Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1988, Page 53
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988.
65
■»
Afmæli
Garðar Steinarsson
Garðar Steinarsson flugstjóri,
Vesturströnd 27, Seltjámamesi,
varð fimmtugur í gær. Garðar er
fæddur í Rvík en ólst upp á Seltjam-
arnesi frá 1945. Hann byijaði að
læra að fljúga í Flugskólanum Þyt
1955 og tók atvinnuflugmannspróf
1959. Garðar lauk námi í loftsigl-
ingafræði 1960, varð loftsiglinga-
fræðingur 1961-1963 og hefur verið
. flugmaður hjá Flugfélagi íslands og
síðar Flugleiðum frá 1963. Hann var
í stjóm Róðrarfélags Reykjavíkur
og varð íslandsmeistari í kappróðri
og hnefaleikum og hefur starfað í
Sam Frímúrarareglunni um árabil.
Garðar kvæntist 30. september 1961,
Ástu Sveinbjarnardóttur, f. 9. júlí
1939. Foreldrar hennar em Svein-
bjöm Högnason, prófastur og al-
þingismaður á Breiðabólstað í
Fljótshlíð, og kona hans Þórhildur
Þorsteinsdóttir. Böm Garðars og
Ástu eru Hróðný, f. 7. apríl 1962,
þroskaþjálfaranemi, Þórhildur, f.
15. júlí 1965, þroskaþjáfari og Páll,
f. 9. júlí 1971. Systkini Garðars era
Steinunn, f. 26. október 1933, gift
Guðna Siguijónssyni, vélstjóra á
Seltjamamesi, og Sigm-ður, f. 1. jan-
úar 1948, rafvirki í Rvík, kvæntur
Ingibjörgu Eysteinsdóttur.
Foreldrar Garðars voru Steinar
Bjamason, trésmiður á Seltjarnar-
nesi, og kona hans Hróðný Páls-
dóttir. Steinar var sonur Bjama, b.
í Glæsibæ í Sæmundarhlíð, bróður
Sigurlaugar, móður Jakobs Bene-
diktssonar, fyrrv. orðabókarrit-
sjóra. Bjarni var sonur Sigurðar, b.
á Stóra-Vatnsskarði, Bjarnasonar
og konu hans Guðrúnar Þorsteins-
dóttur, b., skálds og hreppstj óra á
Reykjavöllum, Pálssonar, bróður
Sveins, læknis og náttúrufræðings
í Vík í Mýrdal. Móðir Steinars var
Valgerður Jónsdóttir, b. og hrepp-
stjóra á Hafsteinsstöðum, Jónsson-
ar og konu hans Steinunnar Ám'a-
dóttur.
Hróðný er dóttir Páls, bókbindara
í Rvík, Jónssonar, b. í Hákoti á
Akranesi, Pálssonar, fóöur Jóns,
langafa Sigríðar, móður Hauks
Gunnarssonar, heimsmethafa í 100
og 400 m hlaupi fatlaðra. Móðir Páls
var Anna Magnúsdóttir, b. í Skógum
í Flókadal, Jónssonar, b. og dbrm. í
Deildartungu, Þorvaldssonar, ætt-
fóður Deildartunguættarinnar.
Móðir Önnu var Elísabet Björns-
dóttir, aðstoöarprests á Húsafelli,
Snorrasonar, prests og skálds á
Húsafelli, Björnssonar. Móðir
Hróðnýjar var Steinunn Gísladóttir,
b. í Gröf í Ytrihreppi, Jónssonar, b.
í Efra-Langholti, Magnússonar, b. í
Efra-Langholti, Eiríkssonar, b. í
Bolholti, Jónssonar, ættfóður Bol-
holtsættarinnar. Móöir Steinunnar
var Guðrún Álfsdóttir, b. í Nýjabæ
á Eyrarbakka, Jónssonar, b. á
Garðar Steinarsson.
Eystri-Loftsstöðum, Ólafssonar.
Móðir Jóns var Sesselja Aradóttir,
b. á Eystri-Loftsstöðum, Bergsson-
ar, b. í Brattsholti, Sturlaugssonar,
ættfóður Bergsættarinnar. Móðir
Álfs var Gróa Álfsdóttir, b. í Tungu
í Flóa, Arasonar, bróður Sesselju.
Guðlaugur Guðmundsson
Guðlaugur Guðmundsson vél-
stjóri, Skipholti 45, Reykjavík, er
sjötíu og fimm ára í dag.
Guölaugur fæddist á Arnarstapa í
Tálknafirði en flutti tveggja ára með
foreldrum sínum til Súgandaíjarðar
þar sem hann ólst upp í foreldrahús-
um. Hann fór flórtán ára til sjós á
bát frá Súgandafirði en var síðar á
Samvinnubátum frá ísafirði. Guð-
laugur var á togurum öll stríðsárin
og sigldi þá oft til Englands.
Eftir stríð var hann á togurum og
bátum en síðan á verslunarskipum.
