Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988.
17
Lesendur
Hver er hann
þessi Eiríkur FJalar?
Þórunn Eyfjörð hringdi:
Mér leikur forvitni á að vita hver
hann er, þessi Eiríkur Fjalar, sem
er tíður gestur í Sjónvarpinu við
ýmis taekifæri. Fyrst sá ég hann í
barnatíma Sjónvarpsins og þá lék
hann á gítar, söng og sagði frá sjálf-
um sér. Mér kom hann kunnuglega
fyrir sjónir en gat ekki komið nafn-
inu eða manninum almennilega fyrir
mig.
Nú skýtur Eiríki þessum aftur upp
á skermi sjónvarpsins og er þá farinn
að auglýsa skafmiðana frá Happ-
drætti Háskólans. Hann notar við
þetta ýmsar aðferðir, sem mér myndi
aldrei detta í hug að nota, svo sem
að hefla af miðunum og nú síðast að
skafa af þeim með einhverju raf-
magnstæki.
Mér finnst þessi Eiríkur ekki til
þess fallinn að koma fram í auglýs-
ingum í sjónvarpi, einkum vegna
úthtsins, hann er t.d. ekki nógu
smekklega klæddur, eins og títt er
um unga menn nú til dags, með hár-
lubba og of stórar tennur. En mér
þætti gaman að fá upplýsingar um
hvaðan Eiríkur er eða hverra
manna. Þetta ættarnafn er nefnilega
ekki mjög algengt hér á landi.
Lesendasíða DV hefur ekki, þrátt
fyrir eftirgrennslan, getað komist aö
því hverra manna Eiríkur Fjalar er.
- Það gæti hins vegar komið í ljós
ef hann ætti stórafmæli í náinni
framtíð og ætt hans rakin af slíku
tilefni eins og títt er um afmæhsbörn
nú til dags.
Ekki nógu smekklegur i útliti? Eirikur Fjaiar á tali við fréttamann.
KEA-lifur
hjá Jóni?
Guðrún hringdi:
Á einstaklega skemmtilegri mynd,
sem birtist í DV í gær (19. sept.),
mátti sjá þá Jón Baldvin Hannibals-
son og Ólaf Ragnar Grímsson sitja
að snæðingi heima hjá hinum fyrr-
nefnda. Rétturinn var sagöur lifur
matreidd af húsmóðurinni, Bryndísi.
Á myndinni sýndist mér-ég sjá á
borði í bakgrunni niðursuðudós frá
KEA. Það skyldi þó ekki vera að
þarna hafi þeir snætt KEA-lifur. Eða
var kannsld bara rauðkál í dósinni?
- Ég vildi rétt geta um þetta þar sem
eiginkona íjármálaráðherra flíkar
því mjög hve ódýrt hún kaupi í mat-
inn o.s.frv. - Svolítiö skondið, ekki
satt?
Kvennalistakonur:
Hvenær
tilbúnar í
ríkisstjóm?
Sigríður Eymunds skrifar:
Mig langar til að varpa fram þeirri
spurningu til kvennalistakvenna
hvenær þær verði tilbúnar í ríkis-
stjórn. Ég hélt því miður að innihald-
ið væri í einhverju samræmi við það
sem þær hafa sagt.
Nú gátu þær einmitt sýnt mátt sinn
og reynt að bæta þann óstjórnar-
graut er búið var að sjóða. Mitt at-
kvæði fer örugglega ekki til þeirra
ef þær halda áfram á sömu braut og
gera ekki annað en „bara tala“.
Hollráð til
BSRB og ASÍ
Launþegi skrifar:
Ég vona að þegar talsmenn BSRB
og ASÍ verða kallaðir á fund stjóm-
valda næst þá geri þeir sameiginlega
kröfu til þess aö hinn illræmdi mat-
arskattur verði felldur niður.
Annað er sem þeir mættu líka gera
kröfu um. Það er að persónuafsláttur
hjá einstakhngum verði hækkaður
því það er óhagganleg staðreynd að
einstaklingar eru þeir sem mest eru
skattpíndir. - Ekki fá þeir einar eða
aðrar bætur sem fjölskyldufólk er
sífellt að fá, fyrir utan að hafa skatt-
fríðindi, barnabætur, íjölskyldubæt-
ur og ýmislegt annað. Éinstaklingur-
inn er illilega skattpíndur og ég skora
á launþegasamtökin að krefjast úr-
bóta í þeim málum.
Annað mál, sem launþegasamtökin
eiga að taka upp í samningum, er það
að launþegi geti hætt að vinna 65 ára
gamall og fái elhlífeyri frá þeim tima,
í stað 67 ára eins og nú er. Víða er-
lendis geta menn hætt að vinna við
60 ára aldursmarkið, svo við erum
langt á eftir í þessum málum.
Að lokum legg ég til að fólk geti
tekið helminginn af sínu fríi að vetri
ta.
BREIÐHOLTSBÚAR
KEMUR TIL YKKAR
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur uni áratuga skei'ð verið
umsvifamikill bakhjarl einstaklinga sem fyrirtækja á sviði fjár-
mála.Ætíö hefur vcrið kostað kapps um að veita fjölþætta og jafn-
framt persónulega þjónustu. Nýja útibúið í Brciðholti er sérstaklega
ætlað íbúum hverfisins og fyrirtækjum, stórum sem smáum, ungum
sem öldnum. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis samgleðst ykkur
yfir uppbyggingu eins stærsta og vistlegasta borgarkjarna Reykjavík-
ur. Verið velkomin í viðskipti við sparisjóðinn í ykkar eigin hverfi.
SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
- í BREIÐHOLTI
ÁLFABAKKA 14 • SÍMI 670500