Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988.
Spumingin
Hvað finnst þér íslenski
fáninn tákna?
Ólafur Guðnason: Hann táknar sjálf-
staeði þjóðarinnar.
Sigríður Rósa Kristjánsdóttir: Bara
allt. virðingu til dæmis.
Eiður Ágúst Gunnarsson: Táknar
samúð fyrir aðra. Visst þjóðartákn.
Ragnheiður Eyjólfsdóttir: Stolt þjóð-
arinnar. Fallega liti, fallegt land - ís
og eld. Fínn fáni. Ég er hreykin af
honum.
Ólöf Jóna Jónsdóttir: Ég veit það
ekki, bara íslenska fánann.
Lesendur
Þýskalandsferð forseta:
Blástur og blíðmæli
Pétur Guðmundsson skrifar:
Ég las í DV lesendabréf frá Aðal-
steini Jónssyni undir yfirskriftinni
..Tengsl íslands og V-Þýskalands:
Blásið lífi í samskiptin" þar sem
hann ræðir um opinbera heimsókn
forseta íslands tii Vestur-Þýska-
lands. Ég er sammála Aðalsteini
um margt sem hann segir, einkum
þegar hann bendir á að þaö sé nú
kannski ekki við hæfi að vera alltaf
að fara með matvæli með sér þegar
um opinber boð sé að ræða þar sem
það sé gestgjafans að leggja til það
sem boðið sé upp á.
Einnig talar hann um að það sé
ekki við hæfl að taka með sér
skemmtikrafta og á þar viö blás-
arakvintettinn sem á að leika við
ýmis tækifæri þarna ytra, t.d. við
móttökuathöfn hjá forsetanum.
Þessu er ég líka sammála. Mér
finnst að þarna sé verið að ofhlaða
í kynningu jafnvel þótt listin eigi í
hlut. Mér finnst nóg að gert í vin-
gjarnlegum orðaskiptum og blíð-
mælum hvers konar miili þjóð-
höfðingja og að ekki þurfi fjöl-
mennt lið að fylgja forsetanum.
Ég vil hins vegar taka fram að
ferðir hans til annarra þjóða og
önnur slík samskipti eru af hinu
góða og þau hefur forseti okkar
rækt með prýði til þessa. En öllu
má ofgera. - Heyrt hef ég að erlend-
ir þjóðhöfðingjar í gestgjafahlut-
verki geri ýmislegt gestum sínum
til heiðurs. Þannig hafi t.d. verið
tekið á móti forseta okkar á Ítalíu
með lúörablæstri við móttöku eina
þar. Gæti þar verið komin skýring-
in á hugmyndinni að hafa blásara
með í for til Þýskalands.
En það er mikill munur á hvort
svona serimóníur eru framk væmd-
ar í landi gestgjafa, sem vill tjalda
öllu þvi besta, eða hvort gesturinn
leggur til með sér. Mér finnst hann
eigi ekki að leggja neitt annaö til
en blíðmæhn og svo sem eina mót-
töku sem þakkarvott. Endurgjaldið
er svo í formi opinbers boðs hingað
til okkar og þá er við hæfi að blása
til samkvæmis.
Blásið við móttöku forseta íslands í Ítalíuferð á sl. ári.
Varia lágmaiks-
þjónusta
Ragnar S. skrifar:
Ég þurfti að sinna erindum hjá
Vöruflutningamiðstöðinni sl.
fóstudag og þegar ég kom á stað-
inn kl. 16.01 var þar harðlokað.
Mér var bent á aö lesa tilkynn-
ingu á hvítu spjaldi sem sett haföi
veriö í einn gluggann þar sem til-
kynnt var um lokunartíma.
Ég hélt aö þaö væri lágmarks-
þjónusta að hafa opið til kl. 17.00
á fóstudögum. Mér finnst aö fyr-
irtækiö ætti að athuga þetta nán-
ar og bæta úr þjónustuleysinu.
Ræðum málefnið
Fjóla Felixdóttir, Ljósheimiun 10,
skrifar:
Mig langar til að fá birtar
nokkrar lfnur, varðandi lesenda-
bréf sem birtist í DV fimmtudag-
inn 30. júni sl. og bar yfirskriftina
„Greiðum mæðrura mismun-
inn“. Ég vil einungis láta koma
fram að ég er einstæð móðir með
þijú börn og er ein þeirra sem er
þvi máli fylgjandi, sem kemur
fram í greininni.
Þess vegna varð ég mjög ánægð
að sjá aö fleiri hafa áhuga og vilja
gera eitthvað i málinu. Ég bið því
Kristínu Jónsdóttur (höfund les-
endabréfsins) og aðrar mæður,
sem áhuga hafa og lesa þessar
línur, að hafa samband við mig.
