Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Úrelt flokkaskipan Þeir pólitísku atburðir, sem átt hafa sér stað að und- anförnu, hljóta enn einu sinni að vekja menn til um- hugsunar um stjórnskipan og kosningalög. Stjórnarslit- in í síðustu viku eru ekki einsdæmi. Oftar heldur en hitt hafa samsteypustjórnir tveggja eða fleiri flokka hrökklast frá völdum áður en kjörtímabilinu lýkur. Engin þriggja flokka stjórn hefur setið í fjögur ár. Að vísu var líf ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar óvanalega stutt. En hún bar feigðina með sér frá upphafi og lífslík- ur hennar voru aldrei miklar út frá sögulegum sjónar- hóli. Nú er það ekki svo að málefnaágreiningur sé djúp- stæður milli þeirra þriggja flokka sem að þeirri stjórn stóðu. Þvert á móti má segja að flokkarnir hafi færst nær hver öðrum á síðari árum og tilvera þeirra byggist að mörgu leyti á gömlum hefðum eða hagsmunum. Flokkaskipan á íslandi er tímaskekkja og stendur ís- lenskum stjórnmálum fyrir þrifum. Upplausnin í póh- tíkinni þessa dagana er ekki flokkum né foringjum til framdráttar og ef þeim tækist að taka ofan flokkspóh- tísk gleraugu sín myndu þeir eflaust viðurkenna að vandinn er fólginn í því að flokkarnir eru of margir. Flokkshagsmunir þvælast fyrir stjórnarmyndunum, htlir hópar innan hvers flokks geta spillt fyrir stjórnar- myndun og samstarfi og einstakar persónur geta ráðið úrslitum um það hvort landinu er stjórnað eða ekki. Menn hafa talað um að línur hafi skýrst milli vinstri og hægri í núverandi stjórnarkreppu. Gott og vel. Sjálf- stæðisflokknum hefur verið ýtt til hhðar en hverju erum við nær? Stjórnarmyndun vinstri flokkanna hefur geng- ið brösuglega svo að ekki sé meira sagt. Og er það ekki eftirtektarvert að þegar Framsóknarflokkurinn starfar með Sjálfstæðisflokknum er það kölluð hægri stjórn, en þegar hann hefur forystu um samstarf við aðra flokka er það köhuð vinstri stjórn. Ber það vott um skýrar lín- ur? Eða ber það vott um skýrar línur að Sjálfstæðis- flokkurinn telur samstarf við Alþýðuflokkinn hagstæð- ast th að geta stjórnað til hægri? Borgaraflokkurinn veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga og virðist geta samið bæði til vinstri og hægri. Flokkaskipanin er full af þverstæðum. Langsamlega mestur meirihluti kjósenda vill fara hinn breiða milh- veg í stjórnmálunum, hafnar öfgunum th hægri og vinstri. Til skamms tíma hefur þessi breiðfylking fundið sér farveg í Sjálfstæðisflokknum en margt bendir til að sú fylking hafi riðlast með varanlegum hætti. Sjálfstæðis- flokkurinn í dag er ekki sá sami Sjálfstæðisflokkur og hann var, hvorki í augum kjósenda né heldur inn á við. Núverandi forysta hefur ekki þá ímynd frjálslyndis og víðsýnis sem gerir flokknum kleift að höfða til ahra átta. Ef þau örlög bíða Sjálfstæðisflokksins að sitja í fjórðungsfylgi virðist það ástand festast í sessi að hér þurfi að minnsta kosti þrjá flokka th að mynda ríkis- stjórn. Ekki er það gæfuleg framtíð fyrir þjóðina. í ljósi þessarar þróunar er það mikhvægasta verkefni íslenskra stjórnmálamanna, hvar í flokki sem þeir standa, að stuðla að breyttri flokkaskipan og nýrri kosn- ingalöggjöf. Það verður að skapa skhyrði fyrir tveggja flokka kerfi og um leið persónubundnara kjöri þing- manna. íslenska þjóðin hefur ekki efni á árvissum stjórnarkreppum og þófi hthla sérhagsmunahópa sem hafa það í hendi