Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. 13 Fréttir Verðlaunahafar í Ökuleikni '88. Okuleikni BFÖ og DV: Hvers eiga Vopnfirðingar að gjalda í vegamálunum? Það var með hálfum huga að við settum Vopnaf]örð á hsta yfir keppn- isstaði í Okuleikni ’88, ekki vegna slæmrar þátttöku ’87, heldur vegna hinna hræðilegu minninga um veg- inn niður Vopnafjarðarheiði. Vegurinn hafði að vísu „skánað” en guð hjálpi þeim sem þurfa að aka hann oft á liverju sumri. 13 krakkar tóku þátt í reiðhjóla- keppninni, 9 í yngri riðh og 4 í þeim eldri. Þrjú efstu í yngri riðli urðu Hhmir Víglundsson með 58 refsistig og enga villu, Andri Geir Viðarsson með 104 refsistig, þar af 40 fyrir vhlur í brautinni og Bjamey Guðrún Jóns- dóttir með 112 refsistig, þar af 40 fyr- ir vhlur. í eldri riðli varð Vigfús Vopni Gíslason í fyrsta sæti með 57 refsistig og eina vhlu. Fimi hans í brautinni er annar besti árangur yfir landiö. Annar varð Einar Ólafur Ein- arsson með 62 refsistig, þar af 10 fyr- ir villur og þriðji varð Sveinn Auð- unn Sveinsson með 68 refsistig og þar af 10 fyrir vhlur í braut. Gísli fékk verðlaun fyrir besta tíma í braut. Þátttakan í ökuleikninni var frem- ur dræm eöa 7 karlar og aðeins 2 konur. Bestum árangri í kvennariðli náði Sigurveig Róbertsdóttir og í ööm sæti varð Kristín R. Jónsdóttir. Hörður Magnússon náði bestum árangri í karlariðli. Annar varð Bjarni Magnússon og í þriðja sæti varö Amþór Sigurjónsson. Þau Sig- urveig og Hörður náðu bestum tíma í braut. - ESH. Athugasemd frá Geir Gunnari Geirssyni DV hefur borist eftirfarandi at- hugasemd, dagsett að Vahá 4.7.88: „í Helgarpóstkryddaðri grein í síð- asta Helgarblaði DV em ljótar lýs- ingar á aðbúnaði thailenskra stúlkna, sem hér hafa verið að Vahá síðan í september síðasthðn- um. Varðandi þessi mál þætti mér vænt um að eftirfarandi kæmi fram: Samningur sá, sem nefndur er í greininni, var mér sendur er- lendis frá thbúinn th undirskriftar, er ekki plagg, sem farið hefir veriö eftir. Stúlkunum var tilkynnt að laun þeirra yrðu hækkuð jafnt og þétt eftir því sem kunnátta þeirra th verka ykist. Það er staðreynd að fyrst í stað vora þær sem áhorf- endur og voru mjög lengi að læra það sem nauðsynlegt er til að hægt væri að tala um fullgilda starfs- krafta. Hlunnindi stúlknanna, sem upp- tahn eru í greininni, geta verið metin á ýmsan máta og ég hygg að mörgum þyki nokkurs virði að vera laus við þá kostnaðarhði. Vinnutími stúlknanna er stórlega ýktur því oftlega lýkur vinnu þeirra fyrr en haldið er fram í greininni. Blaðamaðurinn var hér staddur um fimmleytið á fóstudeg- inum 1.7., og þá höfðu þær þegar lokið vinnu. Sjónvarpsmenn vom hér um þrjú-fjögur leytið á laugar- deginum 2.7. og þá var verið að ljúka störfum. Er þetta þá tilviljun eða er þetta DV sannleikur? Virka daga hafa þær fengið frí þegar þær hafa beðið um og þær hafa verið hvattar að láta vita þeg- ar þær langar til þess að fara í bæinn. Enn ein ósannindin eru þau að stúlkurnar hafi verið kallaðar eftir vinnutíma til thtektar á heimili okkar hjóna. Þau verk hefir íjöl- skylda mín annast sjálf, utan nokk- ur skipti þar sem stúlkurnar hafa komið til aðstoðar síðdegis og hefur kona mín þá unnið þau verk með þeim. Varðandi kvittanir fyrir greiðsl- um og kvittanalausar greiðslur, skal það tekið fram að þeim er full- kunnugt um hver árangur verður af dvöl þeirra að Vallá og hafa sam- anburð þar um, því þeim hefir ver- ið lofað gulh og grænum skógum ef þær fæm héðan. Þrátt fyrir slík tilboð telja þær hag sínum betur borgið hér. Þetta er nokkur huggun fyrir okkur því þessi árás er