Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988.
Fréttír
Sektarmiði settur á bifreið sjávarútvegsráðherra framan við Alþingishúsið.
Ríkið borgar sektina.
Fjarstæða að tala um
hefð við Alþingishúsið
- segir yfirmaður stöðuvarðanna
„Það eru skllti framan við Alþing-
ishúsið sem segja skýrt og greinilega
að þar megi ekki leggja bílum. Það
er fjarstæða að tala um hefð fyrir því
að ráðherrar leggi bOum sínum
þama. Alþingi hefur aldrei mótmælt
þessum bannskOtum. Lögreglan var
frekar lin í að ganga eftir því að banni
þessu yrði fylgt eftir fyrir daga stöðu-
varðanna," sagöi Ásgeir Þór Ásgeirs-
son, yfirmaður stöðuvarðanna í
Reykjavik, við DV.
Hann sagði að fram hefðu komið
hugmyndir um að gera þama sér-
staka aðkomu eins og framan við
stjómarráðið eða að gera sérstök
ráðherrabOastæði við enda Kirkju-
hvols í Templarasundi. Væri óljóst
um framvindu þeirra hugmynda en
hann væri á móti sérmerktum bOa-
stæðum í borginni.
-hlh
Stöðusektir ráðheira við Alþingishúsið:
Ríkið borgar
„Ég setti miðana frá stöðumæla-
sjóði í hendur mannsins sem sér um
bOinn minn. Kostnaðurinn af þeirri
bifreið, sem ég hef til afnota, er
greiddur af ráðuneytinu,“ sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra þegar DV spurði hann að
því hver borgaði sektina sem hann
fékk fyrir að leggja bO sínum framan
við Alþingishúsiö á dögunum.
Sagði Halldór aö áratuga hefð væri
fyrir því að ráöherrar legöu bflum
sínum framan viö Alþingishúsiö.
Hefði hann haft aögang að bflastæði
alþingismanna áður en verið bent á
aö leggja fyrir framan Alþingishúsið
þegar hann varð ráðherra. Skiptu
þessar sektir ekki höfuömáli heldur
hvort mætti leggja framan við þing-
húsiö samkvæmt áratuga hefð eða
ekki.
„Ég vfl einfaldlega fá á hreint hvort
hægt er að leggja þama áfram eða
ekki. Ég hef nóg annað meö tímann
að gera en að standa í þessu stappi
um bflastæði. Það hljóta allir að geta
skflið að ráðherra eigi að geta fengiö
stæði við þinghúsið. Alþingi og ríkis-
stjóm verða að geta starfað með eðli-
legum hætti og það hlýtur að vera
metnaðarmál hjá borgaryfirvöldum
að sjá tíl þess að svo geti orðið.“
Sagði HaOdór aö forsetar þingsins
hefðu rætt bflastæðamál ráðherra og
hefðu ætlað að koma þeim málum á
hreint. Hefði oft verið örtröð framan
við Alþingishúsið þar sem ráðherrar,
fjölmiðlamenn og almenningur hefði
lagt bOum sínum.
-hlh
Áttatíu Íslendíngar í stuðningsliðinu á ólympíuleikunum:
Hringdi frá Seoul
tíl að fa miða
„Ég get nefnt þér sem dæmi um
ásókn í miða á ólympíuleikana, að
fyrir skömmu hringdi í mig íslenskur
maður sem býr í Seoul. Hann var að
biðja mig um að verða sér úti um
miða á leiki með íslenska liðinu því
ekki er hægt að fá miðana í Kóreu.
Mér tekst sennOega að útvega hon-
um miða á einhveija lefld en það er
þó ekki öruggt,“ sagði Andri Már
Ingólfsson, starfsmaður Ferðaskrif-
stofunnar Útsýnar, en hann sér um
hópferð íslendinga á ólympíuleik-
ana.
Um 80 manns munu fara á leikana
og sagði Andri að það væri varla
hægt að bæta við fleirum því gisti-
rými og flug tfl Kóreu væri nánast
allt upppantað.
Ólympíufaramir halda af stað 13.
september og fljúga tfl Kaupmanna-
hafnar en þaðan halda þeir með thai-
lenska flugfélaginu Thai tfl Seoul
með miflilendingu í Bangkok. Flug-
tími er 15 klukkustundir en afls
munu ferðalangarnir verða tæpan
sólarhring á leiðinni. Ólympíuleik-
amir hefiast svo 17. september.