- Við gætum aö minnsta kosti
rætt máiiö. (Síminn hjá mér er
689769.)
lýsingáleikjumí
útvarpivel þegnar
Snorri Snorrason Víkingur
og Ólafur .Ólafsson Framari
skrifa:
Við viljum þakka alveg æðis-
lega vel fyrír beinu útsending-
araar frá knattspyrauleikjunum
2 í Súdeildinni á rás 2, Viö fógn-
um því einnig, aö Bjarni Felixson
er nú kominn í hópinn með lýs-
ingar, og þó sérstaklega lýsingum
hans á Evrópukeppninni síöustu.
Við vinnum vaktavinnu og þess
vegna er það kærkomin tilbreyt-
ing að ía útvarpslýsingar eins og
þær hafa veriö. - Aðrar útvarps-
stoðvar mættu gjarnan taka sér
þetta til fyrirmyndar.
Vinnum við hjá Flugfélagi íslands?:
Einkennileg skilgreining
í VR-töxtum
Starfsmaður hringdi:
í síðustu VR-fréttum, sem inni-
héldu launaskrá Verslunarmannafé-
lags Reykjavikur, var athyglisverð
framsetning á skilgreiningu launa-
flokka starfsfólks Flugleiða hf. -
Sumir voru skráðir samkvæmt
venju (þ.e. „eftir 1 ár í starfsgrein“,
o.s.frv.) - en svo stóð allt í einu, fyrir
þá eldri: „Eftir 5 ár hjá FÍ“ - og átti
þetta við fólk í flugafgreiðslu, sölu-
skrifstofum, farmiöasölum, hleöslu-
menn, en þó einkum starfsmenn á
tæknilager, sem enginn launaflokk-
ur er undanskilinn, samkvæmt skil-
greiningunni „Eftir ..ára starf hjá
FÍ“.
Þar sem við höfum veriö aö ræöa
þessa skilgreiningu hér, án þess aö
komast að niðurstööu, hringdi ég á
skrifstofu VR og spurðist fyrir um
hvað þetta „FI“ þýddi. Eftir að starfs-
stúlka hafði borið sig saman við
starfsfélaga á staðnum, var vísað á
lögfræðing félagsins. í hann var
hringt og upplýsti hann, að þessi sér-
staka skammstöfnun, „FÍ“ væri sett
þarna samkvæmt sérstökum tilmæl-
um frá starfsmannastjóra Flugleiöa
hf.
Nú er spurningin; Vinna sumir
starfsmenn enn hjá Flugfélagi ís-
lands, eða er þetta sett í samninga
vegna einhverra sérstakra ákvæöa
frá fyrri árum sem gilda milli starfs-
manna þess og félagsins? - Það skal
tekiö fram aö enn eru hlutafélögin
Flugfélag íslands hf. og Loftleiðir hf.
til og eru sérstakar stjórnir kosnar
fyrir félögin, og sitja sömu menn í
stórn þeirra og Flugleiða hf.
Hugsanlega eru einhver önnur
tengsl á milli þessara tilmæla starfs-
mannastjóra Flugleiða um aö halda
skammstöfuninni „FÍ“ í launalist-
um, en ef svo er vita hinir almennu
starfsmenn ekki hver þau eru.
Hringið í síma 27022 miHi
ki. 13. og 15 eða skrifið
Græðum á virkjunum
Halldór Björnsson skrifar:
Nú á aö fara aö byggja hér tvær
stórar álverksmiðjur. Ekki hvarfl-
ar þaö að mér að auðhringirnir séu
aö húgsa um aö gera þetta í góö-
gerðarskyni. Mér finnst því að viö
Islendingar ættum aö reyna aö hafa
sem mest út úr þessu. - Þótt álver-
iö í Straumsvík hafi borgað upp
Búrfellsvirkjun og meira til á stutt-
um tíma, þá var veröið á rafmagn-
inu hlægilega lágt framan af.
Nú er Reykjavíkurborg að reisa
gríðarlega stórt orkuver á Nesja-
völlum, bæöi fyrir heitt vatn og til
raforkuframleiðslu. Þar er veriö aö
tala um mikla raforkuframleiðslu
með einföldum vélum. - Mér finnst
að þeir ættu að nota mikinn og flók-
inn tækjabúnað, eins og gert var
við Kröflu, og græða nóg á þessu.
Vonandi fer ekki að gjósa þarna
líka. En svona til öryggis ætti að
tryggja mannvirkin nógu hátt hjá
einhveiju stóru, erlendu trygging-
arfélagi.
Frá framkvæmdum á Nesjavöllum. - „Þar ætti að nota mikinn og flók-
inn tækjabúnaö," segir bréfritari.
intdiuMii unnMtnmuun
i^UUb'