Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 40
FRETT ASKQTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. Samvinniihreyfingm: Hverjir taka við af Val? Hverjir taka við störfum Vals Arn- -<• þórssonar sem kaupfélagsstjóra KEA og formanns stjórnar Sambandsins setjist Valur í stól bankastjóra Landsbankans um áramótin í stað Helga Bergs? Þessi spurning brennur nú á mönnum í viðskiptalífmu. Ljóst þykir að Ólafur Sverrisson, varaformaður stjórnar Sambands- ins, taki við formannsstöðunni og gegni henni að minnsta kosti til næsta aðalfundar Sambandsins sem verður næsta vor. Ólafur hefur verið kaupfélagsstjóri í Borgarnesi um árabil en hætti nýlega og hyggst flytja til Reykjavíkur. Það kemur í hlut þeirra norðan- manna, stjórnar KEA, að ráða nýjan kaupfélagsstjóra. „Af núverandi starfsmönnum þykir mér Magnús Gauti-Gautason, fjármálastjóri KEA, líklegastur sem eftirmaður, Her- mann Hansson, kaupfélagsstjóri á Höfn, verði leitað í raðir annarra kaupfélagsstjóra og eins tel ég Jón Sigurðarson, forstjóra Álafoss, koma sterklega tif greina. Hann er í miklu áhti hjá Val,“ sagði þekktur sam- vinnumaður við DV i morgun.-JGH Niðurgreiðslur: ,Hækka um 160 milljónir Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hækka niðurgreiðslur úr ríkissjóði um 160 milljónir kr. til samræmis við hækkun söluskatts vegna verð- hækkana. Miðast þetta við 1. sept- ember. Miklar deilur urðu fyrr á árinu milli landbúnaðarráðherra og fjár- málaráðherra vegna breytinga nið- urgreiðslna í kjölfar verðhækkana. Þýðir niöurstaða málsins nú að sjón- armið landbúnaðarráðherra hafi sigrað? „Ég veit nú ekkert um það. Það lá loftinu aö þetta yrði ofan á þar sem betta felur aðeins í sér endurgreiðslu oegar innheimts söluskatts. Ég og íleiri höfum veriö þeirrar skoðunar að ef innheimtan er aukin þá eigi aö auka endurgreiðslu söluskatts,“ sagði Jón Helgason landbúnaðarráð- aerra. -SMJ LOKI Enn skorar Jón á Seglbúðum hjá nafna sínum! Stúlkumar á Vallá fá greidd rétt laun: vart stoppað - segir Guðmundur i. sem boðar hertar aðgerðir Dagsbrúnar „Við höfum fengið fregnir af mörgum útlendingum sem ekki fá greitt samkvæmt íslenskum samn- ingum og lögum í kjölfar frétta af stúlkunum á Vallá. Við munum því gera rassíu í þessum málum. Við ætlum ekki aö láta það viðgangast að menn fái hingað til lands um- komulausar stúlkur og láti þær vinna langan vinnudag fyrir brot af þeim launum sem íslendingar fá,“ sagði Guðmundur J. Guö- mundsson, formaður Dagsbrúnar. Guðmundur fór í gær upp að Vallá á Kjalamesi ásamt Rögnu Bergmann, formanni Verka- kvennafélagsins Framsóknar, og gekk frá máh thailensku stúlkn- anna. Guðmundur sagði samninga Verkamannasambandsins við bændasamtökin miða við tíu tíma á dag fimm daga vikunnar. Hins vegar þyrfti að greiöa fyrir yfir- vinnu og vinnu á laugardögum og því væri erfitt að segja til um hversu mikið stúlkumar hefðu verið hlunnfarnar frá því þær komu til landsins í september á síð- asta ári. í DV á mánudag vom birtar upp- lýsingar frá bændasamtökunum um laun landbúnaðarverkafólks. Samkvæmt þeim ætti aö greiða stúlkunum rúm 38 þúsund krónur fyrir tíu.tíma vinnu sex daga vik- unar auk fæðis og húsnæðis. Sam- kværat því eiga stúlkurnar aldrei minna en 195 þúsund krónur inni hjá kjúkhngabúinu aö Vallá. „Þaö virðist, því miður, að Vallá sé alls ekki einstakt dæmi. Eins og ég hef sagt áður era mörg þessi kjúkhngabú, loðdýrabú og svínabú varasöm. Viö höfum fengiö mikið af fregnum af útlendingum sem vinna hér langt undir