Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLf 1988. 35 Afmæli Arnþór Garðarsson, prófessor í grasafræði og deildarforseti raun- vísindadeildar HÍ, Langholtsvegi 120B, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Amþór er fæddur í Reykjavík. Hann lauk atúdentsprófi frá MR 1957, B.Sc.-prófi í dýrafræði frá háskólanum í Bristol á Englandi 1962 og doktorsprófi frá Kalifomíu- háskóla í Berkley í Kalifomíu 1971. Arnþór var kennari við Kalifor- níuháskóla 1963-1965, stundakenn- ari víð verkfræöi- og raunvísinda- deild HÍ 1969-1973 og prófessor þar frá 1974. Arnþór var sérfræðingur viö Náttúrufræðistofnun íslands 1962-1963 og 1965-1973. Hann var formaður Hins íslenska náttúru- fræðifélags 1972-1975, sat í Nátt- úruvemdarráði 1972-1981, í fugla- friðunarnefnd frá 1967 og í stjóm Landvemdar 1969-1971. Amþór hefur verið deildarforseti raunvís- indadeildar HÍ frá 1987. Kona Amþórs er Guörún Svein- bjarnardóttir, f. 3. október 1937, viðskiptafræðingur og starfsmaður hjá Hótel Loftleiðum. Foreldrar Guðrúnar em Sveinbjörn Sigur- jónsson, skólastjóri í Rvík, og kona hans, Soffia Ingvarsdóttir, fyrrv. borgarfulltrúi. Böm Arnþórs og Guörúnar em Soffia, f. 28. september 1960, líffræð- ingur, við framhaldsnám í Wales, og Þrándur, f. 18. júli 1963, tölvu- fræðingur í Reykjavík Foreldrar Arnþórs: Garðar Þor- steinsson, fiskiðnaðarfræðingur í Reykjavík, f. 12. febrúar 1910, og kona hans, Þórunn Sigurðardóttir ljósmóðir, f. 3. febrúar 1899, d. 1986. Garðar er sonur Þórlaugar Bene- diktsdóttur frá Minnibakka í Garðarsson Arnþór Garðarsson. Skálavik og manns hennar, Þor- steins Eyfirðings, skipstjóri á ísafirði og í Rvík, bróður Jóns Ey- firöings, formanns í Bolungarvík, og Jóhanns Eyfirðings, formanns í Bolungarvík, afa Leifs Dungals, læknis í Rvík. Þorsteinn var sonur Jóns, b. á Hofi í Svarfaðardal, bróð- ur Snjólaugar, móður Jóhanns Sig- uijónssonar skálds. Jón var sonur Þorvalds, b. á Sökku í Svarfaðar- dal, Gunnlaugssonar og konu hans, Snjólaugar Baldvinsdóttur, prests á Upsum, bróður Hallgríms Þor- steinssonar, fóður Jónasar skálds. Móðir Þorsteins Eyfirðings var Guðrún Jónsdóttir, b. á Hofsá í Svarfaðardal, Halldórssonar og konu hans, Þórdísar, systur Bót- hildar Bjarnadóttur, móður Helgu, ættmóður Proppéættarinnar. Móðursystir Arnþórs er Hall- dóra, móðir Sigrúnar, konu Matt- híasar Á. Mathiesen ráðherra. Þór- unn var dóttir Sigurðar, b. á Fiski- læk í Leirársveit, Sigurðssonar, b. í Heysholti í Stafholtstungum, Bjarnasonar. Móðir Þórunnar var Guörún Diljá, systir Þórunnar, ömmu Örlygs og Steingríms Sig- urðssona. Guðrún var dóttir Ólafs, útvegsbónda í Mýrarhúsum á Sel- tjamamesi, Guðmundssonar og konu hans, Karítasar, systur Guö- rúnar, konu Matthíasar Jochums- sonar. Karítas var dóttir Runólfs, b. í Saurbæ á Kjalarnesi, Þórðarsonar, og konu hans, Halldóru, ljósmóður, systur Guðmundar, afa Ingunnar Eyjólfsdóttur, konu Böðvars Magn- ússonar á Laugarvatni. Halldóra var dóttir Ólafs, b. á Blikastöðum, Guömundssonar, klæðalitara í Leirvogstungu, Sæmundssonar, b. á Kjarlaksstöðum á Fellsströnd, Þórðarsonar, prófasts á Staðarstað, Jónssonar, biskups á Hólum, Vig- fússonar. Móðir Halldóru var Helga, systir Þorláks Loptssonar, afa Þorláks Johnsen, kaupmanns í Rvík. Ingibjövg Bvyndís Eiríksdóttir Ingibjörg Bryndís Eiríksdóttir, Hátúni 10, Reykjavík, er áttræð í dag. Ingibjörg fæddist á ísafirði en ólst upp á mannmörgu menningar- heimili að Hrauni á