Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. Sandkom Fréttir Ástæðumar fundnar_ Þaðfórvíst ekM fram Rjá neinumaðung- irframsóknar- mennsam- þykktuum daginnályktun þarsemskoraö ______________varáríkis- stjórnina aö segja af sér. Stuðnings- menn stjórnarinnar flýttu sér að lýsa því yfir að sitt væri nú hvað, ungur og gamall framsóknarmaður. Þetta þýddi því alls ekki að Steingrímur væri á ieiö úr stjómarsamstarflnu. í leiðara Tímans i gær er rætt um samþykkt ungliðanna. í upphafi leið- arans er rikisstjómm varin og þess beðið að hún fai lengri tima til að sanna sig. En skyndilega áttar leið- arahöfundur sig á þ ví að ef til vill hafi ungu mennimir eitth vað til síns máls. Ööaverðbólga veldur ekki þess- um sinnaskiptum, ekki vandi sjávar- útvegs, fallandi gengi krónu, vanda- mál landsby ggðarinnar, pólitískar stöðuveitingar né óeining einstakra ráðherra. Nei! Leiðarahöfundurinn nefhir tvö dæmi málstað ungliðanna til stuðnings: Fjármögnunarstofnun- in Glitnir er aö tveim þriðju hlutum i eigu útlendinga! Og iðnrekendur hafa lagt til að gengi krónunnar verði tengt erlendum aaldmiðlum! Þar era þó komnar ástæðurnar fyrir stjóm- arslitum. Blómarósir Þegarsólin lætursvolítið aðsýnasigá höfúðborgar- svæðinukepp- astölidagblöð- inviðaðbirta sólarmyndir, _____ llPaHI einsogvonlegt er. Það er um leið fin afsökun fyrir Ijósmyndarana aö taka myndir af fá- klæddum stúikum og sundbola- myndir úr laugunum prýða margar forsíður. Trúrþessari stefnu birti Tíminn í gær sólbaðsmynd á forsiö- unni. Undir myndinni stóö meðal annars: „Sólin setur svip sinn á borg- arlífið og þessar blómarósir sóluðu sig t gær i Sundlaugum Reykjavik- ur.“ Ekkert við þetta að athuga nema hvað frerast á myndinni er ungur maður og er óvíst að hann taki því fagnandi að vera kallaöur blóraarós! Hómópatarog múhameðstrúar- menn Skipun Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar ilektorsstöðu viðfélagsvis' indadeildhefur vakiötalsverð- _____________arumræðurí yóðfélaginu. Dr. Hörður Filippusson dósent skrifar skemmtilega grein um málið í Alþýðublaðið í gær. I grein- inni segir Hörður að menntamálaráð- herra hafi skipað Hannes vegna þess að hann sé fúlltrúi fyrir skoöanir sem litinn hljómgrunn hafi haft innan deildarinnar: „Efráðherraerstað- fastur í þessari stefnu sinni má búast við aö hómopatar og andalæknar verði skipaöir til starfa við lækna- deild, enda eiga skoðanir þeirra þar fáa formælendur. Ennfremur er skortur á múhameðstrúarmönnum i guöfr æðideild, andstæöingum þró- unarkenninga í Liffræðistofnim og þannig mætti lengi telja.“ Afturoq nýbúinn! Sjöárastrák- urúrReykja- vikfórísveit norðurílandí vor.Ábænum erfullorðin kona.mjög barngóð. Þegar ^ strákurinnvar nýkominnábæinn smurði konan brauðsneið handa honum og strákur sagði: „Þakka þérkærlega!" Konan varð hrærð vegna ávarpsins og sagði: „Ekkert finnst mér eins yndislegt og að heyra böm þakka kurteislega fyr- ir sig.“ Þá sagöi strákurinn: „Ef þú setur marmelaði ofan á brauðið skaltu íá að heyra það aftur!“ Umsjón Axel Ammertdrup Er nýtt þensluskeið vegna orkuframkvæmda í uppsiglingu? Sjö orkuver þarf fyrir nýtt álver - fjárfesting í orkumálum 25 milljarðar vegna álversins Heildarfjárfesting í raforkugeiran- um á næsta áratug mun aukast um 25 milljarða króna ef af stækkun ál- versins í Straumsvík verður. Þessar tölur eru komnar frá Landsvirkjun og er að finna í síðustu ársskýrslu fyrirtækisins. Tölurnar eru miðaðar við verðlag í desember. Þessara upp- hæða verða íslendingar að afla sjálfir eða taka þær að láni. Kostnaður við fyrri hluta álversins er áætlaður um 300 milljónir Banda- ríkjadala eða tæpir 14 milljarðar kr. Það er aðeins helmingur kostnaöar- ins sem má búast við að verði 28 milljarðar þegar upp er staðið. Eins og staðan er í dag er gert ráð fyrir að álverið verði í eigu þeirra íjögurra fyrirtækja sem nú hafa samþykkt hagkvæmnisathugun. Mun hvert þeirra eiga 25%. Eignarhluti af hálfu ríkisins