Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. Jarðarfarir Árný Jóhannesdóttir lést 27. júní. Hún var fædd á Neöri-Fitjum í Víði- dal 22. mars 1939, dóttir hjónanna Kristínar Ásmundsdóttur og Jó- hannesar Árnasonar. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Haukur Ei- riksson. Þau hjónin eignuðust fjögur börn. Útfór Árnýjar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag kl. 15. Gunnlaugur Hreinn Hansen lést 17. júní sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Grethe Laursen, Christiansdals Kloster, Glumsö, Danmörku, lést 4. júlí. Útfór hennar fer fram frá Næsby Kirke 9. júlí kl. 14. Síta Dal Sigurðardóttir verður jarð- sungin frá Garðakirkju, Álftanesi, fimmtudaginn 7. júh kl. 11 f.h. Wilhelm Holm verður jarðsunginn frá nýju kapellunni í Fossvogi fimmtudaginn 7. júh kl. 13.30. Guðmunda Guðbjörnsdóttir lést 27. júní. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðríður Þ. Einarsdóttir, fyrrver- andi ljósmóðir, Austurbrún 4, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 7. júlí kl. 14. . Útfór Hermanns Aðalsteinssonar framkvæmdastjóra, Lálandi 9, fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 8. júh kl. 15. Útför Rögnu Ingimundardóttur, Stórholti 26, Reykjavík, fer fram frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 7. júlí kl. 13.30. Andlát Guðrún Jónsdóttir frá Kjós í Strandasýslu, Hátúni 10, Reykjavík, lést 3. júlí. Jón Björnsson, Hringbraut 87, er lát- inn. Pétur Árnason, Byggðarenda 23, Reykjavik, lést í gjörgæsludeild Landspítalans 5. júlí. Tilkynningar Önnur bókin um Raiju komin út Prenthúsið hóf fyrir skömmu útgáfu nýs tíu bóka bókaflokks, bókanna um Rayiju. Þessi bók nr. 2 heitir „Í skugga fjall- anna“. Bækumar um Raiju eru eftir unga norska stúlku, Bente Pedersen, sem þrátt fyrir lágan aldur hefur öðlast heilmikla athygli í heimalandi sínu fyrir smásögur sínar og nú fyrir bækumar um Raiju. Eins og Raija er Bente Pedersen fmnsk að uppruna en flyst til Noregs sem ung stúlka. Nýtt fyrirtæki sem eyðir hrukkum vöðvabólgu og hárvandamál- um Nýtt fyrirtæki, Heilsuval, hefur verið opnað að Laugavegi 92, við Stjörnubíó- planið. í Heilsuvali er orkupunktameð- ferð, rafmagnsnuddi og leisergeislatækni beitt gegn hárvandamálum á borð við hárlos, blettaskalla og líflaust hár. Með- ferðartíminn tekur 45-55 min. og kostar 980 kr. Hliðstæðri tækni er beitt við að eyða hrukkum og vöðvabólgu. Hjá Heilsuvali em einnig seldar snyrtivömr unnar úr lífrænum efnum. M.a. hinar viðurkenndu Aloe Vera heilsuvörur frá G.N.C. sem em einungis seldar í Heilsu- vali. Aðaleigandi Heilsuvals er Sigurlaug Williams sem áður veitti hárræktarstof- unum Heilsulinunni og Hárræktinni for- stöðu. Tímapantanir em í sima 11275 til kl. 19 virka daga og til kl. 14 á laugardög- um. Mynd mánaðarins í Listasafni íslands í Listasafni íslands er vikulega kynnt mynd mánaðarins. Þar stendur nú yfir sýning á Norrænni konkretlist 1907-1960. Þetta er farandsýning sem unnin er að frumkvæði Norrænu listamiðstöðvar- innar í Sveaborg í Finnlandi. Listasafn islands er beinn aðili að sýningunni og hefur staðið að undirbúningi fyrir ís- lands hönd. Á sýningunni em á annað hundrað listaverka, málverk og högg- myndir og hefur málverk eftir Finn