þannig gerð á mann- orð okkar hjóna að það svíður und- an. Til að kóróna svívirðuna, er það gefið í skyn að konan mín hreyti í þær notuðum fótum af sér. Þetta er slíkt buh að engu tali tekur. Stúlkan, sem DV segir að hafi strokið héðan, strauk ekki, heldur fór th manns síns og ég hafði sagt honum í síma að best væri aö hún færi til hans sem fyrst. Fyrirsögn greinarinnar og síð- asta málsgreinin era enn ein undir- strikunin á því að Helgarpósturinn er genginn aftur á DV. Ef hræðsla og eymd stúlknanna var þvílík, því kallaði ekki stúlkan, sú sem strauk úr vistinni, til aðstoðar fyrr, nægur tími var til þess fyrir hana. Ragna Bergman mun athuga hvort eitthvað bjáti á hjá stúlkun- um og að allri pappírsþörf kerfisins verði fuhnægt. Rétt er að bæta við að stúlkurnar hafa atvinnuleyfi til landbúnaðar- starfa. Wanna Norasing og Supawan Kornakaew hafa fengið þessar lín- ur þýddar fyrir sig og votta að þetta sé satt og rétt. Hafið svo þökk fyrir birtinguna. Geir Gunnar Geirsson, Vallá.“ Allt vétt eftir stúlkunum haft - segir Ragna Bergman um viðtal DV á laugardag „Það var aht rétt eftir stúlkunum haft í DV á laugardaginn,” sagði Ragna Bergman, formaður Verka- kvennafélagsins Framsóknar, en hún var viðstödd samtal blaðamanns DV við thailensku stúlkurnar á Vallá. „Þeir pappírar sem ég skoðaði voru eins og greinir frá í DV. Þær sögöust fá notuð föt af frúnni þótt þær dragi það nú th baka. Þetta er viðkvæmt mál fyrir þessar stúlkur. Það kemur nú á daginn að þær segjast hafa það mjög gott og líði mjög vel. Ég sé al- veg hvað er á ferðinni. Afstaöa þeirra var hins vegar aht önnur á fóstudag- inn þegar þið rædduð við þær,“ sagð- i Ragna. -gse Hvammstangi Nýir umboösmenn á Hvammstanga frá og meö 1. júlí 1988 eru Kristi Anna Jessen, Kirkjuvegi 8, sími 95-1368, og Ásthildur Ólafsdóttir, Hlíðarvegi 14, sími 95-1405. RITARI Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í utanrlkisþjónustunni. Krafist er góðrar tungumálakunnáttu og góðrar vélrit- unarkunnáttu. Eftir þjálfun ( utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir að ritarinn verði sendur til starfa í sendiráðum Is- lands erlendis. Eiginhandarumsókn, með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115, 150 Reykjavík, fyrir 21. júlí nk. Utanríklsráðuneytlð Vljög vandaðir danskir barnaskór frá Kennedy. Stærðir 18-23. Leðurfóðraðir með mjúkum innlegg- um. Litir: hvítir eða hvítir með bláu og rauðir með hvítu. Verð kr. 1.880,- smáskór Skólavörðustig od gegnt Iðnaðarmannahúsint' Sími 622812. Póstsendum. Opið laugardaga frá 10-12. FRÁ MENNTAMÁLARÁÐU- NEYTINU: Lausar stöður við framhalds- skóla Við Menntaskólann við Sund er laus til umsóknar stundakennarastaða í eðlisfræði. Upplýsingar eru veittar í símum: 35519, 33419, 44705 og 32858. Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti eru lausar kennara- stöður í íþróttagreinum, stærðfræði og hálf staða í matvælagreinum. Þá vantar stundakennara í ís- lensku, rafeindavirkjun, rafvirkjun og ýmsum öðrum greinum. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans eftir 10. ágúst. Við Flensborgarskóla í Hafnarfirði eru lausar stundar- kennarastöður í eftirtöldum greinum: eðlisfræði, stærðfræði, vélritun, bókfærslu, fjölmiðlun og latínu. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 20. júlí næstkomandi. Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum viðkomandi skóla. Þá er umsóknarfrestur um áður auglýsta kennara- stöðu í ensku við Flensborgarskóla í Hafnarfirði fram- lengdur til 8. júlí. Menntamálaráðuneytið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.