Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. Fréttir Lógreglumaður i tuttugu þúsund króna sekt fyrir handleggsbrotið: Dæmdur fyrir líkams- meiðingar af gáleysi Sveinn Jónasson daginn eftir handleggsbrotið. Hann kærði handtökuna og meðferðina strax næsta dag. í Sakadómi Reykjavíkur hefur ver- ið kveðinn upp dómur í handleggs- brotsmálinu. Tveir vora ákærðir, Árni Ólafsson, fyrrverandi lögreglu- þjónn, var dæmdur til að greiða 20 þúsund króna sekt og fjórða hluta málskostnaðar fyrir að hafa brotið upphandlegg á Sveini Jónassyni. Mat dómarans, Ingibjargar Benedikts- dóttur, var að handleggsbrotið heföi verið af gáleysi. Árni og Valgarður Sveinn Hafdal varðstjóri voru sýkn- aðir af öðrum ákæruliðum. Það var aðfaranótt 13. febrúar að Sveinn Jónasson frá Eskifirði var handtekinn að Njálsgötu 39 í Reykja- vík. Handtakan var framkvæmd eftir að Hrafn, sonur Árna Ólafssonar, en Hrafn var þá lögregluþjónn, bar þær sakir á Svein Jónasson að hann hefði stokkið upp á vélarhlíf bifreiðar sinnar og valdið skemmdum með athæfi sínu. Síöar um nóttina kom til átaka á milli Sveins ogþriggja lögregluþjóna, auk fangavarðar, í fangageymslu lög- reglunnar. Árni Ólafsson gekk harð- ast fram í átökunum við Svein. Eins og kunnugt er brotnaði vinstri upp- handleggur Sveins í átökunum. Sveini og lögregluþjónunum, sem við sögu komu, ber sjaldnast saman um málsatvik. Læknar segja að hand- leggurinn hafi verið boginn er hann brotnaði. Lögreglumennirnir segja að Árni hafi tekið Svein „lögreglu- taki“. Sveinn heldur því hins vegar fram að snúiö hafi verið upp á hand- legginn og honum slegið í afgreiðslu- borö af miklu afli. Ekki bráð hætta Ðómarinn kemst að því að ekki hafi veriö um ólöglega handtöku að ræða. Þó segir í dóminum að til álita komi hvort handtakan hafi verið lög- leg vegna skyldleika Árna og Hrafns, en þeir eru feðgar eins fyrr segir. Eruifremur segir dómarinn: „Ákærða Árna var rétt, er hann hafði heyrt málavöxtu hjá syni sín- um, aö fara þess á leit viö yfirmenn sína á vaktinni að máliö yrði kannað án hans íhlutunar, í stað þess að óska eftir því að sinna því sjálfur. Þetta var honum í lófa lagið, enda ekki bráð hætta yfirvofandi. Þá þykir einnig, eins og á stóð, óviðurkvæmi- legt af ákærða að flytja son sinn og annað vitni í lögreglubifreiðinni á vettvang og leiða Svein Jónasson þangað að þeim viðstöddum til við- ræðna við þá lögreglumennina. Við beitingu þvingunarúrræðis sem handtöku er nauðsynlegt, rétt- aröryggisins vegna, að ekki skapist sú hætta aö ákvörðun um hana stjórnist af persónulegum hagsmun- um þeirra, sem að henni standa.“ í dóminum segir að í íslenskri lög- gjöf sé hvergi að finna almennar regl- ur eða einstök ákvæði um vanhæfni lögreglustjóra eða lögreglumanna til meðferðar einstaks máls. Því þótti ekki ljóst að fyrir hendi væri skýlaus lagaheimild er kvæði svo á að lög- reglumenn væru vanhæfir í máli sem þessu. Sýknaður en fékk ávítur Valgarður Sveinn Hafdal varð- stjóri var ákæröur fyrir aö hafa vist- að Svein Jónasson í fangaklefa þrátt fyrir að enga nauðsyn bæri