Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. I 33 LífsstíU Tví- og ferfættir nemendur Að fara í hundana „Við erum farin í hundana,“ sagði einn viðmælenda DV þegar blaðamaður talaði við tvífætta nemendur hundaskólans. Reyndar voru það orð að sönnu. Þarna voru eigendur og dýr í þjálfun. Skipanir frá tvífætlingum og gelt frá þeim ferfættu ómuðu á víxl. Þarna var höndum bandað og merki gefin. Orð eins'og sitt, ligg og hæll heyrð- ust og þó að blaðamaður ætti erfitt með að skilja máhö, virtust hund- amir hafa þetta á hreinu. „Geturðu ekki legið eins og mað- ur,“ gæti Albert verið að segja við hann Mána. Næst snerum við okkur að nokkrum hundaeigendum. Það var ekki auðhlaupið aö því að trufla þá við þjálfunina því kappið var mikið. Þetta á að vera leikur Fyrst fengum við Jónu Þ. Vern- harðsdóttur til að tala við okkur. Með henni var tíkin Bessý. Bessý er ársgömul collie-tík sem horfði tilbeiðsluaugum á eiganda sinn. Jóna taldi það sjálfsagðan hlut að læra að þjálfa hundinn sinn. I]ún kvaðst hafa náð ágætisárangri með Bessý og sagöist reyna aö þjálfa hana á hverjum degi. „Bessý hefur mjög gaman af þessu og telur þetta allt saman leik. Þannig á það ein- mitt að vera,“ segir Jóna og horfir ástúðlega á tíkina sína. Þama var auðsýnilega á feröinni hið fræga samband manns og hunds. Ekki bara fyrir hreinræktaða hunda Hlíf Ásgrímsdóttir var stödd á námskeiðinu meö Lísu sína. Lísa er blönduð tík en á bersýnilega ættir að rekja til íslenskra forfeðra. „Það halda sumir að þessi nám- skeið séu einungis fyrir hreinrækt- aða hunda með ættartölu. Það er af og frá,“ segir hún. „Þessi nám- skeið eru nauðsynleg til að gera hundeigendum kleyft að búa í sátt og samlyndi við annað fólk. Tökum til dæmis íslenska hundinn. Hann á tfi að vera dáhtið geltinn. Meö þjálfun er hægt aö minnka gelt- áráttuna þannig að þeir séu ekki gjammandi í tíma og ótíma. Fyrir utan það er gífurlega gaman að taka þátt í þessu námskeiði, félags- skapurinn er svo góður," segir hún. Ætlar að þjálfa Mána sem fuglahund Albert Guðbrandsson var að kenna Sólbergs-Mána að liggja þeg- ar blaðamaður truflaði þá. Máni er af þeirri ætt hunda sem kallaðir eru golden retriever. Fallegur feld- ur og augnaráð, sem bræðir hjörtu á augabragði, einkenna þessa hunda. Máni virtist vera hæst- ánægður með námskeiöið og haföi mikinn áhuga á aö leika sér. í raun tók hann skipunina um að liggja svo bókstaflega að hann rúilaði sér eftir grasfletinum. Við spurðum Albert um veru hans í námskeið- inu. „Ég er hér til að læra að þjálfa hundinn minn. Mér fmnst gaman að veiði og vonast til að geta gert úr honum sæmilegan fuglahund. Hundar af þessu kyni eru mjög góðir til slíkra verka. Þessir hun'd- ar eru stundum kallaðir vinnu- hundar og byggist það á athafnaþrá þeirra," sagöi Albert. Ekki var ráö að truila þessa stoltu eigendur lengur en svo virtist sem bæði hundar og menn vildu ólmir takast á við verkefnin aftur. Hund- ar með lafandi tungur horfðu eftir- væntingarfullir á eigendur sína og biðu eftir næstu bendingum og skipunum. Það var eins og þeir skemmtu sér konunglega við að hlýða duttlungum þeirra sem voru á hinum enda ólanna. Gott ef ekki sást bros á einstaka hundstrýni. Eftir þessi kynni við hunda og menn í hundaskólanum hefur mál- tækið „að fara í hundana" fengið mun jákvæðari merkingu. -EG. Jóna er hér að venja Bessý á að ganga viö hliðina á sér. Tilgangurinn er að hundurinn rjúki ekki frá eigandanum í tima og ótíma. Hlíf Ásgrimsdóttir var svo sannariega ánægð með Lísu sína. Lísa ætlaði aö sanna að blendingar geta líka dúxað í hundaskólum. SMÁ-AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN Smáauglýsingadeild tunocano — sími 27022. ■ iiiiiiiiiimiiiiimiirn LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF Laugavegi 178 - Reykjavik • Sími 685811 ........ rmmnm iiiiul

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.