Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 12
Útlönd MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. Leiðtogi Ungverjaiands, Karoly Grosz, hefur áhuga á umbota- stefnu Gorbatsjovs. Simamynd Reuter Grosz hítti Gorbatsjov Grosz, leiðtogi Ungverjaiands, hitti í gær Gorbatsjov Sovétleiötoga í Moskvu og ræddust þeir við í þrjár klukkustundir. Grosz gaf í skyn að Ungverjar hefðu áhuga á sams konar umbótum og sovéski kommúmstaflokkurinn samþykkti á ráðstefnu sinni á dögunum. Þetta er í fyrsta sinn sem Grosz heimsækir Moskvu frá því að hann tók við formennsku sovéska kommúnistaflokksins eftir að Jan- os Kadar lét af því embætti í janúar síöastliðnum. Reagan deilir á Dukakis Rauðu khmer- arnir taka þátt í friðaiviðræðum Dukakis leitar nú að varaforsetaefni og átti í gær fund með tveimur sem til greina koma. Hér er Dukakis ásamt bandarískum þingmönnum. Simamynd Reuter Reagan Bandaríkjaforseti sakaði í gær Michael Dukakis um að reyna aö leyna frjálshyggjustefnu sinni Lagði forsetinn áherslu á aö hann vildi Bush sem næsta leiðtoga Bandaríkjanna. Dukakis hélt 1 gær fund með tveimur mögulegum varaforsetaefnum, fyrrverandi keppinautunum Richard Gephardt og A1 Gore. í dag er ráö- gert að hann eigi fund með þeim þriðja, þingraanninum Lee Hamilton frá Indiana. Lögreglumaöur grunaður Lögregluraaður í Manila er grun- aður um að hafa reynt að myrða vinstri sinnaðan menntamann sem særðist i árásinni. Þrír lífverðir létust við tilræöiö. Yflrheyrslur fara nú fram yflr grunuöum meðlimi sveitar sem berst gegn kommúnistum. Talið er að sveit þessi beri ábyrgð á morð- um á iögfræðingum á Filippseyjum undanfamar vikur. Filippseyskur liðsforíngi meö vopn sem tekin voru við húsleit í út- hverfi Manila. Simamynd Reuler Nitján hafa drukknaö undan Ferðamenn drnkkna Níu ferðamenn, þar á meðal tveir unglingar, drukknuðu í gær í óveðri við Miðjarðarhafsströnd Frakklands. Samkvæmt frásögn yfirvalda hafa nítján manns drukknað undan ströndixmi austan Marseille frá því um helgina. Veður hefur verið slæmt á þess- um slóðum og mikil ólga í sjónum. ströndinni vlð Marseille. Reuter Nýjar kínverskar eldflaugar Kinveijar ætla að framleiða nýja tegund af eldflaugum, að þvi er Kín- verska dagblaðiö sagði í morgun. í fréttinni mátti einnig lesa að geröar hefðu verið tilraunir með þrjár tegundir af eldflaugum. Yflrvöld í Kína hafa mikið reynt að koma eldflaugum sínum á fram- færi til annarra landa, sérstaklega Miðausturlanda. í mars tilkynntu kínversk yflrvöld að þau hefðu selt ótilgreindan Qölda eldflauga til Saudi-Arabíu. SpSlllng eykst Áagar Eggeilsson, DV, Mundven; í hinum ýmsu fylkjum V-Þýskalands komust í fyrra upp þijú hundruð og þrjátiu mútu- og svikamál sem opinberir starfsmenn voru flæktir í. Rannsóknarlögreglan ijóstraöi upp um ýmsa starfsmenn sem tóku viö dýrum gjöfum og ferðalögum frá fyrirtækjum. Á móti fengu fyrirtækin úthiutað ýmsum verkefnum. Hæsta greiðslan fór til starfsmanns í gatnamáladeildinni í Frankfurt. Á nokkrum árum runnu i pyngju hans um tuttugu og fimm milljónir króna. Borgarlögmaöurinn í Frankfurt hefur nú skipað neöid sem koma á í veg fyrir slikar mútur. Nú sitja tveir borgarstjórar í gæsluvarðhaldi. Annar fyrir ijárdrátt og hinn fyrir að feia einungis tveimur fyrirtækjura frarakvæmdir bæjarins. Fundur utanríkisráðherra ASEAN, ríkja Suðaustur-Asíu, gaf nýjar vonir um frið í Kampútseu eftir níu ára styijöld. Friðarviðræður milli hinna striðandi afla í landinu verða haldn- ar í Indónesíu þann 25. þ.m. Að sögn utanríkisráðherra Thai- lands, Siddhi Savetsila, hafa nokkrar þjóðir boðist til að vinna að friðar- gæslu í Kampútseu en verið getur að aðstoðar Sameinuðu þjóðanna verði æskt til að setja saman friðar- gæslusveitir til að stuðla að friði í landinu Utanríkisráðherra Japans, Sosuke Uno, er væntanlegur til Bangkok í dag til að ræða hugsanleg fjárfram- lög Japana til stofnunar slíkrar