Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Blaðsíða 37
LAÚGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
49
exd5 5. Bf4 Rf6 6. e3 Bf5 7. Db3 ,
Talið best í stöðunni en Kasparov
afréð þó ekki að fara þessa leið gegn
Karpov í Sevilla lék 7. Rge2. Forvitn-
in rekur Karl áfram.
7. - Rc6 8. Dxb7 Rb4 9. Bb5+ Kf8 10.
Kd2!
Þannig teíldi Helgi Ólafsson gegn
Karli á alþjóðlega mótinu á Akureyri
í mars. Karl lék 10. - a6 11. Ba4 c5
en náði ekki að jafna taflið. Zaitsjév
hugsaöi sig nú um í tæpa klukku-
stund. Spurningin er auðvitað hvort
hann velji besta leikinn eða hvort
svartur eigi enn betri kosti sem þola
ekki dagsljósið?
10. - Re4!? 11. Rxe4 Bxe4 12. Bxc7!?.
Eftir 12. f3 mætti hugsa sér fram-
haldið 12. - Hb8 13. Dxc7 Dxc7 14.
Bxc7 Hxb5 15. fxe4 og nú 15. - dxe4,
eða 15. - Ra6 með óljósu taíli. Leikur
Karls virtist koma Sovétmanninum
á óvart.
12. - Dc8 lji. Dxc8 Hxc8 14. f3 Hxc7 15.
fxe4 dxe4 16. a3 Rd5 17. Rh3 g5 18. Ba4
g4 19. Rf2 £5 20. Bb3?!
Svartur á peði minna en hefur
virka stöðu og allgóð gagnfæri. Þessi
leikur Karls er þó ekki sem nákvæm-
astur. Betra er 20. Hacl.
8
7
6
5
4
3
2
1
ABCDEFGH
20. - Rxe3! 21. Kxe3 Hb7 22. Be6
Eða 22. Bc2 Hxb2 og síðan -Bg5 +
og svartur hefur rífandi spil.
22. - Bg5+ 23. Ke2 Ke7! 24. Bxíd
Hvítur verður að gefa manninn aft-
ur, ef kóngshrókur svarts kemst í
leikinn veröur staða hans allt of
sterk
24. -Hxb2+ 25. Kel HÍ826. Rxe4! Hxía
Og Zaitsjév bauð jafntefli sem Karl
þáði. Eftir 27. Rxg5 Hxg5 28. Hfl Hxg2
29. Hf2 er staðan hnífjöfn.
A-flokkur einkenndist af miklum
flölda jafntefla og var engu líkara en
sumir skákmannann væru í sum-
arfríi. E.t.v. hefur hitabylgjan við
Moskvu átt sinn þátt í því en skáksal-
urinn fór ekki varhluta af hitanum.
Fjórir skákmenn deildu efsta sæt-
inu: Stórmeistararnir Psakhis og
Razuvajev og Kajdanov og Vizmana-
vin sem báðir eru sterkir alþjóðlegir
meistarar og náðu stórmeistara-
áfanga. Þeir hlutu allir 6 v. af 10
mögulegum og voru taplausir, utan
Psakhis sem beið lægri hlut í einni
skák. í 5.-6. sæti komu Kharitonov
ogTsjernín með 5,5 v.,Englendingur-
inn Davies fékk 5 v., Smagin og Júgó-
slavinn Drashko 4,5 v., og Englend-
ingamir Levitt (3,5) og Conquest (3
v.) ráku lestina.
Rennum yflr frísklega skák frá
mótinu. Það er Kajdanov sem er í
aðalhlutverki en hann teflir rólegt
afbrigði af enska leiknum frumlega
og skemmtilega. Fyrr en varir nær
hann stórsókn og mótherja hans eru
allar bjargir barinaðar.
Hvítt: G. Kajdanov
Svart: Stuart Conquest
Enskur leikur.
1. c4 e5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2
Bg7 5. d3 d6 6. Hbl Be6 7. b4 Dd7 8.
b5 Rd8 9. Rd5
Svipaöar aðferðir viöhafði Kasp-
arov í einvíginu við Karpov í Sevilla.
Ætlunin er að fá svartan til að stugga
viö riddaranum svo taflið opnist
drottningarmegin en hvítur tapar
leik.
