skorti á forsendum í dómabók. „Á þeim tíma, sem þessi uppboð voru, varð að framkvæma þau á eignunum sjálfum. Þetta olh því að mikil frestun varð á framgangi málsins. Þaö var búinn að fara fram málflutningur og ég var búinn að kveða upp úrskurðina. Til að færa þetta til bókar varð að bóka alla sem mættir voru. Það var mis- jafnt hversu margir mættu í hvert mál. Það hefði tekið svo mikinn tíma hjá bókaranum. Lögmennirn- ir óskuðu eftir því að þetta yrði bókað eftir á. Eg hefði kannski aldrei átt að samþykkja það,“ sagði Jón Ragnar Þorsteinsson. Jón Ragnar sagði að miklar annir hefðu veriö hjá sér á þessum tíma. Auk þess að vera settur bæjarfóg- eti gegndi hann áfram staríi hér- aðsdómara. -sme Fréttir Landað úr Sóma 8. Aflinn tonni minni en áætlað var í upphafi Stærsta trilluútgerð landsins á Neskaupstað: AHi trillanna er á við góðan skuttogara - segir Ásgeir Magnússon bæjarstjóri „Afhnn sem kemur úr smábátun- um á Neskaupstaö er á við afla góðs skuttogara,“ sagði Ásgeir Magnús- son, bæjarstóri á Neskaupstað, í samtah við DV. „Það eru hvergi fleiri trillur, ef miöað er við mannfjölda, en hér í bænum.“ Frá þvi að smábátahöfnin var stækkuð fyrir tveimur árum hefur bátum fjölgað ört. Til dæmis á síð- asta ári fjölgaði smábátunum úr 70 í rúmlega 100 og er talað um að smá- bátahöfnin sé aftur að veröa of þröng fyrir þennan fjölda. DV lagði leið sína niður á höfnina á Neskaupstað þar sem fjöldi smá- báta var að sigla í höfn með aflann sem þeir höfðu veitt frá því kvöldinu áður. Meðal þeirra var Sómi 8 sem sagður var hafa 3 tonn í farteskinu. Löndunarmennirnir sögðu að alfinn hefði verið mjög góöur að undan- fórnu og ágætisverð hefði fengist fyr- ir aflann. í sama streng tók Stefán Björnsson, skipstjóri á Sóma 8, Sem er 2 og 'h tonns bátur. Hann reynd- ist hins vegar ekki hafa nema um 2 tonn upp úr krafsinu þegar upp var staðið. „Það hefur verið ágætur afli að undanförnu. Við sækjum aflann yfirleitt út fyrir Breiöafjörðinn. Það er mun meiri hagræöing í þessu eftir að við fengum farsíma um borð,“ sagði Stefán. „Við hringjumst á, smá- bátaeigendurnir, og fáum upplýsing- ar hjá hver öðrum hvar besta fisk- iríið er hverju sinni." Guðmundur og sonur hans Sigurð- ur fengu 8 tonn fyrstu 10 daga júní mánaðar, úr 6 róðrum, en sonurinn fékk 25% hluta af aflanum sem var um 60 þúsund króna virði. -GKr „Við fáum ágætt verð fyrir aflann hér á Neskaupstað," sagði Stefán Björns- son skipstjóri. Með honum á myndinni eru tveir synir hans. DV-myndir GVA Flugmannadeilan: Samkomulag handsalað „Það hefur ekki verið skrifað und- ir neitt enda framlengist gildandi kjarasamningur til 10. apríl 1989 samkvæmt bráðabirgðalögum ríkis- stjómarinnar. Hins vegar hefur ver- ið handsalað samkomulag um ákveðna þætti aðra en launaliði og það má því segja að áfangalok hafi orðið um helgina,“ sagði Einar Sig- urðsson, blaðafulltrúi Flugleiða. Samkomulagið, sem handsalað var, hefur í för með sér breytingu á vinnutímareglum og lengir útivistar- tíma flugmanna úr 12 dögiun í 18 í sambandi við leiguflug. JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.