Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988. Frjálst.óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð i lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Ráðning Hannesar Mikið íjaðrafok hefur orðið vegna ráðningar Hannear Hólmsteins Gissurarsonar í lektorstöðu í stjórnmála- fræði. Ætla mætti að hér væri á ferðinni feitur bitlingur og valdamikið embætti sem sköpum gæti skipt. En í ljósi þess að hér er verið að skipa í kennarastöðu í félagsvís- indadeild Háskólans, kennslustarf sem snýr að byrjend- um í fræðigreininni, gegnir furðu hversu heitt mönnum er í hamsi. Skýringin er auðvitað sú að Hannes Hólm- steinn á hlut að máli og ráðning hans er pólitískari fyr- ir þá sök að Hannes hefur verið einn umdeildasti og ákafasti talsmaður frjálshyggjunnar. Hannes Hólmsteinn hefúr jafnframt verið ötull í starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Að vísu greinir menfi á hvort framganga hans hafi orðið Sjálfstæðisflokknum til fram- dráttar en engu að síður hefur Birgi ísleifi Gunnarssyni menntamálaráðherra þótt ástæða til að launa Hannesi liðveisluna og veita honum starfið. Ráðherrann ber það af sér að ráðningin sé pólitísk. Það er óþarfi hjá Birgi, enda hefur hann í öðru orðinu viðurkennt að hann telji það hollt fyrir félagsvísinda- deild að þar rúmist mismunandi og margvísleg sjónar- mið og á þá við að Hannes sé ekki skoðanabróðir þeirra sem þar eru fyrir. Þarna segir ráðherra beinlínis að hann láti skoðanir Hannesar að einhverju leyti ráða vali sínu og sú hreinskilni fer ráðherranum miklu bet- ur, enda sannleikanum samkvæmt. Háskólamenn, þeir sem eru andvígir Hannesi Hólm- steini, hafa mótmælt ráðningunni og vísa til þess að ráðherra hafi hundsað dómnefnd og álit félagsvísinda- deildar um hæfni umsækjenda. Dómnefndin komst að þeirri niðurstöðu að Hannes Hómsteinn sé hæfur að hluta. Það er skrítinn niðurstaða og ekki mjög vísinda- leg, enda vefst það fyrir leikmönnum að skilja hvernig maður, sem hefur doktorspróf í stjórnmálaheimspeki, sé vanhæfur til að kenna byrjendum. Miklu nær væri fyrir þá sem fyrir sitja í félagsvísindadeild að segja það hreint út að þeir vilji ekki Hannes af pólitískum ástæð- um. Það er auðvitað ástæðan á bak við lætin gegn Hann- esi. Mönnum líkar ekki við skoðanir hans. Hann er dæmdur á pólitískum forsendum. Þess vegna er það broslegur tvískinnungur þegar félagsvísindamenn eru að skammast út í ráðherrann fyrir póhtíska veitingu. Hvort sem Háskólamönnum líkar eða ekki þá hefur ráðherra síðasta orðið í þessu máli. Af einhverjum ástæðum hefur löggjafarvaldinu þótt skynsamlegt að fela ráðherrum þetta vald og ekki kæmi á óvart þótt ástæðan væri meðal annars óttinn við að pólitíska mis- notkunin yrði enn verri ef valdið til að ráða kennara og prófessora við Háskóla íslands flyttist yfir á hendur þeirra sjálfra. Kemur það ekki einmitt í ljós, þegar lekt- orsembættið í stjórnmálafræðunum er til úthlutunar, að póhtíkin er hálfu verri og harðskeyttari hjá þeim sem eru að amast við henni? Meðan skipunarvaldið er í höndum ráðherra beitir hann að sjálfsögðu því valdi til að gera upp á milli umsækjenda, eins og lög gera ráð fyrir. Hann hefur ekki lotið áliti dómnefndar eða vilja félagsvísindadeild- ar. Það er hægt að skamma hann fyrir það, en það er ekki hægt að saka hann um misnotkun, vegna þess að til lítils er að hafa ráðherra með skipunarvald ef ekki er til annars ætlast af honum en stimpla annarra manna niðurstöður. Um hitt geta póhtískir áhugamenn haldið áfram að deila hvort Hannes Hólmsteinn sé heppilegur bandamaður. Það kemur hins vegar vísindunum og Háskólanum htið við. Ehert B. Schram Uppblástur - Moldin fýkur Moldin rýkur í burt, gróðurlendi á íslandi er alltaf að minnka. Þetta eru fréttur sem við höfum heyrt nær daglega nú undanfarið. Nú koma þessar fréttir frá Norður- landi. Svipaðar fréttir fengum við af Suðurlandi í fyrra. En þrátt fyrir þessar háskalegu fréttir gerist fátt sem til bjargar mætti verða. Land- græðsla ríkisins streðast við en íjársvelti hennar er svo algert að ekki næst einu sinni að halda í horfmu, eyðingin vex jafnt og þétt. Það er eins og stjórnvöldum þyki flest meira um vert en að græða upp landið. Viö eyöum milljörðum í flottræfilshátt á meðan moldin er að íjúka út í hafsauga eða sandur- inn að ryðjast