Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988. 15 Kosningar strax „Takist okkur ekki að leysa þessi mái á næstunni, er mikil hætta á fólks- (lótta héðan til Evrópu, því þar er mikil groska framundan," segir i grein- inni. Einkennileg staða hefur komið upp í íslenskum stjórnmálum: Meirihluti þjóðarinnar vill að kosningar fari fram fljótlega en þingflokkarnir, að undanskildum Kvennalistanum, eru því algjör- lega andvígir. Er þetta enn eitt dæmið um hversu langt ráðamenn þjóðarinnar eru frá þvi að vera henni samstíga? Hvers vegna vilja þessir ílokkar ekki kosningar? Svarið er einfalt: Fyrrverandi stjórnarflokkar vita að fólk lítur gagnrýnum augum á klaufaskap þeirra og klúður og að það verður erfitt fyrir þá að halda á lofti gunnfánum ábyrgöar og stefnufestu eins og oft áður. Alþýðuflokkurinn veit að hann mun nær þurrkast út því hann einn er talinn ábyrgur fyrir gífurlegri aukningu á skattheimtu í landinu þótt hinir samstarfsflokkarnir séu auðvitað samábyrgir. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn komi vel út í skoðanakönnunum er hiutfall óákveðinna kjósenda mjög hátt og þessir flokkar hafa lítinn áhuga á því að þurfa að verja óstjórn og ósamkomulag síðastliðins árs. Borgaraflokkurinn skríður heim Stjómarandstaðan ætti að taka kosningu fegins hendi en því fer flarri. Borgaraflokkurinn er algjör- lega búinn að missa tiltrú kjósenda og þeir sem eftir eru í flokknum gera sér grein fyrir því að eina von þeirra um póhtíska framtíð er að skríða til fóta hjá móðurskipinu, Sjálfstæðisflokknum, og fallast á hvaða stefnu sem er þó. svo hún stangist á við digurbarkalegar yfir- lýsingar flokksins um lausn efna- hagsvandans fyrir stjórnarslit. Færri þingmenn -minni peningar Ætla mætti að Alþýðubandalagið heimtaði kosningar, en málflutn- ingur flokksins hefur ekki náð til fólks og þ.a.l. eru menn þar á bæ hræddir um að þeir myndu missa helminginn af þingmönnum flokksins væri kosið fljótt. Sam- kvæmt heimildum úr innsta hrihg KjaUariim Pétur Guðjónsson stjórnunarráðgjafi Alþýðubandalagsins vilja þeir ekki kosningar vegna þess að virkni flokksfélaganna er oröin nær eng- in. Skuldir flokksins frá síðustu kosningum eru nokkrar milljónir og útgáfustyrkur myndi minnka í hlutfalli við tapaðan fjölda þing- manna. Því eru þeir Alþýðubanda- lagsmenn til í stjórnarmyndunar- viðræður með hverjum sem er og ótti þeirra við kosningar skýrir e.t.v. vegna hvers forystumenn flokksins eru til viðræðna, jafnvel um frystingu launa, því samkvæmt þeirra túlkun er kaupmáttarskerð- ing launa orðin „afstætt hugtak'* í dag. Kvennalistinn tvístígandi? Kvennalistinn hefur lýst sig hlynntan kosningum og þvi er óskiljanleg afstaða þeirra að taka þátt í stjórnarmyndunarviðræðum og einnig þaö að benda á valkost um bráðabirgðastjórn með jafnri þátttöku allra flokka sem myndi aldrei ganga upp. Þessi „loðna“ afstaða Kvennalist- ans hefur gert það að verkum að margir hafa misst tiltrú á heilindi hans og sumir hafa sagt við mig að þær séu farnar að stunda það sem tíðkast í karlapólitík, að segja eitt og gera annað. Flokkur mannsins vill utanþingsstjórn Sá flokkur einn sem hefur ótví- ræða afstöðu gagnvart kosningum er Flokkur mannsins og við send- um forseta íslands skeyti þar sem við lögðum til aö þing yröi strax rofið og að utanþingsstjórn yrði mynduð með fulltrúum launþega, atvinnurekenda, bænda, sjó- manna, kvenna og ungs fólks og gætt yrði að því jafnvægi ríkti milli landsbyggðar og höfuðborgar- svæðis. Af hverju kosningar strax? í fyrsta lagi vegna þess að þessi ríkisstjórn var kosin til að sitja út kjörtímabilið. Henni tókst það ekki og þ.a.l. hafa þeir flokkar sem sátu lí henni fyrirgert rétti sínum til þess aö sitja í næstu ríkisstjórn án