Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988.
Útlönd
Vinsældir özals, (orsætisráðherra
Tyrklands, fara nú minnkandi sam-
kvæmt skoðanakönnunum.
Simamynd Reuter
Spá kosningum
AöaMtari heista stjórnarand-
stöðuflokksins í Tyrklandi, Deniz
Baykal, sagði í gær að svo gæti far-
ið að forsætisráðherra landsins,
Turgut Özal, þyrfti að boða til kosn-
inga snemma á næsta ári.
Flestar skoöanakannanir sýna að
flokkur Baykals, Jafnaðarmanna-
flokkurinn, njóti meira fylgis en
flokkur Özals sem er íhaldsmaður.
Helsta óánægjuefni fólks er verö-
bólga og innanríkisdeilur.
Myrtu tótf í umsátrí
Faðir grætur við kistu sonar síns sem beið bana i umsátri kontraskæru-
liða í Nicaragua. Símamynd Reuter
Yfirvöld í Nicargua tilkynntu í gær að kontraskæruhöar heíðu drepið
tólf manns í umsátri um tvo herbíla. Þar meö brutu þeir vopnahléið sem
ríkt hefur í landinu síðastliðna þrjá mánuði.
Kontraskæruliðar eru sagðir hafa komiö fyrir jarðsprengjum þar sem
herbíllinn átti að fara um á vegi fyrir austan Managua.
Sjö fómarlambanna voru óbreyttir borgarar en fimm voru hermenn.
Tíu manns slösuðust við sprengingima.
fyson í kólastriði
Hnefaieikakappinn Mike Tyson
er nú milli steins og sleggju í stríði
tveggja gosdrykkjajöfra. Coca-cola
fyrirtækið heldur því fram aö aug-
lýsingar Pepsi með Tyson á sykur-
lausum drykkjum séu villandi.
1-Iefur Coca-cola fyrirtækið beðið
sjónvarpstöðvar um að hætta að
birta auglýsingu þar sem Tyson
segir fréttamönnum frá því að eng-
inn vafi hafi verið á því hver myndi
vinna síöustu keppni. Var þar átt
mynd af kappanum meö dýrmætu viö að sykurlaust pepsi væri betra
hnefana. en sykurlaust coca-cola.
Gífurlegir kókaínfundir
Yfirvöld í Kólumbíu hafa gert upptæk ellefu þúsund og sex hundruð
kfló af kókaíni siöustu íjóra mánuði. Eyðilagðar hafa verið rúmiega sex
hundruð verksmiðjur og tvö þúsund og þrjú hundmö manns vom hand-
teknir fyrstu fjóra mánuði ársins.
Árangurinn er sagður betri en undanfarin ár og lofar góðu um það sem
eftir er ársins, segir í skýrslu yfirvalda.
Mestallt kókaín, sem er i umferð í Bandaríkjunum, kemur frá Kólumbíu.
Rcuter
Kynhverfir
Elísabet Bretadrottning mætti í
gær hundruöum kynhverfra í opin-
berri heimsókn sinni til Hollands.
Hópur manna fagnaði drottningu
og fylgdarhði en svo voru þaö þeir
sem vildu mótmæla breskri lögaöf
sem bannar yfirvöldum að viður-
kenna kynhverfa opinberlega.
Drottning lét sem hún tæki ekki
eftir mótmælendum og hélt áfram
heimsóknum sínum til ýmissa
staöa.
mótmæla
Ungur maður, sem þátt tók i mót-
mælum kynhverfra gegn Bréta-
drottningu i Hollandi, á tali við lög-
regluþjón. Simamynd Reuter
Eftírlit í V-Þýskalandi
Asgeir Eggertaacm. DV, Miinchen:
Tveir hópar sovéskra eftirlitsmanna komu tfl V-Þýskalands í gær þar
sem þeir munu fylgjast með eyðingu meöaldrægra eldflauga Bandaríkja-
manna.
Efltirhtsmennirnir ní.tján hafa aðeins 24 tíma tfl aö telja eldflaugarnar
sem Sovétríkin og Bandaríkin hafa komið sér saman um að verði eyðilagð-
ar. Með því telja eftirhtsmennimir sig vera örugga um að öllum eld-
flaugunum verði grandaö.
Lík fórnarlamba flugskeytaárásarinnar á íranska farþegaþotu á sunnudaginn hafa nú verið flutt til írans.
