Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988. 9 Útlönd Þriðji hver Gizux Helgasan, DV, Reersnaes: Danska náttúruveradarráöiö telur aö seladauðinn I höfunum urnhverfis Danmörku haldi áfram og komi til með aö kosta að minnsta kosti flögur þúsund seli lífið til viöbótar þeim fjögur þúsund sem fundist hafa dauöir. Þriðji hver selur í Vadehavet, Skagerak og Kattegat er dauður, og líífræðingar óttast að stórir selastofiuar viö England þurrkist út. Líffræðmgar telja að þegar Qögur þúsund selir til viðbótar séu dauðir þá fyrst réni þessi veirusjúkdómur en þá séu líka tveir þriðju af selastofninum liönir' undir lok. Peder Agger, fidltrúi frá dönsku náttúruvemarstofnun- inni, segir útreikninga sýna að minnst 4.100 selir hafi fundist dauðir við Vadehavet, Skagerak og Kattegat. Talan er þó örugg- lega hærri. Fjöldi sela finnst ein- faldlega í grýttri ströndinni viö sænsku og norsku skeijagarð- ana. Þaö er full ástæöa til svartsýni. Veirusjúkdómurinn í Eystrasalti ógnar nú litlum og veikburða stofin af hringanórum en þótt nóg sé af þeim við íslandsstrendur þá er stofninn litíil hér vegna þess aö sjórinn er of hlýr. Stofninn hefur þó haldist viö á þessum slóðum allt frá síöustu ísöld. Þetta stóra skarð sem nú hefur verið höggviö í selastofnana mun veröa merkjanlegt á komandi áratugum. Talið er að þaö taki um tuttugu ár fyrir stofiiana að ná sama fjölda og fyrir veirusjúk- dómiim. Auk þess eru nokkrir stofinar í algjörri útrýmingar- hættu; Danir hyggjast þó ekki reyna neinar björgunaraðgeröir. Líffræðingum hefur enn ekki tekist aö flnna út af hverju þessi veirusýking hefur svo hrikaiegar afleiðingar. Tvær kenningar eru uppi, önnur gengur út á að selira- ir veröi fyrir veirusýkingu sem ráöist á ónæmiskerfi þeirra og að þeir látist úr lungnabólgu, hin varpar sökinni á mengunina og aö veirusmitunin hafi þessar af- leiðingar vegna þess aö selirnir séu veikir fyrir. Friðaiviðræður í skugga stríðsins Aðalritari Sameinuöu þjóöanna, Perez de Cuellar, mun ræða við Tareq Aziz, utanríkisráöherra Iraks, í höfúðstöðvum SÞ í New York í dag. De Cuellar ræddi tvívegis við Ali Akbar Velyati, utanríkisráðherra ír- ans, í gær, einum degi fyrr en áætlað var, og sögöu báðir aö viðræðumar hefðu veriö gagnlegar. Sem kunnugt er geisa enn haröir bardagar milli írana og íraka þrátt fyrir vopnahlésumræðumar. Bar- dagar milli þjóðanna áttu sér stað um 100 km innan landamæra írans í gær og hafa átök aldrei átt sér staö svo langt fyrir innan víglínuna frá því að stríöið hófst. íranar segja aö íranskar skæruliðasveitir, sem andsnúnar eru stjómvöldum í íran, berjist viö hlið íraka en írakar neita þeim ásökunum. Áframhaldandi á- rásir styrkja stööu íraka í viöræöún- um en hafa aftur á móti neikkvæð áhrif á gang viðræðnanna, að áliti De Cuellar, aðalritari Sameinuöu þjóðanna, og Velyati, utanríkisráð- herra írans, hafa tvívegis ræðst við um vopnahléstillögur SÞ í Persa- flóastríðinu. Simamynd Reuter Fyrrum liðsforingi skipaður formaður Miöstjóm sósíalistaflokks Burma hefur skipaö Sein Lwin, fyrrum liös- foringja, í formannsstöðu flokksins eftir að Ne Win, sem gegnt haföi formannsstöðunni í 26 ár, sagöi af sér í kjölfar margra mánaöa rósta í landinu sem kostað hafa um 200 manns lífið. Sein Lwin er harður í hom aö taka og hefur haft þaö verk á hendi að berja niður allar óeirðir frá því Nw Win tók við embætti, 1962. Af þeim sökum er hann óvinsæll hjá alþýö- Skógareldar geisa Anna Bjamasan, DV, Denver Skógareldar valda nú miklu tjóni víðá í vesturhéruðum Bandaríkj- anna, þar á meðal á fjórum stöðum í Yellowstone þjóðgarðinum í norð- vesturhluta Wyomingfylkis. