Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Blaðsíða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988.
Jarðarfarir
Guðlaug Sigurjónsdóttir er látin.
Hún var fædd á Eskifirði þann 16.
juní 1922. dóttir hjónanna Sigurjóns
Einarssonar og Sigríðar Jónsdóttur.
Guðlaug lærði hárgreiðslu í Reykja-
vík. Að námi loknu starfaði hún þar
við iðn sína og einnig í Noregi um
skeið. Eftir að hún sneri heim rak
hún ásamt meðeigenda hárgreiðslu-
stofuna Bvlgjuna í Aðalstræti um
árabil. Síðustu árin starfaði hún hjá
Skólatannlækningum Revkjavíkur-
borgar. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Ólafur Galti Kristjánsson.
Ólafur hafði misst fvrri konu sína frá
þremur ungum börnum og gekk
Guðlaug þeim í móðurstað. Guðlaug
átti fyrir eina dóttur. Útfór Guðlaug-
ar verður gerð frá Fossvogskirkju í
dag kl. 13.30.
Skarphéðinn Arnason verður jarð-
sunginn frá Langholtskirkju fímmtu-
daginn 28. júlí kl. 15.
Minningarathöfn um Sóleyju Þor-
steinsdóttur kaupkonu, Hjalla-
brekku 17, Kópavogi, fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtu-
daginn 28. júlí kl. 13.30. Jarðsett verð-
ur á ísafirði laugardaginn 30. júlí.
Útför Magnúsar Sigurgeirs Þorgeirs-
sonar. Hafnargötu 12, Höfnum, er
andaðist.í Borgarspítalanum 20. júlí,
fer fram frá Kirkjuvogskirkju í Höfn-
um fimmtudaginn 28. júlí kl. 14.
Valdimar Valdimarsson frá ísafirði
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóh 11.
júlí. Athöfnin hefur farið fram.
Elínborg Guðmunda Þorgeirsdóttir,
Ferjubakka 8, Reykjavík, andaðist í
Vífilsstaðaspítala aðfaranótt 15. júlí
sl. Jarðarfórin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hilmar Th. Theodórsson, er andaðist
á Dvalarheimili aldraðra í Garði 23.
júlí, verður jarðsunginn frá Keíla-
víkurkirkju fimmtudaginn 28. júlí kl.
1.4.
Útfor Höskuldar Stefánssonar,
Hjallabrekku 12, Kópavogi, fer fram
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28.
júlí kl. 13.30.
Andlát
Björn Baldursson, Háaleitisbraut 28,
lést 24. júh.
Guðlaugur Sigurðsson, Garöbraut
63, Garði, andaðist í Borgarspítalan-
um 25. júh.
Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Völlum,
Þistilfirði, lést í Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 25. júlí.
Tórúeikar
Sumartónleikar
að Kjarvalsstöðum
Annað kvöld, fimmtudaginn 28. júlí,
munu þeir Þorsteinn Gauti Sigurðsson
píanóleikari og Guðni Franzson klarí-
nettuleikari halda tónleika að Kjarvals-
stöðum í „fjallasal" Jóhannesar. Á fyrri-
hluta tónleikanna eru verk eftir minna
þekkta rómantíkera, s.s. N. Gade, G.
Finzi, Saint-Saens og fleiri. Síðari hluti
efnisskrárinnar er svo helgaður tón-
skáldum sem lifðu á fyrri hluta 20. aldar,
s.s Debussy, Ravel, Milhaud, Satie, Lut-
oslawsky og Messager. Tónleikamir hefj-
ast kl. 8.30.
TjJkynningar
Styrkirfrá Vestfirðinga-
félaginu í Reykjavík
Eins og undanfarin ár verða í ágúst
veittir styrkir úr Menningarsjóði vest-
firskrar æsku til vestfirskra ungmenna,
tíl framhaldsnáms sem þau ekki geta
stundað í heimabyggð sinni. Forgang um
styrk úr sjóðnum að öðru jöfnu hafa:
I. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu
sína (föður eða móður) og einstæðar
mæður.
II. Konur meðan ekki er fullt jafnrétti
launa.
Ef ekki berast umsóknir frá Vestfjörðum
koma eftir sömu reglum umsóknir frá
Vestfirðingum búsettum annars staðar.
Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er
Vestfirðir allir (ísafjörður, ísafiarðar-
sýslur, Barðastrandar- og Strandasýsla).
Umsóknir þarf að senda fyrir lok júlí og
þurfa meðmæli að fylgja umsókn frá
skólastjóra eða öðrum sem þekkja um-
sækjandann, efni hans og aðstæður.
Umsóknir skal senda til Menningar-
sjóðs vestfirskrar æsku, c/o Sigríður
Valdemarsdóttir, Njálsgötu 20, jarðhæð,
101 Reykjavík.
Á síðasta ári voru veittar 125 þús. krón-
ur til fimm ungmenna.
í sjóðsstjóm em: Sigríður Valdemars-
dóttir, Þorlákur Jónsson og Torfi Guð-
brandsson.
Ferðafélag íslands
Miðvikudaginn 27. júlí kl. 20 verður
kvöldferð í Bláfjöll og upp á fjallið með
stólalyftunni.
Loftbrú til Vestmannaeyja
Um verslunarmannahelgina verður
leiguflug Sverris Þóroddsonar með loft-
brú til Vestmannaeyja. Flogið verður frá
Hellu og Reykjavík. Upplýsingar í síma
28011 í Reykjavík og 98-75165 á umboðs-
skrifstofunni á Hellu.
Innilegar hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á 70
ára afmæli mínu þann 5. júlí sl.
Guð blessi ykkur öll.