undangenginna kosninga. Allir flokkarnir þrír eru ábyrgir fyrir því hvernig fór og venja er bæði í stjórnmálum og atvinnulífinu að þegar menn hafa konunglega klúörað málum þá eru þeir reknir allir sem einn og nýir menn teknir inn í staðinn. Það er sama hvaða stjórnarmynstur kæmi nú upp, einn eða fleiri af fyrrverandi stjórnarflokkum myndu fara í nýja stjórn og viðhalda klúðrinu. í öðru lagi, vegna þess að þjóðin á rétt á því að tjá sig sem fyrst um afstöðu sína gagnvart efnahags- málum og um það hvers konar þjóðfélag meiri hlutinn vill hafa hér. í þriðja lagi vegna þess að fram- undan eru gifurlegir breytingatím- ar sem eru raunverulega erfiðir og gera þennan heimatilbúna efna- hagsvanda sem nú er verið aö glíma við hlægilegan í samanburði. Ég á við þær umfangsmiklu breyt- ingar sem eru í uppsiglingu í Evr- ópu en 1992 mun hún sameinast í eitt markaðssvæði. Við íslendingar veröum að leysa okkar „innan- hússmál" á næstu tveimur til þremur árum ef við ætlum að halda áfram að vera til sem sjálfstæð þjóð. Þurfum stjórn sem hefur lausnir Við höfum því ekki lengur efni á fíflalátum, ásökunum, samskipta- örðugleikum og vandamálaþrasi, heldur verður þjóðin að hafa stjórnendur sem hafa frjálsar hendur til aö leysa þau mál sem enn gera tilveru' fólks erfiða hér á landi. Á ég þá viö verðbólgu, háan íjármagnskostnaö, misrétti milli landshluta, langan vinnutíma, hús- næðisyanda, fjárlagahalla og mikl- ar erlendar skuldir svo nokkuð sé nefnt. Takist okkur ekki að leysa þessi mál á næstunni er mikil hætta á fólksflótta héðan til Evrópu því þar er mikil gróska framundan. Fyrr- verandi stjórnarflokkar sýndu að þeir gátu ekki leyst heimatilbúin smávandamál og er þeim þá varla treystandi til að takast á við raun- veruleg stórverkefni. Þær kosningar sem eru í nánd verða ekki um venjulegt pólitískt þras heldur um tilveru þessarar þjóðar. Ég er bjartsýnn á aö við getum stillt saman strengi okkar og leyst þau mál sem þörf er á en við gerum það ekki meö núverandi stjórnarflokkum. Að halda slíku fram væri hrein óskhyggja. Kosningar - engu að tapa Ég veit að margir telja að efna- hagsvandinn sé slíkur núna aö kosningar myndu auka á upplaúsn í þjóöfélaginu. En hvað hefur fyrr- verandi stjórnarsamstarf kostaö okkur? Hvað mun það kosta okkur ef efnahagsaögerðir næstu sam- steypustjórnar verða til þess að fá alla launþega í landinu upp á móti sér? Ég veit aö það eru líka aörir sem eru vondaufir og segja að það breyti litlu þótt kosið verði. Þeir sömu munu halda áfram að hafa völdin, segja þeir. Við þetta fólk segi ég: Hafið ekki svona litla trú á ykkur sjálfum og lýðræöinu. Ef nógu margir sýna með atkvæði sínu aö þeir séu búnir að fá nóg af rugli síðustu ára og vilji fá í stjórn flokk eins og okkar sem er hvorki tengdur hagsmunasamtökum né núverandi valdastrúktúr og getur þ.a.l. starfað fyrir fólk en ekki bara fyrir sig, þá munu verða hér rót- tækar breytingar. Án kosninga er þessi möguleiki ekki fyrir hendi. Pétur Guðjónsson „Ætla mætti aö Alþýðubandalagið heimtaði kosningar, en málflutningur flokksins hefur ekki náð til fólks og þ.a.l. eru menn þar á bæ hræddir um að þeir myndu missa helminginn af þingmönnum flokksins væri kosið fljótt.