Jóns- son verið valið sem mynd júlimánaðar. Það er ohumálverkið „Örlagateningur- inn“ frá árinu 1925. Leiðsögnin mynd mánaðarins er ókeypis og fer fram í fylgd sérfræðings alla fimmtudaga meðan sýn- ingin stendur, fram til 31. júlí kl. 13.30- 13.45 og er safnast saman í anddyri húss- ins. Sýningin er opin alla daga, nema mánudaga, kl. 11-17. Veitingastofa húss- ins er opin á sama tíma. Skólastjórnarskipti hjá Tóm- stundaskólanum 1. ágúst nk. verða skólastjóraskipti hjá Tómstundaskólanum. Ingibjörg Guð- mundsdóttir sem verið hefur skólastjóri frá 1985, en þá tók skólinn til starfa, læt- ur nú af störfum og við tekur Vilborg Harðardóttir sem undanfarin ár hefur verið útgáfustjóri Iðntæknistofnunar ís- lands. Menningar- og. fræðslusamband alþýðu á og rekur Tómstundaskólann sem býöur námskeið um mörg og mis- munandi efni á haustönn og vorönn ár hvert. í vetur stunduðu um það bil 1100 manns nám í skólanum á samtals 114 námskeiðum. Flest námskeiðanna eru haldin í Iðnskólanum í Reyhjavik þar sem skólinn leigir kennsluaðstöðu en skrifstofa skólans er að Skólavörðustíg 28. í haust hefst skólastarfið í september og þá verða eins og áður mörg og spenn- andi námskeið í boði. BÖKUNAROFN Til sölu Revent-mini bökunarblástursofn, 2ja ára, lít- ið notaður, hentugur fyrir brauðbúðir, hótel og veit- ingahús. Uppl. í síma 83214 á kvöldin. Fréttir Ungt par á allsérstöku ferðalagi: Stálu frá lög- reglu og brutust inn í kaupfélag Ungt par átti sérstaka daga um síðustu helgi. Maðurinn var ný- kominn úr þriggja mánaða gæslu- varðhaldi. Hann festi kaup á bíl í síðustu viku. Bílaleiga seldi honum bílinn gegn skuldabréfi. Litlar lík- ur eru á að skuldabréfið innheimt- ist og bíllinn er mikið skemmdur. Seljandinn hefur því orðið fyrir töluverðu tjóni. Á föstudag lagði maðurinn af stað í ferðalag ásamt vinkonu sinni. Ferðinni var heitið á Suðurland. Skammt frá Kirkjubæjarklaustri óku þau út af. Þau voru ekki alls- gáð. Fólk, sem kom að þeim, lét lögregluna á Kirkjubæjarklaustri vita hvernig komið var. Lögreglan flutti fólkiö til læknis og síðan á lögreglustöð. Illa gekk að fá upp nafn mannsins. Hann gaf upp mörg og ólík nöfn þar til hann sagði rétt til nafns. Parið svaf á lögreglustöðinni á Kirkjubæjarklaustri um nóttina. Daginn eftir fór maðurinn að bíln- um og kom honum í gang. Lögregl- an fékk þær skýringar á ferðalagi parsins að þaö væri að fara á bóndabýli sem héti Seyðisfjörður eða Eskifjörður. Lögreglan uggði ekki að sér og varð ekki vör við þegar fólkið lagði af stað á ný, nú sem puttafarþegar. Áður höfðu þau stolið tveimur eyðublöðum úr ávísanahefti lög- reglumannsins. Næst segir af ferð þeirra á Djúpavogi. Þau komu viö í kaupfélaginu þar, eftir lokun. Þau brutust inn og stálu 30 þúsund krónum. Fólkið var síðan handtekið á Eskifirði. Það gekkst við öllum af- brotunum og var flutt á kostnað ríkisins til Reykajvíkur. Þar sem játningar liggja fyrir gengur fólkið laust. Ekki er vitað hvort ferðahug- ur er kominn í parið á ný. -sme Anægðir með frjálst loðnuverð „Þetta hefur verið í gangi síðustu tvær vertíðir og reynst nokkuð vel. Fiskimjölsframleiðendur sáu því ekki ástæðu til að hafa þetta öðru- vísi. Það virðast allir vel við una enda er þetta eðlileg aðferð og þægi- legra