Kostar hátt í
tvö hundruð þúsund
Verðið í slíka ferð er að sögn Andra
174.000 krónur ef flogið er beint heim,
en 181.000 krónur ef stoppaö er í viku
í ThaOandi á Pattaya-ströndinni.
Innifalið í þessu verði er flug, gist-
ing, morgunverður, miðar á hand-
boltaleikina og fararsfióm. Farar-
sfiórar verða Hermann Gunnarsson
og Jens Einarsson sem báðir em
fyrrverandi landsliðsmenn í hand-
knattleik.
Andri sagði að ferðin væri dýr, en
það skýrðist bæði af því hve langt
væri farið og svo því að mikO eftir-
spurn væri eftir flugi og gistingu í
Seoul á þessum tíma og það hefði
auðvitað áhrif. „Undirbúningur okk-
ar hefur staðið í heflt ár en þaö er þó
í það skemmsta. Sérstök ferö var far-
in tfl að skoða hótelið og aðstæður.
Þetta er ágætishótel sem boðið verð-
ur upp á, þriggja sfiömu, en enginn
lúxus. Það var alþjóðaólympíunefnd-
in sem lagði undir sig öll 4-5 sfiömu
hótel fyrir blaðamenn, forystumenn
íþróttahreyfmganna og fleiri. Þetta
verður sjálfsagt hin skemmtflegasta
ferð og margt að sjá. Miðaverð á ein-
staka atburði verður mismunandi,
300-1000 krónur á einstaka viðburði
en 2000-9000 krónur á opnunar- eða
lokahátíðina sem báðar eiga að verða
stórfenglegar,“ sagði Andri Már Ing-
ólfsson.
JFJ
Lögreglan hefur haft auga með óskoðuðum bílum undanfarið og því var
ekki að furða aö þessi bill vekti athygli hennar þar sem hann stóð hálf-
hulinn njóla og grasi við bilaþvottastöðina í Sigtúni. Þegar njóli var reyttur
við stöðina um daginn ákvað eigandinn að bregöa á leik. Var bfllinn því
hulinn njóla og fékk að standa þannig í sólarhring. Þá kom lögreglan á
vettvang. Hefur henni sennilega sýnst hann vera farinn aö skjóta rótum
þama í hominu. Tók eigendurna nokkurn tíma að sýna lögreglu fram á
að ekkert væri athugavert við njólabílinn annað en útlitið, sem henni fannst
miður fallegt, og vélarbilun. DV-mynd S
Sala á Iðnó:
Niðurstaða
í haust
„Mér líst vel á húsið, þetta er stór-
kostlegt hús, hins vegar eru viðræð-
ur svo nýbyrjaðar að of snemmt er
að nefna einhverjar tölur,“ sagði
Þórunn Hafstein, lögfræðingur
menntamálaráðuneytisins.
Þórunn er formaður nefndar sem
kannar hugsanleg kaup á Iðnó. í
nefndinni sifia, auk hennar, Gunnar
Eydal, skrifstofustjóri hjá Reykjavík-
urborg og Sveinbjöm Óskarsson,
deOdarstjóri í fiármálaráðuneytinu.
Umboð nefndarinnar nær til þess að
ræða við eigendur Iðnó um kaup eða
leigu á Iðnó og kanna möguleika á
samstarfi milli Reykjavíkurborgar
og ráðuneytisins við rekstur menn-
ingarmiðstöðvar í húsinu.
„Við æfluðum að skfla af okkur 15.
ágúst en vegna sumarleyfa dregst
það eitthvað lengur fram á haustið."
JFJ
í dag mælir Dagfari
Verður nunnan rekin?
Það eru svo sannarlega engir
grátittlingar sem standa að Landa-
kotssukkinu sem fiármálaráðherra
hefur ráðist svo harkalega gegn.
Þvert á móti er hér um aö ræða
fálka úr viðskipta- og fiármála-
heiminum sem skipa fuOtrúaráö
spítalans. Sjálfur viðskiptaráð-
herra situr í ráðinu og þar fyrir
utan stórkanónur eins og doktor
Jóhannes seðlabankasfióri, trygg-
ingayfirlæknir, bankasfiórar frá
Verslunar- og Iðnaðarbanka og
ýmsir fleiri þekktir athafnamenn,
auk einnar nunnu. Ráði þessu mun
hafa verið falið að passa að fram-
kvæmdasfióm spítalans gerði eng-
ar gloríur í rekstri og fiármálum.
