Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1988, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988.
11
Utlönd
biðst náðar
Sonur breska lestarræningjans
Ronalds Biggs fór áleiðis til Englands
í gær frá Brasilíu með bréf til Elísa-
betar drottningar. í bréflnni segist
Biggs vonast til þess að geta eytt ell-
inni í Bretlandi.
Biggs, sem nú er 59 ára gamall, var
talinn höfuðpaur í lestarráni í Bret-
landi árið 1963. Komust ræningjarnir
yfir tvær og hálfa mifijón sterlings-
punda. Biggs náðist og var dæmdur
til þrjátíu ára fangelsisvistar.
Honum tókst að flýja fjórtán mán-
uöum síðar. Fór hann fyrst til Ástral-
íu en síðan til Brasiliu þar sem
breska lögreglan fann hann árið 1974.
Hann slapp viö brottvísun þar sem
hann átti von á erfingja meö vinkonu
sinni. '
Lestarræninglnn Ronald Bíggs
réttir syni sinum, Míke, brét til
Bretadrottningar þar sem hann
ter fram á náðun.
Símamynd Reuter
Capufo forseti
Utanríkisráöherra Argentinu, Dante Caputo, var i gær kjörinn torséti
allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Simamynd Reuter
Það var utanríkisráöherra Argentínu, Dante Caputo, sem bar sigur úr
býtum í baráttunni ura forsetastólinn hiá allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna i gær. Caputo sigraði Nita Barrow, fulltrúa Barbados, i leynilegri
kosningu. Embættið er álitið hið virðulegasta innan Sameinuðu þjóðanna
á eftir framkvæmdastjórastöðunni Er því skipt á milli svæöishópa og í
ár var röðin komin að Suður-Ameríku en meðlimir þessa heimshluta
gátu ekki komið sér saman um einn frambjóðanda.
Caputo er sérfræðingur i alþjóðasamskiptum og hefur verið utanríkis-
ráðherra Argentínu síðastliöin fimm ár.
Hungurbarátta
Hjálparvana börn I Bangladesh horfa á mæður sinar berjast um stað
I biðröðinnl ettlr matarskammti. Símamynd Reuter
Þijátiu milijónir manna í Bangladesh misstu heimili sín í flóöunum sem
gengið hafa yfir landið aö undanfórnu, að sögn yfirvalda. Fimmtán hundr-
uð eru sagðir hafa týnt lífi og sex hundruð þúsund eru án matar og lyfja.
Þúsundir tonna af matvælum og hjálpargögnum hafa verið send til
landsins en samt sem áður hafa þúsundir manna neyðst til aö fara frá
flóttamannabúðunum f Dacca vegna matarskorts. Erfitt hefur verið aö
senda þjálpargögn til afskekktra svæða þar sem vegir og brýr eyöilögöust
í flóðunum.
íbúamir hafa ekkert útsæöi til aö sá, ekkert fé til aö endurbyggja hús
sín og engar matarbirgöir.
Loforð svikin
Mannréttindasamtökin Amnesty
International sögðu 1 gær aö þúsund-
ir manna í Sómalíu væru ofsóttir og
að yfirvöld þar í landi hefðu virt að
vettugi tilmæli um að binda enda á
misþyrmingar og aftökur á stjómar-
andstæöingum.
Að sögn Amnesty eru margir hinna
handteknu, sem sumir hverjir eru
aðeins tólf ára aö aldri, í fangelsi fyr-
ir að hafa gagnrýnt herforingjastjórn
landsins.
Mannréttindasamtökin kveðast
hafa fengiö fregnir af misþyrmingum
á stjómarandstæðingum frá því að
núverandi stjóm komst til valda árið
1969 en fregnunum hefúr fjölgað frá
árinu 1980.
Þúsundir manna i Sómaliu eru
ofsóttir og |>eim misþyrmt at yflr-
völdum.
Bankastarfsmaður
eiturlyfjakóngur
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Norska lögreglan handtók í gær
bankastarfsmanninn Abdul Rahid
sem grunaður er um eiturlyfjasölu.
Maðurinn er ákærður fyrir heróín-
sölu og ólöglegar peningayfirfærslur
úr norska bankanum Creditkassen
og yfir til banka í Englandi.
Lögreglan heldur að Abdul Rahid
sé æðsti maður í norsku eiturlyfja-
mafíunni sem er hluti af alþjóðlega
heróínkerfmu.
Rahid, sem er Pakistani, er 54 gam-
all og hefur um árabil stjórnað deild
í norska bankanum sem sér um að
hjálpa Pakistönum, sem vinna í Nor-
egi, við að senda peninga til heima-
lands síns. Hér hefur maðurinn mis-
notað aðstööu sína til þess að koma
ágóðanum af heróínsölu í Noregi út
úr landinu.
Lögreglan vill ekki segja um hve
mikla peninga sé að ræða annað en
að það séu margar milljónir.
Fleiri hafa verið handteknir í sam-
bandi við Rahid-málið, bæði í Nor-
egi, Englandi og Hollandi. Hand-
tökurnar geta haft umfangsmikil
áhrif á atvinnulíf í Pakistan og þar
óttast nú margir frammámenn um
stöðu sína.
En stjórnin í Pakistan vill helst
ekki þurfa aö grípa inn í eiturlyfja-
söluna út úr landinu, bæði vegna
þess að margir áhrifamestu menn
landsins eru viðriðnir þessa sölu og
einnig vegna þess að Pakistan, sem
er fátækt land, er orðið háð eitur-
lyfjatekjunum.
Pakistanar selja að minnsta kosti
sjötíu prósent af öllu heróíni sem
selt er í heiminum.
í 29 ár
Hressingarleikfimi kvenna og karla
Haustnámskeið hefjast mánudaginn 26. sept.
Kennslustaðir: Leikfímisalur Laugarnesskóla
og íþróttahús Seltjarnarness.
jP Fjölbreyttar æfíngar
Músík - Dansspuni
Þrekæfingar - Slökun
Jh
Innritun og upplýsingar
í síma 33290
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir
íþróttakennari
STJORNMALASLITIN
OG STjORNMALAVIÐHORFIÐ
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík boða til almenns félagsfundar í
Súlnasal Hótel Sögu miðvikudaginn 20. september kl. 20.30.
Frummælendur eru: for-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, Þorsteinn Pálsson for-
sætisráðherra, og
varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, Friðrik Sophus-
son iðnaðarráðherra.
m ■ i
SJALFSTÆÐISFELOGINIREYKJAVIK