Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988. -
Fréttir
Enn nýjar upplýsingar um slæma stöðu atvinnuveganna:
Raungengl hækkar enn og
samkeppnisstaðan versnar
Hagfræðideild Seðlabankans
spáir því að raungengi krónunnar
verði tæplega 8 prósent hærra í ár
en í fyrra miðað við verðlags-
þróun.
Miðað við launaþróun spáir hag-
deildin að raungengið hækki um
tæp sex prósent. Hagdeildin spáir
þessari hækkun raungildis krón-
unar þrátt fyrir að gengi krónunn-
ar hafi tvívegis verið fellt á þessu
ári en aldrei í fyrra.
Hækkun á raungildi sýnir versn-
andi samkeppnisstöðu útflutnings-
og samkeppnisgreinanna. Hag-
fræðideildin reiknar samkeppnis-
stöðu þessara greina sem frávik frá
árinu 1979 sem hún telur að hafl
sýnt vel jafnvægisskilyrði þjóðar-
búsins. í fyrra var samkeppnis-
staða sjávarútvegsins metin 6,9
prósent hærri en á árinu
1979.
{ár hefur samkeppnisstaðan fall-
ið og spáir hagfræðideildin að hún
verði 5.8 prósent lakari en á árinu
1979. Samkeppnisiðnaöurinn þarf
sömuleiðis að þola fall. í fyrra var
sarakeppnisstaða hans metin 1,5
prósent lægri en 1979 og spáin ger-
ir ráð fyrir að hún verði 6,7 prósent
lakari í ár.
-gse
Myndin sýnir hvar menn frá verksmiðjum flugvélarinnar, sem fórst við Reykjavíkurfiugvöll á þriðjudag, rannsaka
mælaborö vélarinnar. Voru einstakir mælar teknir, pakkað í svamp og settir í kassa. Verða þeir fluttir til verk-
smiðjanna til frekari rannsókna, þar sem nauðsynlegur tækjakostur til þeirra rannsókna fyrirfinnst ekki hér á landi.
Er sér mælaborð fyrir hvorn hreyfil vélarinnar og eru mælarnir væntanlega í þeirri stöðu sem þeir voru þegar
flugvélin hrapaði og sprakk. Má þá sjá hvor hreyfillinn hefur bilað eöa hvort eitthvað annað hefur verið í ólagi
með hreyflana. Fór rannsóknin fram undir eftirliti flugslysanefndar Kanada og íslands. DV-mynd S
Starf Frikirkjuprests:
Tveir hafia sótt um
„Það er ekki ennþá komin dagsetn-
ing á safnaðarfundinn, það eru marg-
ir í sumarfríum og við bíðum með
að ákveða dagpetninguna uns fólk fer
að koma í bæinn aftur. Gísli Baldur
Garðarsson, lögfræðingur prestsins,
hefur líka sagt að það þýði ekki aö
halda fundinn fyrr en í ágúst/sept-
ember og við ætlum aö virða það,“
sagði ísak Sigurgeirsson, stjórnar-
maður í Fríkirkjunni.
- Hafa einhverjir sótt um prestsstöð-
una?
„Já, það hefur verið gert.“
- Fleiri en tveir?
„Áð minnsta kosti það, ef þú vilt
vita eitthvað meira um þetta átt þú
aö tala við formanninn, Þorstein
Eggertsson," sagði ísak og skellti á.
Ekki reyndist unnt að ná sambandi
við Þorstein.
Starf Fríkirkjuprests var auglýst
laust til umsóknar fyrri hluta júlí-
mánaðar og rennur umsóknarfrest-
ur út þann 15. september. Séra Gunn-
ar Bjömsson sagöi að hann ætlaði
aö sækja um stöðuna. „Ég hef ekki
sent bréfið ennþá en ég ætla að gera
það. Þetta er einungis formsatriði og
ef til vill kemur ekki til slíks," sagði
Gunnar.
-JFJ
Mikiö aö gera hjá Gunnari Bjömssyni:
Hefur framkvæmt
í Fríkirkjunni
„Það hefur verið mikið að gera hjá
mér og núna er ég nýkominn úr hálfs
mánaðar fríi og það bíða tvær jarðar-
farir, fjögur brúðkaup og fjöldinn
allur af skírnum. Það er enginn mun-
ur á vinnu minni núna og áður en
stjórn kirkjunnar rak mig, að undan-
skildu því að ég messa ekki,“ sagöi
séra Gunnar Bjömsson.
Undanfarin ár, þegar Gunnar hefur
tekið sér sumarleyfi, hefur prestur
leyst hann af en svo mun ekki vera
nú. Aöspurður um hvert Fríkirkju-
meðlimir leituðu í prestleysinu sagði
Gunnar að margir leituðu til sín.
Sagðist Gunnar framkvæma athafn-
irnar í heimahúsum, kapellunni á
prestssetrinu, í Fríkirkjunni og öðr-
um guðshúsum. En af hverju fram-
kvæmir hann athafnir í Fríkirkj-
unni?
„Ég get það eins og hver annar prest-
ur þegar fólkið pantar kirkjuna.
Fólkið er með kirkjuna að láni og
mætir síðan með mig. Síðan þeir
ráku mig hef ég framkvæmt tvær
athafnir þar,“ sagði Gunnar.