Hann tók mótornámskeið hjá Fiski-
félaginu 1937-38 og stýrimannanám-
skeið á Akureyri 1940-41.
Guðlaugur kom í land 1973 og fór
þá að vinna hjá Glæsibæ. Hann
starfaði síðan hjá Sambandinu um
skeiö en hefur nú starfað sem vakt-
maður hjá Granda í átta ár.
Guðlaugurkvæntist21.6.1952
Margréti Dagbjartsdóttur, f. 24.5.
1914. Foreldrar hennar voru Dag-
bjartur Einarsson, útvegsb. í
Grindavík, og kona hans, Valgeröur
Guömundsdóttir.
Sonur Guðlaugs og Margrétar er
Einar, kaupmaður á Seyðisfirði, f.
22.2.1955
Guðlaugur var næstyngstur tíu
systkina en hann á nú einá systur
á lífi. Hún er Unnur, húsmóðir, f.
27.7.1910, en hún dvelur nú á Hrafn-
istuíReykjavík.
Foreldrar Guðlaugs vom Guð-
mundur Sturluson, b og smiður að
Amarstapa í Tálknafirði, f. 18.12.
1870, d. 23.11.1931, og kona hans,
Guðrún S. Oddsdóttir húsmóðir, f.
24.5.1874, d.28.2.1962.
Föðurforeldrar Guðlaugs voru
Sturla Ólafsson, b. og skipstjóri í
Krossadal, og Agnes Jónsdóttir.
Móðurbróðir Guðlaugs var Hall-
björn, ættfaöir Hallbjarnarættar-
innar.
Móðurforeldrar Guölaugs vom
Oddur Hallgrímsson, prestur í
Gufudal, og Valgeréur Benjamíns-
dóttir. Oddur var sonur Hallgríms,
prests í Görðum, Jónssonar, vígslu-
biskups á Staðastað, bróður Skúla
fógeta Magnússonar, prests á Húsa-
vík, Einarssonar, prests í Garöi í
Kelduhverfi, Skúlasonar, prests í
Goðdölum, Magnússonar, prests á
Guðlaugur Guðmundsson.
Mælifelli, Jónssonar.
MóðirHallgrímsvarÞórunn ’
Hansdóttir Scheving, systir Vigfús-
ar, fööur Guörúnar, konu Magnúsar
Stephensen konferensráðs og Ragn-
heiðar, konu Stefáns Thorarensen,
amtmanns og konferensráðs á
Möðruvöllum. Mó’ðir Odds var Guð-
rún Egilsdóttir, systir Sveinbjarnar
rektors.
Guðlaugur verður að heiman í
dag.
Friðrik Guðmundsson
Friðrik Guðmundsson verkamað-
ur, Skúlagötu 68, Reykjavík, veröur
áttatíu og fimm ára á morgun.
Friðrik fæddist á Eyvindarstöðum
viö Vopnafjörð. Hann missti ungur
föður sinn og ólst upp hjá móður
sinni fram yfir fermingu en flutti
svo með henni til Hornafjarðar 1928
þar sem hann dvaldi á annað ár..
Friðrik flutti síðan til Suðurnesja
þar sem hann var á vertíð í Ytri-
Njarðvík og í Görðum en flutti til
Reykjavíkur 1933. Hann stundaði þá
sveitavinnu á sumrin en var við
höfnina á veturna. Friðrik réðst síð-
an til Rafmagnsveitunndr þar sem
hann starfaöi í átta ár og síðan til
Ölgerðar Egils Skallagrímssonar en
þar starfaði hann í tuttugu og níu
ár eða þar til hann hætti störfum
vegna aldurs.
Friðrik var einn þeirra fyrstu sem
fluttu í sambýlishúsin austast við
Skúlagötu er þau voru reist eftir
stríð en þar býr hann enn.
Kona Friðriks var Elín Eggerts-
dóttir frá Gljúfurá í Arnarfirði, f.
1905, en hún lést fyrir fimmtán
árum.
Friðrik og Elín eignuðust þrjú
börn en tvö þeirra eru látin. Sonur
þeirra á lifi er Öm, raftæknifræð-
ingur hjá Álverinu, f. 1938, kvæntur
Unni Guömundsdóttur en þau búa
í Kópavogi og eiga fiögur börn.
Friðrik átti bróður og systur og
er bróðir hans látinn. Systir hans
er Sigurlaug sem nú dvelur á Elli-
og hjúkrunarheimihnu á Horna-
firði.
Foreldrar Friðriks voru Guð-
mundur Metúsalemsson, b. á Ey-
vindarstöðum, og kona hans, Þor-
björg Jónatansdóttir.
Guömundur var sonur Metúsal-
ems, sonar Kristjáns á Síreksstöð-
um í Vopnafirði, Guðmundssonar.