yfir vanmegnan há- fjallagróöur. Nefndar hafa veriö háar tölur um gróðureyðinguna og hve langan tíma það tekur að end- urheimta gróið land eins og það var til foma. Þessar tölur hækka með hverju ári sem líður verði ekki brugðist við af meiri alvöru en hingaö til. Hér er um svo stórt verkefni að ræða að almennafé verður til að koma og önnur verk- efni verða að bíða eða vinnast á lengri tíma. Þjóðarátak. Það má ekki skilja þessi orö mín svo að engir séu að sporna við fæti. Landgræðslan hefur unnið mjög gott starf þótt lýjandi sé að vinna við kringumstæður hennar þegar fjármagn er svo lítið að ekki er nokkur leið að hafa við eyðing- unni, hvað þá stöðva hana. Áhugi á skógrækt hefur margfaldast og það skapar marga möguleika. Nú síðast hafa stórkaupmenn gengist fyrir átaki í gróðurvemd undir kjörorðinu „Græðum, græðum“ og er þaö vissulega þakkarvert. Þeir stefna að þvi aö sameina menn til stórátaks í þessum efnum og höföa þar bæði til fyrirtækja, félagasam- taka og einstaklinga. Allir sem vettlingi geta valdið eiga að styðja þetta framtak. Ég drap á skógræktina áðan. Þar hafa margir einstaklingar og félög skógræktarmanna unnið gott starf í kyrrþey og unaösreitir hafa víða veriö að rísa upp sem verða öðrum hvati til gróðurvemdar. En miklu betur má ef duga skal. Eitt af nauð- synjaverkunum í þessu tilliti er að koma í veg fyrir alla ofbeit. Hún er öllum til skaða, líka búijáreig- endum. Fjallaauðnir íslands eru KjaUarinn Kári Arnórsson skólastjóri ekki beitiland. Vandalaust á aö vera að skipuleggja svo búskap á íslandi að allar skepnur, sem þörf er fyrir, hafi nóg að bíta án þess að þurfa aö níðast á veikum há- fjallagróðri eða ofsetja heiðarlönd. Ennþá auðveldara á að vera að hafa stjórn á þessu þegar sauðfé hefur fækkað jafnmikið og raun ber vitni. Hross verða að taka sitt gras að mestu leyti á láglendi og aöeins má beita þeim á heiðalönd sem mjög vel eru gróin og sé það gert undir eftirliti. Landssamband hestamannafélaga gekkst fyrir þvi á sínum tíma að skattleggja sína félaga í þeim tilgangi að koma upp áningarhólfum og rækta land. Þessa var full þörf og er enn. Þeim er í mun að hestamenn gangi vel um landið en við þurfum einnig að gæta þess í beitarafnotum. Þeir tímar kunna að vera framundan að allt búfé veröi að vera innan girðinga. Þegar í stað er þess full þörf í sumum landshlutum því stærri og stærri svæði verður að friða. Gróðurverndarskattur Hér aö framan minntist ég á átak sem Féíag stórkaupmanna gengst fyrir. Ég vona svo sannarlega að það verði þjóðarátak. En ég vil enn og aftur minna á að stjórnmála- menn verða að taka miklu fastar á þessu en verið hefur. Ég hef áður minnst á þá hugmynd að lagður verði nefskattur á alla skattgreið- endur og megi eingöngu nota þetta .fé til landgræöslu. Eitt þúsund króna skattur gæfi 120 milljónir króna á ári. Þaö stappar nærri að vera tvöfóldun á því fé sem Land- græðslan hefur í dag. Ég veit að flestum finnst nóg um þær miklu skattaálögur sem fyrir hendi eru. En verkefnið er svo gíf- urlegt og svo brýnt aö ALLRA LEIÐA verður að leita. Skatt af þessu tagi, jafnvel þótt tvö þúsund krónur væru á ári, held ég flestir myndu greiða fúslega væri það tryggt áö hann rynni eingöngu í þetta verkefni. Nauðsynlegt væri að binda það með lögum því annars gætu þeir, sem meö ríkisfjámálin fara, tekiö þetta fé til annarra nota, samanber skattinn til Þjóðarbók- hlööunnar. Að lokum vil ég minna á þýðingu þess að aukinn sé að miklum mun áróöur fyrir gróðurvernd og upp- græðslu. Þann áróður þarf að reka sem víðast. Koma þarf upp vegg- spjöldum sem víðast sem sífellt minna okkur á. Hefja þarf fræðslu í skólum og ætla til þess tíma. Þessi fræðsla þarf að fara fram á öllum skólastigum en ekki aðeins í grunnskólanum. Umhverfis- fræðsla á að sitja í fyrirrúmi þegar kennslutími veröur lengdur og þar á gróðurverndin og umgengni um landið að vera númer eitt. Þaö virð- ist vera að skapast undiralda meðal fólks um aðgerðir í þessu máli og hún þarf að veröa aö svo hárri öldu að hún hrindi af staö framkvæmd- um. Kári Arnórsson „Eg hef áður minnst á þá hugmynd, að lagður verði nefskattur á alla skatt- greiðendur og megi eingöngu nota þetta fé til landgræðslu. Eitt þúsund króna skattur gæfi 120 milljónir króna á ári.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.