Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Page 27
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
27
Smælki
Sælt veri fólkið... Gömlu jaxl-
arnir Crosby, Stills og Nash
eru byrjaðir samstarf rétt eina
ferðina og eru nýlagðir upp í
hljómleikaferð um Bandarik-
in. Margir biða þó með enn
meiri eftirvæntingu eftir plötu
sem kemur út um miðjan sept-
ember en þar koma þeir félag-
ar saman á ný með Neil Yo-
ung og er þar með upprisinn
kvartettinn gamli Crosby,
Stills, Nash & Young sem
hafði gifurleg áhrif á tónlistar-
sköpun í heirninum upp úr
1970... Neil Young stendur i
fleiri stórræðum en þeim sem
um getur hér að framan þvi
um þessar mundir á hann í
harðvítugum deilum við
bandarísku myndbandasjón-
varpsstöðina MTV. Deilan
stendur um bann sem sjón-
varpsstöðin setti á myndband
við nýtt lag frá Young en i
laginu og myndbandinu gerir
hann góðlátlegt grín að mynd-
böndum nokkurra stórstjarna
eins og Michael Jackson og
Whitney Houston. Young og
hans menn ásaka stöðina fyr-
ir að vera undir hælnum á
stóru stjörnunum og að ban-
nið á myndbandið hafi verið
sett vegna þrýstings frá við-
komandi stjörnum...
Sænska hljómsveitin Imperiet
sem verið hefur i fararbroddi
sænsks rokks í nokkur ár er
hætt. Þessi tiðindi geta þýtt
það að plata sú sem Bubbi
Morthens hefur verið að vinna
að i Svíþjóð i ein tvö ár, fari
að líta dagsins Ijós. Og
ástæðan er einfaldlega sú að
helsti samstarfsmaður Bubba
við gerð plötunnar er Christ-
ian Falk bassaleikari Imperiet
sem ætti að hafa rýmri tima
aflögu eftir að Imperiet er
hætt. Bubbi kemur reyndar
fram á nýjustu og síðustu
plötu Imperiet og er um þess-
ar mundir á ferð um Svíþjóð
með hljómsveitinni í loka-
ferðinni... Á hljómleikaferð
Michaels Jackson um Evrópu
að undanfömu hefur vakið
athygli að apinn Pebbles, sem
verið hefur nánasti vinur Jack-
sons undanfarin misseri, hef-
ur vikið fyrir ellefu ára göml-
um dreng, sem Jackson hefur
mikið dálæti á. Foreldrar
piltsins hafa iíka verið með i
för og i þakklætisskyni fyrir
að hafa leyft drengnum að
koma með rétti Jackson þeim
einn daginn ávisun og sagði
þeim að kaupa eitthvert litil-
ræði fyrir. Þau keyptu sér
Rolls Royce... sjáumst...
-SþS-
Nýjar plötur
Ómar Óskarsson - Rækjukokkteill
Góður kokkteill
Á fyrri hluta áttunda áratugarins
var Pelican ein allra vinsælasta
hljómsveitin á landi voru. Lög eins
og Jenny Darhng og Sprengisandur
geröu hjjómsveitina fræga vítt og
breitt um ísland. Einn meðhma
Pelican var Ómar Óskarssori. Ekki
er hægt að segja að hann væri mjög*
áberandi í hljómsveitinni. Það eru
því ábyggilega margir sem hlusta
hvað mest á íslenska popptónlist í
dag sem kannast ekki við nafnið og
kemur það þeim sömu á óvart að út
er komin plata með Ómari Óskars-
syni.
Forvitni ætti samt að fá þá til að
hlusta á Rækjukokkteil og víst er að
ekki verða vonbrigðin mikil. Platan
er vel heppnuð tónlistarblanda þar
sem víða er komið við í efnisleit.
Ellefu lög eru á plötunni og hefur
Ómar samið þau öll í samstarfi við
Hafhða Magnússon. Nokkuö misjöfn
eru þau. Það besta er með því betra
sem hér gerist.
Platan byrjar á hinu ágæta lagi
Einnar konu nætur, léttrokkað lag
sem auðveldlega spilar sig inn í
hlustandann og langar mann strax
til að heyra það aftur. Góð tilþrif
'finnast næst í Bomban svífur, blúsað
rokk sem Ómar fer skemmtilega
meö. Síðasta lagiö á fyrri hlið plöt-
unnar, Nelson Mandela, er nær ein-
göngu spilað, boðskapur lagsins er
óljós þar til í lokin en því miður held-
ur slök lagíina ekki .áhuganum við
lagið.
Lögin á seinni hliðinni eru öllu
jafnari. Þó er þaö eitt lag sem ber af,
Ég er að fara yfir um, og er þaö lagið
á plötunni þar sem manni finnst vera
tekið á hlutunum.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
stóru um einstök lög. Heildin er
nokkuð góð og kemur á óvart hversu
góður lagasmiður Ómar er. Ekki er
hægt aö skilja við plötuna án þess
aö minnast á textana sem flestir hafa
einhvem boðskap handa hlustand-
anum þó missterkur sé.