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur slökkviliðsmönnum, skógarvörðum og sjálfboðaliðum ekki tekist að hefta útbreiöslu skógareldanna. Einn þessara elda ógnar nú bygg- ingum við stærsta hverasvæði þjóð- garðsins þar sem meðal annars er hver á stærð við Geysi í Haukadal og gýs hann á um það bil sextíu og fimm mínútna fresti. Barist hefur verið við elda í garðin- um í rúmar tvær vikur en nú hefur ástandið versnað og eldsvæöin orðin fjögur. Allar tilraunir til að hefta útbreiðslu eldanna með því að láta sérstakt duft og vatn falla úr flugvél- um og þyrlum eða með því að ryöja belti um skóglendið hafa mistekist. Yfirmaður slökkvistarfsins sagði í sjónvarpsfréttum í nótt að höfuð- áherslan yröi nú lögð á að verja bygg- ingamar í grennd við vinsælasta hverasvæði garðsins. í gærkvöldi vom fjörutíu þúsund ekrur þjóð- garðsins eða um sextán þúsund hekt- arar sviðinn svörður. Slökkvistarfið er mjög erfitt því jörðin er skraufþurr eftir langvar- andi hita og þurrka, vatn er af skorn- um skammti og lofthitinn 32 til 35 gráður á Celsius. Iranar hvöttu nýverið alla vopnbæra karlmenn til aó ganga til vígstöðvanna og berjast við óvininn, Irak, en skop- teiknarinn Lurie telur greinilega að sumir hermanna írana séu heidur í yngra lagi. • stjómarerindreka, og geta reynst erf- ið hindrun í vegi vopnahlés. Perez De Cuellar hefur lagt fram tillögu í níu liðum um framkvæmd vopnahléstilögunnar. Fyrsta atriðið er dagurinn sem vopnahlé gengur í gildi og að því loknu myndu aðilar halda í heiöri kröfur þær sem felast í vopnahléstillögu nr. 598. Vonast er til að vopnahlé gangi í gildi fyrri hluta ágústmánaðar en búist er við að viöræðumar taki a.m.k. viku. De Cuellar mun ræða við Velyati í þriðja sinn í dag, að loknum viðræð- um við Aziz. De Cuellar ræðir við utanríkisráðherrana sinn í hvoru lagi vegna þess aö Íranar hafa hingað til neitað beinum viðræðum við ír- aka. Ekki var rætt um afdrif né framtíð- arhorfur vestrænna gísla, sem talið er að öfgasamtök hliðholl írönum hafi í haldi, á fundi de Cuellar og Velyati en Reagan Bandaríkjaforseti sagði á mánudag að stjórn sín væri tilbúin til viðræðna viðírönsk stjóm- völd. Rafsanjani, yfirmaður herafla írans, sagði í sjónvarpsviðtali nýlega að íranar myndu aðstoða við að frelsa gíslana ef stjómvöltí í Banda- ríkjunum léttu höftum á írönskum eignum í Bandaríkjunum sem hafa verið frystar. Talsmaður Banda- ríkjaforseta sagði að ekki kæmi til mála að semja um frelsi gíslanna. Reuter Auglýsing: unni. Hans bíður nú erfitt verk, að reyna að endurreisa efnahag lands- ins og koma í framkvæmd róttækum breytingum sem samþykktar vom á fundi flokksins. Á fundi sósíalistaflokksins var for- sætisráðherrann, Maung Maung Kha, sviptur embætti en hann hefur verið forsætisráðherra í tíu ár. Hann var rekinn þar sem talið er að hann hafi borið ábyrgð á mótmælum stúd- enta í mars sl. Reuter 'alpAÐt HUWJJjk^lgaSö i HaiUiíasonsW1181’ j i vor sew l-Svoermáime^ua5tiíyr ntaaÆ^ur.ÍbfáUnSSa^0g XvaBst taka .^Xvtkustundir. Mer v^^.^rtoSvaBaBsWapa 't benti mer á ny» hurB- ™gBitllvatiBfynrm^8 v^turomeS rauBn siue Tnternationai > ESr ^verWB mannsiMfrW^nu á UurBina,^ . ^ tónútur. ÞásBttiég^Bjnni. Og viU Sktn‘ « harBin gjörsamlega ^ nýsUpuB. tntematxxtól 23 6taka ^^g°Æ^ih'nsvegar -SbÍ»K?SW VirBnur i lAHl,,,"’'. ,MUr hún \ g§ggg* Fæst í öllum málningarverslunum landsins, kaupfélögum, stórmörkuðum og víðar. International

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.