Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Síða 19
Glæsilegur sigur Einars Vilhjálmssonar á Grand Prix móti í Stokkhólmi:
Ég er að gera mistök á
mistök ofan í hverju kasti
- og mér finnst ég alls ekki vera góður núna, sagði EinarVilhjálmsson sem kastaði spjótinu 83,44 metra
„Þaö var rosaleg stemning á þessu móti og mikið klappað undir köstunum. Ég fór í þetta mót með blendn-
ar tilfmningar vegna meiöslanna en 'þegar ég mætti á völlinn fannst mér ég vera tilbúinn í slaginn," sagöi
Einar Viihjálmsson spjótkastari en í gærkvöldi vann hann glæsilegan sigur á Grand Prix móti í Stokkhólmi
í Svíþjóð þar sem margir af bestu spjótkösturum heims voru á meðal keppenda. Einar kastaöi 83,44 metra.
Siguröur Einarsson keppti einnig á mótinu og varð sjötti, kastaði 76,34 metra.
„Fyrstu þrjú köst mín voru frek-
ar stirðleg. Ég kastaði 79,20 metra
í fyrstu umferð, 76,74 metra í ann-
arri umferð og 76,56 í þeirri þriðju.
í fjórðu umferð náði Bretinn Mike
HUl afgerandi forystu með 81,30
metra kasti. Ég svaraði með 83,34
metrum og þá var allur skrekkur-
inn úr mér. Síðan kastaði ég 82,18
metra og loks 83,44 metra í síðustu
umferðinni."
„Þeirra vandamál
að kasta ekki lengra“
- Þú virðist vera í allra fremstu
röð í heiminum í dag?
„Þetta hefur gengið vel undanfar-
ið en ég verð að halda mér á jörð-
inni. Auðvitað er það vandamál
andstæðinga minna að kasta ekki
lengra. Mér fmnst ég alls ekki vera
góður þessa dagana. Ég er að gera
mistök á mistök ofan í hveiju
kasti.“
- Hvemig voru aðstæður í Stokk-
hólmi?
„Þær voru alls ekki góðar. Það
var mótvindur frá hægri og ég get
ekki neitað því að mig er farið að
langa að kasta við mjög góðar að-
stæður. Bestu aðstæðumar, sem
ég hef fengið á þessu keppnistíma-
bili, vom i Laugardalnum á meist-
aramóti íslands en þá kastaði.ég
84,66 metra.“
- Viltu þá meina aö þú eigir mik-
ið inni?
„Ég veit það ekki. Ég hef aldrei
kíkt á reikninginn.“
- En veröur maður ekki að hafa
stjóm á „tékkheftinu"?
■ „Jú, auðvitað er það miklu
betra," sagði Einar og brosti.
Einar hefur greitt 341 þúsund
úr eigin vasa frá áramótum
- Nú hefur þú lagt gífurlega
vinnu og tíma í undirbúninginn
fyrir ólympíuleikana í Seoul.
Hvemig standa fjármálin?
„Ég var nú að taka það saman
að gamni mínu um daginn hvemig
staðan væri. Þá kom í ljós að ég
hef þurft að greiða 341 þúsund
krónur úr eigin vasa frá 1. janúar
til 1. júní til að halda þessu gang-
andi. Þá er ég búinn að taka með í
reikninginn styrki frá ólympíu-
nefnd, Fijálsíþróttasambandinu og
UÍA. Og inni í þessari tölu er ekki
sú staðreynd að ég hef tekið eigin-
konu mína af launum og sjálfur hef
ég auðvitað engin laun fengið á
þessum tíma.“
Mikill styrkur frá KRON
Kaupfélag Reykjavíkur og ná-
grennis, KRON, hefur ákveðið að
halda áfram að styrkja Einar Vil-
hjálmsson. „Þetta er auövitað mik-
ill styrkur og ég er þakklátur fyrir
hann. Spjótkastið er erfiö og að
mörgu leyti ónáttúrleg íþrótta-
grein. Það er að mörgu leyti frekar
listræn en kraftfræðileg íþrótt.
Undirbúningurinn fyrir ólympíu-
leikanaer og verður auðvitað mjög
erfiður og ég er KRON mjög þakk-
látur fyrir styrkinn."
„Siðferöileg skylda
að mæta í landskeppni“
- Nú kemur þú heim á morgun
(í dag). Hvaö tekur viö hjá þér?
„Ég byija á því að fara í meðferð
vegna meiðslanna í hnénu, láta sér-
fræðing kíkja á þetta. Það fer síðan
eftir útkomunni hvort ég fer meö
íslenska landsliðinu í landskeppni
„Eg er stoltur
afstráknum“
- sagð! Vilhjálmur Einarsson, faðir Einars
„Þetta gengur greinilega mjög vel hjá Einari
núna þrátt fyrir að hann sé á miðju uppbyggingar-
tímabili og það sé ekki í prógramminu sem stend-
ur að gera stóra hluti,“ sagði Vilhjálmur Einars-
son, silfurverðlaunahafi í þrístökki á OL í Mel-
.boume 1956 og faðir Einars Vilhjálmssonar, í sam-
tali við DV í gærkvöldi.
„Einar lítur út fyrir að vera sterkari og öruggari
nú en áður. Og tæknin er í lagi með nýja spjótinu.
Einar sigtar á haustið. Þá spilar það stórt hlutverk
að hann hefur svo að segja alveg sloppið viö
meiðsli. Ég dáist af einbeitni hans og dugnaði og
mér hefur oft blöskrað þær fómir sem hann hefur
fært fyrir íþrótt sína. En það getur allt gerst. Ann-
ars væru íþróttimar ekki spennandi. Einar á aö
geta gert stóra hluti á ólympíuleikunum með smá-
heppni og ég er mjög bjartsýnn á framhaldið. Ég
er stoltur af stráknum," sagði Vilhjálmur Einars-
son, rektor Menntaskólans á Egilsstöðum.
-SK
1 Edinborg um næstu helgi. Eg fer
ef ég treysti mér. Ég tel það sið-
ferðilega skyldu mina að keppa fyr-
ir íslands hönd þegar þess er ósk-
að,“ sagði Einar Vilhjálmsson.
Yfirburðir Einars
• Sigurkast Einars í gærkvöldi
mældist 83,44 metrar eins og áður
sagði. Annar varð Bretinn Mike
Hill með 81,30 metra, Peter Borg-
lund, Svíþjóð, varð þriðji með 80,00
metra, Dag Wennlund, Svíþjóö,
fjórði með 78,26 metra, David Ott-
ley, Bretlandi, fimmti með 77,40
metra, Sigurður Einarsson sjötti
með 76,34 metra og Bandaríkja-
maöurinn Tom Petranoff sjöundi
með 74,34 metra.
„Einarer einnaf
þremur bestu í heimi í dag“
„Ég tel engan vafa leika á því að
Einar Vilhjálmsson er einn af
þremur bestu spjótkösturum í
heiminum í dag. Það kom mér því
alls ekki á óvart aö hann skyldi
sigra á mótinu í Stokkhólmi," sagði
Stefán Jóhannsson, þjálfari Einars
og Sigurðar Einarssonar, í samtali
við DV í gærkvöldi.
-SK
**»