9. - c6 10. bxc6 bxc6 11. Rc3 Re7 12.
Rf3 Bh3 13. Bxh3 Dxh3 14. Re4 Rc815.
Hgl!? Dd7?!
Betra er 15. - h5. Nú nær hvítur
miklum þrýstingi með frumlegri
áætlun.
16. g4! h6 17. d4 exd4 18. Rxd4 De7 19.
Dd3 Kf8 20. Hg3 a6 21. He3 Dd7 22. h3
Dc7 23. Bb2 Hb8 24. Rb3 Re6 25. Bxg7
Rxg7 26. Hdl Re8 27. Hf3 Kg8 28. h4!
Svartur er ótrúlega bjargarlaus
gegn sókn hvíts. •
De7 29. h5 Hb7 30. hxg6 fxg6
31. Rec5! dxc5 32. Dxg6+ Rg7 33. Rxc5!
Hb2
Ekki 33. - Dxc5 34. Hd8 mát.
34. He3 Df8 35. Rd7 Db4+ 36. Kfl Re7
37. Rf6+ Kf8 38. Hd8
Og svartur gafst upp, enda mát í
næsta leik. . -JLÁ
Unglingalandslið íslands í bridge sem keppir um þessar mundir á Evrópu-
móti í Búlgaríu. Frá vinstri Eiríkur Hjaltason, Þröstur Ingimarsson, Matthias
Þorvaldsson, Bernódus Kristinsson, Hrannar Erlingsson, Jón Páll Sigurjóns-
son fyrirliöi og Olafur Týr Guðjónsson.
Evrópumót unglinga
Dagana 5 -13. ágúst næstkomandi
fer fram Evrópumót yngri spilara í
bridge. Miöaö er við aldurinn 25 ár,
til þess aö vera gjaldgengur í ungl-
ingalandslið. Keppnin fer fram í
borginni Plovdiv í Búlgaríu, og spil-
aðar verða 20 umferðir (þátttöku-
þjóðir eru 21). Hver leikur er 20 spil,
og spilaðir verða þrír leikir á dag,
þannig að ljóst er að dagskráin verð-
ur stíf.
Unglingalandsliðið er skipað Matt-
híasi Þorvaldssyni, Hrannari Erl-
ingssyni, Eiríki Hjaltasyni, Ólafl Tý
Guðjónssyni, Þresti Ingimarssyni og
Bernódus Kristinssyni. Fyrirliði án
spilamennsku er Jón Páll Sigurjóns-
son, en honum til aðstoðar verður
Ásgeir Ásbjörnsson. Unglingalands-
liðiö hefur æft stíft undanfarna mán-
uði undir stjórn Jóns Páls og Ás-
geirs, og landsliðsþjálfari A-liösins,
Hjalti Elíasson, veitti ráðleggingar
síðustu vikurnar fyrir brottför.
IþróttapistiH
Dómaramir
þurfa mun
meira aðhald
Dómaramál hafa veriö mikiö til
umræðu manna á meðal á síðustu
dögum og vikum og þeir eru marg-
ir sem enn eru að ræöa bikarleik
Vals og Fram sín á milli. Allir sem
sáu þann leik voru sammála um
að dómari leiksins hefði geflð Vals-
mönnum sigur með kolröngum
vítaspyrnudómi þegar staðan var
jöfn, 1-1.
Auðvitað er alltaf hæpið aö full-
yrða um einstök atvik sem skjóta
upp kollinum í knattsþyrnuleikj-
um sem öðrum knattleikjum en
eftir að hafa skoðaö vandlega aö-
dragandann að umræddri víta-
spyrnu er ég ekki í nokkrum vafa
um að dómarinn gerði þarna af-
drifarík mistök. Knötturinn fór alls
ekki í hpndi varnarmanns Fram
heldur í lærið innanvert.
Umhugsunarefni
Aö mínu mati hefur dómgæslan
í knattspyrnunni í sumar verið á
alla kanta, léleg í sumum leikjum
en framúrskarandi í öðrum, eins
og gengur. Ég tel afar mikilvægt
að menn staldri við eftir yflrstand-
andi keppnistímabil og að dómara-
málin verði tekin til endurskoðun-
ar. Þar er víða pottur brotinn og
ekki aðeins varðandi frammistöðu
einstakra dómara. Skipulag dóm-
aramála má betur fara.