Rækjukokkteih er þess virði að
hlustað sé á hana og er leitt að hún flóði sem duniö hefur á þjóðinni að
skuh nær hverfa í því mikla plötu- undanförnu. HK
Buster Poindexter
Eitt sinn var til hljómsveit sem hét
New York Dohs, af mörgum talin
fyrirmynd Sex Pistols. Þegar sú síð-
arnefnda hóf upp raust sfna höfðu
Dolls hætt störfum. Söngvari sveitar-
innar, David Johansen, er hú kom-
inn fram á sjónarsviðið að nýju eftir
langa fjarveru. Ekki undir sínu rétta
nafni heldur sem Buster Poindexter.
Á plötu Busters, sem kom út fyrir
nokkrum vikum, er ekki að finna
pönk. Ekki einu sinni rokk. Það kem-
ur sem sé í ljós aö á meðan David
Johansen djöflaðist með félögum sín-
um í New York Dolls í gamla daga
og lagði grunninn að músiksprengju
áttunda áratugarins hafði hann mest
gaman af að hlusta á sölsur, sömbur
og big band tónlist. Og nú er ghmt
við gömlu uppáhaldsslagarana.
. Platan Buster Poindexter er afar
fagleg. Hljómsveitin Banshees of
Blue, sem leikur undir, er firnahress
og blásararnir í The Uptown Horns
gefa tónhstinni þann blæ sem henni
ber. Satt best að segja er platan gjöró-
lík öllum þeim sem koma út um þess-
ar mundir og hafa á sér poppstimpil.
Enda hefur upptökustjórinn, Hank
Medress, ekki getið sér orð fyrir sam-
starf við Van Halen, Whitesnake né
neina shka, heldur Tony Orlando,
Dan Hill og The Chiffons sv.o að fáir
einir séu nefndir.
Á plötunni Buster Poindexter eru
ellefu lög. Þar af aðeins tvö frumsam-
in. Hin eru, virðist mér, frá ýmsum
tímum en mynda fína heild. Minnis-
stæðast er að sjálfsögðu rúmban Hot
Hot Hot. Oh Me Oh My (I’m A Fool
For You Baby) er bráðsmelhð þótt
ólíkt sé. Þá má ekki gleyriia útgáfu
Poindexters á House Of The Rising
Sun sem er ein af þeim betri sem ég
hef heyrt af því lagi. Lög Poindext-
ers, Cannibal og Heart Of Gold, eru
einnig áheyrileg og þannig gæti ég
sjálfsagt haldið áfram með öll lög
plötunnar.
Gamlir aðdáendur New York Dolls
hafa ekkert gaman af Buster Po-
indexter. Fólk sem kann að meta
kontrabassa, hálfkassagítar,
trommusett, fjóra blásara og stjórn-
anda sem getur gripið í píanó þegar
mikið hggur við - að ógleymdum fín-
um barítonsöngvara sem eitt sinn
var fínn rokkari - það fólk finnur
áreiðanlega eitthvað viö sitt hæfi hjá
Buster Poindextar. -ÁT
Bjami Arason - Þessi eini þama:
Aðeins sautján
Þegar Bjarni Arason var kosinn
látúnsbarki þjóðarinnar fyrir ári
bjuggust fæstir við aö þessi táningur
yrði ein skærasta söngstjaman að
ári liðnu. Sú er samt raunin. Djúp
rödd hans ásamt hflegri sviösfram-
komu hefur gert hann að popp-
stjömu nútímans á íslandi.
Með hjálp góðra manna, sérstak-
lega Stuðmannanna Valgeirs Guð-
jónssonar og Jakobs Magnússonar,
sem verið hafa honum hjálplegir,
hefur Bjarni fengið upp í hendurriar
lög sem passa vel fyrir rödd hans og
er auðvelt að gleyma því að á ferð-
inni er rétt nýorðinn sautján ára
strákur.
Samt er það svo að plata hans, Þessi
eini þarna, ber þess merki að lítt
reyndur söngvari með óvissa stefnu-
mörkun er þar á ferðinni. Nokkru
áður en platan kom út var eitt lagið
af henni, Það stendur ekki á mér,
farið að hljóma reglulega á öldum
ljósvakans. Skemmtilegt erlent lag
með ágætum texta eftir Sverri
Stormsker sem er eins og samið fyrir
Bjarna. Þar með var salan tryggð og
eftirleikurinn léttur fyrir útgefend-
ur.
Nú, fleiri lög em á plötunni en ekk-
ert jafngrípandi, lög sem eiga samt
ábyggilega eftir að hljóma meira og
minna á næstu misserum. Því miður
er meðalmennskan allsráðandi, lög-
in fara inn um annað eyrað og út um
hitt án þess að mann langi til að
heyra þau aftur. Jakob og Valgeir
leggja sitt af mörkum ásamt Ragn-
hildi Gísladóttur. Fleiri ágætir menn
koma viö sögu, má nefna að Bubbi
Morthens á eitt lag, Undir tungunnar
rót, lag sem er langt frá að vera meö-
al bestu laga hans.
í heild er Þessi eini þarna bragð-
. laus kokkteill sem ber þess merki að
þrátt fyrir fullorðinsrödd er Bjarni
Arason aðeins sautján ára og á eftir
að marka sér stefnu. Eins og er
minnir hann meira á söngvara sem
er aö leita fyrir sér.
HK