Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988.
5
DV
Heimsókn forseta íslands til Vestur-Þýskalands:
Fréttir
Fagna hugmyndum um
íslenskt menningarsetur
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra:
Skilningur á
sérstöðu okkar
Steingrímur Hermannsson utanrikisráðherra flytur ræðu i heimsókninni til
Vestur-Þvskalands. DV-mynd HV
Halldór Valdimarsson, DV, Bonn;
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, átti í gær viðræður við
Helmut Kohl, kanslara Vestur-
Þýskalands, í aðalstöövum hans í
Bonn. Forseti og kanslari ræddu á
fundi sínum samskipti þjóðanna og
var afstaða kanslara gagnvart sér-
stöðu íslendinga mun jákvæðari en
nokkur hafði þoraö að vona. Forseti
og kanslari ræddu meðal annars
varnarmál svo og viðskiptamál og
stöðu íslands gagnvart Evrópu-
bandalaginu.
Dagskrá gærdagsins hjá forseta ís-
lands hófst með því að snæddur var
morgunveröur með dr. Irmgard Ad-
am-Schwaetzer. Dr. Adam-Schwaetz-
er gegnir ráðherraembætti og stefnir
að formennsku í ílokki sínum innan
tíðar. Hún hefur náö lengst allra
kvenna í vestur-þýskum stjórnmál-
um í dag.
Island miðja alheimsins
Eftir morgunverðarfundinn hélt
forseti til aðalstöðva kanslara. Að
afloknum fundinum hjá honum hélt
Vigdís til iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytisins í Bonn, þar sem hún sat
fund með vestur-þýskum iðnrekend-
um ásamt Steingrími Hermannssyni
utranríkisráðherra. Vigdís ávarpaði
fundargesti og sló þar á létta strengi.
Fullyrti forseti meöal annars við
fundargesti að hvað sem öðrum fynd-
ist væri miðja alheimsins á íslandi
og viðstaddir þyrftu ekki annað en
að feröast til íslands til að uppgötva
það sjálfir. Vigdís kynnti síðan Stein-
grím Hermannsson utanríkisráð-
herra sem flutti fyrirlestur á fundi
þessum.
Síðari hluta dags í gær fór forseti
til Kölnar, þar sem fyrst var komið
Vigdís Finnbogadóttir heilsar Helmut
fyrir viöræöur þeirra í gær.
við í ráðhúsi borgarinnar. Viö ráð-
húsiö tók borgarstjóri Kölnar, Nor-
bert Burger, á móti forseta og bauð
hana velkomna. Við ráðhúsið vék sér
einnig að forseta ung kona í íslensk-
um búningi og færði henni blóm.
íslensk menningarmiðstöð
Borgarstjóri ávarpaði forseta ís-
Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands,
DV-mynd HV
lands og gerði sérstaklega að um-
ræðuefni hugmyndir um íslenska
menningarmiðstöð í Vestur-Þýska-
landi, sem mun hafa verið rædd á
fundum Vigdísar forseta og Weiz-
sácker, forseta Vestur-Þýskalands.
Vestur-þýski forsetinn hafði áður
fagnað þessum hugmyndum og fleiri
vestur-þýskir ráðamenn hafa tekið í
sama streng.
Vigdís forseti tók undir það í svar-
ræðu í gær aö íslensk eða norræn
stofnun myndi verða hið mesta
þarfaþing.
Frá ráðhúsinu í Köln hélt forseti
til safnahúss borgarinnar þar sem
í gærkvöldi hafði forseti svo mót-
töku fyrir íslendinga, sem búsettir
eru á svæðinu, í Laredut veitinga-
húsinu í Bonn. Strengjakvintett
Reykjavíkur lék í samkvæminu við
góðar undirtektir, meöal annars
gömul lög sem viöstaddir gátu tekið
undir með söng.
Töluverður fjöldi íslendinga sótti
samkvæmið.
í dag heldur forseti íslands áleiöis
til Berlínar. -hv
Viö athöfnina i Melatenkirkjugarðin-
um í Köln þar sem Vigdis lagöi
blómsveig á leiði Jóns Sveinssonar,
Nonna. DV-mynd HV
hún skoöaði sýningu á glermunum.
Síðan hélt forseti til kirkjugarðsins
þar sem jarðneskar leifar Jóns
Sveinssonar, Nonna, hvíla og lagði
hún blómsveig á gröf hans.
Vigdís ritar i hina gullnu gestabók
Kölnar. Borgarstjórinn, Norbert Bur-
ger, fylgist með. DV-mynd HV
Halldór Valdimarsson, DV, Bonn:
„Ég er mjög ánægður með þau við-
brögð sem ég hef orðið var við í þess-
ari ferð. Þau hafa verið mun jákvæð-
ari en ég bjóst við og sérstaklega
hefur Helmt Kohl kanslari reynst
hafa góöan skilning á sérstöðu okkar
íslendinga," sagði Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra í við-
tah við DV í Bonn í gærkvöldi.
Steigrímur sat í gær fund með leið-
togum í vestur-þýskum iðnaði í iön-
aðar- og viðskiptamálaráðuneytinu í
Bonn. Að þeim fundi loknum fór ráð-
herra í efnahagsmálaráðuneytið og
átti þar fund með dr. Rudolf von
Wartenberg ráðherra. Á fundinum í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu
flutti forseti íslands stutt ávarp. Hún
kynnti síðan Steingrím Hermanns-
son sem flutti þar erindi.
„Ég reyndi í þessu erindi að kynna
mönnum afstöðu okkar og sér-
stöðu,“ sagöi Steingrímur. „Við höf-
um þarna viðskiptalegra hagsmuna
að gæta í tengslum við Evrópubanda-
lagið. Við viljum ekki einangrast frá
því. Á sama tíma verðum við að gera
öllum aðilum ljóst að fiskveiðistefna
okkar er ekki atriði sem við viljum
tengja slíkum viðskiptamálum.
Ég hef orðið var við meiri skilning
á okkar málum en ég átti ef til vill
von á. Helmut Kohl segist skilja af-
stöðu okkar mjög vel, vera okkar
maður í þessum málum.
í viðræðum við aðra embættis-
menn hefur jafnframt komið fram
að Vestur-Þjóðverjar telja sig þurfa
að fá einhveija tilslökun varðandi
fiskveiðiheimildir, þó ekki væri
nema til málamynda. Tíminn verður
svo aö leiða í ljós hver framvindan
verður."
Aðspurður um önnur mál, sem
borið hefur á góma í viðræðum Stein-
gríms í þessari ferð, sagði hann að
ýmsum málum hefði verið hreyft.
„Það eru til dæmis athyglisverðir
hlutir sem nefndir hafa verið í sam-
bandi við orkufrekan iðnað. Þjóð-
verjar gætu farið að eiga í erfiðleik-
um á því sviði, til dæmis ef þeir verðE
að draga úr orkuframleiðslu sinm
með kjarnorku. Þar er ýmislegt at-
hugunar virði.“
AFSLATTUR
Hattabúðin Frakkastíg 13
Sími 29560