Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 41
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988. Fréttir Utlitið dökkt á öllum sviðum kremin hafa reynst mér best Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum; Erfiðleika er farið að gæta í rekstri frystihúsa í Vestmannaeyjum. Fyrsta vísbendingin um erfiðleika frystihúsanna eru vanskil þeirra við bæjarsjóö í dag en þau voru öll í skil- um með gjöld sín um áramótin síð- ustu. Útflutningsverðmæti fiskvinnslu- húsa á landinu er áætlað rúmlega 25 milljarðar á þessu ári. Þá er ekki tahn með rækjuvinnsla og skelfisk- vinnsla. Verðlækkanir erlendis á þessu ári eru taldar um 10%. Hlutur Vestmannaeyja af þessum 25 milljörðum er u.þ.b. 2 milljarðar sem þýðir tap upp á 200 milljónir ef miðað er við heilt ár. Umskiptin frá síðasta ári eru gífurleg því þá voru öll stóru húsin ofan við núllið og Vinnslustöðin skilaði um 40 milljón króna hagnaði eftir afskriftir. Stjóm- arformaður í einu frystihúsinu lét hafa eftir sér að ef svo fer sem horfir verða þeir búnir með allt eigið fé fyr- irtækisins á næsta ári. Taprekstur húsanna er farinn að segja til sín í bænum. Þau voru skuldlaus viö bæjarsjóö um síðustu áramót en ef litiö er á dæmið í dag er annaö uppi á teningnum. Bæjar- sjóður á útistandandi um 85 milljónir króna af því eru um 30 milljónir skuldir frá síðasta ári eða eldri, 55 milljónir álagning þessa árs sem er aö sjálfsögðu ekki allt gjaldfallið. enda rúmir þrír mánuöur eftir af árinu. Gjöld fiskvinnslufyrirtækjanna til bæjarsjóðs, fasteignagjöld, aðstöðu- Erfiðleika er farið að gæta hjá flestum gjald og vatnsskattur eru um 15 millj- ónir í ár og verulegur hluti þeirra er kominn í vanskil. En hver eru vanskil frystihúsanna við bæinn? Amaldur Bjamason bæjarstjóri sagði það trúnaðarmál hvernig skuldastaða hvers og eins væri við bæjarsjóð en erfiðleikar frystihús- anna væru staðreynd. „Þessir erfiðleikar frystihúsanna koma fram í því að greiöslustaöa bæjarsjóðs er lakari en á sama tíma í fyrra. Við höfum gert okkur grein fyrir þessum erfiðleikum því þetta eru fyrirtæki sem hafa staðið sig með ágætum gagnvart bæjarsjóði. Bein afleiðing þess er aö innheimtuhlut- fall bæjarsjóðs er 10% lakara en á sama tíma í fyrra og kemur fram í verri greiöslufjárstöðu hans.“ Nýjarbækur Bókaklúbburinn Veröld velur tólf sinnum á ári BÓK MÁNAÐARINS, sem félagsmönnum er gefinn kostur á að kaupa á hagstæðu verði. Auk þess eiga þeir kost á fjölmörgum bók- um sem aukatilboði og einnig bóka- pökkum, hljómplötum og ýmsum öðrum vörutegundum. Lífríki náttúrunnar Maí-bókin á þessu ári heitir Lífríki náttúrunnar og er eftr Mark Car- wardine, en formála ritar Sir David Attenborough. Hér er um alþjóðlega bók að ræða sem Veröld kynnir í fyrsta sinn hér á landi og býður hana félagsmönnum sínum áöur en hún fer á almennan markað. Bókin er lit- prentuð í stóru broti og er gefin út í samvinnu við Alþjóða náttúruvernd- arsamtökin (World Wildlife Fund), en íslenska gerðin er gefin út af Skjaldborg. Spádómar Nostradamusar Júní-bókin er af allt öðrum toga. Hún heitir Framtíðarsýnir sjáenda - sýnir Nostradamusar og aðrir spá- dómar og höfundurinn er Guömund- ur S. Jónasson. Meginefni bókarinn- ar er spádómar eins mesta spámanns allra tíma, Nostradamusar, einnig hefur hún að geyma ýmsa spádóma er varða ísland og framtíðarhlutverk íslensku þjóðarinnar. Sádanerlivet! Sádan er livet! nefnist nýtt danskt smásagnasafn fyrir framhaldsskóla sem er komið út hjá Bókaverslun Sigfúsar Ey- mundssonar. Sádan er livet er gefið út sem kennslubók fyrir framhalds- skóla og er unnið af dönskukennur- unum Annelise Kárason og Gurli Doltrup sem báðar eru búsettar hér- lendis. í safninu eru tólf danskar smásög- ur, stutt æviágrip höfunda, orðskýr- ingar og spurningar. Sögurnar í smá- sagnasafninu eru eftir Ib Lucas, Karlo Staunskær, Bibi og Franz