Símamynd Reuter
Vilja neyðarfund
Öiyggisráðsins
írönsk yfirvöld hafa nú farið fram
á aðgerðir Öryggisráös Sameinuðu
þjóðanna vegna flugskeytaárásar
Bandaríkjamanna á íranska far-
þegaþotu á sunnudaginn. Er þetta í
fyrsta sinn í þrjátíu og fimm ár sem
írönsk yfirvöld leita til Öryggisráðs-
ins.
íranski sendifuhtrúinn kveðst ekki
gera ráð fyrir að Öryggisráðið komi
saman tfl fundar fyrr en í næstu viku
þar sem slíkur fundur þarfnast und-
irbúnings.
Á fundi með fréttamönnum, sem
fulltrúinn hélt í gær, kallaði hann
árás Bandaríkjamanna hryðjuverk
sem fylgdi í kjölfar annarra árása
þeirra á írönsk skotmörk.
íranskur flugstjóri sagði í morgun
að ekki væri útilokað að flugmaður
farþegaþotunnar hefði ekki heyrt
viðvaranir þær sem bandaríska frei-
gátan Vincennes sendi áður en þotan
var skotin niður. Flugmaðurinn var
þá í sambandi við fjóra flugturna.
Flugstjórinn var þó ekki á þeirri
skoðun að farþegaþotan hefði lækk-
Sendifulltrúi írans hjá Sameinuðu
þjóðunum tjáði fréttamönnum í gær
að irönsk yfirvöld heföu beðið um
neyðarfund öryggisráðsins.
Simamynd Reuter
að flugiö í átt að freigátunni eins og
skipstjóri freigátunnar heldur fram.
Segir flugstjórinn farþegaþotuna enn
hafa veriö að hækka flugið.
Yfirvöld í Bandaríkjunum sögöu í
gær að flugvélin hefði sent frá sér
merki um að hún væri bæði herflug-
vél og farþegaflugvél.
Reagan Bandáríkjaforseti kvaðst í
gær vera þeirrar skoðunar að Banda-
ríkin hefðu fært fram nægjanlega
afsökunarbeiðni fyrir að hafa skotið
flugvélina niður. Forsetinn útilokaöi
þó ekki að Bandaríkin myndu á ein-
hvern hátt aðstoða ættingja hinna
tvö hundruð og níutíu sem fórust í
árásinni. Sagði hann eina af ástæð-
unum fyrir rannsókn Bandaríkja-
manna á atburðinum vera gerða til
að hægt væri að ákveða hvort bjóða
ætti aðstandendum aðstoð,
í nótt réðust íranskir fallbyssubát-
ar á ástralskt fiskiskip á Persaflóa.
Snemma í morgun höfðu ekki borist
fréttir um hvbrt einhverjir hefðu
særst í árásinni.
Reuter
Hamadi neitar vHnisburði
Asgeir Eggerlsson, DV, Miinchen:
Réttarhöld yfir Líbananum Mo-
hammed AIi Hamadi hófust í Frank-
furt í gær. Hamadi er ákærður um
morð og þátttöku í ráni á farþega-
flugvél sem neydd var til að lenda í
Beirút og Alsír.
Þessi fyrsti dagur réttarhaldanna
leiddi ekkert nýtt í ljós. Hamadi
nefndi aðeins nafn sitt og neitaði öll-
Mohammed Ali Hamadi er ákærður
fyrir morð og aðild aö ráni á banda-
rískri farþegaflugvél 14. júní 1985.
Símamynd Reuter
Miklar öryggisráðstafanir eru i gangi vegna réttarhaldanna yfir Hamadi í
Frankfurt í V-Þýskalandi. Símamynd Reuter
um frekari upplýsingum. Þar sem
aldur Hamadis er umdeildur á eftir
að úrskurða hvort hann verður
dæmdur mildar sem unglingur eða
hvort saksóknari krefst lífstíðar-
fangelsis þar sem hann teljist fullorð-
inn.
Það helsta sem bendir til sektar
Hamadis eru fingraför hans sem
fundust í flugvélinni. Einnig hafa
farþegar borið kennsl á hann.
í réttarsalnum, sem byggður er
sérstaklega fyrir þessi réttarhöld,
eru myndatökur aðeins leyfðar einu
þýsku tímariti sem fengiö hefur til
þess sérstakt leyfi. Hamadi var hand-
tekinn í byrjun árs 1987 er hann
fannst með fjórar flöskur af fljótandi
sprengiefni í farangri sínum á flug-
vellinum í Frankfurt.