Móðir Kristjáns var Judit Sigurðar-
dóttir, ein Ljósavatnssystkina sem
þekkt vorU fyrir skáldskaparhæfi-
leika sína. Móðir Juditar var María
Sörensdóttir, b. á Ljósavatni, Kristj-
ánssonar, og konu hans, Guðrúnar
Þorvaldsdóttur, prests á Hofi í Vop-
nafirði, Stefánssonar, prófasts og
skálds í Vallanesi, Ólafssonar, próf-
asts og skálds á Kirkjubæ í Tungu,
Einarssonar, prófasts og skálds í
Heydölum, Sigurðssonar.
Móðir Guðmundar var Guðný
Eggertsdóttir, b. í Saurbæ, Einars-
sonar og konu hans, Ólafar Guö-
laugsdóttur.
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til
að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og
starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að þerast í
síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Tii hamingju með daginn
90 ára 50 ára
Ágúst Jóhannesson, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði, er níræður í dag. Ragnhildur Árnadóttir, Vesturgötu 50A, Reykjavík, er fimmtug í dag. Alda Sigurðardóttir Kaldrananesi 1, Kaldfananes-
75 ára hreppi, Strandasýslu, er fimmtug í dag.
Elísa Eliasdóttir, Túngötu 12, ísafirði, er sjötiu og fimm ára í dag. Ásgerður Guðjónsdóttir, Grenimel 23, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Jónas Jóhannesson, Austurbyggð 16, Akureyri, er fimmtugur í dag. Ásgeir Þorleifsson, Borgarheiöi 17, Hveragerði, er fimmtugur í dag. Sigrún Guðný Guðmundsdóttir, Norðurtúni 8, Miðneshreppi, Gull- bringusýslu, er fimmtug í dag. Hún tekur á móti gestum á heimili sínu á afmælisdaginn eftir kl. 20.
70 ára
Margrét Sigurðardóttir, Brunngötu 1, Hólmavík, er sjötug í dag. Sigurður Evje Markússon, Uröárbraut 2, ReyHjavík, er sjötug- ur í dag. Valgerður Sigurvinsdóttir, Keilusíðu 1A, Akureyri, er sjötug í dag. Sigriöur Björnsdóttir, Vesturgötu 15, Ólafsfirði, er sjötug í dag. Hákon Jónsson, Skálbrekku 21, Húsavík, er sjötug- ur í dag. Auður Hákonardóttir, Langholtsvegi 169, Reykjavík, er fimmtug í dag. Örn Engilbertsson, Depluhólum 4, Reykjavík, er fimm- tugur í dag. Hólmfriður Hclgadóttir, Setbergi, Fellahreppi, N-Múla- sýslu, er fimmtug í dag. Kristinn Þorsteinsson, Skólabraut 2, Geröahreppi, Gull- bringusýslu, er fimmtugur í dag.
40 ára
Steinþór Eyþórsson, Víðilundi 7, Garðabæ, er fertugur í dag.
60 ára Sigurrós Marteinsdóttir, Háagerði'18, Reykjavik, er fertug í
Sigurlaug M. Ámadóttir, Jórufelli 12, Reykjavík, er sextug í dag. Sigurður Stefónsson, Fornhólura, Hálshreppi, Suður- Þingeyjarsýslu, er sextugur í dag. Kristin Sigbjörnsdóttir, Bjamhólastig 3, Kópavogi, er sex- tug í dag. dag. Árni Erlendsson, Birkilundi 40, Kópavogi, er fertug- ur í dag. Snorri Siguijónsson, Hringbráut 33, Hafnarfirði, er fer- tugur í dag. Guðrún Sverrisdóttir, Þverholti 7, Mosfellsbæ, er fertug í dag.
Emst P. Sigurðsson
EmstP. Sigurðssonmjólkurfræð-
ingur, Grænumörk 3, Selfossi, er
sjötugurídag.
Ernst fæddist á ísafirði, sonur Ól-
afs Sigurðssonar, kaupmanns þar,
og konu hans, Petra Sigurðsson,
sem Var af dönskum ættum.
Ernst flutti ungur með foreldrum
sínum til Kaupmannahafnar þar
sem þau bjuggu á Amager en kom
með þeim til íslands aftur 1932 þar
sem þau settust að í Reykjavík.
Ernst hóf snemma störf hjá Mjólk-
ursamsölúnni í Reykjavík, fyrst á
Snorrabraut en síðar við Laugaveg.
Hann fór til Danmerkur eftir stríö
og læröi þar mjólkurfræði en starf-
aði síðan áfram hjá Mjólkursamsöl-
unni þar til hann flutti austur til
Selfoss 1961 þar sem hann hefur síð-
an starfað hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna.
Ernst er þekktur fyrir frímerkja-
söfnun en hann hefur um árabil
leiðbeint unglingum við þá tóm-
Ernst P. Sigurðsson.
stundaiðju.
Kona Ernst er Ingeborg Sigurös-
son, f. 10.9.1917. Eigaþautvær dæt-
ur: Kristínu, húsmóður í Hafnar-
firði; og Margréti, húsmóður í
Reykjavík.
L