sér hvort og hvemig landinu er stjómað. Ehert B. Schram „Að mínu mati má rekja vandræði Sjálfstæðisflokksins í dag allt aftur til áranna eftir 1963, þegar viðreisn efnahagslífsins lauk,“ segir m.a. í greininni. - Bjarni Benediktsson, formaður þá - Þorsteinn Pálsson, formað- ur nú. Staða Sjálfstæð- isflokksins Staða Sjálfstæðisflokksins á landsvísu er í meira lagi ótrygg um þessar mundir og ég fæ ekki betur séð en borgarstjórinn í Reykjavík sé þeirrar skoðunar að flokkur hans verði að hasla sér völl í stjórn- arandstöðu fram yfir næstu borg- arstjórnarkosningar:. Raunar sýn- ist mér að þinglið Sjálfstæðis- flokksins hafi eftir síðustu áramót sýnt stöðugt minnkandi áhuga á því að vera í þeirri ríkisstjórn sem nýlega lagði upp laupana en það þarf auðvitað ekki að jafngilda því að þingmenn séu sama sinnis og borgarstjóri virðist vera. Samt er ekki einleikið hve Þorsteinn Páls- son forsætisráðherra var fljótur út af niðurfærsluleiðinni eftir neitun ASÍ og ákveðinn í að láta sig engu skipta óskir samstarfsflokkanna um að endurskoða lokatillögur um efnahagsmálin. Án efa þarf Sjálfstæðisflokkurinn að endurskoða stöðu sína í ljósi síð- ustu alþingiskosninga og lélegrar útkomu í skoðanakönnunum. Tals- menn Sjálfstæðisflokksins hafa tal- ið flokkinn á uppleið, hægt og bít- andi en það verður ekki lesið út úr þessum könnunum þótt menn séu greinilega alhr af vilja gerðir til að fá þess konar útkomu. Sann- leikurinn er nefnilega sá að skoð- anakannanir sýna að Sjálfstæðis- flokkurinn gæti verið í sömu eða jafnvel lakari stöðu og hann var í í alþingiskosningunum 1987. Reynslan er einfaldlega sú að flokkurinn hefur yfirleitt fengið lakari útkomu í kosningum en skoðanakönnunum. Sé þaö haft í huga og einnig það að óvissuat- kvæðum fjölgar en fækkar ekki er mjög líklegt að fylgi Sjálfstæðis- flokksins sé jafnvel minna en í kosningum 1987 þegar hann fékk rúmlega 27% greiddra atkvæða á landsvísu og ekki nema 29% í Reykjavík en þar hefur fylgi hans löngum verið við 40% í þingkosn- ingum. Það sem kannski er verst af öllu fyrir Sjálfstæðisflokkinn er það sem liggur í loftinu að hann muni ekki auðveldlega endurheimta fyrri stöðu sína en það gat hann léttilega t.d. eftir ósigrana miklu 1978, bæði í Reykjavík og á lands- vísu, ef Utiö er á úrslitin 1979 og sérframboð talin með. Þetta stað- festist síðan í kosningaúrslitum 1983 þegar flokkurinn fékk 38,7% greiddra atkvæða sem er alls ekki slæm útkoma fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Þá liggur beinast við að spyrja hvort Sjálfstæðisflokkurinn geti við núverandi skilyrði gengið í end- umýjun lífdaganna? Davíð Odds- son borgarstjóri sagði í ræðu í vor að þaö væri „umhugsunarefni“ að Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki að auka fylgi sitt á sama tíma og Borg- araflokkurinn væri að tapa í könn- unum. En á þessu er einfóld skýr- ing. Sjálfstæðisflokkurinn er inni í KjaUariim Ásmundur Einarsson útgáfustjóri hnignunarskeiöi sem óvist er að hann geti rifið sig út úr. Um og upp úr 1970 áttu Sjálfstæð- ismenn um tvær framtíðarleiðir að velja. Önnur var sú að þeir semdu sín í milli um framtíðina og stefndu vísvitandi að meirihluta meöal þjóðarinnar og veittu þannig flokkaskipan og kjördæmaskipan siðferðilegt náðarhögg. Hin leiðin lá út í innanflokksátök og hnignun og út á þá braut lagði Sjálfstæðis- flokkurinn og hefur veriö í sam- fellt