Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988. Útlönd Skotárásir ísraelskir hermenn skutu á aö Faöir Palestínudrengsins á mynd- inni var skotinn til bana á heimili sinu af óþekktum árásarmanni. Stmamynd Reuter minnsta kosti tuttugu og sjö Palest- ínumenn þegar þeir lentu í átökum viö mótmælendur á herteknu svæðunum um helgina. Upphaf átakanna var dauði þrett- án ára gamallar Palestínustúlku sem skotin var í höfuðiö með plastkúlu. Tvær neðanjarðarhreyfingar Palestínumanna, sem báðar vilja ráða hvernig uppreisnin fer fram, hafa hvatt til verkfalls í dag. Vilja þær meðal annars mótmæla fanga- búðum þar sem rúmlega tvö þús- und aröbum er haldið án réttar- halda. Utanríkisráðherra ísraels, Shim- on Peres, mun í dag hitta Reagan Bandaríkjaforseta og utanríkisráð- herra Egyptalands, Esmet Abdel- Maguid, í New York. Hjálpargögn með flugi Búddamunkar mótmæia stjómvöldum í Burma. Myndin var tekin áður en herinn tók völdin. Simamynd Reuter Hjálparstofnun Sameinuðu þjóðanna tilkynnti á laugardaginn að send yrðu flugleiðis rúmlega áttatíu tonn af lyfium og hjálpargögnum til Burma. Mikill skortur er nú á sjúkrahúsum þar vegna þeirra mörgu sem slasast hafa í átökum hermanna og mótmælenda. Frá því að herinn tók völdin hefur þurft að binda um sár fimm hundr- uð manna sera flestir hafa fengið skot í bijóstið eða bakið. Þurft hefur að gera minniháttar skurðaðgerðir án svæfingar og sjúklingar fyOa alla ganga sjúkrahúsanna. Hafa sjúkrahúsmenn neyðst til þes að kaupa fúka- lyf á svörtum markaði. Hins vegar er enginn skortur á blóðgjöfum og hjúkrunarfólki. Nóbelsverðlaun Friðarsveitir Sameinuðu þjóðanna eru taldar hafa góðan möguleika á að vinna friðarverðlaun Nóbels í ár, að því er norska sjónvarpiö skýrði frá í gær. .Friöarsveitirnar eru sagðar vera meðal þeirra sex sem helst koma til greina, það er Corazon Aquino, forseti FOippseyja, Nelson Mandela, mannréttindaleiðtoginn, sem setið hefur í fangelsi í Suður-Afríku í 26 ár, Diego Cordovez, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Al- þjóða heilbrigðismálastofnunin og Alþjóða verkamannasambandið. Ekki gat norska sjónvarpið um heimildir sínar sem einnig telja að Reag- an Bandarikjaforseti og Gorbatsjov Sovétieiðtogi, sem báðir hafa verið nefndir í sambandi við friðarverðlaunin, eigi litla möguleika. Tilkynnt verður um verðlaunahafann þann 29. september næstkomandi. Átök í Aþenu Um þrjú hundruð ungmenni köstuðu gijóti og bensinsprengjum að lögreglunni í Aþenu á laugar- daginn. Atökin urðu í kjölfar mót- mælagöngu stjórnleysingja. Göngumenn mótmæltu dómi yfir lögreglumanni sem kveðinn var upp á fóstudaginn. Var lögreglu- maöurinn dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa skot- ið til bana fimmtán ára gamlan ungling. Kveiktu göngumenn í tveimur bílum og stjórnarbyggingu. Einnig brutu þeir gluggarúður og hindr- uöu umferð um tvær aðalgötur með þvi að komd þar fyrir vega- tálmum. Lögregluraaðurinn, sem var dæmdur, skaut unglinginn til bana í mótmælagöngu áriö 1985. Hann hefur áfrýjað dómnum. Reuter Ungir stjórnleysingjar með bens- insprengjur hrópa slagorö að grisku lögreglunni. Slmamynd Reuter ekki afgerandi sína í utanríkismálum en reynslu- leysi Dukakis í þeim málaflokki er hans veiki punktur. Að áliti margra fréttaskýrenda tókst Bush það sem hann ætlaði sér í þessum kappræð- um, þaö er að sýna Dukakis sem frjálslyndan demókrata. Hann sagði að vegna hinna frjálslyndu skoðana sinna vissi Dukakis ekki hvað meiri- hluti Bandaríkjamanna vildi eða hugsaði. Dukakis svaraði fyrir sig og ásakaði Bush fyrir að hafa „gleymt“ millistéttinni og þörfum hennar. í umræðu um efnahagsmál lagði Bush áherslu á reynslu síðustu ára undir stjórn Reagans forseta. Hvor- ugur frambjóðenda hafði neitt nýtt fram að færa þegar þeir voru spurðir um hvernig þeir hygðust rétta við gífurlegan íjárlagahalla ríkissjóös. Bush kvaðst myndu skera niður nokkra fjárlagaliöi en nefndi ekki hvaöa liði. Dukakis kvaöst myndu herða skattalögin, beita sér fyrir nið- urskurði í fjárlögum sem og í útgjöld- um til vamarmála. Líkt og Bush gaf Dukakis ekki nánari skýringar á hvar hann myndi bera niður. Hvorugur frambjóöenda gerði al- varleg mistök. Nokkur minniháttar mismæh áttu sér stað og hafði Duk- akis betur í þeim efnum. Stuðnings- menn Bush höíðu haft töluverðar áhyggjur af því aö varaforsetinn myndi klúðra þessum kappræðum, annaðhvort með mismæli eða röng- um staðhæfingum. Bush gerði ein mistök. Hann sagðist myndu leggja niður tvö vopnakerfi sem þegar hafa verið lögð niður. Fréttaskýrendur telja að þessi mistök séu þó minni- háttar. Fyrstu niðurstöður skoðanakönn- unar um frammistöðu frambjóðend- anna, sem ABC sjónvarpsstöðin stóð fyrir, sýna að fleiri Bandaríkjamenn telja að Dukakis hafi staðið sig betur en Bush. Alls töldu 45 prósent að- spurðra að Dukakis hefði haft betur en 36 prósent töldu Bush hafa sigrað. 