Svo er að sjá sem nokkur mis-
brestur hafi orðið á að ráðið upp-
fyllti þessar skyldur sínar ef marka
má fréttir aö undanfómu. Spítalinn
á aö hafa ráðist í hinar og þessar
framkvæmdir umfram heimfldir
og látið skrifa hjá ríkinu með þeim
afleiðingum að upp er komin „nei-
kvæð skifldastaða“, eins og nú tíðk-
ast að taka til orða, upp á hundmð
mflljóna króna. Hefur Jón Baldvin
brugðist hixm versti við þessum
upplýsingum og telur að spítala-
menn hafi ekki hundsvit á fiármál-
um og rekstri fyrirtækja. Má vel
vera að þetta sé rétt og satt hjá
ráðherranum og þeir eigi ekki
betra skflið en að vera reknir allir
með tölu. En þegar á að velja eftir-
menn vandast málið. Það er nefni-
lega sama hvert Jón Baldvin lítur,
afls staðar er fiárlögunum gefið
langt nef og menn eyða ríkisfé langt
umfram heimfldir eins og þeim sé
borgaö fyrir það. Ráðherrann getur
ekki einu sinnni treyst því að eigið
ráðuneyti haldi fiárlög. Eftir að
hafa hundskammað lögreglusfióra
og fógeta vítt og breitt um landið
fyrir umframeyðslu kom sem sé í
Ijós að það voru ráöuneyti dóms-
og fiármála sem stóðu að hinum
og þessum fiárfestingum sem þau
skrifuðu svo hjá viðkomandi emb-
ættum án þess að þau fengju rönd
við reist. Önnur ráðuneyti hafa
heldur ekki látið sitt eftir liggja við
að eyða og spreða sem mest þau
mega, hvað sem öflum fiárlögum
liður. Forsfiórar fyrirtækja hafa
ekki látið sitt eftir liggja í eyöslu
og fiárfestingum og nú er sagt að
hundraö fyrirtæki séu á leið undir
hamarinn. Þá hafa einstaklingar
verið gripnir sama æöinu. Meira
að segja blásnautt fólk, sem hefur
fengið íbúðir keyptar með vOdar-
kjörum í verkamannabústaöakerf-
inu, hefur rokið til og keypt sjoppur
og myndbandaleigur sem hafa skO-
aö umtalsverðu tapi með þeim af-
leiðingum að íbúöimar fara á upp-
boð og eigendur þeirra eru bomir
út með lögregluvaldi. AOt sýnist
því á hvínandi kúpunni með ríkis-
sjóð í broddi fylkingar og fiármála-
ráðherra gæti reynst tafsamt að
finna nýja menn í sfióm Landakots
sem ekki færa fram úr fiárlögum.
Þegar er búiö að reyna að hafa
nokkra bankasfióra í Landakots-
sfióminni og allir sjá hvaða afleið-
ingar það héfur haft. Raunar ætti
það ekki 'að koma á óvart því nú
hefur vinsælasti sfiómmálaforingi
landsins lýst því yfir að þaö séu
tómir vitleysingar í bönkunum. Aö
minnsta kosti er þaö haft eftir
Steingrími í DV í gær að ríkis-
sfiómin hafi taliö að bankamenn
hefðu eitthvert vit í koUinum en í
Ijós hefði komið að því væri ekki
að heflsa. En það lagast nú kannski
eitthvað þegar Valur veiðifélagi og
róðrarkappi er kominn í Lands-
bankastólinn. Mun hann þá vænt-
anlega róa að því öflum áram að
afnema verðtryggingu á lánum
eins og Steingrímur vfll enda er SÍS
að kikna undan verðtryggingunni
eins og aðrir smáfuglar, Það var
ekki mikið gagn að áliti verðtrygg-
ingamefndar að áUti Steingríms
enda segir hann aö í nefndinni hafi
bara verið menn sem sifii á ein-
hverjum skrifstofum í Reykjavík
en hafi hvergi tengsl við atvinnullf-
ið. En hvað sem því líður er Landa-
kotsmáUð ennþá óleyst. Reynt var
að koma sem mestri sök á yfir-
lækni við spítalann og hann ásak-
aður fyrir aö skammta sér rífleg
laun. Læknirinn ber aUt slíkt til
baka. Ef fésýslumennimir, sem
sifia þama í sfióm, æfla að bjarga
ærunni er ekki um annað að gera
en kenna nunnu í fuUtrúaráðinu
um aUt saman. Það er nefnUega
óvíst aö hún hafi nokkur tengsl við
atvinnulífið og því hafi farið sem
fór.
Dagfari