friö- argæslusveitar. Uno mun ræöa viö Shianouk prins, leiðtoga skæruliða í Kampútseu, á fundinum í Bangkok. Shianouk prins hefur stuðning ASE- AN-ríkjanna og vestrænna rikja í til- raunum sínum til að koma á friði í Kampútseu. Shianouk sagði að rauðu khmerarnir heíðu samþykkt að taka þátt í friðarviðræðunum í Indónesu þann 25. og að skæruliöa- hreyfingin yrði leyst upp samhliöa ríkisstjóm landsins. Hann sagði einnig að rauðu khmeramir hefðu samþykkt að stofnað yrði til fjögurra flokka ríkisstjómar þegar Víet- namskt herlið væri á brott úr landinu sem og aö íbúar landsins fengju að kjósa sína fulltrúa. Utanríkisráðherra Thailands, Siddhi Savetsila, (t.h.) og Sihanouk prins á blaðamannafundi í Bangkok á þriðjudag. Simamynd Reuter Utanríkisráðherra Japans, George Schultz, utanríkisráöherra Banda- ríkjanna, og utanríkisráðherrar Ástralíu, Nýja Sjálands, Kanada og V-Þýskalands munu hitta ráðherra ASEAN ríkjanna á morgun og föstu- dag til að ræða hugsanlegar leiðir til að koma á friði í landinu. Víetnamar réðust inn í Kampútseu áriö 1978 til að steypa af stóli harð- stjórn ríkisstjórnar rauöu khme- ranna. Rauöu khmerarnir voru ásakaðir um að hafa orðið þúsundum að bana á meðan á íjögurra ára valdatíma þeirra stóö. Þeir em nú stærsti skæruliðahópurinn í Kamp- útseu. Reuter Ohugnanlegt morð í Svíþjóð Gtmnlaugur A. Jónason, DV, Lundú Umfangsmikil leit sænsku iög- reglunnar á sér nú staö í skógunum við Vánersborg í Vestur-Gautlandi í Svíþjóö. Lögreglan leitar bæði úr lofti, með þyrlum og á landi með aðstoð sporhunda aö ungu finnsku pari sem grunaö er um að hafa myrt miöaldra hjón og sextán ára son þeirra í bænum Ámsele í Norð- ur- Svíþjóð aðfaranótt sunnudags- ins. Lögreglan hefur getað rakið slóö finnska parsins til Vánersborg þar sem bíll, sem tahð er aö þau hafi stolið á flóttanum, hefur fundisL Ýmis vitni hafa einnig getað gefið upplýsingar um flóttaleið þeirra. Það var á sunnudagsmorgun sem þrjú illa útleikin a lík fundust í kirkjugaröinum í Ámsele, feðgar, skotnir til bana með haglabyssu, ogkona, stungin til bana meö hnífi. Morð þessi hafa vakið mikinn óhug í Svíþjóð, ekki síst í ljósi þess að lögreglan telur ástæðu morðsins hafa vera hjólreiöstuid. Feögamir sáu til finnska parsins um kl. 3 um nóttina er það stal reiðhjólum íjöl- skyldunnar. Feðgamir veittu par- inu eftirför á bíl sínum að kirkju- garðinum þar sem þeir vom skotn- ir til bana með haglabyssu. Móðirin kom svo rétt á eftir á reiðhjóii sínu. Þegar hún kom að kirkjugarðinum var hún einnig myrt, stungin til bana með hníf. Eyðni í Noregi fyrir 22 árum Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló: Norskir vísindamenn hafa sýnt fram á 22 ára gamalt tilfelli af eyðni. Það var norskur sjómaður sem er fyrsti eyönisjúklingurinn sem vitað er um í Evrópu. Maðurinn, sem á siglingum sínum haföi viödvöl á mörgum stöðum í Afríku, veiktist 1966. Hann smitaði einnig eiginkonu sína sem veiktist ári seinna. Tveggja ára dóttir hjón- anna fékk sjúkdómseinkennin árið 1969. Þau dóu öll sama árið, 1976. Læknarnir, sem höfðu umsjón með fjölskyldunni, varðveittu blóðsýni úr öllum sjúklingunum og nú hafa norskir vísindamenn sannað dánar- orsökina. Þrjár mismunandi eyðniprufur voru teknar úr hverju blóðsýni og niðurstaðan var í öllum tilfellum sú sama, nefnilega að um eyðni hefði verið að ræða. Norski læknirinn Stig Fröland, við ríkissjúkrahúsið í Osló, skrifaði um þessar niðurstöður í júníútgáfuna af enska læknatímaritinu Lanced. Nið- urstöðumar eru afar áhugaverðar þar sem þær sanna að eyðni hafi verið til í Evrópu mörgum árum áöur en vitað hefur veriö. Þetta eru elstu þékktu tilfelli af eyðni í Evrópu og trúlega munu ekki nokkurs staðar vera til eldri heimild- ir um böm sem.hafa látist af völdum sjúksómsins. Uppgötvanir þessar geta haft áhrif á vitneskju um útbreiöslu sjúk- dómsins, bæði í fortíö og framtíö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.