Stuðningsmenn séra Gunnars em
ennþá að safna undirskriftum hon-
um til stuðnings og sagði Gunnar að
söfnunin þokaöist áfram en þó hægar
en vonir stóðu til. „Við hringjum
fyrst í fólk og fáum jáyrði og síöan
er listunum ekið til fólksins. Þetta
hefur allt tekið sinn tíma. Viö erum
búin að fá jáyrði frá um 2000 manns
þó að einungis um helmingur sé
kominn á blað. -JFJ
Alþjóðlegu þlngmannasamtökln koma fram með tillögu:
Samningaviðræður um algjórt bann
við tilraunum með kjamorkuvopn
- tillagan neyðir stórveldin að samningaborðinu
Ólafur Amarson, DV, Washingtoru
Alþjóðlegu þingmannasamtökin,
Parlamentarians Global Action,
héldu blaðamannafuhd í skrifstofu-
húsnæði bandarísku öldungadeild-
arinnar í gær. Tilgangur fundarins
var að kynna breytingartillögur sem
fimm ríki hafa lagt fram viö samning
stórveldanna frá 1963 um takmarkað
bann við tilraunum með kjarnorku-
vopn. Forseti samtakanna er sem
kunnugt er Ólafur Ragnar Grímsson.
Samningurinn hljóðar upp á bann
við tilraunum í andrúmslofti, geimn-
um og í hafinu. Breytingartillagan
felur þaö í sér að kjamorkutilraunir
veröi með öllu bannaðar.
Þingmannasamtökin hafa undan-
farin þrjú ár reynt aö fá hóp af þjóð-
um til að leggja fram breytingartil-
lögu við samninginn. í fyrradag
sendu sendiherrar fimm ríkja hjá
Sameinuðu þjóðunum, Indónesíu,
Perú, Mexíkó, Júgóslavíu og Sri
Lanka, bréf til utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og
Bretlands þar sem þeir tilkynntu að
ríki þeirra myndu leggja fram form-
lega breytingartiUögu við samning-
inn á Allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna. 116 ríki eru aöilar að
samningnum og ef einn þriöji þeirra
styður breytingartillögu eru kjarn-
orkuveldin skyldug að setjast að
samningaborði og ræða hana. Tvö
kjamorkuveldi, Frakkland og Kína,
era ekki aðilar að samningnum. Til
að breytingartillögur séu samþykkt-
ar endanlega þarf einfaldan meiri-
hluta en Bandarikin, Sovétríkin og
Bretland hafa neitunarvald.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði í
samtali við DV í Washington í gær
að á næstu vikum myndi tilskilinn
fjöldi lýsa yfir stuðningi við breyting-
artillöguna. Það þýðir að á næstu sex
til tíu mánuöum verði kjamorku-
veldin að setjast niður að samninga-
borðinu og endurskoða samninginn.
Ólafur sagði að Aaron Tovish, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, hefði
fengið hugmyndina að þvi að nýta
ákvæði samningsins um breytingar-
tillögur. Samtökin hefðu síðan haft
samband við ýmsa ráðgjafa
Kennedystjórnarinnar og fengið þá í
lið með sér en það var einmitt John
F. Kennedy sem af hálfu Bandaríkj-
anna skrifaði undir samninginn um
takmarkað bann við kjamorkutil-
raunum í Moskvu þann 5. ágúst 1963.
Ólafur sagði aö hingað til hefði allt-
af veriö talið að tvíhliða samninga
milli stórveldanna þyrfti til að breyta
vígbúnaðarsamningum en nú væri
búið að sanna að kjamorkuvopna-
laus ríki gætu haft áhrif á þessi mál.
Á fundinum í gær flutti Paul Sim-
on, öldungadeildarþingmaður frá 111-
inois og fyrrverandi forsetafram-
bjóöandi, ávarp. Simon sagðist vera
ákaflega þakklátur Ólafi Ragnari fyr-
ir ötult starf hans að þessum málum
og sagði það aðdáunarvert að menn
læsu samninga sem þennan og fyndu
möguleika til breytinga.
Paul Wamke, sem var aöalsamn-
'ingamaður um afvopunarmál í tíð
Jimmys Carter, sagði hugmynd þing-
manna samtakanna um að nýta
ákvæði samningsins til þess að gera
breytingar á honum snilldarlega og
aö hún gæti jafnvel gengiö upp.
Wamke sagði í samtali við DV í gær
að hann teldi mögulegt að gera breyt-
ingar á samningnum innan eins árs.
Hann sagði að það skipti ekki máh
þótt eitthvert af kjamorkuveldunum
þremur, sem aðild eiga að samningn-
um, beittu neitunarveldi vegna þess
að kjamorkuveldin myndu lenda í
gíslingu almenningsálitsins í heim-
inum ef þau hygðust standa í vegi
fyrir algeru banni við kjamorkutil-
raunum. Þvi væri það skoðun hans
að nú væri það einungis spuming
um tíma hvenær öllum tilraunum
með kjamorkuvopn yrði hætt.
í gær gaf Edward Kennedy, öld-
ungadeildarþingmaður frá Massa-
chusetts og bróðir Johns F. Kennedy,
út yfirlýsingu þar sem hann fagnaði
mjög breytingartillögu ríkjanna
fimm og hrósaði þingmannasamtök-
unum hástemmt fyrir framgang
þeirra í afvopnunarmálum. Kennedy
lýsti þeirri ósk sinni að nú yrði hægt
að halda áfram í anda stefnu Johns
F. Kennedy og banna með öllu til-
raumr með kjamorkuvopn.