Fjóla Gísladóttir
Fréttatilkynning
Zanzibar Casablanca, Skúlagötu 30,
kynnir opið hús fimmtudaginn 28. júli.
Hljómsveitin Síðan skein sól mun verða
gestur kvöldsins og vonir standa til aö
Helgi Bjömsson, söngvari sveitarinnar,
muni opna blautar varimar og kyija
nokkur gullfalleg kvæði - þótt það sé
bannaö.
Fjöhnennið. Nefndin
Fréttir
Mjöggottverðá
gámafiski í Hull
í morgun voru seldir 6 gámar af um hafnarverkamönnum og gæti
ferskum ílski frá íslandi á Qsk- dregið til tiðinda á morgun en þá
markaönum í Hull í Bretiandi og stendur til að landa gámum úr
fékkst mjög gott verö fyrir fiskinn. Sambandsskipi.
Meðalverð úr gámum með þorsk í Grimsby seldi togarinn Otto
og ýsu var 106 krónur, að sögn Wathne 60 tonn af þorski og fékk
Gústafs Baldvinssonar hjá ísbergi 84 krónur í meðalverð. Þá var selt
í Huii. úr þrem gámum í Grimsby og hljóp
Þetta háa verð skrifast að hluta meðalverið á 80-90 krónum eftir
tUáreikningbreskrahafnarverka- tegundum.
manna sem fóru í verkfall og neit- I morgun voru seld tólf tonn af
uðu að landa úr breskum togara í þorski á Faxamarkaði og meðal-
morgun. íslenski fískurinn var það verðið var tæpar 39 krónur. Fjögur
eina sem bauðst á markaðnum og og hálft tonn af ýsu fóru á 35 krón-
fengu færri en vildu. Gústaf sagði ur að meðaltali.
að það hefði líka hjálpaö upp á í gær var meðalverð á þorski á
verðið aö fiskurinn var fallegur og þrem íslenskum fiskmörkuðum
góður. „Þetta var úrvalsfiskur úr 39,50 krónur og seldust tæp 200
Vestmannaeyjum,“ segir Gústaf. tonn.
Gústafsagðiaðkurrværiíbresk- pv
Dollarinn á
46,29 krónur
Gengi íslensku krónunnar gagn-
vart dollar var í morgun 46,29 krón-
ur. Það er hækkun frá því í gær er
hann var á 46,08 krónur. í byrjun
vikunnar var hann 45,70 krónur. í
síðustu viku komst hann í 46,70 krón-
ur sem er met.
Dollarinn styrktist seinni partinn í
gær þegar tölur um eftirspum eftir
varanlegum neysluvörum, eins og
heimilistækjum, voru birtar í Banda-
ríkjunum. I dag verða birtar tölur
um þjóðarframleiðslu Bandaríkja-
manna á öðrum ársfjóröungi og búist
er við góðum tölum vestra.
-JGH
t t
I
t t
t t
t ^
BLAÐ
BURÐARFÓLK
Reykjavik
Skúlagötu 52-80
Laugaveg 120-170
Borgartún 1-7
Skúlatún
Skúlagötu 57, 61, 63
f t t ^
ÞVERHOL'TI 11
11
t t
11
SIMI 27022
Logi Kjartansson, Friðrika Björg Antonsdóttir, Elisa Rán Ingvadóttir ásamt
Þórönnu Hansen sem afhenti þeim verðlaunin. DV-mynd Geir
RHgerða- og teiknimyndasamkeppni SVFÍ:
Þrenn verðlaun
af fimnvtán féllu í
hlut bama á Dalvík
Geir A. Guðsteinssan, DV, Dahrik
í tilefni 60 ára afmælis Slysavama-
félags íslands var efnt til ritgerða-
og teiknimyndasamkeppni meðal
bama á grunnskólaaldri. Böm á
aldrinum 6-10 ára sendu inn teikn-
ingar en böm á aldrinum 10-15 ára
sendu inn ritgerðir. Þátttaka var
mjög góð. Aiis bámst 53 ritgerðir og
730 teikningar í samkeppnina.
Úrslit vora tiikynnt á landsþingi
og afmælishátíð SVFÍ og vora veitt
verölaim fyrir 10 bestu ritgerðimar
og fimm bestu teikningamar. Þrenn
þessara verðlauna komu í hlut dal-
vískra skólabama og er það mjög
glæsilegur • árangur. Síðastliðinn
fóstudag afhentu forsvarsmenn
Bamaúlpur fúndust við Hvítá
Fundist hafa tvær bamaúlpur, má þeirra á skrifstofu Starfsmanna-
rauðar, viðbakkaHvítárskammtfrá félags ríkisstofnana, Grettisgötu 89,
orlofsheimilunum að Vaðnesi. Vitja í Reykjavík.
Slysavamafélagsins á Dalvík við-
kenningamar í Jónínubúð, húsi fé-
lagsins.
Sjöttu bestu ritgerðina átti Elísa
Rán Ingvadóttir sem hlýtur aö laim-
um ferð til Lundúna seinni hluta
ágústsmánaðar. Einn verðlaunahaf-
anna að þessari ferð forfallaðist af
óviðráðanlegum ástæðum og kemur
Elísa Rán í hans stað. Níundu bestu
ritgerðina átti Logi Kjartansson.
Hann hlaut í verðlaun bókaflokkinn
Landiö þitt. Aðra bestu teikninguna
átti Friðrika Björg Antonsdóttir sem
hlaut BMX-reiöhjól í verðlaun. Hlut-
ur Dalvíkinga er því mjög athyglis-
verður og glæsilegur. Þrenn verð-
laun af fimmtán alls.