til. Dóm- arinn kemst að þeirri niðurstöðu, sé htiö til vitnisburðar, að ekki teljist sannað að vistun Sveins Jónassonar hafi verið að nauðsynjalausu. Val- garður Sveinn var sýknaður. Dómarinn átelur varðstjórann fyr- ir að hafa ekki gert Sveini ljóst að hann ætti kröfu á að fá réttargæslu- mann, þrátt fyrir að skýlaust lagaá- kvæði sé þar um og það beri að virða. Það kemur fram að sú venja hefur viðgengist að gera ölvuðum mönnum ekki grein fyrir þessum rétti sínum fyrr en áfengisvíman er runnin af þeim. -sme Skaðabóta- mál verður höfðað - segir lögmaður hans „Það verður höfðað skaðabóta- mál. Ég lít þannig á að rétt sé að láta eitt ár h'ða áður en þaö verð- ur höfðað. Þá ætti að vera komið í Ijós hvaða afleiðingar þetta hef- ur fyrir Svein Jónasson,“ sagöi Jón Magnússon, lögmaður Sveins Eskfirðings Jónassonar. Jón sagði þetta ákveðna mál ekkert sérstakt hvað þetta varð- aði heldur ætti svo aö vera í skaðabótamálum sem höfðuð era vegna beinbrota. Jón hafði ekki séð dóminn í handleggsbrotsmálinu og var því ekki tilbúinn að tjá sig um hann. Sveinn Jónasson setti ekki fram kröfur um skaðabætur í refsimál- inu. -sme Nýr Herjólhin Endanleg ákvörðun í sumariok „Þaö er búið að teikna nýjan Hetjólf og stjórn Herjólfs hf. og bæjarstjórnar Vestmannaeyja hafa samþykkt teikningarnar og kaupin fyrir sitt leyti. Rikið á helminginn í Herjólfi og þar bíöur máhð endanlegrar afgreiöslu fram í ágúst. Þannig er biöstaöa i málinu fram á haust,“ sagði Magnús Jónasson, forstjóri Her- jólfs hf., í samtali við DV. Hann sagði að vegna þrýstings á þingmenn í þinglok og sumarfr- ía hefðu allir aðilar fallist á að bíða til ágústloka þegar skoða megi máhð betur. „Nýr Herjólfúr hefur verið inni á lánsíjárlögum síðustu tvö ár. Tveggja mánaða bið skiptir ekki miklu máh en áætlað er aö nýr Heijólfur verði tilbúinn eftir um tvö ár. Gamli Herjólfur hefur ekki verið á söluskrá og ekki ver- ið ákveðið hvort hann veröur seldur eða látinn ganga upp í nýja Herjólf.“ -hlh í dag mælír Dagfari Hver á stríðshanskann Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa kastað hnútum hver í annars garð að undanfómu. í þeim efnum hefur ríkt bæði hugmyndaflug og orög- nótt og hefur verið afar skemmti- legt að fylgjast með þeim orðaskipt- um. Sérstaklega þar sem htið ann- að hefur gerst í pólitíkinni og fátt um fina drætti. Er það guös þakk- arvert að ráðherrar skuh hafa svo þroskaðan skilning á hlutverki sínu, að þeir hafi ofan af fyrir þjóð- inni með skömmum og ávítum þeg- ar ekkert annaö er að hafa. Má raunar segja að þessi ríkisstjóm hafi staöið sig frábærlega vel í þeim efnum, vegna þess að hún hefur ekki fengið miklu áorkað í stjórn- arsamtarfi og efnahagsmálum, en því meir hefur hún látiö að sér kveða í frumlegum skeytasending- um. Steingrímur hefur verið dug- legastur í að skamma meöráðherra sína og kenna þeim um ýmiss kon- ar ófarir og vitleysu, en aðrir hafa fylgt fast á eftir. Lengi vel var Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra nokkurs konar blóraböggull í þessum nýja ráð- herraleik. Hann tók á