19 prósent töldu að frambjóðendurn- ir hefðu staðið sig jafnvel. Þess ber að geta að þetta eru frumniöurstöður könnunarinnar og að frávik eru um 5 prósent til eða frá. Kappræðurnar í gærkvöldi voru harðskeyttari en flestir bjuggust við. Báðir frambjóðenda notuðu hvert tækifæri sem gafst til að skjóta hvor á annan. Dukakis gagnrýndi feril varaforsetans og Bush réðst að ferli Dukakis sem fylkisstjóra Massachu- settsfylkis. í fljótu bragði er erfitt að spá hvaða áhrif þessar kappræður hafa á kosn- ingabaráttuna en víst er að margir kjósenda eru enn hikandi. Næstu kappræður forsetaframbjóðendanna gætu reynst mikilvægari en þær sem áttu sér stað í gærkvöldi. Einnig má búast við að kappræöur varaforseta- efnanna, Dans Quayle og Loyds Bentsen, sem haldnar verða í byrjun október, geti reynst afdrifaríkar. Steinunn Bödvarsdóttur, DV, Washington: Fyrri kappræður forsetaframbjóð- endanna í Bandaríkjunum, demó- kratans Michaels Dukakis og repú- blikans Georges Bush, voru haldnar í gærkvöldi. Stuöningsmenn beggja lýstu yfir sigri strax að kappræðun- um loknum en fréttaskýrendur eru ekki á eitt sáttir um hvor hafi haft betur. Flestir fréttaskýrendur telja að í fljótu bragði hafi kappræðurnar ekki haft þau úrslitaáhrif sem búist var við. Þær gerðu ekki út um hvor fram- bjóðendanna myndi taka við embætti forseta í janúar á næsta ári þegar Ronald Reagan sleppir stjórnar- taumunum. Þær höfðu heldur ekki afgerandi áhrif á afstöðu þeirra 37 prósenta kjósenda sem enn eru hik- andi eða óákveönir í afstööu sinni til frambjóðendanna. Þetta þýðir að mikilvægi seinni kappræðnanna, sem haldnar verða um miðjan næsta mánuð, eykst til muna. Eins og búist hafði verið við réðst Dukakis harkalega á stefnu ríkis- stjórnarinnar í utanríkismálum og á feril Bush sem varaforseta. Strax í upphafi kappræðnanna gagnrýndi hann samningaumleitanir stjórnar- innar við Manuel Noriega, hers- höfðingja og leiðtoga Panama, en Noriega var fundinn sekur um fíkni- efnasmygl til Bandaríkjanna ekki alls fyrir löngu. Dukakis notaði einnig vopnasöl- una til írans og hneykslið, sem fylgdi í kjölfarið, þegar upplýst varð að hluta ágóðans hafði verið varið til stuðnings kontraskæruliðum í Nic- aragua. Dukakis notaði hvert tækifæri til að gagnrýna stefnu Reaganstjórnar- innar, bæöi í innan- og utanríkismál- um. Val Bush á Dan Quayle sem vara- forsetaefni reyndist einnig, eins og búist hafði verið við, tilefni árása af hendi Dukakis. Bush varði Quayle og sagði að persónulegar árásir ættu ekki erindi í kosningabaráttu sem þessa. Bush lagði mikla áherslu á reynslu Bush og Dukakis takast i hendur fyrir kappræðurnar í gærkvöldi. Símamynd Reuter Kappræðurnar Meirihluti styður Bush Steinunn BöðvaiBdóttír, DV, Washington: Nýjustu skoðanakannanir í Bandaríkjunum sýna aö George Bush, varaforseti og forsetafram- bjóðandi repúblikana, nýtur meira fylgis en andstæöingur hans, Mic- hael Dukakis, forsetaframbjóðandi demókrata. Niöurstöður skoðanakönnunar New York Times dagblaðsins og CBS sjónvarpsstöðvarinnar, sem birtar voru áður en kappræður frambjóð- endanna hófust í gærkvöldi, sýna að 46 prósent kjósenda styðja Bush en 40 prósent styðja Dukakis. Alls kváð- ust 37 prósent vera óákveðnir. Bush hefur höggvið nokkuð á for- skot Dukakis meðal kvenna. 42 pró- sent kvenna styðja Dukakis en 38 prósent styðja Bush. Alls kváðust 18 prósent aðspurðar kvenna vera óá- kveðnar en 7 prósent karla höfðu ekki enn gert upp hug sinn. í Texas, heimafylki Bush, sem og Loyds Bentsen, varaforsetaefnis Dukakis, hefur varaforsetinn 50 pró- sent stuðning kjósenda samkvæmt niðurstöðum annarrar skoðana- könnunar. Dukakis nýtur stuðnings 40 prósenta kjósenda í fylkinu en rúmlega 8 prósent eru óákveðnir. Texas er talið eitt af mikilvægari fylkjunum fyrir kosningarnar en alls hefur það á að skipa 29 kjörmönnum. Sigur þar er því mikilvægur fyrir frambjóðendurna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.