Dómararnir allt of
margir
Fyrir nokkrum árum var fjöldi
þeirra dómara sem fá verkefni í 1.
deild takmarkaður við ákveðna
tölu. Nú er svo málum komið að
fjöldi þessara dómara er orðinn
allt of mikill og dómarar komast
því aldrei í nægilega leikæfingu.
Ef valinn væri takmarkaður fjöldi
til aö dæma í 1. deildinni myndu
dómarar gjarnan standa sig mun
betur, það gefur auga leið. Maður
hefur það á tilfinningunni að verið
sé að gera óteljandi meöaldómur-
um greiða meö því aö leyfa þeim
að dæma leik og leik í 1. deild en í
raun er verið að gera flestum þess-
ara dómara óleik.
Dómurum á að refsa eins
og leikmönnum
Ellefu leikmenn leika í knatt-
spyrnuliði. í öllum liðunum er mik-
il barátta manna á meðal um sæti
í viðkomandi liði. Standi leikmaður
sig mjög illa í einum leik er hann
svo til alltaf settur á varamanna-
bekkinn og tekur þannig út sína
refsingu fyrir slaka frammistöðu.
Lítum á málin hjá dómurunum.
Og minnumst aftur atviksins í bi-
karleik Vals og Fram sem getið er
um í byrjun þessa pistils. Dómar-
inn stóð sig afleitlega og gerði
aragrúa mistaka. Auðvitað eiga
dómarar sína slæmu leiki eins og
leikmenn og þeir eru mannlegir og
geta gert mistök. En af hverju má
ekki refsa dómurum eins og leik-
mönnum. Mistök dómarans í leik
Vals og Fram voru svo alvarlegs
eölis að ef allt hefði verið með felldu
hefði sá hinn sami ekki átt aö fá
að koma nálægt leik í 1. deild í
nokkrar vikur á eftir. En dómarinn
var mættur í leik í 1. deild nokkrum
dögum síðar.
Vantar aðhald
Nú er því þannig variö hjá dóm-
urum að eftir keppnbistímabil er
farið yfir leikskýrslur sumarsins
og frammistaða dómara metin.
Sumir detta út af listanum yfir 1.
deildar dómara en aðrir fá að halda
sæti sínu. Þetta er engan veginn
nógu gott fyrirkomulag. Dómarar
geta gert mistök leik eftir'leik og
eiga því að taka út sína refsingu
jafnóðum verði þeir uppvísir að
algerum byrjendamistökum eins
og dómarinn í leik Vals og Fram.
Dómurum væri mikill greiöi gerð-
ur með því að fá slíkt aðhald og þá
myndu þeir örugglega standa sig
betur. Slíkt kæmi öllum til
góða.
Landsleikur gegn Búlgaríu
Mjög sterkt landsliö Búlgaríu er
mætt til landsins og leikur gegn
íslenska landsliðinu á Laugardals-
velli á morgun, sunnudag. í liðinu
eru margir sterkir leikmenn þótt
ekki séu þeir ofarlega í hugum ís-
lenskra knattspyrnuunnenda.
Búlgarir komust í 16-liða úrslit í
heimsmeistarakeppninni síðustu í
Mexíkó en töpuðu þar fyrir heima-
mönnum. Óhætt er að segja að lið
Búlgaríu sé á meðal tíu bestu
landsliða í Evrópu og því ættu
knattspyrnuunnendur að geta orð-
iö vitni að góðum leik. Ekki er enn
vitað hvernig íslenska liðið verður
skipaö þegar þetta er skrifað. Líkur
benda þó til þess að Ásgeir Sigur-
vinsson leiki með og finnst mörg-
um tími til kominn.
Stefán Kristjánsson
• íslenskir knattspyrnudómarar sjást hér undirbúa sig fyrir keppnistimabil knattspyrnumanna. Margir eru
þeirrar skoðunar að dómarar þurfi aukið aðhald og þeir þurfi jafnframt að axla meiri ábyrgð á frammistöðu
sinni.