Ingjaldssandi, hjá fóðursystur sinni, Sigríði Finnsdóttur, og manni hennar, Bernharði Jónssyni. Ingibjörg fór að heiman um tví- tugt og dvaldi þá um skeið í Reykja- vík og síðan á Akureyri. Hún starf- aði m.a. í tvö ár á ms Gullfossi og var síðan við afgreiðslustörf viö Skóverslun Iðunnar á Akureyri. Ingibjörg var í þrjú sumur ráðs- kona hjá ísfelli á Flateyri og starf- 'aöi síöan við Sjúkraskýlið þar um tíma. Hún hefur nú búið í Reykja- vík um alllangt skeið en í fjölda ára starfaði hún við ræstingar í Búnað- arbankanum í Reykjavík. Ingibjörg á tvær dætur. Þær eru: Þórdís Guðfinna, f. 18.11. 1942, hjúkrunarkona og húsmóðir í Reykjavík, gift Hilmari Steingríms- syni rafvirkjameistara, en þau eiga þrjú börn; og Sigríður Bernharðs, f. 22.12.1948, ljósmóðir og húsmóðir í Reykjavík, gift Bergi Jónssyni off- setprentara, en þau eiga þijú böm. Auk sex bamabarna á Ingibjörg svo eitt langömmubam. Ingibjörg átti níu fóstursystkini á Hrauni, auk þess sem fleiri böm voru þar ahn upp. Hálfsystkini Ingibjargar sam- feðra em: Jóhann, lengi yfirfisk- matsmaður á ísafirði; Baldur, sem Ingibjörg Bryndís Eiríksdóttir. var starfsmaður hjá Síldarverk- smiðju ríkisins á Siglufirði og síðar framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Siglufjaröar hf. og fv. forseti hæjar- stjórnar á Siglufirði, en er nú bú- settur á Akranesi; Bragi, fram- kvæmdastjóri Skreiðarframleið- enda í Reykjavík, faðir Böðvars, lögreglustjóra í Reykjavík; Arn- fríður, húsmóðir í Bandaríkjunum; Iðunn, húsmóðir á ísafirði, en hún er nú látin; og Einar, kennari á ísafirði og síðar í Vestmannaeyj- um, en nú skattendurskoðandi, búsettur í Kópavogi. Foreldrar Ingibjargar voru Eirík- ur Brynjólfur Finnsson, verkstjóri í Neðstakaupstaðnum á ísafirði, f. 11.11. 1875, d. 9.11. 1956 og Þórdís Jónsdóttir en hún lést er Ingibjörg var kornung. Systir Þórdísar var Hallfríður, móðir Daðínu Ólafar, móður Önnu Höllu Linker. Jón, faðir Þórdísar, var b. á Kleifastöðum Jónsson, b. í Fremri-Gufudal Guðnasonar, b. þar Jónssonar, b. í Gufudal, Bjamasonar. Móðir Jóns í Gufudal var Unnur Pálsdóttir, systir Magn- úsar, langafa Jóns í Djúpadal, fóður Björns ráðherra, fóður Sveins for- seta. Magnús var einnig langafi Jóns á Hjöllum, föður Ara Arnalds alþingismanns, afa Ragnars Arn- alds, alþingismanns og fv. ráð- herra. Föðurforeldrar Ingibjargar voru Finnur Eiríksson, b. að Kirkjubóli í Valþjófsdal og að Hrauni á Ingj- aldssandi og kona hans, Guðný Guðnadóttir ljósmóðir. Finnur var sonur Eiríks, b. að Hrauni Tómas- sonar, b. að Hrauni Eiríkssonar, b. í Mosdal Tómassonar, á Tannanesi Eiríkssonar, í Tungu í Önundar- firði. Guðný var dóttir Guðna Jónsson- ar og Gróu Greipsdóttur frá Kirkju- bóli í Önundarfirði Oddssonar á Kirkjubóli, Jónssonar, Oddsspnar. Guðni var sonur Guðnýjar Árna- dóttur og Jóns Guðmundssonar, b. á Kirkjubóli, í Valþjófsdal, Magn- ússonar. Faðir Guðnýjar var Árni, b. í Dalshúsum i Valþjófsdal, Bárð- arsonar, b. í Arnardal Illugasonar, ættfóöur Arnardalsættarinnar. Ingibjörg dvelur með dætrum sínum á afmælisdaginn. Eiríkur Trausti Stefánsson Eiríkur Trausti Stefánsson sjómað- ur, til heimilis að Fannborg 3, Kópavogi, er fertugur í dag. Eiríkur fæddist að Karlskála í Reyðarfirði og ólst þar upp til tólf ára aldurs, en flutti þá til Neskaup- staðar og bjó þar til 1970 er hann flutti til Reykjavíkur. Hann hóf sjómennsku sína í Vest- mannaeyjum 1963 og var þar í eitt ár en síðan á bátum frá Norðfirði