viðfangs í loðnu en öðrum fiski, þar sem um einhæfari veiði er að ræða og færri móttakendur við afla,“ sagði Pétur Antonsson, forstjóri Fiskimjöls og lýsis hf. í Grindavík. í gær var ákveðið á fundi Verð- lagsráðs sjávarútvegsins að gefa frjálsa verðlagningu á loðnu til bræðslu á sumar-, haust- og vetrar- vertíð 1988-1989. Loðnuverð hefur verið frjálst undanfarnar tvær ver- tíðir og sagði Sigurður Einarsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, að sér litist vel á að þetta yröi áfram eins og verið hefði enda heföu ekki komið upp nein vandamál. Hvorki Pétur né Sigurður treystu sér til að áætla væntanlegt markaðs- verð á loðnu. Pétur sagði að það væri misjafnt á milli verksmiðja og menn hefðu selt mismikið fyrirfram. Nefndi hann verðið 8-9,7 dollara á prótíneininguna fyrir mjöl en sagði að það gæti breyst. Mikil verðhækk- un hefur orðið á afurðaverði loðnu í heiminum og munu miklir þurrkar, einkum í Bandaríkjunum, vera aðal- orsökin. Pétur sagði aö þetta væri hálfgerður veðurmarkaður og verðið gæti því auðveldlega falhð niður. Sigurður Einarsson sagðist ekki hafa hugmynd um hvenær hann hæfi veiði en hann gerir út fjóra báta á loðnu. Sagði Sigurður aö í fyrra hefðu þeir byrjað í nóvember en þetta færi eftir hvernig veiðin yrði. Pétur Antonsson sagði að leyfilegt væri að byrja veiðar 10. júlí noröan við 68. breiddargráöu en veiðar hefðu byrjað seint í fyrra og hann gerði ráð fyrir að stærsti hlutinn færi ekki út fyrr en seinni hluta ágúst eða í byrj- un september. -JFJ Böðvar Bragason: Bíður eför saksóknara „Eg tek ekki ákvörðun fyrr en ríkissaksóknari hefur ákveðið hvort hann áfrýi þessum dómi. Ég byggi þessa ákvörðun á því að hér er um dóm undirréttar að ræða. Verði áfrýjað til Hæstaréttar lýkur málinu ekki fyrr en dómur hans liggur fyrir,“ sagði Böðvar Braga- Sjá nánar á bls. 2 son, lögreglustjóri í Reykjavík, þeg- ar hann var inntur álits á dómi Sakadóms Reykjavikur í hand- leggsbrotsmálinu. -sme Eiður Guðnason: Menn hlusti meira á Halldór en Steingrím „Þriggja flokka ríkisstjórnir eru ahtaf erfiðari en tveggja flokka en mér finnst þetta hnútukast vera hvimleitt og hvorugum til sóma. Ég held að menn ættu að hlusta meira á Hahdór Ásgrímsson en Steingrím Hermannsson í þessum málum. Steingrímur virðist hafa verið óán- ægður í þessari ríkisstjórn og menn geta leitt hugann að orsökum þess og komist að sinni niðurstöðu," sagði Eiður Guðnason, þingflokksformaö- ur Alþýðuflokksins, um þau ummæli Steingríms Hermannssonar að for- sætisráðherra hafi kastað stríðs- hanskanum og ummæli Þorsteins Pálssonar að Steingrímur hafi búið til ágreining um gjaldskrármálið út af engu. Eiður kvaðst ekki eiga von á kosn- ingum í haust miðað viö stöðuna í dag en sagði þó að menn ættu aldrei að segja aldrei í póhtík. Fyrst yrði þó að sjá hvort ríkisstjómin gæti tek- ist á við vandamálin. Eiður gaf lítið út á vantraustsyfirlýsingu ungra framsóknarmanna og sagði: „Þeir segjast hafa misst traust sitt á stjórn- inni en ég hef aldrei haft mikið traust á ungum framsóknarmönnum. Þetta er fyrst og fremst glamur til aö kom- ast í fjölmiöla. Ég held að menn ættu frekar að spara stóru orðin og fara að gera eitthvað.“ JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.