tuttugu ár. Klaufasparkið í Albert Guðmundsson, skömmu fyrir síðustu alþingiskosningar, innsiglaði þessa þróun, klofningur varð staðreynd og hugsjónir lágu á jörðinni. Áðurnefndir tveir kostir Sjálf- stæðisflokksins voru mikið ræddir um 1970 og sér í lagi eftir fráfall Bjama Benediktssonar svo að aug- ljóslega má tala um að flokkurinn hafi valið en ekki hrakist. Það sem síðan gerðist er almennt þekkt. Stærsti flokkur þjóðarinnar reynd- ist ekki hafa tæki til að leysa úr forystuvandamálum. Hvorki Geir Hallgrímsson né Gunnar Thor- oddsen höíðu styrk til að sameina flokkinn. Albert studdi ekki ríkis- stjórn Geirs 1974-1978 vegna þess að hana skorti frjálshyggju aö því er hann sagði í ræðu. Þingflokkur- inn var ekki sameinaður um leift- ursóknina 1979 sem þó var tiltölu- lega einfold leið til að ná verðbólgu niður án atvinnuleysis með sam- drætti í ríkisútgjöldum og auknum lántökum. Og þannig mætti lengi rekja raunir sem hafa orðið að bók- menntagrein í landi voru, aö ekki sé minnst á upplausn og ráðleysi sem blasað hefur við öllum á síð- ustu dögum, vikum og mánuðum. Afleiðingin er sú að óákveðnir kjósendur eru nú langstærsti flokkur þjóðarinnar. Að mínu mati má rekja vandræði Sjálfstæðis- flokksins í dag allt aftur til áranna eftir 1963 þegar viðreisn efnahags- lífsins lauk. Hnignun þess afls sem löngum hefur búið í Sjálfstæðis- flokknum verða ekki gerð skil í blaðagrein af þessu tagi. En ein- hvers staðar verður að byrja og það er ekki sjálfgefið upphaf að upp- reisnarmenn frjálshyggjunnar lýsi því nú yfir hver eftir annan að póli- tík þeirra hafi mistekist. Vissulega var pólitíska framkvæmdin mein- gölluð og sumir voru bara uppreisn- armenn í atvinnuskyni og aðrir hreinlega andvígir, þegar á reyndi. Það er opinbert leyndarmál að borgarstjórinn í Reykjavík frábað sér frjálshyggjupólitík vissrar teg- undar fyrir síðustu borgarstjómar- kosningar og í vor sagði hann í ræðu að þeim uppreisnarmönnum frjálshyggjunnar heföi mistekist það sem skyldum flokkum í öðrum löndum hafði tekist, að hrekja vinstri öflin á málefnalegt undan- hald og halda þeim þar. Morgun- blaðið hefur talið frjálshyggjuna of „útlenda" og Friðrik Sophusson, varaformaður flokksins og ráð- herra, vill að vikið verði af braut „harörar" hugmyndabaráttu. Um þessi viöhorf er það eitt að segja að ef þau leiða til skynsamlegrar endurskoðunar, sem hefði mátt koma fyrir löngu, þá er það af hinu góða. Annars erum við einfaldlega að tala um enn eina uppgjöfina. Sjálfstæðismenn segja að ástand- ið sé ekki betra hjá hinum gömlu flokkunum, í það minnsta sósíal- ísku flokkunum, sem nú ámálga sameiningu rétt eina ferðina, og vissulega er nokkuð til í því en bætir stöðu Sjálfstæðisflokksins í engu. Sameining við Borgaraflokk- inn mundi styrkja stöðu hægri kantsins á Alþingi og eflaust eitt- hvað í þingkosningum. En það er innbyggt í hnignunina eins og sak- ir standa að Sjálfstæðisflokkurinn nái alls ekki sinni fyrri stöðu nema miklar breytingar eigi sér stað í flokknum sjálfum. Hann hefur ver- ið að hverfa inn í sjálfan sig og það er eklji auðvelt mál að styrkja liðs- kostinn eins og völdum í flokknum er háttað. Ásmundur Einarsson. „Það sem kannski er verst af öllu fyrir Sjálfstæðisflokkinn er það sem liggur 1 loftinu, að hann muni ekki auðveld- lega endurheimta fyrri stöðu sína.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.