Berl- iner, Sören Vagn Jacobsen, Jörgen Liljensöe, Johannes Möllehave, Knud Sörensen, Thöger Birkeland, Martha Christiensen, Benny Ander- sen, Kristian Tellerup og Bjarne Re- uter. Sádan er livet! er 144 bls. að stærð og unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Guðjón Ingi Hauksson hannaði kápu. atvinnufyrirtækjum i Vestmannaeyjum Það er víðar en hjá bæjarsjóði sem menn verða fyrir barðinu á greiðslu- erfiðleikum frystihúsanna og þá veröur að taka útgerðina með í dæ- mið. Fréttaritari DV ræddi við for- svarsmenn nokkurra fyrirtækja sem selja útgerð og fiskvinnslu þjónustu sína. Bar þeim öllum saman um að minni peningar væru í umferö. Kæmi þetta m.a. fram í því að nú gerðu menn meira af því að semja um greiðslur til lengri tíma með út- gáfu skuldabréfa eða víxla sem kost- ar sitt á þessum síöustu og verstu tímum. Og þá vaknar spurningin hvað geta bankastofnanir lengi keypt þessi bréf og fjármagnað tap þessara fyrirtækja? Aðalsteinn Sigurjónsson, banka- stjóri Útvegsbankans, vildi lítið láta DV-mynd Omar hafa eftir sér um stöðu bankans. ,,En þessi almenna umræða um erfiðleika í þjóðfélaginu er sannleikur. Ég tek undir að um alvörumál er aö ræða." Guðjón Hjörleifsson í Sparisjóön- um tók í sama streng. „Það er veru- lega farið aö þrengja að og það er á öllum sviöum. Það er sama hvar við berum niöur, í verslun, þjónustu eða hjá einstaklingum. Það er alls staðar sama sagan.“ Því verður ekki á móti mælt að útlitið er dökkt en er allt að fara til fjandans? Blikur eru á lofti en ekki er allt svart. Loönuafuröir eru í hærra verði en mörg undanfarin ár og fleira má tína til. Þó er ljóst að á meðan ekki er tekið á vanda útflutn- ingsatvinnuveganna er varla von að birti til. Ég er með þurra og mjög við- kvæma húð og virðist vera með ofnæmi því ég þoli bókstaflega engar snyrtivörur. Evora hef ég notað í rúm tvö ár og mér líður sérstaklega vel í húðinni. Ég nota moisture-línuna ásamt collagen-kreminu. Guðrún Aradóttir Evora-snyrtivörurnar eru vest- ur-þýskar gæðavörur, fram- leiddar úr náttúruefnum. Þær eru ofnæmisprófaðar og sér- staklega góðar fyrir allar húð- tegundir, bæði fyrir konur. karlmenn (raksturslínan) og börn (papaya-kremin). Útsölustaðir: Verslunin Ingrid, Hafnarstræti 9 Póstsendum, sími 91-24311 Árbæjarapótek Blönduós: Apótekið Snyrtistofa Þórdísar Skagaströnd: Apótekið Akureyri: Heilsuhornið Höfn: Hafnarapótek Egilsstaðir: Elín Kröyer, s. 97-11758 Vestmannaeyjar: Ninja Hella: Sjöfn Árnadóttir, s. 98-75829 Hveragerði: Ölfusapótek Þorlákshöfn: Ölfusapótek FRYSTIKISTUR- FRYSTISKAPAR eins og hlutirnir gerast bestir ■ ■ ¥■ ■ rTiíiV■ i iili i ii i7 ■ ■'i k\ fmmol GRAM frystikistumar hafa hraðfrystihólf, hraðfrystistillingu, körfur sem hægt er að stafla, Ijós í loki, barnaöryggi á hitastilli- hnappi, blikkandi öryggisljós við of hátt hitastig. GRAM frystiskáparnir hafa jafna kulda- dreifingu í öllum skápnum, hraðfrysti- stillingu, öryggisljós fyrir hitastig, útdraganlegar körfur með vörumerki- miðum, hægri eða vinstri opnun. Og auðvitað fylgir hitamælir og ísmola- form öllum GRAM frystitækjunum. Kistur: YTRI MÁLlCM. hæð breidd dýpt rými í lítrum orkunotk. frystiafköst kWst/ kg/ sólarhr. sólarhr. VERÐ afborg. st.gr. HF-234 85,0 x 80,0 x 69,5 234 1,15 17,6 35.450 (33.678) HF-348 85,0 x 110,0 x 69,5 348 1,30 24,0 41.460 (39.387) HF-462 85,0 x 130,0 x 69,5 462 1,45 26,8 47.740 (45.353) H-590 90,0 x 160,0 x 67,5 590 2,85 47,8 59.850 (56.858) Skápar: FS-100 71,5 x 55,0 x 60,6 100 1,06 16,3 29.990 (28.491) FS-175 106,5 x 55,0 x 60,6 175 1,23 24,5 38.200 (36.290) FS-146 86,5 x 59,5 x 62,1 146 1,21 18,4 36.100 (34.295) FS-240 126,5 x 59,5 x 62,1 240 1,40 25,3 47.570 (45.192) FS-330 175,0 x 59,5 x 62,1 330 1,74 32,2 62.980 (59.831) 3 Góöir skilmálar ýigð Traust þjónusta ^anix Hatuni 6A Simi (91) 24420

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.