lágmarks- launum. Síminn hjá okkur hefur vart stoppaö. í sumum tilfellum vinna stúlkumar á einhverjum au-pair samningum og án atvinnu- leyfis. Vallá haföi þó fengið at- vinnuleyfi fyrir stúlkurnar. Við munum gera gangskör að því aö fara í þessi mál og leiðrétta kjör þessa fólks,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson. -gse Ungir sem aldnir hafa drifið sig í laugarnar siðustu dagana. Þessi unga stúlka, Elín Björk, var að æfa sig í Breið- holtslauginni og hafði gaman að. DV-mynd: JAK Veðrið á morgun: Þurrt um allt land Á morgun verður fremur hæg, breytileg átt á landinu og skýjað með köflum. Reikna má með þurru veðri um allt land. Hiti verður 9 til 15 stig. Hvalkjótsgámamir: Hélduaf stað til íslands í nótt „Hvalkjötsgámarnir voru lestaðir’ um borð í Urriðafoss í nótt. Þetta var svolítill eltingarleikur. Skipið hafði verið að lesta ýmsar vörur og þurfti að færa sig að gámakajanum til aö geta lestað hvalkjötsgámana. Þar var fólk frá samtökum grænfriðunga búið að koma sér fyrir í krönunum og hindraði lestun. Skipið þurfti því að færa sig um set aftur, að öðrum kaja, þar sem loks tókst að koma gámunum um borð. Urriðafoss sigldi síöan út úr höfninni í Helsinki um klukkan 3 í nótt í fylgd lögreglu- báta,“ sagði Þórður Sverrisson, framkvæmdastjóri flutningasviðs Eimskipafélags íslands, í samtali við DV í morgun. Fjórir grænfriðungar höföu falið sig við höfnina síðustu tvo daga.í þeim tilgangi að hindra lestun hval- kjötsgámanna en höfðu ekki erindi sem erfiði eins og fyrr segir. Urriöa- foss kemur til íslands eftir tæpa viku og er óvíst um áframhaldandi ferðir gámanna. Þeir hafa staðið á hafnar- bakkanum í á þriðju viku þar sem þeir voru á leið til Japans í gegn um Finnland og Sovétríkin. -hlh Biðraðir fyrir utan sund- laugarnar Aðsóknin í Laugardalslaugina hef- ur tvöfaldast frá því vatnsrenni- brautinni var komið fyrir. Að sögn starfsmanna Laugardalslaugarinnar hefur gestum fjölgaö úr 2000 í 3500 til 4000 á degi hverjum. „Við erum að gera aðstöðu. í kjall- aranum svo við getum tekið á móti öllum þessum fjölda krakka sem kemur hér daglega. Aukningin hefur að mestu verið börn og biðraðirnar hafa verið miklar. Það ætti að rætast úr því þegar aðstaðan í kjallaranum verður tilbúin," sagði einn starfs- manna Laugardalslaugarinnar. Sundlaug Seltjarnarness og Vest- urbæjarlaugin hafa einnig verið mik- iö sóttar á sólardögunum. Á báðum stöðum sögðu þeir að aukning sundlaugargesta hefði verið mjög mikil þessa sólardaga og að- sóknin hafi aukist nokkuð frá því í fyrra. Ennfremur að minniháttar biðraðir hafi myndast, sérstaklega á annatímum, í hádeginu og seinnipart dags. Þeir sögðust einnig finna mikið fyrir því á báöum stöðum að þangaö væri að koma fjöldi fastagesta frá Laugardalslauginni sem gefist hefði upp á því aö bíða í biðröðum. Þaö væru helst eldri sundlaugargestir. „Varmársundlaugin í Mosfellsbæ gæti vel bætt við sig,“ sagði Davíð Björn Sigurðsson. Hann sagði að daglegir gestir und- anfarna sólardaga hefðu verið um 400 en að meðaltali koma um 115 sundgestir daglega og vildi beina því til fólks sem býr í Grafarvoginum að ekki séu nema 8 kílómetrar upp í laugina á Varmá. -GKr Hafnfirskur trillukari: Fótbrotnaði í róðri Trillukarl frá Hafnarfirði hrasaði um borð í báti sínum í gær og fót- brotnaði. Honum tókst, þrátt fyrir meiösli, að sigla bátnum til hafnar. Þegar hann kom til Hafnarfjarðar beið hans sjúkrabíll sem flutti hann á sjúkrahús. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.