Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988.
53
Fréttir
Óhress með efndir Vegagerðarinnar
_________- vegurinn nánast ófær smærri bílum, segir Sigmundur Eiríksson
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði:
„Það eru tvö ár síðan að Vegagerð-
in eða stjómendur hennar á Reyðar-
firði lofuðu að keyra hörpuöu efni á
veginn og það er ógert ennþá,“ sagði
Sigmundur Eiríksson, bóndi á Gests-
stöðum í Fáskrúðsfirði, og er ekki
sáttur við efndirnar.
„Ég lét þá hafa efni úr mínu landi
til að yfirkeyra veginn hér sunnan
fiarðar, gegn því að vegurinn frá
vegamótum Dalavegar heim að
Gestsstöðum yrði lagfærður, nú em
tvö ár síðan og ekki bólar á þeim
ennþá. Vegurinn er nánast ófær
minni bílum vegna stórgrýtis í hon-
um sem hristir í sundur alla bíla.
Vegarspottinn er um það bil 1,5 km
langur. Þegar þessi vegur var upp-
byggður var byrjað á því verki í snjó
og frosti og hann því ekki unninn
eins og til stóð, þannig hefur hann
verið síðan, alveg ókeyrandi, óveg-
ur,“ sagði Sigmundur að lokum.
Sigmundur Eiríksson, bóndi á
Gestsstöðum, er ekki ánægður með
Vegagerðina.
DV-mynd Ægir Kristinsson
Bestu slátuihús-
in á undanþágum
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Slátrun hjá Kaupfélagi Stranda-
manna, Norðurfirði, byrjaði 19. sept-
ember. Verður slátrað þar um 4000
fjár eins og vant er. Bændur vinna
sjálfir við slátrunina og hafa aUtaf
gert. Þar er gott og vel slátrað fé,
þrátt fyrir að þar hefur allt verið á
undanþágum síðustu ár. Ég minnist
þess ekki, þessi 20 ár sem ég var á
Ströndum, að ég hafi séð hár á kjöt-
skrokk þar. Ég held að það séu hestu
og fullkomnustu sláturhúsin, þau
sem em á undanþágum.
PLAST-
þakrennur
ryðga ekki!
Einfaldar í samsetningu,
þarf ekki að líma.
#ALFABORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR
SKÚTUVOGI 4 - SÍMI 686755
kusu að halda fjármayninu i rekstrinum
Of lítiö rekstrarfé
hefur oft afdrifaríkar afleiðingar fyrir rekstur
fyrirtækja. Það takmarkar möguleika á hag-
kvæmni í rekstri, aðföng eru keypt í smáum
skömmtum og því ekki á hagstæðasta
verði, birgðir eru oft of litlar, nýting starfsfólks
og tækja er lélegri og fyrirtækið missir af sölu
þar sem ekkert Ijármagn er til markaðs-
átaks.
Álitshnekkir
er algeng afleiðing rekstrarfjárskorts þar
sem fyrirtækið getur ekki staðið við skuld-
bindingar sínar á réttum tíma. Slíkt orðspor
getur valdið erfiðleikum íframtíðinni.
Fjármögnunarþjónusta
Glitnis gerir fyrirtækjum kleift að draga úr
hættunni á rekstrarfjárskorti. Þau sem nýta
sér hana komast hjá því að draga fé úr
rekstrinum þegar fjármagna þarf tæki og
búnað. Bankafyrirgreiðsla skerðist ekki
heldur.
mmmmmmmm
býður flármögnunarieigu og kaupleigu allt
að 100% kaupverðs. Leigugreiðslur er
hægt að laga að væntanlegum tekjum
hvers fyrirtækis þannig að taka má tillit til
árstíðasveiflna í rekstrinum. Láttu ekki tæki-
færinframhjáþérfara.
Okkar peningar vinna fyrir þlg
Glitnirhf
Ármúla 7,108 Reykjavík, sími: 91 -6810 40