“ gægjum Þætti það eðlilegt ef forráðamenn Morgunblaðsins fengju reglulega að skoða bókhald DV og í fram- haldi af því ákveða hvaða efni DV mætti birta? Segjum að til væri efnissjóður dagblaða og þar sætu Moggamenn í stjórn. DV hefði ekki fulltrúa í stjóminni en greiddi 10% af tekjum sínum til sjóðsins. Mogginn og Þjóðviljinn ættu hins vegar fulltrúa í stjórninni og skoðuðu þar bók- hald DV og áætlanir um ritstjórn- arefni næstu mánuðina. Aö sjálfsögðu búa dagblöðin ekki við slíkan fáránleika, enda mundi sjóður af þessu tagi brjóta í bága við prentfrelsisákvæði stjómar- skrárinnar. Annars flokks fjölmiðlar? Hins vegar eru útvarps- og sjón- varpsstöðvar hnepptar í sambæri- legan sjóð. Það er menningarsjóður útvarpsstöðva. Stöðvarnar greiða 10% af auglýsingatekjum til sjóðs- ins sem síðan úthlutar þeim svo til sömu fjármunum til „menningar- legrar dagskrárgerðar". Stjórn menningarsjóðsins skipa fulltrúar þriggja útvarps- og sjón- varpsstöðva og dagblaösritstjóri. Þeir skoða bókhaldstölur sinna eig- in og annarra stöðva og sínar eigin og annarra áætlanir um dagskrár- gerð næstu mánuði. Menningarsjóði útvarpsstöðva var komið á fót með útvarpslögum. Þar meö voru útvarps- og sjón- KjaUaiinn Ólafur Hauksson, útvarpsstjóri Stjörnunnar varpsstöðvar gerðar að annars flokks fjölmiðlum. Stjórnarskrárá- kvæði um tjáningarfrelsi var fótum troðið með lögum um menningar- sjóðinn. Fjölmiðill, sem þarf að sýna opinberri sjóösstjórn svo og helstu keppinautum dagskrár- hugmyndir og bókhald, býr ekki við þaö tjáningarfrelsi sem þykir orðið sjálfsagt í vestrænum ríkjum. Úthlutar sjálfum sér Það er fullkomlega óeðlilegt að Bylgjan, Ríkisútvarpið og ritstjóri Tímans, sem einnig situr í stjórn ísfilm, sem undirbýr stofnun sjón- varpsstöðvar, skuli úthluta sjálfum sér og keppinautum sínum úr menningarsjóði útvarpsstöðva. Bylgjan og Stjarnan eru kannski í hvað harðastri samkeppni af þess- um stöðvum þar sem þær keppa á jafnréttisgrundvelli. En hvers á Stjarnan að gjalda aö þurfa að sýna stjórnarformanni Bylgjunnar sölu- tölur auglýsinga á tveggja mánaða fresti? Hvaöa réttlæti er í því að Stjarnan þurfi aö sýna þessum manni dagskrárhugmyndir? Og hvað er ritstjóri Timans að skipta sér af rekstri og efni annarra fjölmiðla? Hann er formaður stjórnar menningarsjóðsins. Und- anfarið hefur hann ásamt félögum sínum í ísfilm veriö að undirbúa stofnun Stöðvar 3. Um sama leyti var hann að skoða niðurstöðutölur úr bókhaldi Stöðvar 2 og helstu dagskrárhugmyndir fram í tímann. Óskapnaður Menningarsjóöur útvarpsstöðva er hugarfóstur mesta afturhalds- þingmanns Framsóknar og slgpp naumlega inn í útvarpslögin. Á fundum útvarps- og sjónvarps- stöðvanna hafa menn, allir sem einn, lagt til aö sjóðurinn verði lagður niður við endurskoðun út- varpslaga. Ljóst er að menningarsjóður út- varpsstöðva er vanhugsaður óskapnaður og til að bæta gráu of- an á svart hefur óheppilega tekist til um val sjóðsstjórnar. Fulltrúar í stjórn sjóðsins hafa verið þar í aðstöðu til að gæta eigin hagsmuna og njósna um keppi- nautana. Þeir hafa ekki séð sóma sinn í að segja af sér. Afstaða Stjörnunnar Stjarnan hefur ekki gert skil til menningarsjóðs útvarpsstöðva. Ástæðan er einfóld. í harðri sam- keppni fórnar enginn eigin hags- munum með því aö afhenda helsta keppinautnum upplýsingar um styrkleika og áætlanir. Að visu er það brot á lögum um „Og hvað er ritstjóri Timans að skipta sér af rekstri og efni ann- arra fjölmidla?“ spyr greinar- höfndur - Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri Tímans. menningarsjóðinn að gera ekki skil. En sjóðurinn var aldrei ætlað- ur til að koma útvarpsstöðvunum illa, eöa hvað? Hann var ætlaður til að hafa áhrif á dagskrá þeirra, væntanlega til góðs. Það er nauðvörn hjá Stjörnunni að veita keppinautunum ekki upp- lýsingar um stöðu og áætlanir. Énginn á hagsmuna að gæta gagn- vart menningarsjóði útvarpsstöðva nema stöðvarnar sjálfar. Það væri réttarfarsslys ef Stjarnan yröi þvinguð til að fórna miklum hags- munum sínum fyrir litla hagsmuni sína. Ólafur Hauksson „Ljóst er að menningarsjóður útvarps- stöðva er vanhugsaður óskapnaður og til að bæta gráu ofan á svart hefur óheppilega tekist til um val sjóðsstjórn- 66

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.