hefur þó ekki verið útilokað- ur. Búast má því við framkvæmdum upp á um 50 milljarða vegna stóriðju á næstu tíu árum. „Þensluáhrif“ „Framkvæmdir sem þessar hafa tvímælalaust þensluáhrif en það eru aðgerðir í kringum þær sem ráða því hvaða áhrif þetta hefur á lítið hag- kerfi eins og á íslandi," sagði Vil- hjálmur Egilsson hagfræðingur. Vil- hjálmur sagði að eftirspurn eftir vinnuaili myndi aukast og auk þess þyrfti erlent lánsfé að koma til. „Þaö er auðvitaö ekkert að því aö taka erlend lán til tiltekinna framkvæmda en spurningin er hver verðmæta- sköpunin verður af þeim fram- kvæmdum," sagði Vilhjálmur. Það þarf orku frá sjö raforkuverum til að fullnægja nýju álveri af stærð í kringum 200.000 tonn. í áætlun Landsvirkjunar er gert ráð fyrir að hluti af orku Blönduvirkjunar fari til álversins, einnig stækkun Búr- fellsvirkjunar, orka frá Nesjavöllum og Kröílu og þá verði virkjað viö Sultartanga, Villingames og Vatns- fell. Þessar virkjanir á Landsvirkjun til verkhannaðar og mætti því bjóða þær út með skömmum fyrirvara. Aflþörf nýs álvers er áætluð um 300 megavött. -SMJ Vatnsfell Villinganes Sultartangi Krafla Nesjavellir St.Búrfells Blanda Núverandi virkjanir Orkuþörf Orkugeta A meðfylgjandi korti sjást þær virkjannir sem þarf að ráðast í vegna fyrirhugaðs álvers við Straumsvik. Þrjár þeirra eru á Þjórsársvæðinu, Búrfell 2, Sultartangi og Vatnsfell. Þá er gert ráð fyrir orku frá tveim gufuvirkjunum, á Nesjavöllum og við Kröflu. Síðast en ekki sist þá kemur orka frá Blöndu. Súluritin sýna annars vegar orkuþörfina sem er nú fyrir hendi með þeirri viðbót sem kemur með álverinu mælda í gígawöttum. Hins vegar sést hvaða afl þær virkjannir, sem á að reisa, þurfa að framleiða til að anna þörfinni. Eru þar gefnar upp samsvarandi tölur í megawöttum. Hjörieifur Guttormsson: „Stóriðja er á leiðinni til þriðja heimsins“ „Þaö eru margar spurningar sem koma upp í hugann þegar slíkar stórákvarðanir liggja fyrir," sagði Hjörleifur Guttormsson, alþingis- maður og fyrrverandi iönaðarráð- herra, aðspurður um fyrirhugaöar álversframkvæmdir. „Fyrst og síðast hlýtur maöur að spyija sig hvaða áhrif þetta hafi á íslenska atvinnuþróun og hvort það sé yfirleitt heppilegt að hlaða undir erlenda stóriðju þegar hún er á leiö- inni til þriðja heims landa. Þá er það athyglisvert að farið er að gefa undir fótinn með að raforka til hins nýja álvers verði langt undir kostnaðar- verði.“ Hjörleifur sagði að það væri greini- legt að fulltrúar þeirra erlendu fyrir- tækja sem um ræddi teldu sig fá raf- orkuna á svipuðu verði og ísal. Sagði Hjörleifur að meðalverð seldrar raf- orku á síðasta ári heföi verið 22 mill. Ódýr orka frá Blöndu kostaði 20 mill en eigi að síður væri verið að ræða um að selja orku á svipuöu verði og ísal nyti i dag til hins nýja álvers. „Þá tel ég mjög hæpið að tengja svo mikinn hluta raforkuverðs hér á landi við heimsmarkaðsverð á áli. Sá toppur, sem hefur verið á álverði að undanförnu, kemur varla til með að vara lengi.“ Hjörleifur sagði að undarlega væri aö allri málsmeðferð staðið og þá sérstaklega að ráðast í svona mikla framkvæmd án þess að nokkur þjóö- hagsleg úttekt heföi farið fram. Allt að 50 milljarða fjárfesting „Þama á að fara út í fjárfestingu upp á 20 til 50 milljarða en annað eins hefur ekki sést hér á landi áður á einu bretti. Ég get nefnt sem dæmi að allar framkvæmdir ríkisins á síð- asta ári námu aðeins 12,5 milljörð- um. Þannig að það er brýnt að grant sé skoðað hvaða áhrif framkvæmdir sem þessar hafa á þjóðfélagið áður en rokið er af stað.“ Þá sagði Hjörleifur að staðsetning álversins væri enn eitt tilræöið við byggðaþróun í iandinu og skilaboöin til landsbyggðarfólksins væru skýr: Það ætti að fara að pakka niður í töskurnar. „Ég tel engan vafa á því aö þetta verður eitt af stórmálunum á Alþingi í vetur og þar verður ríkisstjórnin aö svara fyrir alla þætti þessa máls.“ -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.