frá 1964-70. Hann var farmaður frá 1971-76 og á loðnuveiðum og togur- um frá 1976-88 en frá 1988 hefur hann verið sjómaður hjá Ríkisskip. Bræður Eiríks eru: Hörður, flug- vallarstjóri í Neskaupstað, kvænt- ur Kristínu Kristinsdóttur; Guðni, járnsmíðameistari og bæjarfulltrúi í Kópavogi, kvæntur Guðbjörgu Ásgeirsdóttur; Guðmundur, stýri- maður í Neskaupstað, kvæntur Dagmar Þorbergsdóttur; Jón Þor- lákur, vélstjóri á Neskaupstað, Eiríkur Trausti Stefánsson. kvæntur Steinunni Jónsdóttur; og Stefán Þórhallur, sjómaður í Grindavík, kvæntur Fannýju Lautsen. Foreldrar Eiríks eru Stefán Guðnason, útvegsb. á Karlsskála i Reyðarfirði, og kona hans, Sigríður Guðmundsdóttir. Stefán er sonur Guöna, útvegsb. á Karlsskála, Eiríkssonar, b. á Karlsskála, Björnssonar, ættföður Karlsskálaættarinnar. Móðir Stefáns var Jónína ljós- móðir Stefánsdóttir, b. á Karlskála, Jónssonar b. á Sómastöðum, Þor- steinssonar. Móðir Jónínu var Anna Marta Indriðadóttir, b. og hreppstjóra á Seljateigi í Reyðar- firði, Ásmundssonar. Sigríður var dóttir Guðmundar, b. og smiðs, í Garði í Þistilfiröi og konu hans, Elínar Guðmundsdótt- ur. Eiríkur verður á laxveiðum á af- mælisdaginn. Þóra Guðmundsdóttir Þora Guömundsdottir, sem nu dvelur á Dvalarheimili aidraöra á Eskifirði, varð áttræð í gær. Þóra er fædd og uppalin á Eski- firði, dóttir hjónanna Guðmundar Ásbjörnssonar fríkirkjuprests og Bjargar Jónasdóttur frá Svína- skála. Þóra rak kaífihúsið Ásbyrgi í fjölda ára ásamt móður sinni og Láru systur sinni. Hún starfaði mikið fyrir leikfélagiö á Eskifirði og var mjög virk í félagslífinu á staðnum. Þóra vill færa öllum ættingjum og vinum um land allt hugheilar kveðjur á þessum tímamótum. Þóra Guðmundsdóttir. Til hamingju með daginn 85 ára Helga Þórarinsdóttir, Heiðar- hrauni 54, Grindavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Soffia Sigtryggsdóttir, Espilundi 2, Akureyri, er áttatíu og fimm ára í dag. 80 ára_____________________ Guðmundur O. Magnússon Öldu- götu 59, Reykjavík, er áttræður í dag. 75 ára____________________ Ragnar Bjarnason, Háagerði 31, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára______________________ Magnús Aðalsteinsson, Laufásvegi 65, Reykjavík, er sjötugur í dag. Halldór Bjarnason, Hringbraut 103, Reykjavík, er sjötugur í dag. 60 ára_______________________ Elita Benediktsson, Efri-Dálksstöð- um, Svalbarðsstrandarhreppi, Suður-Þingeyjarsýslu, er sextug í dag. Guðrún Einarsdóttir, Holtsgötu 42, Njarðvík, er sextug í dag. Sigurjón K. Nielsen, Vesturbergi 23, Reykjavík, er sextugur í dag. 40 ára_________________________ Pétur Gunnlaugsson, Skólavörðu- stíg 18, Reykjavík, er fertugur í dag. Kristín Kjartansdóttir, Hjalla- brekku 5, Ólafsvík, er fertug í dag. Pétur H. Guðmundsson, Svalbarði 3, Hafnarfirði, er fertugur í dag. Guttormur Sigurðsson, Junkara- geröi, Höfnum, Gullbringusýslu, er fertugur í dag. Hildur Ása Benediktsdóttir, Birki- hrauni 4, Skútustaðahreppi, Suð- ur-Þingeyjarsýslu, er fertug í dag. Hreiðar Þór Sæmundsson, Hátúni 10 A., Reykjavík, er fertugur í dag. Jóna Kristjánsdóttir, Fjölnisvegi 13, Reykjavík, er fertug í dag. Sigurveig Guðjónsdóttir, Víkur- braut 7, Grindavík, er fertug í dag. Eyrún Jónsdóttir, Borgarvegi 23, Njarðvík, er fertug í dag. Sigfús Smári Viggósson, Kross- hömrum 5, Reykjavík, er fertugur í dag. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hveturafmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.