sig skamm- irnar, hann tók á sig sökina af því sem miður fór og hélt bæði greiðsl- unni og brosinu, var góði og sæti strákurinn í ríkisstjórninni, sem lét allar ávíturnar yfir sig ganga. Þorsteinn er nefnilega óvanur í pólitíkinni og tiltölulega nýr í ríkis- stjórn og vissi því ekki betur en aö hann væri orðinn ráðherra í þeim tilgangi aö láta gott af sér leiða. En Þorsteinn er skýr og glöggur strákur og hann hefur smám sam- an verið að uppgötva að það að sitja í ríkisstjórn er ekki það sama og stunda ábyrga pólitík og halda kjafti. Hann hefur lært sína lexíu og nú er Þorsteinn búinn að breyta um takt og stíl og farinn að rífa kjaft eins og hinir. Annað hvort hefur hann lært þetta af sjálfum sér eftir umgengni sína viö aðra ráðherra, eða þá að einhver góð- hjartaður og velviljaður maöur hefur kornið vitinu fyrir hann. For- sætisráðherra á ekki aö vera gufa og gengilbeina fyrir lausbeislaða ráðherra úr öðram flokkum. For- sætisráðherra er ekki maður með mönnum nema hann sendi öðram ráðherrum kveðjur á því máh sem þeir skilja. Þessi óvænta herstjórnarlist hjá Þorsteini hefur komið hinum ráð- herrunum á óvart. Steingrímur hefur móðgast og furðar sig á að forsætisráðherra kasti stríðs- hanska framan í sig, blásaklausan, en eins og alþjóð veit, er Steingrím- ur alltaf saklaus og blár í framan, þegar aörir era vondir við hann. Steingrímur spyr í sakleysi sínu, hvað þaö eigi að þýða hjá Þorsteini aö kasta stríöshanska. Þorsteinn segist ekki hafa kastað stríðs- hanska. Allir viti að hann sé kurt- eis strákur og seinþreyttur til vandræða en það hafi verið fram- sóknarmenn og Steingrímur sjálf- ur sem hafi kastað stríðshanskan- um. Það var Steingrímur sem byrj- aöi, segir Þorsteinn. Nú mun væntanlega heíjast nýtt orðaskak um það hver hafi byrjað. Alveg eins og strákarnir í sand- kassanum í gamla daga, þegar allt var komiö upp í loft, allir grenjandi og kveinandi og foreldrarnir þurftu aðblanda sér í deilurnar, þá sögðu allir kór: Þaö var hann sem byij- aði, þetta er honum að kenna. Það er rétt hjá Steingrími að Þor- steinn kastaði stríöshanska þegar hann svaraði Steingrími út af gjald- skrárhækkuninni hjá Landsvirkj- un. En það var vegna þess að Stein- grímur hafði kastað stríðshanska út af gjaldskránni. En Steingrímur getur líka sagt að hann hafi ekki kastað fyrsta stríðshanskanum, þvi ekki var það hann sem hækkaði gjaldskrána. Það voru sjálfstæðis- mennirnir sem stóðu fyrir því og samþykktu hækkunina. En sjálf- stæðismennirnir geta aftur á móti sagt að þaö hafi alla tíð legið fyrir að gjaldskráin myndi hækka eftir að gengiö var fellt. Þeir byrjuðu ekki, þaö voru framsóknarmenn sem báðu um gengisfellinguna. Framsóknarmenn báðu að vísu , ekki um hana, en þeir töldu einsýnt aö fella yröi gengið, þegar sjálf- stæöismenn voru búnir að sigla öllu í bólakaf í gengismálunum og efnahagsmálunum. Já, þaö er ekki gott að sjá hver kastaði stríðshanskanum fyrstur. En aðalatriðið er aö einhver hefur kastað honum. Til þess era menn í ríkisstjórn! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.